Morgunblaðið - 14.05.1992, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992
53
IÞROTTAHATÍÐ GRUNNSKÓLANNA
Nemar úr Breið-
holtinu voru
mjög sigursælir
ÍÞRÓTTAHÁTÍÐ Grunnskóla
Reykjavíkur var haldin um síð-
ustu helgi. Memar ígrunnskól-
um höfuðborgarsvæðisins
reyndu með sér í sjö íþrótta-
greinum. Lið úr Seljaskólanum
fengu þrjú gull á hátíðinni en
skólar í Breiðholti voru ofar-
lega á blaði í flestum greinum.
emar í 7. bekk grunnskólanna
kepptu í knattspyrnu. Lið
Seljaskólans í Breiðholti og Folda-
skólans í Grafarvogi báru sigur úr
bítum en leikið var í sjö manna lið-
um á gervigrasinu.
í drengjaflokki komust lið Hvas-
saleitisskóla og Hólabrekkuskóla í
þriggja liða úrslitakeppni ásamt
Seljaskóla. Lið Seljaskóli tryggði
sér gullverðlaun með sigri á Hóla-
brekkuskóla en áður hafði liðið gert
jafntefli við Hvassaleitisskóla.
„Við höfum lítið æft saman í
vetur. Flestir okkar eru á kafi í
handbolta og það hefur verið mun
meira að gerast í honum í vetur,“
sagði Ingi Sturluson markvörður
Seljaskóla. Ingi leikur knattspyrnu
með Víkingi en flestir drengjanna
æfa með ÍR og Fram.
Lið Foldaskóla hreppti sigur í
kvennaflokki með því að leggja lið
Laugarnesskóians 2:0 og gera jafn-
tefli við Melaskóla. Stúlkurnar í
Melaskóla áttu þess kost að vinna
gullið með stórum sigri á Laugar-
nesskóla í síðasta leiknum. Laugar-
nesstúlkurnar vörðust hins vegar
fimlega í vörninni og fengu aðeins
á sig eitt mark og það voru því
I Stelpurnar í Foldaskóla sem fögn-
uðu sigri. Þær æfa flestar með
Fjölni en kvennaknattspyrna hefur
verið á hraðri uppleið hjá félaginu.
Aðrar greinar
Tvö mót voru haldin í handknatt-
leik, fyrir 8. og 9. bekk og var leik-
ið í Laugardalshöll. Piltamir í Ár-
bæjarskóla sigruðu í keppni áttunda
bekkjar en lið Seljaskóla varð í 2.
sæti. í piltakeppni níunda bekkjar
sigraði Hagaskóli en liðsmenn Hóla-
brekkuskóla þurftu að sætta sig við
annað sætið.
í stúlknaflokki sigraði lið Breið-
holtsskóla í keppni 8. bekkjar en lið
Haga- og Seljaskóla komu næst í
röðinni. Hvassaleitisskóli sigraði í
keppni 9. bekkjar eftir harða keppni
við Austurbæjarskóla og Hlíða-
skóla.
Breiðhyltingar voru sigursælir í
sundkeppninni. Keppt var í 10 x
50 metra bringusundi. Hólabrekku-
skóli sigraði í keppni 5.-7. bekkjar
á tímanum 7:35,45 sek og sveit
Seljaskóla varð önnur á 8:21,97.
Röðin snerist við í keppni 8.-10.
bekkjar þar sem sveit Seljaskóla
var fyrri í markið á tímanum
6:56,72 en sveit Hólabrekkuskóla
synti á rétt rúmum sjö mínútum.
Nemar í 10. bekk grunnskólans
reyndu með sér í körfuknattleik í
Seljaskólanum. Heimamenn sigr-
uðu í piltaflokki en lið Hólabrekku-
skóla varð í öðru sæti og Hagaskól-
inn í því þriðja.
Hvassaleitisskóli sigraði í
stúlknaflokki en Laugalækjarskóli
og Réttarholtsskóli komu næst.
Þá kepptu nemar 5.-7. bekkjar í
boðhlaupi. Laugamesskóli sigraði,
Hólabrekkuskóli varð í öðm sæti
og Breiðholtsskólinn í því þriðja.
Morgunblaðið/Frosti
Strákarnlr í 7. bekk í Seljaskólanum unnu gullverðlaun í knatt-
spyrnukeppnl grunnskólanna.
IÞROTTIR UNGLINGA / VIÐAVANGSHLAUP ISLANDS
Morgunblaðið/Frosti
Verðlaunahafar í Víðavangshlaupl íslands í unglingaflokkum. Aftari röð frá vinstri; Þorsteinn Böðvarsson
UMSB, Jón Þór Þorvaldsson UMSB, Guðmundur Valgeir Þorsteinsson UMSB, Margrét Halldóra Gísladóttir UMSB,
Unnur María Bergsdóttir UMSB, Sveinn Margeirsson UMSS, Benjamín Davíðsson UMSE. Fremri röð frá vinstri; Ragn-
ar Freyr Þorsteinsson UMSB, Axel Rúnarsson UMSB, Karen Gunnarsdóttir UFA, Sigrún Gísladóttir UMSB, Ingibjörg
Halldórsdóttir UMSE.
UMSB með þvjú gull
UMSB átti þrjá sigurvegara og
fékk þrjú gull í sveitakeppni á
Víðavangshlaupi íslands sem
haldið var í Hafnarf irði um síð-
ustu helgi. 250 unglingar
skráðu sig til leiks f fimm flokk-
um og hlupu um 1500 metra
leið.
