Morgunblaðið - 19.06.1992, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1992
Keflavíkurflugvöllur:
Stéttarfélög óska breyt-
inga á kaupskrárnefnd
JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra hefur ákveðið að halda
fund með starfsfólki vamarliðsins og öðrum starfsmönnum á Keflavík-
urflugvelli um væntanlegar breytingar á Keflavíkurflugvelli, öryggi
þess fólks sem þar starfar og hvort breytingar hafi orðið varðandi
starfsmannahald eða hvort breytinga sé að vænta. Ennfremur hafa
fulltrúar 9 stéttarfélaga á Suðurnesjum óskað eftir viðræðum við ráð-
herra um svonefnda kaupskrámefnd og hugsanlegar úrbætur á störf-
um hennar.
Væntanlegur fundur ráðherra
verður næstkomandi þriðjudag
klukkan 20,30, líklegast í Stapa.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hafa stéttarfélögin lengi
knúið á um þennan fund, en síðasti
fundur, sem starfsmennimir áttu
með ráðherra var haldinn 29. októ-
ber 1991. Jafnframt því sem forráða-
menn stéttarfélaganna hafa óskað
eftir þessum almenna fundi hafa
þeir einnig óskað eftir viðræðum við
ráðherra um sömu málefni.
Nokkurrar óánægju gætir meðan
starfsmanna á Keflavíkurflugvelli,
einkum með störf kaupsrámefndar.
Fullyrt er að hópar starfsfólks hafi
ekki fengið úrskurð frá nefndinni um
launabætur sínar svo árum skiptir
og stöðug loforð um úrbætur hafa
verið létt í vasa. Nefndin hefur að
mati starfsfólksins haft þá vinnu-
reglu að komi þeir tveir nefndar-
menn, sem em fulltrúar aðila vinnu-
markaðarins, sér ekki saman, gerist
ekkert innan nefndarinnar. Þannig
telur starfsfólið að þriðji aðilinn í
nefndinni hafí ekki atkvæðisrétt.
Stjórnir Verkalýðs- og sjómannafé-
lags Keflavíkur og Rafiðnaðarfélag
Suðurnesja fóru fram á það við ráð-
herra í febrúar síðastliðnum að hann
skipaði nýja kaupskrárnefnd og nef-
ur núverandi nefnd að mati stéttarfé-
laganna notað þá óvissu, sem þessi
beiðni skapaði sem réttlætingu til
að aðhafast ekkert í málum starfs-
mannanna.
Þau níu stéttarfélög, sem standa
að beiðninni um almennan fund og
breytingar á kaupskrárnefnd eru:
Verlalýðs- og sjómannafélag Kefla-
víkur, Verslunarmannafélag Suður-
nesja, Iðnsveinafélag Suðumesja,
Rafíðnaðarfélag Suðumesja, Verka-
lýðs- og sjómannafélag Gerðahrepps,
Bifreiðastjórafélagið Keilir, Verka-
lýðs- og sjómannafélag Sandgerðis,
Verkalýðsfélag Grindavíkur og Félag
slöllviliðsmanna á Keflavíkurflug-
velli.
Reykjavíkurhöfn:
Hafnardagur í Sundahöfn
í tilefni 75 ára afmælisins
í TILEFNI 75 ára afmælis Reykjavíkurhafnar verður sérstök hátið í
dag, laugardaginn 20. júní kl. 10.00 til 17.00 í Sundahöfn - flutningam-
iðstöð landsins. Umráðasvæði Sundahafnar nær frá Olís í vestri til
Samskipa í austri. Fjölmargar skemmtilegar uppákomur verða í boði
fyrir alla fjölskylduna. Til að auðvelda gestum að skoða athafnasvæð-
ið og njóta þess sem boðið verður upp á munu strætisvagnar frá SVR
aka um svæðið á 10 mínútna fresti og koma við hjá öllum fyrirtækjum
í hverfinu. Því er upplagt fyrir gesti að leggja bílnum í stæði og stíga
upp í strætisvagnana án endurgjalds, segir í fréttatilkynningu frá
Reykjavíkurhöfn.
