Morgunblaðið - 14.05.1992, Page 55
(
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 14. MAl 1992
55
KNATTSPYRNA
Töpuðum stig-
inu sem við
ætluðum okkur
— sagði Ásgeir Elíasson landsliðs-
þjálfari eftirtapið gegn Grikkjum
„VIÐ töpuðum stiginu sem við
ætluðum okkur. Vörnin lék of
aftarlega í byrjun, þannig að
við fengum á okkur of mikla
pressu. Eftir að þeir skoruðu
jafnaðist leikurinn og við feng-
um færi til að skora,“ sagði
Ásgeir Elíasson þjálfari ís-
lenska liðsins.
Asgeir sagði að það væri margt
sem þyrfti að laga. „Leik-
menn voru óþarflega hræddir að
spila boltanum og fyrir vikið lentu
þeir í vandræðum. Hægri vængur-
inn var ekki nægilega góður að
þessu leyti. Vörnin stóð fyrir sínu,
ef frá eru taldar fyrstu þrjátíu mín-
útumar. Ég lagði upp að þeir spil-
uðu svæðisvörn, eins og ég er van-
ur, í stað þess að leika maður á
mann. Grikkirnir eru mun sneggri
en við og því sterkara í stöðunni
maður á móti manni. Það sem brást
helst var varnarhlutverkið í auka-
og hornspyrnum. Menn voru of
staðir.
Við verðum að læra að spila full-
ar níutíu mínútur einsog við getum
best til að eiga möguleika gegi^^
þessum þjóðum. Annars kom það
mér á óvart, að strákarnir héldu
baráttunni út allan leikinn, miðað
við litla leikæfíngu. Við fengu færi
til að jafna leikinn, en það vantaði
smá heppni. Það var því ergilegt
að þurfa að tapa þessum leik.“
Ásgeir sagði að nú yrði að treysta
á heimavöllinn og ná stigum þar.
„Við verðum að vinna heimaleikina
til að eiga möguleika. Það þarf að
koma upp sterkum heimavelli með
áhorfendum sem styðja vel við bak-
ið á okkur. Við verðum að ná að
stjórna leiknum frá upphafi. Ég
mun breyta leikaðferðinni þegar við
spilum heima gegn Grikkjum í
haust. og leika 3-5-2 í stað 4-5-1," •
sagði Ásgeir.
íttímiR
FOLK
■ AÐGÖNGUMIÐINN á leikinn
kostaði 1.500 drökmur i stúku, eða..
tæplega 500 krónur íslenskar. 'i n
samanburðar má geta þess að
stúkumiði á landsleik á íslandi
kostar 1.200 krónur.
■ 2.600 áhorfendur af 10.000
greiddu aðgangseyri. Hinir voru
með boðsmiða og mest var af ung-
um nemendum.
■ BALDUR Bjarnason hljóp
fyrstur inná leikvanginn í gær.
Áhorfendur púuðu á hann en hann
veifaði og hneygði sig og þaggaði
þannig niður í þeim.
■ HARALDUR Ingólfsson vara-
maður íslenska liðsins hitaði upp
alian síðari hálfleikinn. Ásgeir El-
iasson hugðist setja hann inná
miðjuna fyrir Andra en snérist
hugur þegar líða tók á leikinn
setti Hörð Magnússon inná í stað-
inn. „Hann fékk þó alla vega ágæt-
is æfíngu út úr þessu,“ sagði Ás-
geir eftir leikinn.
■ TÍU leikmenn landsliðanna
beggja fengu nýliðamerki í saméig-
inlegum kvöldverði eftir leikinn. í
ræðu sem Eggert Magnússon for-
maður KSÍ flutti við það tækifæri
hvatti hann menn til dáða og sagð-
ist enn trúa því að ísland ætti
möguleika á að komast áfram.
I A-LANDSLIÐIÐ og U-21s árs
liðið léku í Nikebúningum í fyrsta
sinn. A-landsliðsmennirnir skiptu á
treyjum við Grikki en nokkrir leik-
manna íslenska liðsins ætluðu varla-
að tíma því þar sem þeim leist bet-
ur á eigin treyjur.
