Morgunblaðið - 14.05.1992, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992
21
NORRÆNT GIGTARAR
Sjúkraþjálfun gigtarsjúklinga
eftir Sólveigu B.
Hlöðversdóttur
Sjúkraþjálfun er einn þáttur í
meðferð gigtarsjúklinga. Markmið
hennar er að bæta líðan og líkamlegt
ástand og gera viðkomandi hæfari
til að takast á við daglegt líf. Margs
konar aðferðum er beitt og velur
sjúkraþjálfari, að lokinni nákvæmri
skoðun, þá meðferð sem hentar þörf-
um hvers og eins. Áherslur í meðferð
eru mismunandi eftir gigtarsjúkdóm-
um en hún byggir ætíð á því sem
fínnst við skoðun.
Verkja- og bólgu-
minnkandi meðferð
Verkir og stirðleiki er algengasta
kvörtun þeirra sem koma í sjúkra-
þjálfun. Við skoðun finnst oft bólga
í liðum, einnig bólga eða spenna í
vöðvum, vöðvafestum, sinum og lið-
böndum. Meðferð hefst gjarnan á
því að minnka þessar bólgur sem
geta hindrað fullan hreyfiferil og
valdið verkjum sem m.a. koma í veg
fyrir að vöðvar taki eðlilega á.
Æfingameðferð og þjálfun
Hreyfískerðing er algeng. Stirðn-
un getur orðið í liðnum sjálfum eða
stytting í vefjum í kring, s.s. liðpoka
eða vöðvum. Liðkandi meðferð er því
mikilvæg og slíkar æfíngar þurfa að
verða daglegur þáttur í lífi flestra
gigtarsjúklinga.
Ein afleiðing gigtar er minnkaður
vöðvakraftur, m.a. vegna rýrnunar
af völdum sjúkdómsins og minni
hreyfígetu. Þetta kemur niður á
færni viðkomandi, hann þreytist fyrr,
aukið álag kemur á liði því að vöðv-
amir styðja ekki eins vel við þá, lið-
ir verða óstöðugir og meiri hætta á
skekkju í þeim. Styrkjandi æfingar
eru því mikilvægar. Meðan bólga er
í liðum þarf að fara varlega í æfíng-
Sólveig B. Hlöðversdóttir
„Sjúkraþjálfun er mik-
ilvægur þáttur í að bæta
líðan gigtar sj úklinga.
Hún getur stytt sjúkra-
húsvist, dregið úr vinn-
utapi og gert fólk færara
um að sjá um sig sjálft.“
ar vegna hættu á liðskemmdum en
þegar hún minnkar er álag aukið.
Þjálfun þarf að aðlaga að hverjum
fyrir sig og taka tillit til bólgu og
verkja. Minnkað þol og úthald eru
algeng vandamál sem taka þarf á.
Þegar viðkomandi hættir í sjúkra-
þjálfun er lögð áhersla á að hann
haldi áfram þjálfun við sitt hæfí til
að viðhalda þeim árangri sem náðst
hefur og reyna að ná enn lengra.
Margir stunda æfíngar heima, aðrir
leikfimi, sund eða annað sem hentar.
Þjálfun í sundlaug er góð. Vatnið
auðveldar hreyfingar ef um mikla
verki eða kraft-
litla vöðva er að
ræða og gefur
mótstöðu á
hreyfíngar í
styrktar- og þol-
þjálfun.
Hópþjálfun
fyrir hryggiktar-
sjúklinga undir
stjórn sjúkra-
þjálfara er hafin
og stefnt er að
slíkri þjálfun fyrir fleiri hópa. Hóp-
þjálfun sem er sérsniðin fyrir gigtar-
sjúklinga er æskilegur kostur því að
almenn leikfími er mörgum of erfíð.
Hún gefur aðhald og hvatningu til
að stunda reglulega þjálfun, sem er
mikilvægt til að viðhalda sem bestu
líkamlegu ástandi.
Fræðsla — ráðleggingar
Fræðsla er mikilvægur þáttur í
meðferð. Því meira sem viðkomandi
veit um sjúkdóm sinn og áhrif hans
því auðveldara er að læra að lifa
með honum. Lifa eins eðlilegu lífí
og hægt er þrátt fyrir gigtina en
taka samt fullt tillit til hennar.
Miklu skiptir að kenna liðvemd,
rétta líkamsbeitingu og ráðleggja um
hvíldarstöður. Slík fræðsla er mikil-
væg fyrir alla en ekki síst gigtar-
sjúklinga með slit eða bólgur í liðum.
Leiðrétting rangrar stöðu getur átt
stóran þátt í að minnka verki í bólgn-
um eða slitnum liðum og dregið úr
hættu á frekara sliti.
Sjúkraþjálfun er mikilvægur þátt-
ur í að bæta líðan gigtarsjúklinga.
Hún getur stytt sjúkrahúsvist, dregið
úr vinnutapi og gert fólk færara um
að sjá um sig sjálft.
Höfundur er sjúkraþjálfari hjá
Gigtarfélagj Islands.
EGGERT KRISTJÁNSSON H/F SÍMI 685300
Sízmsæft
JACOBS tekex
Efnast sumarsaumakonur me\t?
Sumar konur efnast meira en aðrar án þess að vera samansaumaðar.
Þessar konur kaupa sumarefni á efnilegu dögunum í IKEA.
Sumar sauma úr efnunum sumargardínur, sumardúka,
sumaráklæði á gamla sófann og sumar jafnvel stuttbuxur á eiginmanninn.
Sumar kaupa stólsessur, sumar handklæði
og sumar bara einhverjar allt aðrar sumarvörur.
I Sumarvörurnar eru komnar, en spurningin er þessi:
Er sumarið saumakona?
FRUTISSIMO
sumarefni ■
Tilboðsverð
ULLA sturtuhengi
RYMINGARSALA
Á HANDKLÆÐUM
Verðdæmi:
50 x lOOcm kr.
65 x 140cm kr.
FRUTISSIMO stólsessur
100 x 150cm kr.
VIKEN A
handklæði
efnileg verslun
Tilboðsverð
ISA sængurverasett
HAGTORN
púðar, 40x40,6 gerðir
KRINGLUNNI 7 SÍMI 91-686650
NÝTT GREIÐSLUKORTATÍMABIL
© Inter IKEA system B.v. 1«