Morgunblaðið - 19.06.1992, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1992
35
Hörð keppni fyrirsjáan-
leg á Norðurlandamótinu
Morgunblaðið/Arnór
Þegar þessi mynd var tekin voru Aðalsteinn, Jón, Robson og
Smolski að segja í spilinu sem rakið er í greininni. Hér voru
sagnir komnar í 3 grönd og þá var enn hálftími í að úrslit spils-
ins yrðu ljós.
__________Brids_____________
GuðmundurSv. Hermannsson
ÖLL Norðurlöndin senda sterk
lið til keppni á Norðurlanda-
mótinu sem hefst 29. júní í
Umeá í Svíþjóð, en þar reyna
Svíar og íslendingar að veija
meistaratitla slna sem þeir
unnu í Færeyjum fyrir tveimur
árum.
Fyrirsjáanleg er hörð barátta í
opna flokknum á mótinu og róður-
inn í verðlaunasæti gæti orðið
þungur hjá Karli Sigurhjartar-
syni, Sævari Þorbjömssyni, Matt-
híasi Þorvaldssyni og Sverri Ár-
mannssyni. Danir senda reynsl-
urnikið lið á mótið, þá Auken,
Koch, Möller, Werdelin, Graulund
og Christiansen. Þá senda Svíar
Fallenius og Nilsland, sem spiluðu
í sænska liðinu í Yokohama á síð-
asta ári, og Brunzell og Nielsen
sem eru gamalreyndir landsliðs-
menn. í liði Norðmanna spilar
undrabarnið Geir Helgemo og
Glenn Grötheim og Peter Mar-
strander og Jan Trollvik. Lið
Finna er að venju skipað Elsinen,
Salmenkivi, Viitasalo og Ukkonen
og þeim til aðstoðar verða Wik-
holm og Maklamaki en Wikholm
hefur lengi verið viðloðandi finnsk
landslið. Loks senda Færeyingar
sveitina sem keppti hér á Bridshá-
tíð í vetur, þá Mouritsenbræður,
Per Kallsberg, Helga Joensen og
Dánjal Mohr.
Möguleikar íslensku kvennanna
til að veija titil sinn ættu að vera
nokkuð þokkalegir ef þeim tekst
vel upp. í íslenska liðinu keppa
Esther Jakobsdóttir, Valgerður
Kristjónsdóttir og Hjördís Eyþórs-
dóttir, sem vom í sigurliðinu 1990
auk Ljósbrár Baldursdóttur. Það
er þó líklegt að dönsku konurnar
verði erfiðar viðfangs að þessu
sinni en akkerispar þeirra, Judy
Norris og Lotte Skaanning-Nor-
ris, hafa verið í miklu stuði í vet-
ur og unnið öll kvennamót í hei-
malandi sínu. Minna er vitað um
lið Svía og Norðmanna. Engin
norsku kvennanna hefur spilað
áður í landsliði og í sænska liðinu
eru einnig nokkrir nýliðar.
íslenskt sagnkerfi á enskan
markað
Væntanlegur er á enskan brids-
bókamarkað bæklingur um bið-
sagnákerfið sem Jón Baldursson
og Aðalsteinn Jörgensen spiluðu
á heimsmeistaramótinu í Yoko-
hama. Tony Sowter gefur bækl-
inginn út en hann er ritstjóri Int-
emational Popular Bridge Mont-
hly og hefur gefið út bridsbækur,
nú síðast bók um Yokohama-mót-
ið.
Þetta biðsagnakerfi hefur vakið
athygli víða um heim í kjölfar
heimsmeistaratitils íslands og
hingað hafa komið fyrirspurnir
um hvernig hægt sé að nálgast
kerfíð. Ólíkt flestum öðrum bið-
sagnakerfum er þetta kerfi frekar
einfalt og auðlært án þess að það
bitni á nákvæmninni, og um leið
öflugt í baráttustöðum og því er
ekkert ólíklegt að kerfið eigi eftir
að verða útbreitt.
Með hraða snigilsins
Eitt merkilegasta spilið í Af-
mælismóti Bridsfélags Reykjavík-
ur á dögunum kom fyrir í annarri
umferð í sýningarleik úrvalsliðs
BR við Evrópuúrvalið. Þá áttust
meðal annars við Bretar og ís-
lensku heimsmeistararnir og á
sýningartöflunni spiluðu Roman
Smolski og Andy Robson, Jón
Aðalsteinn Jörgensen og Jón
Baldursson. íslenskir áhorfendur
eru vanir að sjá Aðalstein og sér-
staklega Jón leggja mikið á spilin
sín en þeir nudduðu margir augun
þegar þeir sáu til Robsons sem
greinilega er ekki haldinn neinni
sagnfælni.