■ MILOJEVIC, fyrrum þjálfari
Real Madrid á Spáni og júgóslav-
neska landsliðsins fylgdist með
leiknum. Hann var á vegum knatt-
spyrnusambands lands síiis sem er
í sama riðli og liðin sem léku í
gær. Hann sagðist hrifnastur af
Rúnari Kristinssyni.
B ÞJÁLFARI landsliðs Luxeni-
borgar var einnig á leiknum.
H EYJÓLFUR Sverrisson var
ekki alveg sáttur við þýska dómar^
ann. „Þessi dómari hefur dæmt
nokkra leiki hjá okkur í Stuttgart
°g ég þekki hann því ágætlega.
Mér fannst hann dæma mjög hart
og nöldraði svolítið fyrir bragðið,"
sagði Eyjólfur sem fékk gult spjald
í leiknum.
M ÍSLAND og ísrael leika A-
landsleik 9. ágúst og nú hefur ver-
ið ákveðið að U-21s árs lið land-
anna leiki sama dag hér heima.
IB^^Gríska iiðið fékk aukspymu rétt fyr-
■ ^Jir utan vítateig hægra megin á 24.
mínútu. Gefín var há sending fyrir markið
Kallizakis skallaði í stöngina fjær, Birkir kast-
aði sér á eftir boltanum en boltinn barst út til
Sofíanopoulos sem skallaði í netið. Vamarmenn
íslands gleymdu að dekka sóknarmanninn.
Andrl Marteinsson í baráttu við Alexandris hinn gríska.
Reuter
AFLEIT byrjun íslenska lands-
liðsins gegn Grikkjum ífyrsta
leik þessara þjóða í undan-
keppni HM í Aþenu ígærkvöldi
varð því að falli. Grikkir press-
uðu stíft fyrstu mínúturnar og
linntu ekki látum fyrr en þeir
skoruðu eina mark leiksins á
24. mínútu. Á þessum leikkafla
var ekki heil brú íleik íslenska
liðsins. Eftir markið var einsog
öðru liði hefði verið skipt inná.
Hugarfar leikmanna breyttist,
þeir fengu meira sjálfstraust
°9 það vantaði herslumuninn,
einsog svo oft áður, að liðinu
tækistað jafna.
Cyrstu 20 mínútumar voru mar-
■ tröð fyrir íslenska liðið og
mátti það teljast heppið að hafa
ekki fengið á sig
ValurB. dæmda vítaspyrnu á
lónatansson 8. mínútu. Kristján
sknfarfrá Jónsson braut þá á
rikklandi grískum leikmann
innan vítateigs, en dómarinn sleppti
brotinu. „Ég viðurkenni það alveg
að þetta var ekkert annað en víti,“
sagði Kristján Jónsson um atvikið.
Grikkir höfðu mikla yfirburði á
öllum sviðum og sóttu stíft. Islend-
ingar náðu ekki að komast út úr
varnarhlutverkinu, voru ragir og
flýttu sér um of að losa sig við
boltann, beint útaf eða þá til and-
stæðingana.
Grikkir brutu loks varnarmúrinn
á 24. mínútu og komust í 1:0. Eft-
ir það var einsog að íslenska liðið
vaknaði til lífsins og fengi sjálfs-
traust. Leikmenn fóru að spila bolt-
anum, komu framar á völlinn og
voru hreyfanlegri. Liðið fékk þrjú
marktækfæri á síðustu 5 mínútum
hálfleiksins. Rúnar Kristinsson átti
skot eftir snarpa sókn, en varnar-
maður komst fyrir boltann sem
breytti um stefnu og fór framhjá.
Síðan komst Eyjólfur í gegnum
vöm Grikkja en markvörðurinn
varði Iaust skot hans. Besta færið
kom á loka mínútu hálfleiksins.
