Morgunblaðið - 14.05.1992, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992
9
Ávöxtun verðbréfasjóða
l.maí
1 mán. 3 mán. 6 mán.
Kjarabréf 7,8% 7,8% 8,0%
Tekjubréf 8,3% 7,9% 7,9%
Markbréf 8,0% 8,5% 8,6%
Skyndibréf 6,4% 6,3% 6,6%
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF.
jj -v,
HAFNARSTRÆTI, S. (91) 28566 - KRINGLUNNI, (91) 689700 - AKUREYRI.S. (96) 11100
_______________________________________________
Tjaldvagnar: Eitt handtak og sumarhús á
hjólum rís. Opnast á 2 mín. m/fortjaldi.
Einnig nokkrir lítið notaðir frá ’91.
Verð frá kr. 320.000-450.000.
gengt Umferðarmiðstöðinni,
símar 19800 og 13072.
Stúdentastjaman,
14 karat gull, hálsmen eða prjónn.
Verð kr. 3.400
ððn Slpuniisson
Skortppðverzlun
LAUGAVEG 5 - 101 REYKJAVlK
SÍMI 13383
Ójöfnuður, bruðl
og forréttindi
Það var aldrei hugsun jafnaðarmanna að
auka á ójöfnuðinn, að bruðla með al-
mannafé í þágu fullfrísks fólks, að ala
upp forréttindahópa, sem gera meiri
kröfur til annarra en sjálfra sín eða að
verja hagsmuni „kerfisins" gegn hags-
munum neytenda, almennings. Þetta
sagði formaður Alþýðuflokksins m.a. í
eldhúsdagsumræðunum sl. mánudags-
kvöld.
Samiréttur
í ræðu sinni á Alþingi
fjalladi Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkis-
ráðherra um fátæktar-
þjóðfélagið sem jafnað-
armemi hófust handa um
að breyta árin fyrir stríð
og velferðarkerfið sem
upp var byggt og hvernig
það hefur þróast.
Jón Baldvin sagði m.a.:
„í fátæktarþjóðfélag-
inu var hugsun jafnaðar-
manna sú að allir, án til-
lits til eigna eða efna-
hags, skyldu njóta sama
réttar til ókeypis skóla-
göngu, heilbrigðisþjón-
ustu, sjúkratrygginga,
ellilífeyris o.s.frv.
Þess vegna hefur sú
meginregla gilt enn í dag
— líka í velmegunarsam-
félaginu.
Hjálparhönd
samfélagsins
Það á líka við um þá
sem eiga skuldlausar vill-
ur, sumarbústaði og tor-
færujeppa og færa neysl-
una á fyrirtækið; og
geyma slatta af skatt-
frjálsum spariskirteinum
og hlutabréfum í eld-
traustum bankahólfum —
en borga ótrúlega lága
skatta til sameiginlegrar
velferðarþjónustu.
Ymsum blöskraði um
daginn þegar hluthafar í
ríkisvemduðu’ verktaka-
félagi skutu á mjög arð-
bæmm fundi og úthlut-
uðu sjálfum sér 900 millj-
ónum í skattfijálsan arð
af bréfunum sínum.
Spyija má: Þurfa þeir
á útréttri hjálp;u-hönd
samfélagsins að halda?
Eiga þeir líka að njóta
bamabóta, vaxtabóta og
eUilífeyris?
ISða væri þeim fjái'-
munum betur komið til
að hækka þessar bóta-
greiðslur til þeirra, sem
raunvemlega þurfa á
þeim að lialda?
Millifærslur til
milljónamær-
inga
Höfum í huga aðstöðu-
mun þeirra kynslóða,
sem landið byggja. Sú
kynslóð, sem fer á eftir-
laun á næstu tveimur
áratugum, eignaðist hús-
næði í skjóli neikvæðra
vaxta á verðbólguárun-
um; hún hefur einnig
notið skattfrjáls arðs af
spariskírteinum og verð-
bréfum, eftir að háir
raunvextir stóðu til boða
á sl. áratug. Og þessi
kynslóð hefur safnað
miklum erlendum skuld-
um sem falla sumpart
ekki i gjalddaga fyrr en
eftir hennar dag.
