Morgunblaðið - 14.05.1992, Qupperneq 23
MORGUNBIjAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAI 1992
23
Ríkissljórnin ákveður kaup á þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna:
Super Puma þyrla tal-
in álitlegasti kosturinn
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum sl. þriðjudag að fela
dómsmálaráðherra og fjármálaráðherra að leita samninga um kaup
á hentugri þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna á grundvelli greinargerð-
ar ráðgjafahóps sem ráðherra skipaði í febrúar síðastliðnum. Meðal
annars hefur ríkisstjórnin ákveðið að láta skuli á það reyna með
viðræðum við sljórnvöld í Bandarikjunum á hvaða kjörum verði
hægt að kaupa þyrlu í gegnum sölukerfi Bandaríkjahers. Fyrrgreind-
ur ráðgjafahópur, sem dómsmálaráðherra skipaði til að gera tillög-
ur og vera til ráðgjafar um kaup á hentugri björgunarþyrlu fyrir
Landhelgisgæsluna, lagði til með skýrslu sem skilað var nýlega á
að lögð verði áhersla á að fá keypta notaða Super Puma þyrlu sem
yrði búin nauðsynlegum tækjabúnaði. Jafnframt vildi nefndin láta
kanna aðra kosti, sem hugsanlega að komi til greina, þ.e kaup á
nýrri Super Puma þyrlu, kaup á Sikorsky HH-60J þyrlu eða Bell
BT214 ST þyrlu. Nefndin segir í skýrslu sinni að Super Puma kom-
ist næst því að uppfylla ítrustu óskir sem fram hafa komið um af-
kastagetu og aðra tæknilega hæfni nýrrar björgunarþyrlu fyrir
Landhelgisgæsluna.
Sikorsky HH-60J, Jay Hawk,
þyrla komi vart til álita að mati
nefndarinnar við val á nýrri þyrlu,
þar sem rekstrarkostnaður þeirrar
gerðar sé langhæstur af þeim þyrl-
um sem til greina koma. Ekki verði
séð að hægt sé að ná neinum um-
talsverðum sparnaði í rekstri þeirr-
ar þyrlu með samstarfi við varnar-
liðið.
Nefndin segir að rekstrarkostn-
aður Sikorsky HH-60J þyrlu yrði
um 289,5 milljónir króna á ári, ný
Super Puma kostaði um 208 millj-
ónir króna á ári í rekstri en notuð
þyrla af þeirri gerð kostaði væntan-
lega um 165 millj. á ári að reka.
Áætlaður stofnkostnaður vegna Si-
korsky þyrlunnar sé um 1.300 millj-
ónir króna, ný Super Puma muni
kosta tæpar 900 milljónir en notuð
um 550 milljónir króna. Notuð Sup-
er Puma-þyrla hafi í meginatriðum
sömu tæknilegu eiginleika og ný
þyrla af þeirri gerð og hana megi
búa sömu tækjum. Því komi fylli-
lega til greina að kaupa notaða
þyrlu að þessari gerð sem sé mun
ódýrari kostur en að kaupa nýja,
jafnframt því sem hún mundi kom-
ast mun fyrr í rekstur.
Samþykkt ríkisstjórnarinnar frá
því í gær gerir ráð fyrir að skipuð
verði þriggja manna viðræðunefnd
sem í sitja fultrúar dómsmála- og
fjármálaráðuneyta, auk forstjóra
Landhelgisgæslunnar. Auk þess til-
nefni forsætisráðherra og utanríkis-
ráðherra fulltrúa sína til að vera
til ráðuneytis að því er varðar við-
ræður við stjórnvöld í Bandaríkjun-
um. Að sögn Ara Edwald aðstoðar-
manns dómsmálaráðherra eru
nefnd þessari engin tímamörk sett
með starfi sínu. Gert er ráð fyrir
því að næsta skref verði að fyrir
ríkisstjórnina verði lögð drög að
samningi um kaup á þyrlu af ein-
hverri af fyrrgreindum gerðum.
Þyrlunefndin telur að öruggasta
og hagkvæmasta lausn björgunar-
verkefna þar sem fara þarf langt á
haf út sé að björgunarsveit varnarl-
iðsins annist þau eins og verið hef-
ur, enda hafi hún þegar tækjakost
til þess og starfsreglur sém miða
við að tvær þyrlur eða þyrla og
fylgdar- eða eldsneytisflugvél fari
til björgunarverkefna sem eru í
meiri Ijarlægð en 50 sjómílur frá
landi.
Auk þeirra þyrlutegunda sem
fyrr var á minnst, útilokaði nefndin
fljotlega þrjár tegundir frá frekari
samanburði. Um var að ræða Ad-
vanced Sea King frá Westland-
verksmiðjunum í Bretlandi. Hún var
álitin of dýr bæði í rekstri og í inn-
kaupum, en slík þyrla kostar um
1,1 milljarð króna.
Black Hawk þyrla frá Sikorsky
var ekki talin nægilega vel búin til
björgunarflugs á haf út, t.d. varð-
andi eldsneytisgeyma, neyðarflot
og sjálfstýringu og rekstrarkostn-
aður og innkaupsverð, 612 milljón-
ir, þótti í hærra lagi miðað við aðr-
ar þyrlygerðir, sem hafa fyrrgreind-
an búnað.
ítalskri þyrlu af gerðinni Agusta
'AB412 SP var einnig hafnað.
...Á FÍNU VERÐI
Garðáburður:
Áburður kr. 364
Blákorn kr. 453
Garðskeljakalk kr. 331
Garðagras (grasfræ) kr, 677
Vinnuvettlingar:
Hvítir vinnuvettlingar úr
bómull og einnig með
plastdoppum kr. 88
Pappírsþurrka:
Texi pappírsþurrka kr. 377
Ódýr stígvél:
Græn, lág,
stærðir 40-46 kr. 995
Einnota kolagrill:
Álbakki með kolum,
olíu og rist kr. 489
...OG ÓTAL
MARGT FLEIRA
Gasgrill kr. 14.990
Olíufélagið hf
- ávallt í alfaraleið
c/3
o
Ö
u
Þetta er ódýrasta tölvan með litaskjá
MacintoshLC 4/40 •
12" litaskjár •
Kerfi 7 á íslensku •
Vönduð ísl'ensk handbók •
Möguleikar á tengingu við Novell og Ethernet •
Innbyggt AppleTalk •
Getur lesið PC-diska •
Compotj Dískpio 386i 20 (386SX 20)
Maciníosh Classit il
Macintosh LC
NEC PowerMatc SX. 20(386SX 20)
AST Promium il (3S6SX 20)
IBM PS 2 3SSX (3865X 16)
ACER 1116SX (386SX 16)
Compaq Doskpro 386N 20 (386SX 16)
IBM PS 2 SSSX (3S6SX 16)
0
—t—l——r—T—l—r—i—r i—rrr
0,5 1 1,5
r rr1
2 2,5
Skv. samanburðarrannsókn Ingram Laboratories í
Bandaríkjunum á raunverulegri vinnslugetu.
Verð með litaskjá aðeins
139.900,-
kr./ stgr.
Aoole-umboðið
Skip
Lppie-ui
ipholti 21, sími
(91)624800
AUKhfk15d11-257