Morgunblaðið - 14.05.1992, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992
©1991 Jim Unger/Distribuled by Universal Press Svndicate
t.lóna, hi/ernij} sta/arþu ,.hniþakztsth ?'
*
Aster...
<3 fj tj,'5,
* g U í C7
Þegar ég var lltill voru lauf
á þessu tré ...
Burtséð frá honum, eru þá
einhveijir aðrir?
HOGNI HREKKVISI
9t«irpssiMðt>to
BRÉF TÍL BLAÐSINS
Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222
Borgara-
legar
athafnir
Frá Helga M. Sigurðssyni:
Mér fínnst ekki úr vegi að í þess-
um helsta trúarumræðudálki ís-
lenskra dagblaða, sem Bréf tii blaðs-
ins óneitanlega er, komi fréttir af
okkur efasemdarmönnunum.
Mánudaginn 20. apríl fór fram
fjórða borgaralega fermingin hér-
lendis. Fjöldi fermingarbarna var
mjög svipaður og undanfarin ár, eða
15 talsins. Um 250 manns voru við-
staddir athöfnina, sem fram fór í
menningarmiðstöðinni Hafnarborg.
Dagskrá var fjölbreytt: tónlist, söng-
ur, upplestur og ávörp. Ræðumenn
dagsins voru rithöfundamir Sigurður
A. Magnússon og Sjón. Sigurður
lagði í orðum sínum áherslu á dýr-
mætasta frelsið væri hið innra frelsi.
í því fælist viljinn til að vera sjálf-
stæður, fylgja ekki fjöldanum í öllu,
til að mynda neysluvenjum og lífs-
skoðunum. Sjón notaði tækifærið í
sínu erindi til að eiga stefnumót við
unglinginn í sjálfum sér. Nokkuð
Frá Gísla Júlíussyni:
Það vita víst allir, að dagana. 1.-12.
júní nk., verður haldin Umhverfís-
málaráðstefna Sameinuðu þjóðanna
í Ríó de Janeiró í Brasilíu (UNCED).
Mig langar hins vegar, til þess að
vekja athygli á því, að jafnframt
þessari ráðstefnu verður haldin önn-
ur ráðstefna í Ríó, þar sem reiknað
er með að saman komi um 10.000
manns hvaðanæva úr heiminum á
vegum umhverfísvemdarsamtaka,
sem eru óháð opinberum aðilum,
svokölluð NGO.-samtök.
Þessi samtök hafa með þessu
móti haft tækifæri til að hafa áhrif
á það, sem skrifa á undir í Ríó og
nefnist „Agenda 21“ eða Umhverf-
isáætlun 21. aldarinnar.
NGO samtökin hafa fengið til
umráða svæði í Ríó, sem heitir Flam-
engo Park og ráðstefnuhótel, sem
heitir Hótel Gloria, sem verður mið-
stöð þess, sem fram á að fara á veg-
um þeirra dagana 1.-12. júní.
Þessi samhliða ráðstefna heitir
„The ’92 Global Forurn", sem kalla
mætti „Heimsfundurinn ’92“, og
samanstendur hún af samkomum,
langt væri um liðið síðan hann hefði
yrt á þann kumpána.
Að mati okkar í Siðmennt eru
borgaralegar fermingar nú að festast
varanlega í sessi. Slíkt er mjög
ánægjulegt því að viðeigandi sé að
bjóða alla einstaklinga velkomna í
fullorðinna manna tölu hveijar sem
lífsskoðanir þeirra séu.
En Siðmennt hefur ekki aðeins
staðið fyrir fermingum. Hún hefur
einnig stundað ráðgjöf varðandi
borgaralegar útfarir. Nýkominn er
út bæklingurinn „Borgaraleg útför,
annar möguleikiu. Augljóst er að
þörf hefur verið fyrir hann, því að
viðbrögð við honum hafa verið bæði
öflug og jákvæð. Dreifíng hans hefur
af þeim sökum gengið mun hraðar
en búist hafði verið við. Bæklinginn
má fá ókeypis hjá stjórnarmönnum
Siðmenntar, t.d. Helga (s. 641613)
eða Hope (s. 73734). Fyrir þá sem
vilja fá nánari upplýsingar verður
hins vegar umræðu- og kynningar-
fundur um borgarlega útför miðviku-
daginn 13. maí kl. 20.30 á Hverfis-
götu 21 (húsi Félags bókagerðar-
manna).
HELGI M. SIGURÐSSON,
formaður Siðmenntar, félags
um borgaralegar athafnir,
Fagrahjalla 4, Kópavogi.
fundum, sýningum, fræðsluerindum
og skemmtidagskrám, sem tengjast
umhverfismálum og listum alls stað-
ar úr heiminum. Samtök úr öllum
heimshomum setja upp sýninga- og
kynningarbása á svæðum, sem þau
fá til umráða. Þetta er gert til að
vekja athygli á umhverfisvemdar-
samtökum um allan heim og baráttu-
málum þeirra, og ekki síst til að
vekja athygli á vandamálum þróun-
arþjóðanna.
„’92 Global Forum" hefur fengið
sérstakt umboð framkvæmdastjóra
Ráðstefnu Samieinuðu þjóðanna,
Maurice Strong, til að almenn sam-
tök geti haft áhrif á niðurstöður ráð-
stefnunnar.
Tré lífsins verður einkenni heims-
fundarins og helgað sjálfbærri þróun,
og verða hengdir á það seðlar, sem
búist er við að milljónir manna sendi
til Ríó hvaðanæva að með heitum
um að hjálpast að við að bjarga jörð-
inni.
GÍSLI JÚLÍUSSON,
verkfræðingur,
Akraseli 17, Reykjavík.
