Morgunblaðið - 19.06.1992, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.06.1992, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1992 27 Sarajevo-búar grafnir í almenningsgörðum Bosníumaður er hér á gangi fram hjá grafreitum múslima í vesturhluta Sarajevo, höfuðborgar Bosníu- Herzegovinu. Allir kirkjugarðar í borginni eru nú fullnýttir og fólk er nú grafið í almenningsgörðunum. Synir Roberts Max- wells handteknir London. Reuter. KEVIN og Ian Maxwell, synir fjölmiðlakóngsins Roberts Maxw- ells, sem drukknaði í fyrrahaust, voru handteknir í gær vegna rannsóknar á meintu fjármálamisferli innan fjölmiðlasamsteypu föðurins. Bræðurnir voru handteknir árla í gærmorgun á heimilum sínum og einnig var bandarískur fjár- málamaður, Larry Trachtenberg, tekinn fastur en hann var einn nánasti ráðgjafi Roberts Maxwells heitins. Skömmu eftir handtökuna sáu blaðaljósmyndarar lögreglumenn bera nokkra sekki fulla af skjölum inn á lögreglustöðuna á Snow Hill í London en þar var mönnunum þremur birt ákæra fyrir að hafa stolið miklu fé úr lífeyrissjóðum Maxwell-samsteypunnar og svikið fé út úr svissneskum banka. Að því búnu voru þeir látnir lausir gegn tryggingu. Handtökurnar áttu sér stað sjö mánuðum eftir dularfullt dauðsfali fjölmiðlakóngsins sem féll fyrir borð á snekkju sinni við Kanaríeyj- ar 5. nóvember sl. Eftir dauða hans tóku synirnir við stjórn sam- steypunnar og reyndu að halda henni gangandi. Skuldirnar námu milljörðum ÍSK en verðhrun varð á hlutabréfum í samsteypunni eftir andlát Maxwells og kippti það end- anlega fótunum undan fyrirtæk- inu. Eftir mánuð gáfust synirnir upp við að bjarga því. Rannsókn stendur yfir á fjár- reiðum fjölmiðlasamsteypu Maxw- ells en grunur leikur á að hann og hugsanlega synir hans einnig hafi gengið í lífeyrissjóði starfs- manna samsteypunnar til þess að greiða af skuldunum. Trachten- berg stjórnaði fyrirtæki sem sá meðal annars um fjárfestingar líf- eyrissjóðanna. Weinberger ákærður í íran-kontramálinu: Á yfír höfði sér 25 ára fangelsisvist Washington. Reuter, The New York Times. SAKSÓKNARINN, sem fer með ákæruvaldið á hendur Caspar Wein- berger, fyrrum varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, vegna aðildar hans að Iran-kontra málinu, mun að ölium líkindum byggja sókn sína á dagbókum sem Weinberger hélt í embættistíð sinni. Weinberger hefur meðal annars verið gefið að sök, að hafa veitt Bandaríkjaþingi ósannar upplýsingar og reynt að hindra rannsókn þess á hneykslinu. Verði Weinberger fundinn sekur um öll ákæruatriðin gæti hann feng- ið 25 ára fangelsisdóm og þurft að borga um 80 milljónir króna í sekt. Weinberger var varnarmálaráð- herra Ronalds Reagans Bandaríkja- forseta á árunum 1981-1987. Árið 1987 hófst rannsókn á ásökunum bandarískra fjölmiðla um það, hvort bandarísk stjórnvöld hefðu selt vopn á laun til íranskra stjórnvalda og flutt hagnaðinn með leynilegum hætti til kontraskæruliða í Nic- aragua en hvort tveggja braut í bága við bandarísk lög. Dómstólar komust að þeirri niðurstöðu að svo hefði verið og var Oliver North, starfsmaður þjóðaröryggisráðsins, dæmdur fyrir hlutdeild sína í mál- inu. Síðar var dómurinn þó ógiltur vegna þess að talið var að fyrri vitn- isburður Norths í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefði haft óeðlileg áhrif á dóminn. Ákæruatriðin á hendur Weinberg- ers eru fimm. Eitt fyrir að hafa lagt stein í götu rannsóknarnefndar þingsins, tvö fyrir meinsæri og tvö fyrir að hafa gefið ósannar yfirlýs- ingar í Íran-Kontra málinu. Er hann meðal annars sakaður um að hafa viljandi komið í veg fyrir að rann- sóknarmenn þingsins gætu rannsak- að dagbækur hans sem eru um 1.700 blaðsíður. Umrædd skjöl eru nú í höndum saksóknarans í málinu og er talið að þau geti leitt í ljós hvort, og að hve miklu leyti, Weinberger og aðrir háttsettir embættismenn séu flæktir í máiið. Weinberger er hæstsetti embætt- ismaðurinn í Reagan-stjórninni sem hefur verið ákærður í