Andri Marteinsson átti þrumuskot
frá vítateigslínu eftir laglegt sam-
spil við Eyjólf. Gríski markvörður-
inn varð að taka á öllu sínu til að
veija.
Síðari hálfleikur byijaði með lát-
lausri sókn Islendinga þar sem þeir
fengu fjórar hornspyrnur á fyrstu
5 mínútunum. En gríska vörnin var
hlutverki sínu vaxin og varðist vel.
ísland mátti þó þakka fyrir vera
að ekki 2:0 undir er Tsiantakis átti
skalla í stöng íslenska marksins er
10 mín. vom liðnar af síðari hálf-
leik.
Arnar Grétarsson fékk ágætt
færi til að jafna leikinn á 64. mín.
Hann náði opnu skoti frá vítateig
eftir skemmtilega sókn en boltinn
fór rétt framhjá. Rúnar fékk einnig
möguleika á að jafna eftir að hafa
fengið fallega sendingu frá Baldri
Bjarnassyni undir lokin. Rúnar var
kominn inn í vítateig Grikkja en
var aðeins of seinn að hleypa af
skoti áður en vamarmaður komst
fyrir. Hann átti þann möguleika í
stöðunni að gefa boltann á Eyjólf
| sem var í enn betra færi.
Rúnar Kristinsson og Birkir
Kristinsson voru bestu leikmenn
íslenska liðsins. Rúnar hélt boltan-
um vel og var sá sem valdið hafði
á miðjunni. Vamarmennirnir Guðni,
Valur og Kristján skiluðu sínu hlut-
verki vel og Sævar kom sterkur út
í seinni hálfleik. Kristinn R. Jónsson
og Arnar Grétarsson komust vel frá
vamarhlutverkinu, en hefðu mátt
ógna meira. Kantmennimir Andri
og Baldur, áttu í vandræðum lengi
vel og liðið saknaði greinilega Arn-
órs og Sigurðar Grétarssonar. Ey-
jólfur vann vel frammi en mátti sín
lítils gegn margnum lengst af.
Hann fékk of litla hjálp þegar hann
fékk boltann og reyndi að komast
í gegnum vömina.
Vamaraðferð Ásgeirs Elíassonar
heppnaðist ekki í þetta skipti. Leik-
menn festust of mikið í varnarhlut-
verkinu á kostnað miðjuspilsins,
sérstaklega í byijun leiksins. Þá var
bara hugsað um að halda hreinu
og ekkert annað. En leikurinn batn-
aði er á leið. Sagan endurtekur sig
einn einu sinni — liðið þarf alltaf
að lenda undir á útivelli til að leik-
menn þori að taka fmmkvæðið. ís-
lensku strákarnir hafa sýnt að þeir
geta það, en það þarf bara að byija
á því á fyrstu mínútu. Ef við ætlum
okkur að vera með í baráttunni um
sæti í úrslitakeppni HM í Bandaríkj-
unum 1994 þarf liðið meira sjálfs-
traust. Ég bíð spenntur eftir að sjá
liðið leika á heimavelli, því þar ætl-
ar Ásgeir að leggja upp leikaðferð-
ina 3—5—2.
Ég var ánægður með
fyrri hálfleikinn
— sagði Georgiadis, þjálfari Grikklands
Eg er mjög ánægður með fyrri hálfleikinn, sérstaklega fyrstu þijátíu
mínútumar. lxdkmenn mínir léku þá eins og fyrir þá var lagt, en
síðan gáfu þeir eftir,“ sagði Antonios Georgiadis, þj&lfari giiska landsliðs-
ins.
Georgiadis sagði að leikur islenska liðsins hefði ekki komið sér á óvart.
„Ég vissi að þeir myndu spila stífan varnarleik og þaö var því mikilvægt
að fá mark í fyrri hálfleik. Það er greinilegt að það má ekki vanmeta
íslenska liðið og það sýndi í seinni hálfleik, að það er til alls líklegt. Ixik-
urinn í Reykjavík verður mjög erfiður."
Afleit byijun gegn
Grikklandi í Aþenu