Morgunblaðið - 03.03.1992, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 03.03.1992, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992 43 Jóhanna A. Eyjólfs- dóttir - Kveðjuorð vegna lipurs talanda, en hann þótti mælskur. Halldóra fæddist að Laugavegi 23, en lengst af bjó hún með foreldr- um sínum að Ingólfsstræti 8. Magn- ús faðir hennar var vel efnum búinn og lét sér mjög annt um einkadótt- ur sína, enda mat hún hann mjög mikils. Hún dvaldist löngum í Stífl- isdal og þar kenndi hann henni á unga aldri að sitja hest, hjóla og synda, náði hún svo góðum tökum á þeirri íþrótt að hún kenndi sund. Þá hafði hún tónlistarhæfileika, einkum góða söngrödd. Söng hún mikið í kórum undir stjórn Sigfúsar Einarssonar, meðal annars á Al- þingishátíðinni 1930. Hún sótti hús- mæðraskóla í Kolding á Suður-Jót- landi og dvaldist oft í Kaupmanna- höfn og var þar meðal annars við nám í píanóleik, en faðir hennar bjó þar um nokkurt skeið. - Af þessu má sjá að Halldóra fékk í æsku og uppvexti óvenjufjölþætta menntun miðað við það sem þá gerðist. Þann 11. október 1930 giftist hún Þórði Eyjólfssyni frá Kirkju- bóli í Hvítársíðu, síðar prófessor í lögfræði, en lengst af hæstaréttar- dómara, einum merkasta laga- manni þessarar aldar. Eftir það var húsmóðurstarfið aðalstarf hennar eins og flestra kvenna af hennar kynslóð. Heimili þeirra stóð lengst af við Sellandsstíg 3 sem síðar varð Sólvallagata 53. Þau eignuðust þijú börn: Magnús, f. 6. september 1932, sem er forstöðumaður Upplýsinga- og blaðadeildar Atlantshafsbanda- lagsins á Islandi. Hann á þrjú börn og tvö barnabörn. Ragnheiði, f. 22. febrúar 1934, sem er gift Magnúsi Hjálmarssyni, rekstrarstjóra tæknideildar Ríkisút- varpsins. Hún hefur eignazt fjögur börn, og eru tvö á lífi, og fímm barnabörn. Guðrúnu, f. 6. janúar 1936, gifta Einari Þorlákssyni listmálara. Hún á fjögur börn og fjögur barnabörn. Þórður lézt 27. júlí 1975 og síðustu árin bjó Halldóra á Elliheimilinu Grund. Eins og greint er í upphafi var Halldóra af rótgrónum Reykjavík- urættum. Í föðurætt stóðu að henni útvegsbændur og miklir sjósóknar- ar sem jafnframt voru ötulir jarð- yrkjumenn. Ræktuðu þeir víðlend tún á þeim slóðum þar sem nú er hús iðnaðarmanna, Hallveigarstíg- ur og Aðventkirkjan, en túnin fóru undir byggð snemma á þessari öld. Þessi hluti bæjarins, Ingólfsstræti, Þingholtsstræti og neðri hluti Laugavegar, var Halldóru mjög kær. Hafði hún allt til æviloka mik- ið yndi af að fara þar um og gladdi hana ekki sízt að mörg gömlu hús- in standa þar enn. Hún var því Reykvíkingur í húð og hár og var vel kunnug fjölda Reykvíkinga sem fæddir voru um miðja síðustu öld. Þótt bærinn stækkaði, fárið væri að kalla hann borg og annað breyttist eftir því, hélt hún fast við gamla góða Reykjavíkursiði sem voru henni inn- grónir og miðlaði þeim þannig til nýrra kynslóða. Ég hef þekkt Halldóru og Þórð frá því ég man fyrst eftir mér, en þau voru heimilisvinir foreldra minna. Alloft kom ég til þeirra og mátti um skeið kallast þar heima- gangur þegar við Magnús sonur hennar þýddum rit Milovan Djilas: Hin nýja stétt. Og síðar var ég sam- starfsmaður Þórðar sem ritari Hæstaréttar og við það styrktust kynni á ný. Mér fannst alltaf mikið til hennar koma. Hún var hávaxin og fríð sýnum, virðuleg í fasi og kurteis að hætti eldri kynslóðar - þó algerlega án þess að mér fynd- ist þvingandi. Ég varð þess var af tali hennar að hún var orðvör og lagði gott til ef hallmæli heyrð- ust. Nú er langri og farsælli ævi lok- ið og ekkert er í sjálfu sér eðlilegra en að kona yfir nírætt kveðji þenn- an heim. En þó er sem þráður slitni til veraldar sem var og því fylgir óneitanlega söknuður. Ég sam- gleðst vandamönnum með að