Morgunblaðið - 19.06.1992, Síða 2

Morgunblaðið - 19.06.1992, Síða 2
. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JUNI 1992 Mannleg mistök í aðveitustöð; Rafmagni sló út sunnan- og suðvestanlands SPENNIR í aðveitustöð Lands- virkjunar á Geithálsi eyðilagðist upp úr hádegi í gær með þeim Borgarstjóm: Sjálfstæðis- menn vinna hlutkesti FJÓRIR borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokks og einn fulltrúi minnihlutaflokkanna voru kjörnir til setu í borgarráði á fundi borg- arstjómar í gær. Af lista Sjálfstæðisflokks hlutu kjör Ámi Sigfússon, Katrín íjeldsted, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Júlíus Hafstein. Af lista minnihlu- taflokkanna hlaut kjör Ólína Þor- varðardóttir. Fram fór hlutkesti um fímmta mann í borgarráð, Júlíus Hafstein eða Siguijón Pétursson og unnu sjálfstæðimenn. Er þetta í þriðja sinn á þessu kjörtímabili sem hlutkesti er varpað um fulltrúa í borgarráð og jafnframt í þriðja sinn sem sjálf- stæðismenn vinna. -----».------- áfleiðingum að rafmagn fór af stóru svæði sunnan- og suðvest- anlands. Verið var að vinna við aðveitustöðina og er talið að mistök hafi valdið því að spenn- irinn sprakk. Rafmagn fór af hluta Reykja- víkur, Akranesi og hluta Suður- lands þ.m.t. Selfossi, Hveragerði og Hvolsvelli, um kl. 13.40. Raf- magn komst á að nýju í höfuðborg- inni um kl. 14 og síðasti staðurinn komst inn á kerfið um kl. 14.15. Samkvæmt upplýsingum frá stjómstöð Landsvirkjunar er talið að um mannleg mistök hafí verið að ræða í vinnu sem var verið að framkvæma í aðveitustöðinni. Húsnæðisstofnun: Morgunblaðið/Ingvar Tvennt slasaðist í hörðum árekstri Tvennt slasaðist í hörðum árekstri á mótum Borgartúns og Kringlumýrarbrautar skömmu eftir hádegi í gær þegar pallbíll og Subaru-fólksbíll skullu þar saman. Umferðarljós á gatnamótunum voru óvirk vegna rafmagnstruflana á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Ökumaður og farþegi úr fólksbílnum voru fluttir til aðhlynningar á sjúkrahús en bílamir voru báðir óökufærir. Áætlað að uppboðskostnaður hækki um 80 milljónir króna á árinu Magnús L. endurkjör- inn forseti MAGNÚS L. Sveinsson var end- urkjörinn forseti borgarstjóraar á fundi borgarstjóraar í gær. Tíu borgarfulltrúar greiddu atkvæði með Magnúsi en 5 seðlar voru auðir. Kosning forseta borgarstjómar fer fram á hverju ári. Páll Gíslason og Katrín Fjeldsed voru endurkjörin varaforsetar með 10 atkvæðum, 5 seðlar voru auðir. HÚSNÆÐISTOFNUN ríkisins áætlar að kostnaður stofnunar- innar vegna uppboðsgjalda hækki um 80 milljónir króna frá síðasta ári eða úr 20 milljónum í rúmlega 100 milljónir, sam- kvæmt upplýsingum Yngva Arn- ar Kristinssonar, formanns Hús- næðismálastjómar. Ástæðan er hækkun dómsmálagjalda sem ríkisstjórnin ákvað við afgreiðslu fjárlaga fyrir yfirstandandi ár en ekki sú að uppboðsgerðum hafi fjölgað að undanförnu, að sögn Yngva. Yngvi Órn sagði að Húsnæðis- stofnun bæri að greiða þessi gjöld til fógeta en þau renna svo beint í ríkissjóð. Það kæmi fram í auknum rekstrarkostnaði stofnunarinnar og þyrfti hún því á fjárveitingu að halda til að leggja út fyrir þessum aukna kostnaði. Gjöldin yrðu síðan innheimt hjá skuldurum og kvaðst hann eiga von á að tækist að inn- heimta megnið af þeim aftur. „Lögin sem samþykkt voru um áramótin gera það að verkum að þessi stofnun, líkt og flestar aðrar lánastofnanir, er orðin féþúfa fyrir ríkissjóð. Okkur sýnist að fógeta- kostnaðurinn hækki úr röskum 20 milljónum á síðasta ári upp í um 100 milljónir," sagði Yngvi Örn. Hann sagði að húsnæðismála- stjóm myndi ræða þetta á næsta fundi sínum en hún vinnur nú að frágangi á fjárlagatillögum stofn- unarinnar fyrir næsta ár. Yngvi Öm sagði að rekstraruppgjör fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins benti til að Húsnæðisstofnunin væri innan rekstraráætlana að uppboðskostn- aðinum undanskildum. Ríkisstjórn- in ákvað á síðasta ári að félags- málaráðuneytið beitti sér fyrir vem- legri lækkun á rekstrarkostnaði Húsnæðisstofnunar á næstu tveim- ur árum í samráði við forsvarsmenn hennar. Borgarstjórn: Fjölbrautaskóli Suðurlands: Mikil ásókn í skólavist 748 nemendur innritaðir Framtíð Austurstrætis ekki ákveðin að sinni Tillögu Alþýðubandalags vísað til borgarráðs Selfossi. INNRITAÐIR nemendur í Fjöl- brautaskóla Suðurlands á kom- andi haustönn eru mun fleiri en nokkru sinni, eða 748. Gangi þessi innrítunartala eftir þarf