íran-kontra- málinu. Haft var eftir Weinberger á þriðjudag að allar sakargiftirnar væru rangar. Hann hefði ávallt ver- ið á móti vopnasölu til írans og átt gott samstarf við þingið og saksókn- ara við rannsókn hneykslisins. Saksóknarinn, sem fer með málið, neitaði því að með ákærunni gegn Weinberger væru böndin farin að beinast gegn Reagan en getum hef- ur verið leitt að því að samsæri sé á milli fyrrum háttsettra embætt- ismanna forsetans fyrrverandi um að hylma yfir þátt hans í málinu. Bretland: Eyða skammdrægum kjarnavopnum á sjó London. The Daily Telegraph. BRESKI flotinn mun eyða öllum skammdrægum kjarnaflaugum og kjarnorkudjúpsprengjum sínum, að sögn Malcolms Rifkinds, vamar- málaráðherra Breta. Ekkert hinna kjarnorkuveldanna fimm hefur gefið jafn afdráttarlausa yfirlýsingu um kjarnorkuafvopnun á höfunum. Bretar munu halda langdrægum Trident-flaugum um borð í kafbát- um, en 30 kjarnorkudjúpsprengjur og 30 skammdrægar flaugar verða eyðilagðar. I september síðastliðnum ákvað Atlantshafsbandalagið (NATO) að skip undir merkjum bandalagsins myndu ekki bera skammdræg kjarnorkuvopn um borð, en vopnin voru geymd í landi og tilbú- in til notkunar ef þyrfti. Rifkind sagði að nú yrði gengið skrefi lengra og vopnin eyðilögð. , Til stendur að eyðileggja um helm- ing þeirra 2.500 skammdrægra kjarnavopna sem bandaríski flotinn býr yfir, en sjóliðar verða væntanlega áfram æfðir í notkun þeirra. í flota Sovétríkjanna voru um 2.600 skammdræg kjarnorkuvopn, en til stendur að ljarlægja flest eða öll þeirra úr skipum. Frakkar eiga um 36 flugskeyti með kjamaoddum, sem hægt er að setja í flugvélar um borð í tveimur flugmóðurskipum, en þeir hafa ekki gefið út neina yfirlýsingu um að slíkt verði ekki gert. Tilbodgildir í eftirtöldum verslunum: REYKJAVIK: Hagkaup (allar verslanir), Bónus (allar verslanir), Nóatún (allar verslanir), 10:10 Vogaveri, 10:10 Norðurbrún, Matvörubúðin Grímsbæ, Hagabúðin, Melabúðin, Kársnerskjör, Sunnukjör, Matvörubersl.Austurvcri,Kjöthöllin,Júllabúð,Versl. Rangá, Versl. Svaríhóll, Kjötmiðstöðin, Vinberið, Laugameskjör, Breiðholtskjör, Plúsmarkaðurinn Straumnes, Kjöt & Fiskur. KÓPAVOGUR: Brekkuval, Borgarbúðin, Sækjör, Hvammsval, Versl. Vogur. HAFNAFJÖRÐUR: Bónus, Versl. Amarhraun, Versl. Þórðar Þórðarsonar MOSFELLSBÆR: Nóatún, Kaupf. Kjalamesþings. AKRANES: Skagaver, Versl. Einars Ólafsson. AKUREYRI: Hagkaup, Matvömmarkaðurinn. BÍLDUDALUR: Edinborg. BLÖNDUÓS:Vísir.BORGARNES:Versl.Jón&Stéfan, Vöruhús Vesturlands. BOLUNGARVÍK: Vcrsl. Einars Guðfinnssonar. BUÐARDALUR: Dalakjör. DJLJPIVOGUR: KASK FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: Viðarsbúð. GRUNDARFJÖRÐUR: Ásakjör, Versl. Gmnd. GRINDAVÍK: Staðarkjör. HELLA: Höfh/ Þríhymingur, HELLISSANDUR: Kjörbúðin. HÓLMAVÍK: Kaupf. Steingrímsfjarðar. HÚSAVÍK: Kaupf. Þingeyinga, Kjarabót. HÖFN: KASK (Vesturbraut & Hafnarbraut). ÍSAFJÖRÐUR: Vömval, Kaupf. ísfirðinga, Bjömsbúð. KEFLAVÍK: Hagkaup, Stórmarkaðurinn.Versl.Hólmgarður.Miðbær.ÓLAFSFJÖRÐUR: Versl. Valberg. ÓLAFSVÍK: Kassinn, Hvammur. RIF: Virkið. SELFOSS: Höfn/Þríhyrningur, Kjarabót, Vöruhús K.Á. SIGLUFJÖRÐUR: Frímanskjör. STYKKISHÓLMUR: Hólmkjör. VESTMANNAEYJAR: Tanginn, Eyjakaup, K.Á. Goðahrauni, Eyjakjör, Betri Bóuus. 150 kr. s Eg vel: □ Ríó Kaffi □ Diletto Kaffi | | Colombia Kaffi Heimilisfang: Sími:_________ Tilboð gildir adeins ef útfylltum miða er framvísað í einhverri neðangreindra verslana. Afsláttur á lkg. lengjumi Þessi miði veitir þér 50 kr. afslátt þegar þú kaupi 1 kg. af Ríó kaffi ! eða Diletto kaffi eða Colombia kaffi. Það eina sem þú þarft að gera | er að merkja við hvaða kaffi þú kaupir og skrifa nafn þitt og | heimilisfang á miðann. Síðan afhendir þú miðanum við kassann í ® einhverri af neðangreindum verslunum. I I I I I I I ,J Tilbod gildir frá 11. júní til 25. júni. Tilboð gildir adeins ef 'keypt er 1. kg. lengja af ÓJ&K kaffi. Sætún 8,125 Reykjavík. Sími 6 24 000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.