Morgunblaðið - 19.06.1992, Síða 54
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1992
54
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA
Hollendingar
tóku Þjóðveija
í kennslustund
Heimsmeistararnir þakka Skotum
Reuter
Víða mátti sjá danska fánanum veifað eftir sigur Dana gegn Frökkum. Hér fagna dönsku leikmennirnir Kim Christofte
til vinstri og Henrik Andersen glæstum sigri og áframhaldandi þátttöku.
Danir veittu Frökkum
ærlega ráðningu
„Litlu" þjóðirnar skutu þeim „stóru" reffyrirrass
HOLLENDiNGAR léku einn
besta landsleik sinn ífjögur ár
í Gautaborg í gærkvöldi, þegar
þeir unnu heimsmeistara Þjóð-
verja 3:1 í síðasta leiknum í 2.
riðli Evrópukeppninnar. Þrátt
fyrir tapið sluppu heimsmeist-
ararnir með skrekkinn, því
Skotar unnu Samveldið 3:0,
sem gerði það að verkum að
Þjóðverjar náðu öðru sætinu í
riðlinum og mæta Svíum í und-
anúrslitum.
Hollendingar, sem eiga titil að
veija, fengu óskabyijun,
skoruðu þegar á þriðju mínútu,
■ FRAKKAIf voru taldir sigur-
stranglegastir í 1. riðli áður en
keppnin hófst í Svíþjóð. Hins vegar
hafa þeir ekki sigrað í landsleik á
árinu og gott betur — síðasti sigur-
inn var gegn íslandi í undankeppn-
inni í nóvember á síðasta ári.
■ JEAN-PIERRE Papin gerði
tvö mörk fyrir Frakka í Svíþjóð og
hefur gert 15 mörk í síðustu 13
landsleikjum.
■ MICHEL Platini sagði fyrir
keppnina að sér þætti ekki óeðlilegt
að verða sagt upp ef franska liðið
kæmist ekki í undanúrslit. Eftir
tapið gegn Dönum var hann spurð-
ur hvort hann væri hættur með
landsliðið. „Það er allt önnur saga,
sem verður að koma í ljós.“
■ KIM Vilfort, sem lék með Dön-
um í tveimur fyrstu leikjunum varð
að yfirgefa hópinn vegna veikinda
sjö ára dóttur sinnar, sem er með
hvítblæði og var flutt alvarlega
veik á sjúkrahús. „Ég bið ykkur
aðeins um eitt gegn Frökkum, Sig-
ur,“ sagði hann við félaga sína.
Þeir brugðust honum ekki og til-
einkuðu honum sigurinn.
■ LARS Elstrup lék með OB í
2. deild í vetur og átti stóran þátt
í að koma liðinu aftur upp. Fyrir
10 dögum fylgdust 270 áhorfendur
með honum í leik með félagsliðinu,
en nú er hann hetja dönsku þjóðar-
innar.
■ SVÍAR léku síðast í undanúr-
slitum stórmóts árið 1958 — í HM
í Svíþjóð.
I STEFAN Schwarz og Patrik
Andersson fengu að sjá gula
spjaldið öðru sinni í keppninni og
verða því ekki með Svíum í undan-
úrslitunum.
■ GRAHAM Taylor tók við enska
landsliðinu fyrir tveimur árum og
hefur liðið aðeins tapað tveimur af
24 leikjum á tímabilinu.
■ ENGLAND hefur ekki sigrað
Svíþjóð síðan 1968 og mark Platts
var það fyrsta í síðustu fimm lands-
leikjum þjóðanna.
■ ÍSLENDINGUR og Dani urðu
tæpum tíu milljónum króna ríkari
eftir að úrslitin lágu ljós í leikjum
gærdagsins. Þeir höfðu „tippað" á
þrettán rétta á EM-seðlum í get-
raunum. Þess má geta að fyrir leik-
ina í gær voru fjórir Islendingar
með alla ellefu leikina rétta og einn
þeirra átti möguleika á að hirða
allan pottinn; 19,8 milljónir. Sá
spáði Þjóðverjum sigri ogjafntefli
í leik Skota og SSR. Hann stóð því
uppi með ellefu rétta.
staðan var 2:0 eftir stundarfjórðung
og sláin bjargaði Þjóðveijum frá
því að vera þremur mörkum undir
10 mínútum síðar. Heimsmeistar-
amir náðu að rétta úr kútnum fljót-
lega í seinni hálfleik, en Evrópu-
meistaramir innsigluðu sigurinn 20
mínútum síðar.