hafa notið samvista við hana jafnlengi og raun ber vitni, en flyt þeim jafn- framt samúðarkveðjur á skilnaðar- stund. Sigurður Líndal. Fædd 2. desember 1906 Dáin 22. febrúar 1992 Morguninn sem mamma hringdi og sagði okkur fréttirnar, að amma væri dáin, var einn af þeim dögum sem okkur finnst við vera allt of langt frá öllum okkar nánustu. Fjar- lægðin og tveir ungir synir, sem stanslaust þurfa athygli, veldur því að erfitt er að skilja það að við eig- um ekki eftir að hitta ömmu og langömmu Jóu þegar við komum til Islands næst. Það hafa margar glaðar minning- ar flogið í gegnum kollinn á mér undanfarna daga. Allt frá því að amma leyfði mér, sem smákrakka, og fyrsta barnabarni að „hjálpa" til við að bóna gólf og umturna öllum húsgögnum í lestrarleik, og þangað til í fyrra þegar við heim- sóttum ömmu í síðasta sinn, með langömmubarn nr. 2 nýfætt. A milli eru ótal aðrar góðar minn- ingar. Frá heimsóknum ömmu og afa til okkar í Danmörku þegar við vorum litlar stelpur. Seinna allar heimsóknirnar á Njálsgötuna. Mikið var notalegt að koma í heimsókn á milli aukatíma í skólanum og á öll- um öðrum tímum. Jólaundirbúning- urinn í blómabúðinni, annasamt en sérstök stemmning. Og ekki minnst frá öllum jólunum sem við höfum haldið hátíðleg með ömmu. Að- fangadagskvöld hjá ömmu Jóu, voru jól með öllu tiiheyrandi. Fjöl- skyldan samansöfnuð, góður matur, sófinn yfirfullur af gjöfum og alveg sérstök stemning. Það var sannar- lega ekki fyrr en í fulla hnefana sem amma gafst upp á að halda jól fyrir okkur. Ég er viss um að fæstir séu svo lánsamir að eiga jafn glæsilega ömmu. Og enn færri ömmu sem hægt var að tala við um allt milli himins og jarðar, á jafn notalegan og skemmtilegan hátt. Ömmu sem hægt var að grínast við og hlæja jafn innilega með. Ekki minnst þeg- ar amma var að segja frá og herma eftir hinum og þessum. Það eru ófá skiptin sem við höfum setið saman með tárin í augunum af hlátri. Þeir fara á mis við mikið, langömmu- strákarnir, að kynnast ömmu ekki í fullu fjöri. Við vonum að amma sé búin að fínna afa Gústa fyrir handan og alla þá sem á undan henni eru farnir. Það átti engan veginn við ömmu að vera ekki í „tipp-topp“-formi og vera eins og manneskja eins og hún orðaði það. Við minnumst ömmu með sökn- uði. Anna Hulda, Halldór, Matthías og Stefán Jón. í dag, þriðjudaginn 3. mars, kveðjum við í hinsta sinn elskulega ömmu okkar, ömmu Jóu, er hún verður jarðsett við hlið afa Gústa en þau munu nú sameinast á ný eftir tæpra 19 ára aðskilnað. Okkur langar til að minnast okk- ar elskulegu ömmu í örfáum orðum. Frá því við munum hefur hún verið foringinn og fyrirmynd í okk- ar kvennaskara, tveggja dætra og fimm dætradætra. Það átti ekki við ömmu að vera aðgerðalaus og vildi hún helst alltaf vera að allan daginn, annaðhvort heima við eða á þönum út um allan bæ og virðist þetta einnig vera ríkj- andi í afkomendunum. Hún hefur mátt muna tímana tvenna enda af þeirri kynslóð sem hefur upplifað meiri þjóðfélags- breytingar en flest okkar eiga eftir að upplifa og var gaman að hlusta á hana þegar hún var að rifja upp gamla tíma svo fjarri okkur barna- börnunum sem lifum í nútíma þjóð- félagi og þekkjum ekki annað. Eitt það sem einkenndi ömmu sérstaklega var að hún var svo mikil dama. Aldrei munum við eftir henni öðruvísi en vel til hafðri, og aldrei mátti vanta farðann, púðrið né varalitinn þrátt fyrir að aldurinn væri farinn að segja til sín. Það var sama hvar hún var eða hvert hún fór, ailtaf urðu snyrtivörurnar að vera á sínum stað. Við stelpurnar og hún áttum það til að grínast með það við hana hvað hún var pjöttuð, enda viðurkenndi hún það fúslega. Við vorum líka ásáttar um að það væri betra að vera pjattaður en að