Morgunblaðið - 14.05.1992, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992
35
Frá vordögum Húsasmiðjunnar í fyrra.
Hafnarfjörður:
Húsasmiðjuhlaupið verð
ur hlaupið fyrsta sinn
16. MAÍ nk. verður Húsasmiðju-
hlaupið í Hafnarfirði. Þetta
verður í fyrsta skipti sem hlaup-
ið er hlaupið, en það er liður í
vordögum Húsasmiðjunnar.
Hlaupið er ávöxtur samvinnu
Húsasmiðjunnar og FH. Vor-
dagarnir eru bæði utan- og inn-
andyra hjá Húsasmiðjunni í
Skútuvogi 16 í Reykjavík og
Helluhrauni 16, Hafnarflrði.
Þeir eiga að höfða til þeirra sem
ætla út í framkvæmdir í sumar,
allt frá því að snyrta trén í garð-
inum og til þess að reisa sumar-
bústað.
Vegalengdir í hlaupinu verða
eftirfarandi: 3 km., 10 km. og,
hálfmaraþon. Allir sem koma í
mark fá verðlaunapening. Hálfm-
araþonhlaupið er jafnframt ís-
landsmeistaramót. I 3 km. hlaup-
inu verður foreldrum með barna-
vagna boðið að taka þátt og labba
þeir þá vegalengdina með vagninn.
Að sjálfsögðu fær þá bamið einnig
verðlaunapening.
Þáttökugjald er 500 krónur fyr-
ir 15 ára og eldri og 400 krónur
fyrir 14 ára og yngri. Þeir sem
eru með barnavagna greiða 500
krónur. Þáttökugjaldið rennur til
frjálsíþróttadeildar FH. .
Laugarásbíó
sýnir myndina
Náttfatapartý
LAUGARÁSBÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á myndinni Náttfatapartý.
Með aðalhlutverk fara Tisha Cam-
bell, Ima o.fl. Leikstjóri er Dough
McHenry og George Jackson.
Þessi tónlistar- og gamanmynd er
framhald af myndinni „House Party“
en nú eru strákamir ekki táningar
lengur, heldur ungir menn með hug-
sjónir. Kid hefur fengið námsstyrk
og fer í háskóla en Play er ákveðinn
í að vera fljótt bæði ríkur og frægur
fyrir hip-hop tónlist sína.
Samband byggingamanna:
Atvinna, umhverfi og vel-
ferð eru kjörorð ársþings
„GETUR íslenskur sjávarútvegur tryggt betri lífskjör í næstu fram-
tíð?“ er spurning sem Friðrik Pálsson framkvæmdastjóri SH leit-
ast við að svara á þingi Sambands byggingamanna sem hefst í
Stapanum í dag. Erindi Friðriks er hluti af atvinnumálaumræðu
sem fram fer á þingi SBM, en meðal annarra framsögumanna eru
Gunnar Snorri Gunnarsson, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneyt-
inu, og Bendt Jensen, formaður Múrarasambands Danmerkur, sem
fjallar um reynslu Dana af þátttöku á atvinnusvæði Evrópubanda-
lagsins.
Grétar Þorsteinsson, formaður
SBM, mun í þessari umræðu fjalla
um það hvernig íslensk verktaka-
starfsemi hefur þróast undanfarin
ár og sérstaklega hvernig undir-
verktakastarfsemi hefur smám
saman breyst launamönnum í
þessari grein verulega í óhag.
Á síðari árum hefur mönnum
orðið ljósara en áður mikilvægi
þess að tekið sé tillit til umhverfis-
þátta í nýsköpun atvinnulífsins.
Magnús Jóhannesson, aðstoðar-
maður umhverfisráðherra, ræðir
þetta efni við byggingamenn.
Byggingamenn hafa á undan-
Eitt atriði úr myndinni Náttfata-
partý.
förnum árum lagt mikla áherslu á
vinnuverndarmál og verður sér-
stakur kafli á þinginu helgaður
þessum málaflokki m.a. í tengslum
við evrópska vinnuvemdarárið
sem nú er nýhafið. Það er Magnús
Ólafsson sem ætlar að spjalla um
þetta efni, en Hulda Ólafsdóttir
mun ræða um samband álagssjúk-
dóma, líkamsbeitingu við vinnu og
launakerfí. Þá mun Vinnueftirlitið
standa fyrir sýningu á þinginu um
vinnuvemd.
Eitt af stórmálum verkalýðs-
hreyfingarinnar eru ákvæðin um
staðbundinn forgangsrétt til vinnu
sem er að fínna í mörgum kjara-
samningum launamanna og at-
vinnurekenda hér á landi. Aðildar-
félög SBM hafa rætt forgangsrétt-
armálin á undanförnum mánuðum
og fyrir þinginu liggur það verk-
efni að móta stefnu í þessu mikil-
væga máli.
Þing Sambands bygginga-
manna hefst kl. 13 á fimmtudag
og lýkur síðdegis á laugardag.