Næstu kynslóðir þurfa
í vaxandi mæli að borga
námslán sín til baka; ljár-
magna íbúðakaup á
markaðsvöxtum; ala önn
fyrir þeim, sem ekki
ávöxtuðu lífeyrissjóði
sína og ef fram heldur
sem horfir — greiða upp
| langtímaskuldir þjóðar-
búsins með sköttum sín-
um.
Þetta mun kalla á
þunga skatt- og lifeyris-
byrði, ef ekki verður
stungið við fótum í tæka
tíð. A móti kemur að
þessi kynslóð er sú fyrsta
í Islandssögunni sem að
meirihluta til mun erfa
umtalsverðar eignir.
í fátæktarsamfélaginu
voru flestir fátækir, fáir
efnaðir. í velferðarsam-
félaginu eru flestir bjarg-
álna og fáir ríkir. En
umtalsverður hópur þarf
af ýmsum ástæðum á
samhjálp að halda, a.m.k.
tímabundið á æviskeið-
inu.
Eigum við að samt að
halda áfram að beina
milljarða millifærslum til
milljónamæringa og
milliliða — jafnvel þótt
það þýði að aðstoð við
þá, sem raunverulega
eru þurfandi, sé skorin
við nögl?
Þessi dæmi um breytt-
ar þjóðfélagsaðstæður —
frá fátæktarþjóðfélagi til
velmegunarsamfélags,
vekja upp áleitnar spum-
ingar um hvort breyttar
aðstæður kalli ekki á
breyttar aðferðir, þótt
markmiðið sé óbreytt:
A<) jafna kjör og tryggja
félagslegt öryggi þeirra
sem nú byggja lanclið —
og afkomenda okkar í
framtíðinni.
Bruðl og for-
réttindi
Kjaminn í hugsun
jafnaðarmanna um hina
félagslegu ábyrgð i vel-
ferðarsamfélaginu er sá,
að við viljum leiðrétta þá
eigna- og tekjuskiptingu,
sem markaðsöilin skila,
þannig að þeim sem bera
skarðan hlut frá borði sé
rétt hjálparhönd — lijálp-
að til sjálfsbjargar —
þegar þeir þurfa á að
halda.
Það var aldrei okkar
bugsun að auka á ójöfn-
uðinn, að bruðla með al-
mannafé í þágu fullfrísks
fólks, að ala upp forrétt-
indahópa, sem gera meiri
kröfur til annarra en
sjálfra sín, eða að verja
hagsmuni „kerfisins"
gegn hagsmunum neyt-
enda, almennings,
Kúrsinn leið-
réttur
Það er í ljósi þessara
staðreynda sem nú fer
fram um allan hinn vest-
ræna lieim endurskoðun
á þeim kennisetningum,
sem brautryðjendur vel-
ferðarríkisins innan raða
jafnaðarmanna settu
fram á tímum fátæktar-
samfélagsins.
Sú endurskoðun á ekk-
ert skylt við fráhvarf frá
hugsjónum jafnaðar-
stefnunnar. Hún er hins
vegar enn ein staðfesting
þess, að öfugt við komm-
únismann, sem nú er fall-
inn á eigin illverkum,
hefur jafnaðarstefnan
aldrei staðnað í kreddu.
Hugsjónin er sú sama,
en aðferðirnar hljóta að
breytast með breyttum
aðstæðum. Og við treyst-
um engum betur en sjálf-
um okkur, jafnaðar-
menn, til að leiðrétta
kúrsinn, og tryggja okk-
ar þjóð til frainbúðar
velferð á varanlegum
grunni."
SUZUKISWIFT
5 DYRA, ÁRGERÐ 1992
ESTEE LAUDER
- HÚÐGREINING -
Húðgreining og ráðleggingar um rétt val á
ESTEE LAUDER snyrtivörum á morgun
föstudag kl. 14-18.
Tímapantanir í
síma 44025.
Sny/ttistojan ^íiund
GRÆNATÚN1
200 KOPAVOGUR
44025
★ Aflmikil, 58 hestafla vél með beinni innspýtingu.
★ Ódýr í rekstri - eyðsla frá 4,0 1. á hundraðið.
★ Framdrif.
★ 5 gíra, sjálfskipting fáanleg.
i i i. ii. .i.ii —
★ Verð kr. 828.000.- á götuna, stgr.
SUZUKI BÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 SlMI 68 51 00
LIPUR OG SKEMMTILEGUR 5 MANNA BÍLL