Morgunblaðið - 14.05.1992, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAI 1992
45
FRAMI
Dóttir Jane Mansfield
freistar gæfunnar
Ung leikkona að nafni Mariska
Hargitay er að hasla sér völl
fyrir vestan haf, einkum fyrir góða
frammistöðu í lögguþáttaröð í
sjónvarpi þar sem hún leikur á
móti Jack nokkrum Scalia sem
þekktastur er fyrir að hafa leikið
einn af mörgum vonbiðlum Sue
Ellen Ewing í Dallas-seríunni.
Ungfrú Hargitay er sögð bæði
hæfileikarík, greind og falleg, en
færri vita, að hún er dóttir hinnar
látnu kynbombu Jane Mansfield.
Mariska er 28 ára gömul, en var
aðeins þriggja ára er móðir hennar
lést í bílslysi. Mariska var í bílnum
auk systkyna sinna tveggja. Böm-
in lifðu öll slysið af, en Mariska
hlaut alvarlega höfuðáverka. Enn
í dag man hún ekkert frá slysinu
og minningar af móður sinni eru
einnig af skornum skammti.
„Þetta eru undarlegar skyndi-
myndir í höfði mínu, ég veit ekki
hvort að þær eru raunverulegar
minningar eða bara hugmyndir
sem ég hef gert mér sjálf,“ segir
Mariska.
Mariska hefur lengi þurft að
bíða eftir tækifærinu sem nú blas-
ir við, smáhlutverk í ómerkilegum
kvikmyndum með nöfnum eins og
„Ghoulies" og „Jocks“ hafa verið
hennar ær og kýr og hápunkturinn
var hlutverk hjónadjöfuls nokkurs
í nokkrum þáttum „Falcon Crest“.
Móðir hennar komst aldrei úr B-
mynda deildinni þótt fræg væri.
Frægðin snérist um kroppinn en
ekki leikhæfileika. Þessu er öðru
vísi farið hjá Marisku. Og hún
segir að rnóðurmissirinn hafi mót-
að sig. „Ég var reyndar aðeins 3
ára er slysið varð, en það var eins
og missirinn rynni upp fyrir mér
upp úr tvítugu. Það þyrmdi yfir
mig og ég átti til að vakna á nótt-
unni grátandi. Ég var þunglynd
svo mánuðum skipti. Mínir nán-
ustu voru mér ómetanlegir og með
hjálp þeirra fór ég að byggja mig
aftur upp með þeim árangri að
nú virðast ýmis góð tækifæri blasa
við. Ýmsar hurðir eru að opnast
hægt og bitandi," segir Mariska
Hargitay.
Mariah Carey...
TÓNLIST
Röddin
opnaði
bílskúrinn
in af fræknustu popp-
drottningunum þessi
misserin er Mariah Carey, 23
ára gamall söngfugl frá Banda-
ríkjunum. Hún þykir hafa ævin-
týralega rödd og er það einkum
raddsvið hennar sem heillar
gesti og gangandi. Hún getur
hvort heldur hún vill þrumað
yfir áheyrendur sína furðudjúp-
ri röddu miðað við að hér er
kona á ferðinni, eða náð svo
háum nótum að gler brestur.
Carey segir sjálf sögu af
konu sem tók sig tali og var
raunar að kvarta undan hátíðni
röddu hennar.„Konan sagði
mér að dóttir sín væri alæta á
allt sem ég sendi frá mér og
sérstaklega hefði hún dálæti á
því lagi þar sem ég syng hvað
hæst. Það lag spilaði hún oft-
sinnis hvað eftir annað og það
væri mjög bagalegt, því bíl-
skúrshurðin á heimilinu, sem
stjórnað er af hátíðni fjarstýr-
ingu, væri sífellt að opnast og
lokast er lagið er leikið," segir
Mariah.
í fangi móður
sinnar Jane
Mansfield.
Þarna er Mar-
iska aðeins
ársgömul.
Macintosh fyrir byqendur
Grunnatriði Macintosh, Works - ritvinnsla, gagnasöfnun, teikning,
töflureiknir og stýrikerfi á 15 klst námskeiði fyrir byrjendur.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan 'ír
Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar cSf
Grensá^veíjj 16 • stofnuð 1. mars 1986
GARÐASTAL
Á þök og veggi
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000
LATTU ÞER EKKILEIÐAST
• 10 STYRKLEIKASTIG
• HLJÓÐROFI.
• SÝNIR BESTA
ÁRANGUR Á SKJÁ.
VERÐ AÐEINS
KR. 2.990,-
PÖNTUNARSÍMI: 651297
Þessi frábæri leikur
(TETRIS) fæst nú í
vasatölvu.
GKVILHJÁLMSSON
Smyriahraun 60, 220 Hafnarfjöröur
FALLEGAR L
Mariska á góðri stundu.
BREMSU -D/ELUR
-SLÖNGUR -SETT
Civic hefur verið endurhannaður með
nýjar kröfur samtímans í huga. Nútímabílar
þurfa að vera kraftmiklir og þægilegir, en
jafnframt taka tillit til umhverfisins.
Efnin sem notuð eru í Civic eru 80%
endurvinnanleg sem hefur mikið að segja
þegar horft er til framtíðarinnar. VTEC er
nýjung í Civic sem opnar ventlana í
hlutfalli við snúningshraða vélarinnar.
Þessi tækni dregur mjög úr mengun og
eyðslu en eykur kraft vélarinnar.
Civic er búinn skemmtilegum innrétt'
ingum. Hver hlutur er á hinum eina rétta
stað. Sætin eru mjúk og þægileg.
Civic fellur undir reglugerð um virðis-
aukaskatt og fæst því einnig án vsk.
Til sýnis núna að Vatnagörðum 24,
mánudaga til föstudaga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00 - 15:00.
í N U R
Nánari upplýsingar í síma 68 99 00
Verð frá: 969.000,- stgr.
Verð frá: 778.313,- stgr. án VSK
Greiðslukjör við allra hæfi.
0]
f