Norður
♦ Á9.73
VÁK8
♦ DG82
♦ 42
Vestur Austur
♦ G 4K862
VDG V 10952
♦ ÁK963 ♦ 10754
♦ DG963 +10
Suður >
♦ D1054
V 7643
♦ -
♦ ÁK875
Vestur Norður Austur Suður
Jón Smolski Aðalsti Robson
- - pass 1 lauf
1 tígull dobl 2 tíglar dobl
3 tígiar pass pass 3 työrtu
pass 3 grönd pass 4 lauf
dobl 4 tyortu dobl 4 spaðar
dobl redobl///
Robson opnaði ekki aðeins á
þessa suðurhunda heldur gaf
frjálst úttektardobl á 2 tígla og
enduropnaði með 3 hjörtum þegar
3 tíglar komu til hans. Smolski
var auðvitað að vonast eftir dobli
á 3 tígla; hann var ekki viss um
hvort eigið dobl væri refsing eða
úttekt.
Robson leist ekki á að spila 3
grönd enda voru miklar líkur á
að NS ættu 4-4 samlegu í öðrum
hvorum hálitnum. Jón byijaði að
dobla en þegar Aðalsteinn doblaði
4 hjörtu taldi Robson nokkuð víst
að norður ætti þar aðeins 3-lit og
skaut því á 4 spaða sem Jón do-
blaði, vitandi af slæmri spaðalegu.
Og Smolski var fljótur að redobla
með öll spilin.
Jón spilaði út tígulás en eins
og síðar kom í ljós hefði eitthvað
annað útspil gefíst betur. Jón
sagði síðar að þetta útspil hefði
verið mjög vanhugsað þar sem
suður var næstum búinn að sýna
tíguleyðuna með sögnum sínum.
Sagnir höfðu tekið talsvert langan
tíma en nú féll Robson hreinlega
í dá og hugsaði og hugsaði og
hugsaði. Loks trompaði hann tíg-
ulásinn og lagði af stað með
spaðadrottninguna!
Sennilega hefur Robson reikn-
að Jóni spaðakónginn eftir doblið
en þessi spilamennska var jafnár-
angursrík þegar spaðagosinn kom
blankur í. Aðalsteinn ákvað að
gefa Robson á spaðadrottninguna
og þá spilaði Robson hjarta og
gaf Jóni á gosann. Jón spilaði
meira hjarta sem Robson drap
með ás og spilaði tíguldrottningu
og henti laufí. Jón tók með kóng
og spilaði laufí sem Robson drap
með kófig, spilaði hjarta á kóng,
henti laufi í tígulgosann, trompaði
tígul, trompaði hjarta og spilaði
laufí. Aðalsteinn trompaði en varð
síðan að gefa Robson tvo síðustu
slagina á tromp.
Þótt Jón hefði spilað laufi inni
á hjartagosa gat Robson einfald-
lega trompað tvo tígla heima og
hjarta í borði og náð síðan fram
sömu trompendastöðu. Og þótt
Aðalsteinn hefði tekið strax á
trompkóng og spilað meira trompi
gat Robson drepið í borði, spilað
tíguldrottningu og hent laufi, tek-
ið útspilið, t.d. lauf, spilað hjarta
á ás, trompað tígul, spilað hjarta
á kóng, tekið trompin og slagi á
tígulgosa og lauf. Besta vömin
er sennilega að taka strax á spað-
akóng og spila laufí, en þrátt fyr-
ir það getur sagnhafí unnið spilið
með því að lesa það rétt. Hins
vegar á spilið að tapast ef Jón
spilar út einhveiju öðm en tígli,
og einnig ef Robson fínnur ekki
að spila spaðadrottningu og kæfa
þannig gosann.
Við hitt borðið spiluðu NS 4
spaða ódoblaða sem töpuðust og
Bretarnir græddu því vel á spil-
inu. En það tók þá talsverðan
tíma; áhorfendur giskuðu á að í
opna salnum hefði spilið tekið
35-40 mínútur alls!
j-öuöhi. oignuui Diiauimnn
HJÓNABAND. Hinn 25. apríl
1992 voru gefin saman í hjónaband
í Hallgrímskirkju af séra Karli Sig-
urbjörnssyni Kristrún Jónsdóttir og
Guðni Sigurðsson. Heimili þeirra
er á Rauðalæk 23.