Keppni í piltaflokki, 13-14 ára
var æsispennandi. Sveinn
Margeirsson UMSS, stórefnilegur
hlaupari frá Sauðar-
Frosti króki kom fyrstur í
Eiðsson markið á 5 mín. og
skrífar 33 sekúndum en
aðeins munaði þrett-
án sekúndum á fjórum næstu kðpp-
endum. Benjamín Davíðsson UMSE
hafnaði í öðm sæti en Magnús
Guðmundsson Gróttu sem verið
hefur ósigrandi í þessum flokki
varð að sætta sig við þriðja sætið.
Jón Þór Þorvaldsson, efnilegur
hlaupari úr röðum UMSB varð
fyrstur að hlaupa 1500 metrana í
drengjaflokki, 15-18 ára. Jón Þór
kom í mark átímanum 11,17 mínút-
um, rúmri hálfri mínútu á undan
félaga sínum Guðmundi Þorsteins-
syni.
Keppni í strákaflokki 12 ára og
yngri þróaðist upp í einvígi Borg-
firðinganna Axels Rúnarssonar og
Ragnars Þorsteinssonar. Axel kom
í markið á sex mínútum og 22 sek-
úndum, sekúndu undan Ragnari.
Þrátt fyrir að UMSB ætti tvo fyrstu
menn í markið þá dugði það ekki
til, sveitabikarinn fór til HSH.
Rúmlega fjörtíu stelpur tóku þátt
í Víðavangshlaupinu í stelpnaflokki
og eins og í piltaflokknum réðust
úrslitin ekki fyrr en á lokasprettin-
um. Sigrún Gísladóttir UMSB var
þó nokkuð öruggur sigurvegari á
tímanum 6 mín og 50 sekúndum
en baráttan um næstu sæti var
geysihörð. Ingibjörg Halldórsdóttir
UMSE hijóp á 7,05 og þijár stelpur
komu næstar í mark, allar með tím-
ann 7,07. Sveit UFA hlaut sveita-
gullið í þessum flokki. Félagið fékk
65 stig, tíu stigum færra en UMSE
sem varð í öðru sæti.
Unnur Bergsveinsdóttir UMSB
hlaut gullið í telpuflokki. Hún hljóp
hringinn á 6 mínútum og 14 sek-
úndum. Margrét Gísladóttir UMSB
kom í markið íjórum sekúndum síð-
ar og náði silfurverðlaunum. UMSB
sigraði í sveitakeppninni með 38—
stig, UMSE kom næst með 52 stig.
MorgunblaÖið/Frosti
Það var ekkert gefið eftir í yngstu aldursflokknum, 12 ára og yngri frekar
en hjá þeim eldri.
Stúlkur úr Foldaskóla í Grafarvogi sigruðu í kvennaknattspyrnu eftir harða keppni við Melaskóla.
ÚRSLIT
Sundmót Ægis
Unglingamót Ægis í sundi var haldið í
Sundhöll Reykjavíkur um helgina. Keppt
var í fjórum unglingaflokkum og helstu
úrslit urðu þessi:
200 m fjórsund drengja:
Hermann Hermannsson, Ægi.......02:35,06
Svavar Svavarsson, Ægi.........02:39,98
Ólafur Hreggviðsson, Ægi.......02:40,36
200 m fjórsund telpna:
Elín Ríta Sveinbjömsdóttir, Ægi ....02:44,61
Eva Dögg Þorgeirsdóttir, Ægi...02:48,29
Anna Steinunn Jónasdóttir, SFS ....02:48,89
100 m bringusund sveina:
Kristinn Pálntason, Ægi........01:31,43
Sindri Bjarnason, Ægi..........01:34,41
Tómas Sturlaugsson, UBK........01:37,69
100 m bringusund meyja:
Lára H. Bjargardóttir, Ægi.....01:27,54
HalldóraÞorgeirsdóttir, Ægi....01:33,39
Eva Dís Björgvinsdóttir, SH....01:33,51
50 m skriðsund hnokka:
Stcinar Örn Steinarsson, SFS...00:40,67
Amar D. Hannesson, SFS...........00:41,05
Bjöm Ragnar Björnsson............00:42,78
50 m skriðsund hnáta:
Sigríður Rós Þórisdóttir, Ægi....00:37,15
Ama Björg Ágústsdóttir, Ægi......00:38,60
Louisa Isaksen, Ægi............ 00:40,20
100 m skriðsund drengja:
Hermann Hermansson, Ægi.......01:01,14
GrétarMár Axelsson, Ægi..........01:02,33
Ólafur Hreggviðsson, Ægi.........01:05,63
100 m skriðsund telpna:
Eva Dögg Þorgeirsdóttir, Ægi..01:06,24
Elín Ríta Sveinbjömsdóttir, Ægi ....01:06,89
Ama Lisbet Þorgeirsdóttir, Ægi.01:07,36 ,
50 m baksund sveina:
Ómar Friðriksson, SH.............00:36,25
Kristinn Pálmason, Ægi...........00:36,54
ArnarM. Jónsson, SFS.............00:40,64
50 m baksund meyja:
Lára H. Bjargardóttir, Ægi.......00:37,66
Iðunn D. Gylfadóttir, Ægi........00:39,04
Sigrún Halldórsdóttir, SFS.......00:41,52
10 x 50 m skr. - blönduð sveit:
Blönduð A-sveit Ægis.............05:16,58 '
Blönduð B-sveitÆgis..............05:16,77
Blönduð sveit Breiðabliks........06:38,20