Rinus Michels, landsliðsþjálfari
Hollands, leyndi ekki gleði sinni að
leik loknum. „Ég hef sjaldan séð
hollenska liðið leika eins vel og að
þessu sinni og sérstaklega var fyrri
háifleikurinn góður. Fjölmiðlar hafa
sagt að við væmm ekki með eins
gott lið og fyrir fjómm árum, en
við sýndum að við getum enn gert
mörk.“
Berti Vogts, þjálfari Þjóðveija,
þakkaði Skotum fyrir sætið í undan-
úrslitunum. „Ég verð að þakka þeim
fyrir, þó við höfum vitað að við
gætum treyst á þá. En sem knatt-
spymuunnandi verð ég að klappa
Hollendingum lof í lófa. Þeir sýndu
snilldartakta, en við gerðum þeim
lífíð of auðvelt. Hins vegar hef ég
sagt leikmönnum mínum að ávallt
gefíst annað tækifæri og ég er
sannfærður um að við mætum Hol-
lendingum í úrslitum."
Skotar kvöddu með sigrl
Skotar gerðu út um leikinn gegn
Samveldinu á fyrstu 17 mínútunum,
gerðu þá tvö mörk og bættu því
þriðja við skömmu fyrir leikslok.
„Sumir manna minna gerðu
meira en hægt var að ætlast til af
þeim,“ sagði Andy Roxburgh, þjálf-
ari Skota. „Það var mikilvægt að
skora, en mikilvægara var að sigra
og ná að leika eins vel og gegn
íjóðveijum."
SVIAR höfðu ærna ástæðu til
að fagna eftir 2:1 sigur gegn
Englendingum i Stokkhólmi í
fyrradag, sem tryggði þeim
efsta sætið í fyrsta riðli Evr-
ópumótsins í knattspyrnu. „Við
höfum sýnt að við eigum einnig
landslið," sagði Tommy Svens-
son, landsliðsþjálfari. „Seinni
hálf leikur er sá besti, sem ég
hef séð sænskt landslið leika.“
ögn sló á sænska, þegar David
Platt skoraði fyrir Englend-
inga, en heimamenn tóku gleði sína
á ný eftir hlé. Jan Eriksson jafnaði
fljótlega og Tomas Brolin innsiglaði
sigurinn skömmu fyrir leikslok —
rak síðasta naglann í kistu Englend-
inga.
Þetta er í fyrsta sinn, sem Sví-
þjóð leikur í undanúrslitum Evrópu-
keppninnar. „Þar verðum við í hlut-
verki litla mannsins," sagði þjálfar-
inn. „En okkur hefur gengið vel og
við ætlum að reyna að halda áfram
á sömu braut. Það er gleðiefni að
okkur tókst að hafa alla leikmenn-
ina eins og þeir eru bestir á réttum
tíma. Það gerir gæfumuninn.“
Brolin var ánægður með leik
Svía. „í fyrri hálfleik vorum við
DANSKA landsliðið í knatt-
spyrnu hélt upp á þjóðhátíðar-
dag íslendinga með því að
vinna Frakka 2:1 og tryggja sér
þar með sæti í undanúrslitum
Evrópukeppni landsliða. Frakk-
ar, sem töpuðu ekki stigi í und-
ankeppninni, fóru sneyptir
heim frá Svíþjóð, en Danir, sem
komu inní úrslitakeppnina á
síðustu stundu, sýndu að sókn
er besta vörnin.
Danir náðu strax undirtökunum
og glæsilegt mark Henriks
Larsens í byijun setti Frakka útaf
nánast alltaf skrefmu á eftir, en
við tvíefldumst og sýndum gífurleg-
an sigurvilja."
Englendingar fengu nokkur
marktækifæri í fyrri hálfleik, en
voru lítt ógnandi eftir hlé. Graham
Taylor, þjálfari, kenndi skipulaginu
heima fyrir um árangurinn. „Við
erum sem á milli steins og sleggju.
Annars vegar erum við að reyna
að leika svokallaða meginlands-
knattspyrnu, en hins vegar þá
knattspyrnu, sem við þekkjum best
og er leikin um hveija helgi í Eng-
landi.“
laginu. Þeir höfðu engu að tapa og
þó Frakkar byijuðu vel í seinni
hálfleik og næðu að jafna með góðu
marki Jean-Pierre Papins voru það
Danir, sem áttu síðasta orðið í opn-
um og skemmtilegum leik. Vara-
maðurinn Lars Elstrup skoraði af
stuttu færi eftir gott spil.
