Morgunblaðið - 19.06.1992, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1992
15
Helgi Hálfdanarson:
Lokaorð um
stafsetningu
Ekki er það nema maklegt, að
Sigurður A. Magnússon árétti
stefnu sína í stafsetningarmálum
svo sem hann gerir í Morgun-
blaðs-grein sinni 12. þ.m. fyrst
ég snerist til varnar við grein
hans í Skírni um þau mál. En
þar fór hann allhörðum orðum
um þann rithátt grískra nafna
sem ég hef fremur en flestir aðr-
ir við haft á prenti.
Ágreiningur okkar Sigurðar
virðist mér umfram allt í því fólg-
inn, að ég vil að sem mestu leyti
taka mið af því sem menn þykj-
ast vita um grískan frambiirð á
því skeiði sögunnar sem kallað
er „gullöld Hellena", en Sigurður
vill fremur horfa til þeirra breyt-
inga sem urðu á framburði
Grikkja eftir að sú öld var hnig-
in. En þar koma einkum til álita
einhljóðar í stað tvíhljóða og þ-
framburður á þetu.
I fyrri grein minni (Mbl. 28.
5.) bætti ég þessu við: „Það ligg-
ur víst í hlutarins eðli, að þrátt
fyrir allt yrði föstum og óbilgjörn-
um reglum um rithátt naumast
við komið á þeim vettvangi, enda
skal játað, að stöku sinnum hefur
einkasmekk (mínum) haldizt uppi
að blanda sér ögn í málið.“
Ef ég skil Sigurð A. Magnús-
son rétt, þá blöskrar honum hve
oft ég hef leyft þessum freka
einkasmekk að trana sér fram
og valda því sem hann réttilega
telur ósamræmi. Til dæmis lét
ég þess getið, að ég teldi rithátt-
inn Aþena hvorki samrýmast
fornum grískum framburði né
láta vel að íslenzku máli. Þó
þætti mér að sjálfsögðu óhugs-
andi að rita það nafn á annan
veg. Eins hef ég kosið ritháttinn
Hefestos vegna þess að óhræsis
einkasmekkurinn kallar þá nafn-
mynd æði miklu snotrari en
Hefæstos; og svo er um fleira.
Ég kallaði svo, að á blóma-
skeiði hellenskrar menningar hafi
þeta ekki verið borin fram sem
þ, heldur sem áblásið t, og bar
þar fyrir mig grískumenn. Þetta
þykir Sigurði A. Magnússyni
koma illa heim við þau ummæli
mín, að vitneskja um hljóðgildi
grískra leturtákna að fornu hafi
„ekki legið á lausu“. Þarna hefur
Sigurði sézt yfir eitt orð, því að
í grein minni stendur: „liggur
ekki alltaf á lausu“, og breytir
það nokkru um ósamræmið.
Ég hélt því fram, að betur
færi að rita katólskur en kaþólsk-
ur meðal annars vegna þess, að
atkvæðaskipting yrði að íslenzk-
um hætti eðlileg á undan ó-inu
(kat-ólskur), en þ stæðist ekki
þá raun. Orðið þyrfti þá einna
helzt að vera katþólskur (kat-
þólskur), sem ég hygg að flestum
þætti ofrausn.
Þá hélt ég því fram, að tvö-
falda k-ið í kaþólikki setti á það
orð óvirðulegan svip. Ekki fellst
Sigurður á það og nefnir til sam-
anburðar gælunöfnin Frikki og
Rikki. Þar þykir mér raunar ekki
þurfa frekari vitna við. Tvöfaldur
samhljóður er einmitt megin-ein-
kenni langflestra veikbeygðra
gælunafna eins og Dabbi og Kalli,
Gunna og Vigga, svo dæmi séu
nefnd. Þau eru geðfelld og kump-
ánleg í kunningja hóp eða innan
fjölskyldu, en þess utan ónothæf
nema til óvirðingar. Þar fá virðu-
leg þjóðaheiti eins og Frakkar eða
Grikkir engu um þokað. Það er
hálfkæringslegur uppnefnis-
bragur á orðinu kaþólikkar, sem
ætti fremur að vera katólar.
Ekki get ég státað af því, að
rithátturinn Æskílos sé einka-
sérvizka mín. Á það benti ég í
grein minni, að ég er ekki fyrstur
Islendinga til að stafsetja það
nafn með þessum hætti á prenti.
Raunar hefur nafn þetta verið
stafsett á ótrúlega marga vegu.
