Morgunblaðið - 03.03.1992, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992
55
V estmannaeyjar:
Hrönn Róbertsdótt-
ir fegurðardrotting
HRÖNN Róbertsdóttir var kjörin ósmyndafyrirsæta og fegurð-
ardrottning Vestmanneyja síðastliðið laugardagskvöld.
Hrönn er fædd 23. mars 1973
og stundar nám í Menntaskólan-
um við Hamrahlíð. Stúlkumar 11,
sem tóku þátt í keppninni, kusu
Kristjönu Ingólfsdóttur vinsæl
ustu stúlkuna í hópnum.
Keppnin fór fram í Samkomu
húsi Vestmannaeyja.
Hrönn Róbertsdóttir.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Heimadæmi
Bylgjunnar:
Óánæeja með
spurmngu
um fullveldi
DREGIÐ var í svokölluðu hcima-
dæmi Bylgjunnar á sunnudags-
kvöld. Nokkrir þátttakenda voru
ósáttir við úrsiitin, þar sem þeir
töldu að ein spurninganna hefði
verið afar viliandi. Þar var fólk
beðið að gefa upp, hve mörg ár
væru liðin frá því að ísland vaiÆ
sjálfstætt og fullvalda ríki. Gef™
var rétt fyrir töluna 47, miðað við
lýðveldi árið 1944, en þátttakend-
ur, sem höfðu samband við Morg-
unblaðið, töldu réttara að miða
við fullveldið árið 1918.
Hallgrímur Thorsteinsson, dag-
skrárstjóri Bylgjunnar, sagði að
starfsmenn útvarpsstöðvarinnar
hefðu orðið varir við það, eftir að
þessari spumingu hafði verið útvarp-
að, að fólk hefði ýmist talið rétt svar
miðast við fullveldi 1918 eða lýðveldi
1944. „Við litum hins vegar svo á,
að ártalið, sem uppfyllir bæði skilyrð-
in [um sjálfstæði og fullveldi] sé
1944. Það hefði verið hægt að gefa
rétt fyrir bæði svörin, en við ákváðuflP*
að miða við 1944.“
Eiríkur Tómasson, lögfræðingur
og kennari í stjómskipunarrétti við
Háskóla íslands, sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann teldi spum-
ingu Bylgjunnar illa orðaða, en rétt
svar teldi hann vera 1918. „Frá 1.
desember 1918 naut Island fulls
sjálfstæðis sem ríki, þó Danir hafi
áfram farið með ýmsa málaflokka í
okkar umboði og þjóðhöfðingi ríkj-
anna hafi verið hinn sami.“
Kiwanisklúbburinn Eldborg:
Hvað er
kennara-
fræðikapítal?
Dr. Ingólfur Á. Jóhannsson
sagnfræðingnr og uppeldisfræð-
ingur heldur fyrirlestur í Kenn-
araháskóla íslands v/Stakkahlíð
(stofu B-302) þriðjudaginn 3. mars
kl. 17.
Fyrirlesturinn byggir Ingólfur á
doktorsritgerð í uppeldisfræðum sem
hann varði við University of Wiscons-
in, Madison, í apríl 1991 og fjallar
um menntaumbætur á íslandi frá
stofnun Skólarannsóknadeildar
menntamálaráðuneytisins fram til
1991. Niðurstaða Ingólfs er sú að
skapast hafí „kennarafræðikapítal"
og það lúti lögmálum sem að veru-
legu leyti eru óháð því sem gerist í
skólum og annars staðar í þjóðfélag-
inu.
Þessi fyrirlestur er þáttur í fyrir-
lestraröð sem flutt verður nú á vor-
misserinu á vegum Rannsóknar-
stofnunar Kennaraháskóla íslands.
(Fréttatilkynning) (
--- ♦ ♦ »
■ BL ÚSHLJÓMS VEITIN Vinir
Dóra hefur verið valin úr hópi 9.000
umsækjenda, að því er segir í frétta-
tilkynningu, til að koma fram á tón-
listarkaupstefnunni „South by So-
uth“ sem haldin er I Austin í Texas
og verða Vinir Dóra þar í hópi 70
hljómsveita. Vinir Dóra munu koma
fram eitt kvöld sem aðalnúmer á
blúsklúbbnum Antone’s ásamt
Chicago Beau og Pinetop Perkins,
en um sama leyti kemur á markaðinn
geisladiskur sem hljóðritaður var á
tónleikum Pinetops Perkins og
Chicago Beau og Vina Dóra á Púlsin-
um 7.-10. nóvember sl. Vinir Dóra
fara í tónleikaferðina 10. mars; leika
í Texas dagana 12., 13. og 14. mars.
— * * *------------
Leiðrétting
í auglýsingu sem birtist í Morg-
unblaðinu 1. mars, „Bjarkarmál í
Gerðubergi", var rangt farið með
nafn ungrar söngkonu er heitir Höm
Hrafnsdóttir en ekki Hrönn. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar á þessum
mistökum.