A athafnasvæði Eimskips verður
sýndur nýr og fullkominn „risa-gám-
alyftari", sem getur teygt sig í og
tekið gáma sem standa inn á milli í
gámaröðum. Lyftarinn hefur ekki
enn verið tekinn í notkun. Þá verður
sýndur gamall hífíngarbúnaður, sem
notaður var hér áður fyrr, samanbor-
inn við afkastamesta krana landsins,
Jaka, sem sýndur verður í vinnu.
Land-flutningatæki ýmiss konar,
gamlar og nýjar gerðir af gámum
og fleira og fleira skemmtilegt verð-
up til sýnis hjá Eimskip.
Samskip bjóða gestum til grill-
veislu aldarinnar frá kl. 12.00 til
15.00 og á sama tíma rallýkeppni,
þar sem 7 bílar taka þátt í spenn-
andi sérleið sem Hagvirki hefur út-
búið. Bílamir verða til sýnis milli
keppna. Bræðumir ómar og Jón
Ragnarssynir keppa kl. 14.00 í æsi-
spennandi gáma-uppröðumarkeppni á
einhverjum öflugustu gámalyftumm
landsins. Markmenn Samskipadeild-
arinnar, Bjami Sigurðsson, Guð-
mundur Hreiðar og Ólafur Gott-
skálksson veija gámamarkið fyrir
áhugasömum gestum kl. 12.30,
13.30 og 14.30. Þeir gestir sem
standa sig best fá verðlaun.
Heildsalar í Sundaborg hafa opið
frá kl. 10.00. Gestum verður boðið
að koma og skoða fyrirtækin, sem
flest tengjast starfsemi hafnarinnar.
Opið verður um 220 metra langan
gang sem liggur eftir húsinu endi-
löngu. Auk þess munu heildsalar
sýna vörur sínar utan dyra. Þá ætlar
Félag íslenskra stórkaupmanna að
efna til spennandi getraunaleiks.
Nokkur fyrirtæki verða með 400
fermetra tjald við athafnasvæði sitt
með pepsí og pylsum og sýna gestum
starfsemina undir leiðsögn heima-
manna. Mikligarður, Bónus og Húsa-
smiðjan verða opin.
(Fréttatilkynning)
............. ............................ 1
TRÉSMIÐIR- HÚSBYGGJENDUR
Hin frábæra
v-þýska trésmíðavélasamstæða
fyrirliggjandi
Samanstendur af 10 tommu
afréttara, 5 tommu þykktarhefli
og 12 tommu hjólsög.
Auk þess er hægt að bæta við
vélina fræsara, bor, rennibekk,
slípiskífu og bandsög.
Því er vélin ekki aðeins til
heimilisnota eða föndurs, heldur
ákiósanleg við alla létta, almenna
tresmíðavinnu.
Vélir. er knúin 2ja hestafla
einfasa mótor.
LAUGAVEGI 29
SlMAR 24320- 24321- 24322
V
-/
Krakkarnir sem tóku þátt í áheitasöfnuninni.
Eskifjörður:
íslandsmethafar í reki
í gúmmíbjörgunarbát
Eskifirði.
UNpLINGADEILD Slysavarnafélagsins á Eskifirði stóð fyrir
áheitasöfnun á dögunum. Fjórir unglingar voru á reki á gúmmí-
björgunarbát í 35 tima og settu nýtt Islandsmet en áður áttu
Hafnfirðingar metið sem var 34 tímar.
Söfnunin gekk mjög vel og
söfnuðust 180.000 þúsund krón-
ur og fara þessir peningar í
tækjakaup og vill Slysavarnafé-
lagið koma á framfæri þakklæti
til þeirra sem studdu söfnunina.
Krakkarnir voru með tölu-
verða sjóriðu þegar þau komu í
land en annars amaði ekert að
þeim. Erfiðasti tíminn að þeirra
sögn var á milli kl. 4-8 um
morguninn.
Unglingarnir heita Agla H.
Hauksdóttir, Freyja B. Kristins-
dóttir, Einar Andrésson og
Smári Skúlason.
- Benedikt.
Fimmtánda Norræna
kirkjutónlistarmótið
EINS og áður hefur komið fram er þema norræna kirkjutónlistarmóts-
ins „Litúrgískt tónmál 10. áratugarins í guðsþjónustunni og kirkjuleg-
um athöfnum“ Það er einmitt með tilliti til þessa að í dagskránni hef-
ur verið lögð áhersla á að kynna sem flestar hliðar tónlistar sem notuð
er í hinum ýmsu athöfnum kirkjunnar.