Og þegar Sigurður kveður grísku
stafina ypsílon ogjótu hafa sama
hljóðgildi, miðar hann við ný-
rískan framburð en ekki forn-
grískan. Við það hef ég vitaskuld
ekkert að athuga. En þarflaust
kalla ég að sækja sér rök fyrir
y-ritun út fyrir íslenzkt málkerfi,
jafnvel þótt finna megi dæmi
þess, að svo hafi verið gert. Og
þó að Iiellenar hafi að fornu bor-
ið ypsílon fram líkt og danskt y,
virðist mér fráleitt að tákna það
í íslenzku máli með bókstafnum
ý, sem hefur fýrir mörgum öldum
fengið sama hljóðgildi og í. Loks
má geta þess um nafnið Æskílos,
að með eðlilegum íslenzkum
framburði verður i-ið að sjálf-
sögðu áherzlulaust, og þeim mun
verr fer ý á þeim stað, rétt eins
og um væri að ræða merkingar-
bæran orðlið.
í þessum efnum er auðvitað
margt álitamálið. Þó kalla ég
hollt að menn geri grein fyrir
skoðunum sínum, eins og við Sig-
urður A. Magnússon höfum gert.
Og þakklátur er ég honum fyrir
að koma til móts við mitt sjónar-
mið svo fallega sem hann gerir
með því að láta sér lynda, að
hver haldi í bráð sinni sérvizku
um stafsetningu nafna og ann-
arra orða úr grísku, svo sem ég
lagði til, því enn sem löngum
fyrr er þar allt í óreiðu og fjarri
því að menn hafi náð áttunum
svo vel, að fastar reglur séu tíma-
bærar.
Reyndar væri æskilegt, að ís-
lenzkufræðingar tækju öll þessi
mál til athugunar, ef verða mætti
til að flýta því, að samkomulag
næðist um einhveija viðhlítandi
stefnu, þó vart geti orðið um
óbrigðular reglur að ræða.
Hér læt ég staðar numið með
kveðju til Sigurðar A. Magnús-
sonar og þökk fyrir þetta vinsam-
lega spjall og allt annað gott.
P. Lynn Cox sýnir í kaffí-
stofu Hafnarborgar
Bandaríska listakonan P.
Lynn Cox sýnir í kaffistofu
Hafnarborgar. Sýninguna nefn-
ir hún „Studies in Icelandic
Landscape“.
Á sýningunni í Hafnarborg eru
tugir smámynda sem P. Lynn Cox
vann hér á landi sumarið 1991,
þá styrkþegi Fulbright-stofnunar-
innar. Myndirnar eru málaðar með
akríl og olíupastel á pappír. Papp-
írinn festir hún síðan á tré og
vaxber. Myndefnið er íslensk nátt-
úra eins og listakonan upplifði
hana á ferðum sínum um landið.
P. Lynn Cox er aðstoðarprófess-
or við listdeild Westminster Coll-
ege í Pennsylvaníuríki í Bandaríkj-
unum. Hún hefur haldið einkasýn-
ingar og tekið þátt í fjölda samsýn-
inga í sinu heimalandi. P. Lynn
Cox hlaut sem fyrr segir styrk frá
Fullbright-stofnuninni árið 1991
og í ár styrk úr Thor Thors sjóði.
Sýningin verður opin frá kl.
11-18 virka daga en 12-18 um
helgar fram til 5. júlí. Opunartími
á fimmtudögum í sumar er frá kl.
12.-21.
-/uperiechB1U^
OGVtÐ BROSUM í UMFERÐ/^
LRSefí TRfíCHING SVSTéM 'CÖ-S fí€fíOV
RCD-3000
ACD 3000 LW/MW/FM sterió hljómgæði. Geislaspilari. 30 stöðva
minni magnari 2x25 wött. Geislaspilari lagaleitara o.fl.
Útgangur fyrir kraftmagnara.
ARC180 Alvöru tæki MW/FM Sterió útvarp og segulband. 2x25 wött. Upplýstur
stafrænn gluggi. Sjálfvirk spólun á snældu. Tenging fyrir CD geislaspilara.
Útgangur fyrir fjóra hátalara með fullkomið steró innbyrgðis.
hverri. - Stafrænn gluggi er sýnir bæði bylgjulengd og klukku.
ARC 710 MW/FM sterio útvarp og segulband. Sjálfvirkur leitari og „skanner“,
magnari 2x12 wött. Frábær hljómgæði. Tækið er með klukku og sérstaklega
skemmfilegri lýsingu í tökkum.
verslaf^
... DV*
iþ
hlus»
bíltæki.
Heimilistæki r'
SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20
ísamun^uMc
Metsölublað á hverjum degi!