Sjávarréttaborð í
fjáröflimarskyni
ÁRLEG fjáröflun Kiwanisklúbbsins Eldborgar í Hafnarfirði var
haldin að venju í Danshúsinu í Glæsibæ sl. laugardag. Það var
Halldór Júlíusson veitingamaður sem átti hugmyndina að sjávar-
rétlaborði klúbbsins, sem boðið er upp á í hádegi einu sinni á ári
á þessum árstíma.
„Sjávarréttadagur Kiwanis-
klúbbs Eldborgar er haldinn í fjár-
öflunarskyni og hefur verið svo
síðastliðin þrettán ár, en klúbbur-
inn er 22 ára,“ sagði Halldór.
„Upphafíð var að við fengum gef-
ins físk og ég matreiddi hann og
síðan var fyrirtækjum og einstakl-
ingum gefinn kostur á að kaupa
sig inn. Fyrst héldum við til í
Skiphóli í Hafnarfirði en við
sprengdum það húsnæði utan af
okkur og erum nú komnir hingað
í Danshúsið í Glæsibæ og höfum
verið hér síðustu tíu árin.“
Eingöngu var boðið upp á sjáv-
arrétti og voru 39 fisktegundir á
boðstólunum að þessu sinni auk
hvalkjöts, lunda og háhymings.
„Við bjóðum upp á allar fískiteg-
undir sem veiðast hér við land,“
sagði Halldór. „í ár settu óveður
nokkuð strik í reikninginn en þó
hafðist að ná inn nánast öllum
þeim fískitegundum sem venjah
er að hafa á boðstólunum."
Markús Öm Antonsson borgar-
stjóri var ræðumaður dagsins að
þessu sinni og að venju fór fram
málverkauppboð á verkum eftir
þekkta listamenn. Halldór sagði
að sumir þeirra hefðu gefíð verk
síðastliðin tíu ár, þar á meðal Ei-
ríkur Smith listmálari. Ragnar
Bjamason söngvari sá um tónlist
og söng undir borðum en hann er
í hljómsveit hússins, sem leikur
fyrir dansi í húsinu um helgar.
Halldór hefur rekið Danshúsið
í Glæsibæ í 20 ár. Sonur hans,
Magnús Páll, hefur nú tekið við
daglegum rekstri og gert ýmsar
breytingar á undanförnum tveim-
ur árum, þ.á.m. kynnt karioke-
söng. Jafnframt hefur salur og
eldhús staðarins verið endurnýjað.
Auk Danshússins hafa þeir
feðgar rekið Veislueldhúsið í 20
ár. Fyrirtækið matreiðir og selur
matarbakka til fyrirtækja, stofn-
ana og hópa og má segja að þar
hafi verið unnið brautryðjanda-
starf með slíkri þjónustu, að sögn
Halldórs. Þriðja búgreinin er
rekstur skíðaleigu, miðasölu og
veitingarekstur í Bláfjallaskálan-
um fyrir íþrótta- og tómstunda-
ráð. „Þann rekstur höfum við ver-
ið með síðastliðin tíu ár og seljum
skyndibita, kaffí, kókó og kökur
ásamt gosi og sælgæti," sagði
Halldór Júlíusson.
Andrés Magnússon, formaður sjávarréttadags Kiwaniskiúbbsins
Eldborgar, og Valgarð Sverrisson, forseti klúbbsins, við sjávar-
réttahlaðborðið.
Morgunblaðið/Þorkell
Feðgarnir í Danshúsinu í Glæsibæ, Halldór Júlíusson og Magnús
Páll Halldórsson.
VflNNÞÍN
FJÖLSKYLOA?
Heildarvinningsupphæðin var:
177.462.301 kr.
Röðin : 221-X12-X21-1121
13 réttir: 33 raöir á
12 réttir: 806raöirá
11 réttir: 7.980 raðir á
10 réttir: 71.262raöirá
Engin röö kom fram meö 13 réttum hérlendis þessa helgi.
Átta raöir komu fram meö 12 réttum -176 raöir meö 11 réttum
og 1.697 raöir meö 10 réttum. Vinningar undir 15.000 kr. eru
greiddir út á sölustööum.
1.451.960-kr.
37.430 - kr.
3.200 - kr.
940 - kr.
Smygl í Bakkafossi
60 kassar af bjór fundust um borð
SMYGL fannst í Bakkafossi er skipið kom til hafnar í Vestmanna-
ejjum aðfaranótt laugardagsins.
Við leit tollvarða fundust 60 kass-
ar af bjór í skipinu og hátt á ann-
að hundrað kíló af nautakjöti, auk
nokkurs af skinku, áfengi og tób-
aki.
Bakkafoss var að koma úr sigl-
ingu frá höfnum á Norðurlöndum
með viðkomu í Þórshöfn í Færeyj-
um. Sex skipverjar hafa gengist
við að eiga smyglið.