Morgunblaðið - 19.06.1992, Side 1

Morgunblaðið - 19.06.1992, Side 1
80 SIÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 136. tbl. 80. árg. FOSTUDAGUR 19. JUNI 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Reuter Kosið um Maastricht írar kusu í gær um Maastricht-samninginn um aukinn samruna Evrópubandalagsríkjanna og bentu síð- ustu skoðanakannanir til, að hann yrði samþykktur. Allir helstu stjórnmálaflokkarnir hafa hvatt til stuðn- ings við samninginn en andstæðingar hans eru m.a. þeir, sem telja samninginn ganga of nærri fullveld- inu, umhverfisverndarsamtök og þeir, sem vilja ævarandi hlutleysi. Það, sem vekur mesta furðu, er, að andstæðingar fóstureyðinga og kvennahreyfíngar, sem berjast fýrir fijálsum fóstureyðingum, hafa snúið bökum saman í andstöðunni. Myndin er tekin við kjörstað í Dyflinni en ekki var búist við tölum fyrr en í dag. Viðræður um framtíð Tékkóslóvakiu: Tékkar íhuga ein- hliða aðskilnað Prag. The Daily Telegraph. TÉKKAR efndu til fjöldamótmæla á Wenceslas-torgi í miðborg Prag í gær til að krefjast þess að tékkneski hlutinn i Tékkóslóvakíu fengi sjálfstæði sem allra fyrst. Heimildarmenn The Daily Telegraph sögðu að Tékkar og Slóvakar hefðu aðeins viku til að semja um framtíð Tékkóslóvakiu. Mótmælendurnir hrópuðu vígorð til stuðnings Vaclav Havel, forseta Tékkóslóvakíu. Skipuleggjendurnir hafa einnig safnað undirskriftum til stuðnings Havel og til að krefj- ast þess að lýst verði yfir sjálfstæði tékkneska hlutans, jafnvel áður en viðræðum um framtíð Tékkóslóvak- íu lýkur. Meira en 50.000 manns hafa skrifað nafn sitt á listann. Heimildarmenn The Daily Tele- graph sögðu að leiðtogar Tékka væru að missa þolinmæðina í samn- ingaviðræðunum við Slóvaka um framtíð Tékkóslóvakíu. Ef viðræð- unum lyki ekki innan viku myndu Tékkar undirbúa þjóðaratkvæða- greiðslu um einhliða aðskilnað frá Slóvakíu. Slóvakar segjast ætla að koma í veg fyrir að Vaclav Havel verði endurkjörinn forseti Tékkóslóvakíu á þingi landsins og leiðtogar Tékka segja að það muni vekja hörð við- brögð tékknesks almennings. Slóv- akar vilja að Tékkóslóvakía verði nokkurs konar efnahags- og varn- arbandalag en Tékkar eru því and- vígir og vilja frekar algjöran að- skilnað frá Slóvakíu. „Slóvakar vilja sjálfstæði en að Tékkar haldi þeim uppi efnahagslega og annist varn- imar. Við viljum ekki sambands- ríki,“ sagði einn heimildarmanna The Daily Telegraph. Sérfræöingar um afvopnunarsamkomulag Bush og Jeltsíns: Vestræn ríki verða að borga eyðingu kjamavopna Rússa Varað við andstöðu innan rússneska hersins gegn samkomulaginu Reuter, The Daily Telegraph. Washington, Moskvu. EYÐING Igarnavopna Rússa er efnahag þeirra gjörsamlega ofviða, að sögn rússneskra og vestrænna sérfræðinga, og vestræn ríki verða að fjármagna hana, ef standa á við nýgert samkomulag Borís Jeltsíns Rússlandsforseta og George Bush Bandaríkjaforseta. Þá varaði rúss- neska blaðið ízvestija við því að margir yfirmenn hersins og harðlínu- menn á þingi myndu leggjast gegn staðfestingu samkomulagsins. Samkomulag Jeltsíns og Bush gerir ráð fyrir að tveir af hverjum þremur kjarnaoddum verði eyðilagð- ir en það er geysilegt vandaverk í framkvæmd. „Þetta er ekki eins og henda frá sér bogum og örvum,“ sagði bandarískur hermálasérfræð- ingur, „við erum að tala um skipu- lagða eyðileggingu á niðurgröfnum skotpöllum sem eru byggðir til að þola kjarnorkuárás.