(Úr fréttatilkynning)u
-------» ♦ ♦--------
■ LEIKSVIÐIÐ heldur rokktón-
leika í Gijótinu, Tryggvagötu í
kvöld, fimmtudaginn 14. maí og
hefjast þeir kl. 23.00. Hljómsveitina
skipa: Harrý Óskarsson, Alfreð
Alfreðsson, Jóhann Vilhjálmsson
og Ágúst Karlsson.
Listahátíð í Reykjavík 1992
SHURA CHERKASSKY
Píanótónleikar í Háskólabíói kl. 1 4.30
laugardaginn 6. júní.
Miðasala Listahátíðar er í Iðnó
við Tjörnina.
Opið alla daga frá kl. 12-19.
Upplýsingar og miðapantanir
í síma 28588 frá kl. 10— 19
alla daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Innanhússarkitekt réðleggur
viðskiptavinum Metró
Guðrún Benediktsdóttir innanhússarkitekt.FHÍ,
verður í versluninni Metró
fimmtudag og föstudag kl. 14-18 og laugardag kl. 11-14,
og veitir viðskiptavinum ráðleggingu um val á málningu.
Verið velkomin í Metró og þiggið ókeypis ráðgjöf.
M
METRO
í MJÓDD
Álfabakka 16 • Reykjavík • Sími 670050
KOMJVfcll
NOTAÐAR
VINNUVÉLAR
fil sölu
Teg. CASE 580G turbo.
Árg. 1998
Vinnustundir: 3.000
Verð 1,8-2,0 millj. án vsk.
Teg. CASE 1150C
Árg. 1984
Vinnustundir: 3.500
Verð 3,5 millj. án vsk.
v.
Teg. LIBHERR 922
ÁRg. 1985
Vinnustundir: Ca. 10.000
Verð 3,5 millj. án vsk.
Teg. CASE 125 B
Árg. 1989
Vinnustundir: Ca. 5.500
Verð 4,0 millj. án vsk.
Teg: ATLAS 1902 DHD
Árg. 1982
Vinnustundir: Ca. 12.000
Verð tilboð
Hafið samband við sölumenn
KOMATSU
NÝBÝLAVEGI 8.
SÍMI 91-44144
Þú sralar lestrarþörf dagsins
I.O.O.F. 5 = 17451419 = Lf.
I.O.O.F. 11 =17405147'/2 = L.F.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hjálpræðis-
herinn
Kirfcjustræti 2
Samkoma í kvöld kl. 20.30. Ljóð
eftir Hugrúnu, skáldkonu sung-
in og lesin. ingibjörg og Óskar
stjórna og tala. Kaffisopi á eftir.
Allir velkomnir.
Snmhjálp
i kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma i Þríbúðum, Hverfisgötu
42. Mikill söngur og vitnisburðir.
Orð hefur Brynjólfur Ólason.
Kaffi að lokinni samkomu.
Samhjálparsamkoma verður f
Ffladelfíu nk. sunnudag,
17. maí, kl. 16.30.
Samhjálp.
ÚTIVIST
Hallveigarstíg 1, sími 14606
í kvöld kl. 20.30
Kynning á ferðum sumarsins og
upplýsingar um útbúnað og
fleira, sem tengist ferðunum,
verður á Hallveigarstíg 1. Farar-
stjórar verða til viðtals og veita
nánari upplýsingar og hægt
verður að bóka sig í ferðir. Kaffi
veitt í hléi og hægt verður að
kaupa meðlæti gegn vægu verði.
Allir velkomnir.
Um næstu helgi:
15.-17. maí
Básar á Goðalandi
Skipulagðar gönguferðir.
15.-17. maí Eyjafjallajökull
Gist verður í Básum og gengið
yfir Eyjafjallajökul á laugardag-
inn. Brottför i báðar ferðirnar kl.
20.00 frá BSl. Miðasala og nán-
ari jjpplýsingar á skrifstofu Úti-
vistar.
Sjáumstl Útivist.
FERÐAFELAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Fimmtudagur 14. maí
Sólarganga: Seltjarnar-
nes -Suðurnes
Brottför frá Mörkinni 6 kl. 19.45
og kl. 20.00 frá BSl, austanmeg-
in. Það er öllum boðið ókeypis
í þessa fyrstu kvöldgöngu vors-
ins. Skemmtilegt útivistarsvæði
við byggð sem allir ættu að
kynnast. Ath. að skrifstofa
Ferðafélagsins flytur um helg-
ina í nýja félagsheimilið Mörk-
inni 6. Sfðustu opnunardagar á
Öldugötu 3 eru i þessari viku.
Nánar auglýst um helgina.
Sunnudagsferðir 17. maí:
Kl. 10.30 Þjóðleið 4: Þorláks-
höfn - Selvogur. Kl. 13.00 Sel-
vogshelði - Eiríksvarða - Hell-
ishæð. Upphafsganga rað-
göngunnar verður endurtekin
sfðar.
Ferðafélag (slands.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.