skólinn aukið fjármagn til rekstrar og aukið húsnæði. Á síðustu önn voru nemendur í dagskóla 619. í auglýsingum skólans vegna inn- ritunar var skýrt tekið fram að þeir sem sæktu um eftir tilsettan tíma fengju ekki skólavist. Nýnemar í inn- ritunarhópnum eru 189 en voru 150 1991. Nemendur sem halda áfram námi eru 462 en voru 371 í fyrra. Nemendur sem koma aftur til náms eru 73, voru 25 í fyrra, og nemendur úr öðrum skólum eru 23 en voru 19 við innritun í fyrra. Nemendur þurfa að staðfesta inn- ritun sína með greiðslu skólagjalda fyrir 10. júlí. Stjómendur skólans gera ráð fyrir að innritunum fækki eitthvað við þau tímamörk. Ljóst er þó að nemendur verða mun fleiri á næstu starfsönn skólans sem kallar á aukið húsnæði og rekstrarfé. Sig. Jóns. TILLÖGU Alþýðubandalags um að borgarsljórn samþykkti að loka aftur Austurstræti fyrir bílaumferð var vísað til borgarráðs til ítarlegri umfjöllunar á fundi borgarsljórnar í gærkvöldi. Sex mánaða tilraunatíma með opnun strætisins fyrir bflaumferð lauk 31. maí sl. Sjálfstæðismenn töldu ekki tímabært að taka ákvörðun um framtíð götunnar þar sem m.a. hefði ekki enn reynt á mögu- leika til tímabundinnar lokunnar fyrir bilaumferð á góðviðrisdög- um. Austurstræti var lokað fyrir bílaumferð í gær þar sem um tíma var útlit fyrir að veður yrði gott. Guðrún Ágústsdóttir bar fram tillögu um að loka Austurstræti aftur fyrir bílaumferð. Hún sagði að rétt væri að loka götunni nú, annað væri að ganga á bak orða sinna. Austurstræti hefði verið griðastaður gangandi fólks í 18 ár og bæri að vera það áfram. Guðrún sagði að 18 þúsund manns hefðu skrifað undir áskorun um að opna Austurstræti aftur sem göngugötu. Aðrir fulltrúar minni- hlutaflokkanna tóku undir orð hennar og sagði Ólína Þorvarðar- dóttir lykilatriði að Reykvíkingar yrðu hafðir með í ráðum áður en Kanadískur vísindamaður um hegðun þorsksins: Reyndir golþorsk- ar leiða göngurnar ÞORSKURINN ferðast um hafið í stórum göngum eftir flóknu „vegakerfi", sem reyndir golþorskar þekkja og leiða hina um eins og forystusauðir, að sögn kanadísks vísindamanns, sem seg- ir þorskinn sýna flókið félagsmynstur. Frá þessu er skýrt í nýjasta en færir sig svo nær ströndu í hefti tlmaritsins National Ge- ographic, þar sem segir að rann- sóknir hafí nýlega varpað Ijósi á göngur þorsksins við Nýfundna- land, þar sem þorskurinn hrygnir 100-150 sjómílur frá landi í mars, júní til að gæða sér á loðnu. George Rose, vísindamaður við kanadísku hafrannsóknastofnun- ina, fylgdi þorskgöngu með dýpt- armæli þessa leið og segir að þær rannsóknir hafí sýnt að þorskur- inn fari í risastórum torfum, sem ná yfír 15-30 kílómetra svæði og lúti ströngum hópaga. Fyrir göngunum fara stærstu og reynd- ustu fískarnir, sem Rose kallar njósnara, og telur hann að þeir þekki leiðina og noti til þess smá- vægilegan mun á hitastigi og lag- skiptingu sjávar. Gangan hegðar sér eins og einn einstaklingur, til dæmis fylgdist Rose með því þeg- ar allir þorskamir færðu sig I átt að yfirborðinu á sama tíma yfír margra ferkílómetra svæði. bindandi ákvörðun yrði tekin um framtíð Austurstrætis. í tillögu meirihluta sjálfstæðis- manna segir að það sé liður í stefnu borgaryfírvalda að efla miðbæinn á nýjan leik sem vett- vang viðskipta og athafnastarf- semi. Enn hafí ekki reynt á mögu- leikann til tímabundinnar lokunn- ar fyrir bílaumferð á góðviðrisdög- um. Slíkar ráðstafanir í þágu gangandi vegfarenda eigi fyrst og fremst við á þeim tíma sem nú fari í hönd um hásumarið. Eðlilegt sé að betur yrði látið reyna á þenn- an þátt. ) í tillögunni segir jafnframt að umfangsmikar aðgerðir séu nú framundan við endurnýjun Vallar- strætis og Thorvaldsensstrætis I því augnamiði að þar verði göngu- svæði. Tengist sú ákvörðun sam- þykkt borgarstjómar frá sl. hausti um opnun Austurstrætis fyrir bíla- umferð. Niðurstöður úr nýlegri sam- keppni um Ingólfstorg og gerð þess á næsta ári kalli á fram- kvæmdir gatnaskipulags í nálægð við Ingólfstorg samkvæmt stað- festu deiliskipulagi og jafnframt á endurskoðun einstakra þátta í umferðarskipulagi miðbæjarins. Ennfremur sé ljóst að á Ingólfs- torgi yrði veigamesta útisvæði í gamla miðbænum. Með hliðsjón af þessu sé tillögu Alþýðubandalagsins vísað til borg- arráðs þannig að þar gæti farið fram ítarlegri umfjöllun um málið án þess að Austurstræti verði lok- að fyrir bílaumferð að sinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.