„Ég er ánægður og við allir,“
sagði Richard Möller Nielsen, þjálf-
ari Dana. „Ég vil þakka Frökkum,
því þetta var góður leikur og til
þess þarf tvö góð lið. Við vorum í
hlutverki Davíðs í riðlinum, en ég
hafði ávallt trú á strákunum og
þeir brugðust ekki.“
Tomas Brolin Reuter
Michel Platini, þjálfari Frakka,
var fáorður eftir leikinn. „Ég vil
þakka öllum leikmönnum mínum
fýrir samveruna og samvinnuna
undanfarin þijú ár. Þeir hafa haldið
mér við efnið og við getum ekki
ásakað þá, en þetta er fyrsti leikur-
inn, sem þeir tapa í Evrópukeppn-
inni. Þeir gráta inní klefa, en þetta
verður gleymt í heimsmeistara-
keppninni."
Danir höfðu ekki gert ráð fyrir
að komast áfram og höfðu því ekki
bókað hótelherbergi í Gautaborg.
Þeir höfðu samt ekki áhyggjur af
því. „Við höldum uppá sigurinn og
áfangann og látum hveijum degi
nægja sína þjáningu,“ sagði ein
stjómarmanna danska knatt-
spymusambandsins.
ÚRSLIT
EM í Svíþjóð, 1. riðill:
Stokkhólmur:
Svíþjóð - England.................2:1
Jan Eriksson (51.). Tomas Brolin 82). -
David Platt (4). 30.126.
Málmey:
Danmörk - Frakkland...............2:1
Henrik Larsen (7.), Lars Elstrup (77.) -
Jean-Pierre Papin (60.). 25.763.
Lokastaðan:
Svíþjóð................3 2 1 0 4:2 5
Danmörk................3 1 1 1 2:2 3
Frakkland..............3 0 2 1 2:3 2
England................3 0 2 1 1:2 2
2. riðill:
Gautaborg:
Holland - Þýskaland...............3:1
Frank Rijkaard (3.), Rob Witschge (15.),
Dennis Bergkamp (73.) - Jiirgen Klinsmann
(54.). 37.725.
Nörrköping:
Skotland - SSR......................3:0
Paul McStay (7.), Brian McClair (17.), Gary
McAllister (84., vsp.). 14.660.
Lokastaðan:
Holland................3 2 1 0 4:1 5
Þýskaland..............3 1 1 1 4:4 3
Skotland...............3 1 0 2 3:3 2
SSR....................3 0 2 1 1:4 2
■Svíþjóð og Þýskaland leika í undanúrslit-
um í Stokkhólmi á sunnudag, en Holland
og Danmörk mætast i hinum leiknum í
Gautaborg á mánudag.
Mörkin:
2 - Jean-Pierre Papin (Frakklandi), Jan
Eriksson (Svíþjóð), Thomas Brolin (Sví-
þjóð), Dennis Bergkamp (Hollandi)
1 - Igor Dobrovolsky (SSR), Karlheinz Ri-
edle (Þýskalandi), Stefan Effenberg
(Þýskalandi), David Platt (Englandi),
Henrik Larsen (Danmörku), Lars Elstrup
(Danmörku), Thomas Haessler (Þýska-
landi), Paul McStay (Skotlandi), Brian
McClair (Skotlandi), Gary McAllister
(Skotiandi), Frank Rijkaard (Hollandi),
Rob Witschge (Hollandi), Juergen Klins-
mann (Þýskalandi).
Döpur endalok
hjá Gary Lineker
Gary Lineker, fyrirliði enska landsliðsins, kvaddi á annan hátt en
hann hafði ætlað sér. Hann gerði ekki mark í síðustu sex lands-
leikjum sínum og náði því ekki að jafna markamet Bobby Charltons,
sem gerði 49 mörk með enska landsliðinu. Lineker gerði 48 mörk á
litríkum ferli og síðasti landsleíkurinn, gegn Svíum í Stokkhólmi, var
sem salt í sárin. Honum var skipt útaf um miðjan seinni hálfleik og
lét vonbrigði sín í ljós, þegar hann kastaði fyrirliðabandinu frá sér.
Besti hálfleikur
sænsks landsliðs