“ Blaðið Krasnaja Zvezna, sem er málgagn rússneska hersins, hafði það eftir Alexander Pískúnov, vara- forseta varnarmálanefndar rússn- eska þingsins, að það væri á mörk- unum að Rússar hefðu efni á að standa við fækkun kjarnavopna samkvæmt START-samningunum, sem gerðir voru í fyrra, og ómögu- legt að standa undir frekari sam- drætti kjarnavopna. Vestrænir sérfræðingar telja að kostnaðurinn við eyðingu kjarnaodd- anna nemi mörgum milljörðum doll- ara og sé ofviða rússneskum efna- hag. Tilboð Bandaríkjastjórnar um 400 milljóna dollara aðstoð er að þeirra mati eins og dropi i hafíð. Varnarmálaráðherra Rússlands, Pavel Gratsjev, sagði á blaðamanna- fundi í Pentagon, bandaríska varn- armálaráðuneytinu, að Rússar þyrftu á bandarískri tækniaðstoð að halda við að eyðileggja vopn. í grein í Ízvestíja vara tveir vís- indamenn við gífurlegu valdi hersins og hergagnaiðnaðarins, sem hafí ráðið allt að þriðjungi þjóðarfram- leiðslu Sovétríkjanna og haldið uppi 50 milljón manns. Forysta þessara afla muni ekki samþykkja róttækan niðurskurð og sé sérstaklega ósátt við eyðingu SS-18 flauga, sem eru öflugustu vopn heims og voru helsta stolt Sovéthersins. Jafnvel vilji stór hluti almennings að Rússar haldi hernaðarmætti sínum, þrátt fyrir versnandi lífskjör, þar sem herinn og kjarnorkuvopnin séu einu leifarn- ar af föllnu veldi Sovétríkjanna. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær frumvarp sem með- al annars kveður á um aðstoð til fyrrum lýðvelda Sovétríkjanna og öldungadeildin gerir það væntanlega einnig í næstu viku. Opinberri heim- sókn Jeltsíns til Bandaríkjanna lauk í gær, en þá héimsótti hann meðal annars búgarð í Kansas til að kynna sér bandaríska hveitiræktun. Sjá fréttir af heimsókn Jeltsíns og kjarnorkuafvopnun á bls. 26. Reuter Ákærðir fyrir stuld Ian og Kevin Maxwell, synir fjölmiðlajöfursins Roberts heit- ins Maxwells, og Larry Trac- htenberg, náinn aðstoðarmaður föður þeirra, voru handteknir í London í gær. Er þeim gefíð að sök að hafa svikið fé út úr svissneskum banka og stolið miklum fjárhæðum úr lífeyris- sjóðum Maxwell-samsteypunn- ar. Þegar þeim hafði verið birt ákæran voru þeir látnir lausir gegn tryggingu. Hér er Ian leiddur út úr lögreglustöðinni. Sjá „Synir ...“ á bls. 27. Bandarískir stríðsfangar í Sovétríkjunum: Efasemdir um yfirlýsingar Jeltsíns . •/«7 0 Washington. Reuler. YFIRLYSINGAR Borís Jeltsíns, forseta Rússlands, um að bandarísk- ir hermenn, sem teknir voru til fanga í Kóreu- og Víetnamstríð- inu, hafi verið fluttir til Sovétríkjanna, hafa vakið mikil viðbrögð í Bandaríkjunum og jafnvel meiri en árangurinn af viðræðum þeirra forsetanna, Jeltsíns og George Bush, um afvopnunarmál. Ýmsir bandarískir og rússneskir embættismenn hafa samt látið í ljós miklar efasemdir um þetta mál. Óvæntar upplýsingar Jeltsíns hafa vakið löngu gleymdar vonir margra um að ástvinir þeirra, sem ekkert hefur spurst til síðan í Kóreu- eða Víetnamstríðinu, séu jafnvel enn á lífi, en haft er eftir embættismönnum, sem ekki vildu láta nafns síns getið, að stundum hafi Jeltsín virst rugla saman vangaveltum og staðreyndum og ekki gera neinn greinarmun á bandarískum hermönnum, sem hurfu í síðari heimsstyijöld, Kóreu- stríðinu eða Víetnamstríðinu. Enn er ekki vitað um afdrif 2.268 bandarískra hermanna síðan í Víetnam, 8.100 í Kóreustríðinu og 79.000 frá því í síðari heims- styijöld, en Jeltsín segir, að Sovét- menn hafi handtekið hundruð bandarískra hermanna eftir síðari heimsstyijöld og tekið við ótil- teknum fjölda fanga úr hinum styijöldunum tveimur. Dmítrí Volkogonov, annar formaður bandarísk-rússneskrar nefndar, sem rannsakað hefur þessi mál, vísaði í gær á bug ummælum Jelts- íns. Sagði hann nægar upplýsingar til um þá, sem verið hefðu í sovésk- um fangabúðum, og taldi, að hefðu bandarískir fangar verið þar, væru upplýsingar um það löngu fram komnar. í gær fór hins vegar frá Moskvu leiðangur Rússa og Bandaríkjamanna til að leita að bandarískum flugmanni, en talið er, að hann hafi verið handtekinn í Kóreustríðinu á árunum 1950-53. Eru sögur um, að hann hafí verið í fangabúðum í Pechora í Norðaustur-Rússlandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.