Morgunblaðið - 13.08.1992, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1992
lí
FJARKÖNNUN OG FISKUR
eftir Þór Jakobsson
Um fátt er nú meira talað á landi
hér en fisk, þorsk, ýsu og loðnu, og
allrahandanna aðrar tegundir. Þá eru
fiskifræðingar mikið umræðuefni.
Allt þetta tengist svo spám hagfræð-
inga um tekjur þjóðarinnar og
ákvörðunum þeirra sem eru við
stjórnvölinn. Deilt er um, hvort hafi
meira að segja um fiskafjölda í sjón-
um, lífsskilyrði eða veiði fyrri ára.
En einsýnt er, að nokkur tengsl eru
milli lífsskilyrða í sjónum og lífsaf-
komu þjóðarinnar.
Vistfræði sjávarlífs tengist „vist-
fræði íslendinga" á sjó og landi.
Samtengt er hér raunar um sameig-
inlegt allsheijarkerfi að ræða. Fræð-
in um lífsskilyrði hefur í mínum her-
búðum, meðal veðurfræðinga, verið
kölluð lífveðurfræði (biometeoro-
logy), en raunar mætti nefna hana
vistfræði — í víðasta skilningi. Hún
fjallar um lífsskilyrði gróðurs, dýra
og manna, alls staðar: Á sjó, landi
og í lofti.
Áður en ég kem mér að efninu
langar mig að minna á, hvað landið
heitir og rennur mér raunar blóðið
til skyldunnar, með útsýni úr hafís-
deild Veðurstofu íslands: Nefnilega
Island. Ég varpa því fram, að stund-
um kunni að leynast meira undir ísn-
um en reiknað er með í dauðaleit
að fiski. Það er alkunna, að það er
spriklandi ijör í grennd við hafísjað-
ar. Sjómenn notfæra sér þetta og
sjávarlíffræðingar á Hafró og erlend-
is kanna lífríki við hafísjaðar. En nóg
um þetta í bili.
Greinarstúfi þessum er ætlað að
Þór Jakobsson
„Greinarstúfi þessum
er ætlað að reyna enn
að vekja ráðamenn og
peningamenn í sjávar-
útvegi til umhugsunar
um nauðsyn þess að
stórefla á landi hér
fjarkönnun á hafinu úr
gervihnöttum.“
reyna enn að vekja ráðamenn og
peningamenn í sjávarútvegi til um-
hugsunar um nauðsyn þess að stór-
efla á landi hér fjarkönnun á hafinu
úr gervihnöttum (tynglingum, veður-
tunglum). íslenskum áhugamönnum
um framfarir á þessu sviði hefur
ekki orðið neitt ágengt undanfarin
áratug, þótt öðru hverju hafi verið
bent á mátt hinnar nýju, stórkostlegu
tækni.
Tækni við könnun á yfirborði sjáv-
ar fleygir fram erlendis. Hún nýtist
við rannsóknir á hafís, sjávarhita í
yfirborði, öldum og vindafari. Hún
getur jafnvel gefið vísbendingar um
strauma. Reglubundnar athuganir
gefa til kynna sveiflur í þáttum þess-
um við sjávaryfirborð og nú reyna
menn að draga ályktanir af þessu
um yfirborðslag sjávar. Aukin þekk-
ing hjálpar svo við ágiskanir um
sveiflur — og lífsskilyrði þörunga,
dýrasvifs og fisks í yfirborðslögum
sjávar.
Ég skora á stjórnvöld og sjávar-
útveginn að ranka við sér og leggja
nokkrar krónur í þessi vísindi. Þau
hafa nú þegar komið að góðum not-
um hér á Veðurstofu við töku skýja-
mynda yfir Norður-Atlantshafi.
Allmiklu dýrara er að bæta við flar-
könnunartækni sem krefst við rann-
sókn á yfirborði sjávar, en það eru
smámunir miðað við framfarirnar.
Með stórbættu útsýni yfir víðáttu-
mikinn sjóinn umhverfis ísland, viss-
um við meira hveiju sinni um það
sem sveimar undir niðri. Kostnaður
endurgreiddist hundraðfalt.
Höfundur er veðurfræðingur
og deildarstjóri
hafísrannsóknadeildar
Veðurstofu Islands.
viðbótarofslóttur
sem slær í gegn
14 KAUPSTAÐUR
/ MJÓDD 2. HÆÐ
A1IKLIG4RÐUR
MARKAÐUR VIÐ 5UND
í dag 13. igiist á KRINGLAN 5 ára afmæli.
Af því tilefhi verður mikið um dýrðir
Æ í KRINGLUNNI í þrjá daga.
Húsið hefur verið fært í hátíðarbúning
og margt verður gert til skemmtunar. y
0FM<éusiniqskrA
Æ
USTSfNINQ:
Myndlistarsýning 5 ára bama
þar sem myndefinið er: „Þegar ég
fór í KREVGLUNA". Margir litlir
snillingar sendu inn myndir.
WSrtrðSKflll 1992:
Föstudagurinn 14. ágúst verður
helgaður hausttískunni. Sýningarfólk
frá ICELANDIC MODELS sýnir fót
frá tískuverslunum KRINGLUNNAR.
Einnig verður kynning á því nýjasta
í snyrtingu og hárgreiðslu.
•
3já«!JiíJ
mm
Erlendir fjöllistamenn sýna listir sínar
á aímælishátiðinni. Tónlist, leiktæki,
andlitsmálari, hárskreyting,
Pepsi kynning, lesið fyrir böm,
Video-Karaoke og fleira.
O
©
FYRIRSIETaUEIT:
Laugardaginn 15. ágúst fer fram
kynning á starfsemi ICELANDIC
AIODELS jafhframt því sem leitað
verður að fyrirsætum, meðal annars
í ELITE keppnina 1993.
fFðWéWHKm;
Utitónleikar á vegum Skífúnnar
verða á Kringlutorginu sunnan
við húsið 13. ágúst ffá kl. 16:30
til 19:00. Síðan skein sól, Silfur-
tónar, Sororicide, Strigaskór nr. 42
In memoriam.
# • 4 Þ
fniiiBs
© Bljð WSteMCi ¥QBIIlipfiÉ@ðQllil °
Frá og með 15. ágúst verða verslanir Kringlunnar
_ opnar til kl. 16 á laugardögum.
r KRINGWN >
Hard Rock Café er opið alla daga til kl. 23:30.