hugsa ekkert um útlitið. Það eru margar góðar stundir sem riíjast upp þegar við setjumst niður og horfum aftur. Eins og þegar við sváfum hjá ömmu í nota- lega rúminu hennar sem okkur fannst svo stórt. Þá fengum við að kaupa smá nammi og jafnvel að vaka aðeins lengur en vanalega. Eins er það minnisstætt þegar við vorum fyrir jólin að gera jólaskreyt- ingar í kjallaranum hjá ömmu og afa og ekkert var til þess sparað að gera okkur ánægðar. Þótt amma sé nú farin þá lifir hún áfram með okkur. Við viljum þakka henni samfylgdina og allar þær stundir sem við áttum með henni um leið og við kveðjum hana. Við erum þess vissar að hún er nú komin á góðan stað og líður vel hjá afa. Þér lof vil ég ljóða, þú lausnarinn þjóða, er gafst allt hið góða af gæzku og náð. Þá miskunn og mildi ég miklaði' ei, sem skyldi, þótt vegsama’ æ ég vildi þá vizku og dáð. (Bjami Eyjólfsson.) Við biðjum algóðan Guð að fylgja ömmu og vera mæðrum okkar styrkur á þessari stundu svo og okkur hinum. Gústi, Þóra, Sísí og Hanna Gústa. Jóhanna Andrea Eyjólfsdóttir fæddist 2. desember 1906 í Borg- um, Nesjahreppi í A-Skaftafells- sýslu en fluttist til Reykjavíkur eins árs gömul með foreldrum sínum, þeim Eyjólfi Bjarnasyni og Þórdísi Sigurðardóttur. Hún var þriðja í röðinni af sex systkinum. Elstur var Vilhjálmur sem kvæntist Jóhönnu Lúðvíksdóttur, þau eru bæði látin, Þorgrímur Stefán, framkvæmda- stjóri í Keflavík kvæntur Eiríku Árnadóttur og lifir hún mann sinn, Rannveig sem giftist Sigurði Jónas- syni pípulagningameistara hann er látinn, Ásgerður, sem giftist Elíasi Þorsteinssyni framkvæmdastjóra í Keflavík, hann er látinn og Bjarni framkvæmdastjóri Kristniboðssam- bandsins og formaður KFUM, sem einnig er látinn. Jóhanna giftist hinn 26. desem- ber 1931, Ágúst Jónssyni, sem fæddur var 31. ágúst 1901, en þau höfðu kynnst er bæði unnu saman í Björnsbakaríi. Áttu þau saman tvær dætur, Ragnheiði sem gift var Jóni L. Sigurðssyni lækni og eiga þau saman þijár dætur, Jóhönnu Huldu gift Halldóri Páli Ragnars- syni, Ágústu Rögnu og Sigrúnu Eddu gifta Agli Þór Sigurðssyni, og Kristínu Þorsteinsdóttur sem er gift undirrituðum og eigum við saman tvær dætur Jórunni Þóru gifta Einari Magnúsi Ólafssyni og Jóhönnu Ágústu. Ágúst og Jóhanna bjuggu allan sinn búskap á Njálsgötu 65, í Reykjavík, þar sem Ágúst rak fyrst bakarí og verslun í samvinnu við Alfreð Nielsen en síðan ráku þau hjónin þar Blómabúðina Hvamm og voru mjög samhent í þeim rekstri. Jóhanna hélt rekstrinum áfram í nokkur ár eftir að Ágúst lést eða þar til Stefán Hermanns í Stefáns- blómum tók við rekstrinum árið 1976 og reyndist hann Jóhönnu ein- staklega traustur og góður vinur. Ég kynntist fjölskyldunni fyrst þeg- ar ég fór að líta hýru auga til yngri dóttur þeirra hjóna og var mér strax mjög vel tekið af þeim og reyndust þau mér alla tíð bestu tengdafor- eldrar. Þau áttu mjög fallegt og myndar- legt heimili á Njálsgötunni og var þar gott að koma. Jóhanna var gestrisin kona, tók vel á móti fólki og naut þess að hafa fallega hluti í kringum sig. Hún tók talsverðan þátt í félags- starfsemi, starfði m.a. með Thor- valdsenfélaginu. Ágúst féll frá árið 1973 og bjó Jóhanna síðustu 18 árin á sínu fal- lega heimili. Síðustu þrjú árin voru henni erfið. Hún var ónóg sjálfri sér og fann oft að hún gat ekki gert allt það sem hún gjarnan vildi. Að eðlisfari var hún mjög dugleg kona, einstaklega snyrtileg með allt sem í kringum hana var og sjálfa sig. Þetta fór því illa í hana en stolt hennar var mikið og helst vildi hún ekki þiggja þá hjálp sem henni stóð til boða. Hluta þess tíma var Jóhanna í Dagvistun á Dalbraut en síðasta hálfa árið dvaldi hún á Elliheimilinu Minning: Fæddur 8. janúar 1895 Dáinn 20. febrúar 