Förðun
á Islandi
FORÐUN er starfsgrein sem
æ meira hefur kveðið að
undanfarin 10 ár og hefur
ungt fólk streymt út í heim til
að læra fagið. Förðunarfræð-
ingar sérhæfa sig í förðun fyr-
ir kvikmyndir, auglýsingar,
leikhús, tísku og ljósmyndir.
Eins og sést á öllum þeim
fjölda auglýsinga og kvik-
mynda sem framleiddar hafa
verið hafa kröfur um starfs-
hæfni aukist í faginu. Fastar
stöður eru innan við tuttugu
hér á landi og baráttan því
hörð á hinum fijálsa markaði.
í dag eru íslenskir förðun-
arfræðingar samkeppnishæfir
út um allan heim.
Lánasjóður íslenskra náms-
manna veitir ekki lán til
skemmri tíma en tveggja ára.
(Comité international d’est-
hétique et de cosmétologie)
próf, sem er virt alþjóðleg
gráða innan snyrti- og förðun-
arfræðinnar. Þetta próf veitir
fólki innan þessara greina rétt
til að starfa hvar sem er í heim-
inum og taka þátt í alþjóðleg-
um keppnum. Ef til þess kem-
ur að Lín hættir að lána til
náms erlendis sökum þess að
fagið er kennt hér heima hefur
fólk um fátt annað að velja
en stunda ósambærilegt nám
hér heima. Þeir skólar sem
Félag íslenskra förðunarfræð-
inga hafa reynslu af hafa fjör-
utíu til fímmtíu stunda
kennsluviku og gera einnig
mikla kröfu til heimanáms.
Félag íslenskra förðunar-
fræðinga vill benda á að til
þess að grundvöllur sé fyrir
opnun förðunarskóla hér á
landi, þarf að löggilda starfs-
greinina (iðngreinina), síðan
opna skóla í samráði við yfir-
völd menntamála. Þá fyrst
getum við boðið upp á sam-
bærilegt nám og erlendis og
borið okkur saman við fagfólk
í svipuðu starfi hér á landi.
SIGGA RÓSA
BJARNADÓTTIR
HELENA JÓNSDÓTTIR
SVAVA HULD
ÞÓRÐARDÓTTIR
LILJA HELGA
MATTHÍASDÓTTIR
Umhverfismála-
ráðstefnur í Ríó
Víkveiji skrífar
Baráttan um Leif Eiríksson er
stöðug! Nýlega fékk Víkveiji
sent ljósrit af hluta sænsks frí-
merkjablaðs, þar sem m.a. er kynnt
útgáfa þriggja siglingafrímerkja á
þessu ári. Heiti seríunnar er Evrópa
92 - í kjölfar Kólumbusar og á frí-
merkjunum eru myndir af sögufræg-
um sænskum skipum, sem sigldu frá
Svíþjóð til Ameríku.
En það sem vakti athygli sendand-
ans var eftirfarandi í kynningu út-
gáfunnar. „950 árum á eftir Brendon
hinum írska og 500 árum á eftir
Leifi Eiríkssyni hinum norska fann
Kólumbus Ameríku." Og nú eru liðin
500 ár frá ferð Kólumbusar og af
því tilefni eru umrædd frímerki gefin
út.
xxx
Leið Víkveija dagsins liggur
stundum í Suðurbæjarlaugina
í Hafnarfirði. Þetta er ný og glæsileg
sundlaug. Eitt fínnst Víkveija þó
hreint út sagt hrikalegt og reyndar
fráhrindandi. Gufubaðsgangurinn, er
þannig, að hvíldarherbergið, ljósher-
bergið og nuddherbergið eru aðeins
stúkuð í sundur, en hvergi veggur
upp í loft á milli. Þetta veldur miklu
ónæði. Einkum skemmir þetta hvíld-
arherbergið, sem er að öðru leyti
snyrtilegt og mjög vel gert, eins og
annað á þessum gangi. Hljóð frá öll-
um eðlilegum umgangi fyrir framan
berst óhindrað inn í hvíldarherbergið
og reyndar nuddherbergið líka, sem
þó nýtur þess að vera fremst á gang-
inum. Og til að kóróna allt saman
er kallkerfi tengt þama inn og reynd-
ar útvarp með.
Þannig var Víkveija til dæmis um
daginn í tvígang kippt út úr draum-
lausri hvíldarveröld með kallkerfínu
og í bæði skiptin var verið að tala
til unglinga við útisundlaugina.
Á endanum hvarf Víkveiji á braut
fúll í skapi og fannst verr farið í
Suðurbæjarlaugina en heima setið.
Þetta er mikil synd, því sundlaugin
er hin skemmtilegasta að öðru leyti.
xxx
Stundum ber við, að Víkveiji fær
starfs síns vegna boðskort á
hitt og þetta. Slíkt er ekki í frásögur
færandi, en þó ætlar Víkveiji að
gera að umtalsefni boðskort, sem
hann fékk frá Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna í tilefni 50 ára afmæl-
is fyrirtækisins.
Víkveiji er kvæntur maður og á
þessu boðskorti voru nöfn beggja,
en aðrir láta sér yfírleitt nægja að
setja „og frú“, ef tilefni er til. Um
leið og boð þetta var þakkað var
haft orð á þessu ánægjulega fram-
taki að hafa fullt nafn beggja á boðs-
kortinu. Konan sem fyrir svörum var
sagði þá að þetta hefði kostað tals-
verða vinnu. „En við viljum heita
okkar nöfnum, þótt við séum giftar
mönnunum okkar," sagði hún „og
því vildum við hafa þetta svona“.