Hárómantískir
eyðimerkurtónar
e
________Tónlist___________
Árni Matthíasson
Senn líður að lokum Listahátíð-
ar sem hefur boðið upp á grúa
góðra listamanna, þó hún hafi ef
til vill verið full dauflega kynnt.
Meðal þess besta sem bauðst á
Listahátíð að þessu sinni vom
tónleikar súdanska listamannsins
Abdels Gadirs Salims og hljóm-
sveitar hans Merdoum-konungun-
um, sem vom í Hótel íslandi sl.
mánudagskvöld.
Þjóðleg súdönsk tónlist kallast
haqeeba, en popptónlist á við þá
sem Abdel Gadir leikur hadeesa,
eða borgatónlist. Sú hefur sótt
verulega á síðustu ár og ráða þar
miklu geysilega vinsældir Abdels
Gadirs sem hefur fellt listilega
saman þjóðlega tónlist úr heima-
fylki sínu, Kordofan, og arabísk-
skotna raftónlist. Þannig stendur
hadeesa-tónlist á mörkum tveggja
heima og stundum minnir hún á
Taraabtónlist frá Austur-Afríku,
en hefur þó einstök afgerandi ein-
kenni.
Áheyrendur í Hótel íslandi,
eitthvað á fjórða hundrað, voru
dáleiddir frá fyrstu tónum oud og
barka Abdels Gadirs, enda hann
heillandi söngvari með mjúka og
tilfinningaþrungna rödd, en ró-
mantískur blær var reyndar aðal
dagskrárinnar. Hljómsveit Abdels
var skipuð tveimur fiðluleikuruin,
rafbassaleikara, rafgítarleikara,
saxófónleikara, trommuleikara og
hljómborðsleikara. Fremstur með-
al jafningja var annar fíðluleikar-
inn; elstur í hljómsveitinni og eins
konar tónlistarstjóri. Hann sýndi
hvað eftir annað frábær tilþrif og
sannaði að ekkert hljóðfæri er
rómantískara en fiðla, sem er sem
fundin upp fyrir arabíska tónlist.
Saxófónleikarinn var og snjall,
með feitan og hlýjan tón. Hann
hafði gaman að bregða á leik og
undir lok fyrri hluta tónleikanna,
í laginu E1 Ahagi, gleymdi hann
sér í spuna og Abdel Gadir varð
að sæta færis að komast aftur inn
í lagið til að geta lokið því. Álíka
gerðist undir lok tónleikanna, í
laginu Nujum Al-Lail, Stjörnur
næturinnar, sem magnaði mikla
stemmningu meðal áheyrenda.
Aðrir í hljómsveitinni voru lítt
síðri; hvergi veikan hlekk að finna.
Á dagskránni voru helst lög af
tveimur plötum Abdels frá 1989
og 1991, en alls lék hann í tveim-
ur klukkustundar lotum, með
hálftíma hlé á milli. Hápunktur
tónleikanna var lagið Umri Ma
Bansa, Ég mun aldrei gleyma
henni, hárómantískur ástarsöng-
ur, sem skaut Abdel upp á stjörnu-
himininn í Súdan fyrir rúmum
tuttugu árum. Svo vel heppnaðist
flutningurinn að þessu sinni að
hann tók það aftur sem uppklapp-
Ljósmynd Stúdíó 76
HJÓNABAND. Hinn 11. apríl voru
gefin saman í hjónaband í Kópa-
vogskirkju Margrét Auðunsdóttir
og Birgir Haraldsson. Sr. Kristján
Einar Þorvarðarson gaf þau saman.
slag; þá í jafnvel enn magnaðri
og öllu lengri útsetningu.
í viðtali fyrir tónleika sagðist
Abdel Gadir ætla að bera með sér
súdanskan yl til íslands og reyna
að hækka hitastigið i hjörtum
áheyrenda. Það tókst honum sem
um munaði og gaf áheyrendum
hamingjuhleðslu sem dugir út ár-
ið.
Tónleikar Abdels Gadirs eru
vonandi til marks um áhuga Lista-
hátíðaraðstandenda að nýta hátíð-
arvettvanginn til þess að kynna
framandi tónlist, ekki síður en
heimsfrægar stjörnur. Frábær-
lega hefur tekist til hingað til við
val á tónlistarmönnum og vissu-
lega tilhlökkun að sjá hvernig
verður með næstu hátíð.
Abdel Gadir Salim
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir