Morgunblaðið - 13.08.1992, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 13.08.1992, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1992 Hlaut alvarlega höf- uðáverka í átökum Steindór Steindórsson frá Hlöðum heiðraður níræður Fjöldi manna heiðraði Steindór Steindórsson frá Hlöðum níræðan í gær í hófi á heimavist Menntaskólans á Akureyri. Við þann skóla starfaði Steindór í 42 ár, síðustu 6 árin sem skólameistari. Tryggvi Gíslason skólameistari ávarpaði Steindór og flutti honum kveðjur skólans. Hann færði Stein- dóri körfu sem þakin var mýrar- gróðri, möðru og fleiri íslenskum jurtum en í þeirri körfu var steinn, sem Tryggvi sagði lýsa Steindóri vel. Steinninn væri hrjúfur utan og mosavaxinn en inni í honum væri kjarni gerður úr fjölmörgum litríkum og skínandi kristöllum. Jón Baldvin Hannibalsson, utan- ríkisráðherra, flutti Steindóri kveðju Alþýðuflokksins. Yngvi Þor- steinsson grasafræðingur flutti honum kveðju náttúrufræðinga á íslandi og Grænlandi og Valgarður Baldvinsson bæjarritari flutti Steindóri kveðjur og þakkir Akur- eyrarbæjar fyrir þau 12 ár sem hann hefði setið í bæjarstjórn. Steindór Steindórsson ávarpaði gesti og kvaðst undrast hve allir hefðu gott og fagurt að segja um sig á þessari stundu, þakkaði hlý- hug og kvað þennan dag myndu líða sér seint úr minni. Mörgum væri að þakka að hann hefði orðið eins farsæll og raun sýndi. Hann nefndi sérstaklega móður sína sem komið hefði sér til manns, eigin- konu sína, sem staðið hefði sem klettur sér við hlið meðan hennar naut við og ekki síst Stefán bónda Stefánsson á Hlöðum, en ef hann hefði ekki stutt við bakið á sér sagðist Steindór ef til vill hafa orð- ið pokaprestur einhvers staðar í sveit, að minnsta kosti hefði hann ekki siglt til Kaupmannahafnar til náms. ÁTÖK urðu í miðbæ Akureyrar aðfaranótt laugardags. Ungur mað- ur varð fyrir því að ráðist var að honum og honum skellt í götuna með brögðum þannig að hann slasaðist alvarlega á höfði. Hann er ekki í lífshættu en liggur á sjúkrahúsi á Akureyri. Samkvæmt upplýsingum rann- sóknarlögreglunnar á Akureyri mun það hafa hent eftir að hinn slasaði kom út af skemmtistað að- faranótt laugardags að ýfingar hafí orðið milli hans og árásarmanns, sem mun hafa beitt júdóbrögðum og skellt honum í götuna með þeim afleiðingum að sprunga hefði komið í höfuðkúpu hans og kinnbein brotnað. Lögregla kom á staðinn og hinn slasaði var fluttur á slysa- deild Fjórðungssjúkrahússins á Ak- ureyri. Þar liggur hann enn á Hand- lækningadeild. Samkvæmt upplýsihgum læknis á deildinni er ungi maðurinn ekki lífshættulega slasaður en nokkuð þungt haldinn og í strangri lyfja- meðferð og verður það næstu daga. Hann sagði að áverkarnir væru al- varlegir, brotinn höfuðkúpubotn og augntóft og maðurinn hefði auk þess hlotið töluverðan heilahristing. Utvegsmannafélag Alþýðuflokkurinn: Þingflokksfund- ur á Akureyri Þingflokkur Alþýðuflokksins hélt fund á Akureyri í gær. Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra sagði að í tilefni níræðsaf- mælis Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum hefði þótt tilhlýðilegt að þingflokkur Alþýðuflokksins héldi fund á Akureyri, en Steindór hefur um áratuga skeið verið einhver traustasti stuðningsmaður flokksins, sat skamma stund á alþingi, var 12 ár í bæjarstjóm Akureyrar og gegndi áratugum saman íjölmörgum nefndastörfum sem fulltrúi Alþýðu- flokksins. Þingflokkurinn fjallaði um ýmis mál á fundi sínum og raéddi við heimamenn um fjölmargan vanda. Þingflokkur Alþýðuflokksins og margir aðrir fulltrúar hans á Norður- landi heiðruðu Steindór með nærveru sinni í afmælishófi hans. Frekari aðgerða þörf ef bjarga á útgerð og vinnslu ÚTVEGSMANNAFÉLAG Norðurlands hélt fund á Akureyri í gær. Þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra og vestra voru boðaðir til fundarins og átta þeirra sátu hann. Á fundinum samþykktu útvegs- menn ályktun þar sem skorað er á stjómvöld að grípa til aðgerða til að bjarga útgerð og fiskvinnslu á Norðurlandi frá stóráföllum. Sverrir Leósson, formaður Út- tonn af þorski, sem þýðir samdrátt vegsmannafélags Norðurlands sagði að 8 þingmenn hefðu komið á fund- inn og fróðlegt hefði verið að heyra í þeim þótt blæbrigðamunur hefði verið á máli þeirra. I heild væri ekki annað hægt að segja en þeir væru fullkomlega meðvitaðir um hvað vandamálið snerist, það er að segja rekstrarerfiðleika í sjávarútveginum. Skilaboð fundarins til þingmanna hefðu verið að til þess væri ætlast af þeim að þeir stæðu saman um lausn á vanda atvinnugreinarinnar. Reynt hefði verið að skýra nákvæm- lega fyrir þingmönnum hve mikill vandinn væri. Ef ekki yrði þegar tekið á honum myndi ýmislegt ger- ast hjá útgerðarfyrirtækjum á Norð- urlandi og mörg þeirra stöðvast með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir þetta svæði svo og þjóðfélagið í heild. Á fundinum samþykktu útvegs- menn eftirfarandi ályktun: „Nú hefur verið tekin ákvörðun af ríkisstjóm um að á fiskveiðiárinu 1992-1993 megi veiða 205 þúsund á þorskveiðum Norðlendinga um 28.5%. Ekki er séð fyrir hvernig útgerð, vinnsla og byggðir á svæðinu mæta tekjutapi sem slíkri ákvörðun fýlgir. Fundurinn mótmælir harðlega öll- um hugmyndum um sölu kvóta úr Hagræðingarsjóði og telur eðlilegast að úthluta heimildum hans án endur- gjalds og taka mið af þorskskerðingu einstakra skipa. Fundurinn telur nauðsynlegt að stofnlánasjóðir og bankar lengi láns- tíma, vextir verði lækkaðir, athugað- ir verði möguleikar á víkjandi lánum fyrir greinina. Ljóst er að útgerð og vinnsla munu ekki geta staðið undir greiðslu- byrði sinni og því verður að grípa til frekari aðgerða. Ef ekkert verður að gert stefnir ríkisstjómin þessari atvinnugrein í stóra erfiðleika, svo og byggðarlög- um, er eiga allt sitt undir sjávarfang- inu á þessu svæði, með ófýrirsjáan- legum afleiðingum. Morgunblaðið/Rúnar Þór Steindór Steindórsson hlýðir á ávarp Tryggva Gíslasonar skóla- meistara. Á innfelldu myndinni hefur yngsta barnabarnabarn Steindórs, dóttir Gunnars Gunnarssonar, sonarsonar Steindórs, smellt kossi á níræðan langafann. Morgunblaðið/Rúnar Þór Frá fundi útvegsmanna á Norðurlandi með þing- mönnum í gær. Á innfelldu myndinni eru Tómas Ingi Olrich alþingismaður og Halldór Blöndal land- búnaðarráðherra. Norðurlands: KENNARA VANTAR Vegna forfalla vantar kennara í 1. bekk í Síðu- skóla og Glerórskóla ó Akureyri. Upplýsingar gefa skólastjórar í símum 96-22253 í Glerárskóla og 96-22588 í Síðuskóla. Einnig eru veittar upplýsingar á skrifstofu skólafulltrúa í síma 96 27245. SlcólafulllrúÍ. RÚVAK 10 ára: Útvarpsráð til Akureyrar RÍKISÚTVARPIÐ á Akur- eyri verður 10 ára föstudag- inn 14. ágúst. I tilefni þeirra tímamóta verður fundur allra deildarsljóra Ríkisútvarpsins haldinn á Akureyri í dag og á morgun, afmælisdaginn sjálfan, mun útvarpsráð halda fund sinn á Akureyri. Ríkisútvarpið á Akureyri var fyrsta útibú Ríkisútvarpsins utan Reykjavíkur og var þessi deild formlega opnuð 14. ágúst 1982. í tilefni afmælisins munu deildarstjórar Ríkisútvarpsins hittast á Akureyri í dag og út- varpsráð á morgun og halda fundi sína. Deildarstjórar hitt- ast að jafnaði einu sinni á ári utan Reykjavíkur en sjaldgæf- ara er að útvarpsráð haldi fundi utan Reykjavíkur. KENNARAR Kennara vantar við Grenivíkurskóla til að kenna handavinnu og bóklegar greinar. Upplýsingar gefur Björn Ingólfsson skóla- stjóri í síma 96-33118 eða 96-33131.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.