1992 Vegna andláts afa míns langar mig að minnast hans með nokkrum línum. Ég er fæddur í Litla-Saurbæ eins og fleiri af mínum frændsystk- inum, og alinn upp stóran hluta af minni æsku hjá afa og ömmu minni, Margréti Kristjánsdóttur, sem lést 1964 og afí syrgði mjög alla tíð. Þau bjuggu lengst af í Litla-Saurbæ í Ölfusi, í 32 ár, miklu myndarbúi, og stóru á þeirra tíma mælikvarða. Þeim varð níu barna auðið sem öll eru á lífi og þrjátíu barnabarna, auk ijórða og fímmta ættliðs, eða 83 afkomenda alls, sem nú eru á lífi. Það var oft mannmargt á heimili afa og ömmu enda húsakostur góð- ur og mikil gestrisni og allir vel- komnir. Afí var dugnaðarforkur mikill, ósérhlífínn og kappsfullur, og gustaði þá stundum af honum, svo mér þótti nóg um, og ekki vor- um við alltaf sammála. Eitt sinn er ég heimsótti hann á Grund, fyrir nokkrum árum og við töluðum um liðna tíð eins og svo oft, þá strauk gamli maðurinn mér um vangann og sagði „við áttum ekki alltaf skap saman Magnús minn“. Afí var trúaður maður og heiðarlegur, og vildi vera sáttur við guð og menn, eins og hann sagði stundum. Ég heimsótti afa nokkuð reglu- lega, bæði að Ási í Hveragerði og Grund í Reykjavík, þar sem hann dvaldist síðari ár. Hann hafði gott minni, og oft hlustuðu börn mín með athygli á sögur af sjómennsku hans á togur- um og þegar þau amma voru að byija búskap í moldarkofum í Brunnárvallakoti, eins og hann sagði sjálfur, ogþeirri hörðu lífsbar- áttu á þeim tímum. Ég minnist með hlýhug og þakklæti þeirra stunda, Grund og virtist hún una því vel. Fjölskylda Jóhönnu er þakklát starfsfólki Dagvistunar á Dalbraut og Elliheimili Grundar fyrir góða umönnun sem hún naut á meðan hún dvaldi þar. Ég þakka Jóhönnu og Ágúst fyr- ir þau ár sem við máttum eiga sam- an og bið þeim báðum blessunar Guðs. Sigurður Örn Einarsson. Kveðja frá Thorvaldsens- félaginu Jóhanna Eyjólfsdóttir gekk til liðs við Thorvaldsensfélagið 29. október árið 1962. Ljúfar eru minn- ingarnar í hugum félagskvenna eft- ir þijátíu ára samveru í félagsstörf- um með Jóhönnu. Jóhanna Eyjólfsdóttir var glæsi- leg kona sem eftir var tekið hvar sem hún fór sökum fríðleika og tígulegrar framgöngu. Hún var allt- af fallega klædd og fáguð í fram- komu. Starfsvettvangur Jóhönnu var lengst af á Njálsgötu 65, þar rak hún áratugum saman ásamt manni sínum, Ágúst Jónssyni, blómabúð- ina Hvamm og í sama húsi var einn- ig heimili þeirra og dætranna Krist- ínar og Ragnheiðar. Vinnudagur Jóhönnu hefur því æði oft verið langur þar sem mikil vinna var við verslunina og heimilisrekstur alla tíð mikill og glæsilegur. Störf Jóhönnu fyrir Thorvalds- ensfélagið voru unnin af sömu smekkvísi og virðuleika er ein- kenndi öll hennar störf. Jóhanna var greiðvikin og hjálpsöm og naut sín þar af leiðandi vel í störfum fyrir líknarféiag. Félagskonur í Thorvaldsensfélaginu þakka Jó- hönnu fyrir vel unnin störf fyrir félagið og samfylgdina í gegnum árin og senda dætrum hennar og fjölskyldum þeirra samúðarkveðjur. Ingibjörg Magnúsdóttir. sem að baki eru með afa mínum, og veit að nú er hann kominn í faðm þeirrar sem hann hefur svo lengi saknað, og við afkomendur eigum svo margar góðar minningar um. Mér fínnst þessar ljóðlínur eiga vel við sem hinsta kveðja til afa míns, hvíli hann í guðs friði. Og nú fór sól að nálgast æginn og nú var gott að hvíla sig, og vakna upp ungur einhvem daginn með eilífð glaða kringum þig. Nú opnar fangið fóstran góða og faðmar þreytta bamið sitt, hún býr þar hlýtt um bijóstið móða og blessar lokað augað þitt. Hún veit, hve bjartur bjarminn var, þótt brosin glöðu sofi þar. (Þorsteinn Erlingsson.) Magnús Jón. Jón Helgason frá Litla-Saurbæ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.