Þetta einkennir mjög dagskrá
föstudagsins 19. júní á Norræna
kirkjutónlistarmótinu því ekki færri
en þijár tíðagjörðir verða fluttar.
Sú fyrsta hefst kl. 9 í Bústaða-
kirkju og verður á fínnsku. Þar verð-
ur flutt Laudes eftir Kaj-Erik Gu-
stafsson. Finnsku þátttakendurinir á
mótinu leiða sönginn ásamt séra
Hannu Vapaavuori en Aale Lindgren
leikur á óbó og enskt hom og höfund-
urinn á orgel. í Háteigskirkju verður
kl. 18.30 fluttur aftansöngur á
sænsku eftir Per Gunnar Petersson.
Það er Jubilatakören, sem er stúlkna-
kór frá IKEA-bænum Álmholt og
Maty Chard Petersson sem flytja
hann undir stjórn fundarins. KI. 22
verður svo fluttur náttsöngur á ís-
lensku í Dómkirkjunni í Reykjavík.
Það eru félagar ísleifsreglunnar sem
eiga veg og vanda að flutningnum.
Fyrirlestrar og önnur dagskrá
mótsins fer fram í Norræna húsinu.
Kl. 10.30 hefst þar umfjöllun um
þema mótsins.
Á tónleikum, sem verða í Háteigs-
kirkju og hefjast kl. 17 verða flutt
tvö kórverk eftir sænsku tónskáldin
Roland Forsberg og Sven-David
Sandström, verk fyrir óbó og orgel
eftir finnska tónskáldið Harri Wess-
man og Norðmanninn Conrad Baden,
orgelverk eftir Danann Axel Borup-
Jorgensen og Kirkjusónata eftir Þor-
kei Sigurbjömsson. Flytjendur eru
Collegium Cantorum Upsaliensis
undir stjórn Lars Angerdals, Aale
Lindgren óbó og Lasse Erkkilá org-
el, Eva Feldbæk orgel og Kjartan
Óskarsson bassethom/Inga Rós Ing-
ólfsdóttir selló og Hörður Áskelsson
orgel.
Á kvöldtónleikum, sem verða í
Kristkirkju og hefjast kl. 20.30 verða
m.a. flutt orgelverk eftir Kurt Wik-
landre, Leif Thybo og Trond Kvemo.
Flytjendur eru Mary Chard Peters-
son, Grethe Krogh oog Terje Winge.
Verk Thybio sem nefnist 7 Mosaik-
kervar samið í tilefni af nýrri skreyt-
ingu eftir danska myndlistarmanninn
Carl-Henning Pedersen í dómkirkj-
unni í Rípum á Jótlandi.
Dagskrá laugardagsins hefst með
morgunsöng á dönsku í Fríkirkjunni
í Reykjavík þar sem Herning kirkes
Drenge- og Mandskor leiða sönginn
sundir stjórn Mads Bille, orgelleikari
er Jesper Madsen. Laugardeginum
lýkur með miðnæturmessu á sænsku
sem hefst kl. 23 í Hallgrímskirkju.
Stuðst verður við Messu á hvíta-
sunnunótt eftir Kaj-Erik Gustafs-
son. Prestur er séra Márten Lindblom
sem er prestur hjá sænska söfnuðin-
um í suðurhluta Helsingfors.
Þá verða tónleikar í Selfosskirkju
og heflast þeir kl. 16.30. Þar verða
flutt verk eftir Ketil Hovslef, Roland
Forsberg, Henrik Colding-Jorgens-
en og Erik Haumann. Flytjendur eru
Teije Winge oregl. Þómnn Guð-
mundsdóttir mezzósópran og Örn
Falkner orgel og Heming kirkes
Drenge- og Mandskor og Jesper
Madsen orgel undir stjóm Mads Bille.
Listahátíð í
Reykjavík:
Dagskráin
í dag
íslenska óperan: Rigoletto kl.
20.
Klúbbur Listahátíðar, Hressó
Síðasta kvöldið sem klúbburinn
starfar kemur hljómsveitin Júp-
iters fram auk hljómsveitarinn-
ar Babalú. Einnig verða óvænt-
ar uppákomur.