Morgunblaðið - 13.08.1992, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 13 ÁGÚST 1992
Morgunblaðið/Þorkell
Harðjaxlarnlr í liðum KR og KA beijast hér um boltann í leiknum í vesturbænum í gærkvöldi. A myndinni má
'^greina Gunnar Má Másson, Halldór Kristinsson og Hauk Bragason KA-menn, og Atla Eðvaldsson KR-ing, en Þormóð-
ur Egilsson snýr hnakkanum í myndavélina.
Sanngjam sigur
en heldur stór
^R-INGAR unnu sanngjarnan
en heldur stóran sigur, 3:0, á
KA f Frostaskjóiinu í 13. umferð
Samskipadeildarinnar í gær-
kvöldi. Leikurinn var lengi vel
heldur dapur og lítt spennandi,
en nokkuð lifnaði yfir honum í
síðari hálfleik. Jafnræði var
með liðunum lengi vei, en KR-
ingar sigu hægt og rólega fram
úr, og eftir fyrsta markið var
engum blöðum um það að
fletta að stigin þrjú voru á leið
i pott Vesturbæjarliðsins.
Leikurinn fór mjög svo rólega af
stað. Liðin þreifuðu hvort á
öðru fyrstu mínúturnar og hættu
því ekki fyrr en rúm-
Stefán ur hálftími var liðinn
Eiríksson af leiknum. Lítið var
skrífár um vænlegar sóknir,
en þær sem þó litu
dagsins ljós skiptust bróðurlega á
milli liðanna.
KR-ingar gerðu nokkrar breyt-
ingar í hálfleik, sem áttu eftir að
skila sér ríkulega. Sú breyting sem
skilaði mestu var innákoma ungs
leikmanns, Ómars Bendtsen, sem
fór í sóknina og náði að hleypa í
hana því lífí sem vantaði í fyrri
hálfleik. Atli Eðvaldsson kom líka
framar á völlinn og hjálpaði til við
að koma boltanum til sóknarmann-
anna, sem einnig hafði sitt að segja.
KR-ingar sóttu í sig veðrið jafnt
og þétt, náðu yfirhöndinni í leiknum
og í kjölfarið að skora fyrsta mark-
ið, á 62. mínútu. KA-menn virtust
við markið missa nær alla trú á að
þeir hefðu eitthvað í KR-liðið að
segja. Þegar örfáar mínútur voru
•til leiksloka greiddu KR-ingar þeim
rothöggið, með tveimur mörkum á
tveimur mínútum.
KR-ingar hafa oft verið betri en
í gærkvöldi, en sýndu stíganda í
leik sínum. Rúnar Kristinsson var
lítt áberandi í fyrri hálfleik, sem
og reyndar flestir á vellinum, en
gerði oft góða hluti í þeim síðari.
Atli Eðvaldsson og Gunnar Oddsson
voru traustir og áður er getið
frammistöðu Ómars Bendtsen.
KA-menn náðu ekki að nýta sér
óöryggi í leik KR-inga í fyrri hálf-
leik, og áttu ekkert svar við leik
þeirra í þeim síðari. Þeir eru enn
með falldrauginn á hælunum, í
þriðja neðsta sæti, og hrista hann
ekki af sér nema með því að sýna
betri leik en í gærkvöldi.
Gleymdum okkur augnablik
„Fyrri hálfleikur var mjög jafn, en
við gleymum okkur augnablik og
_ B\#vann boltann á 62.
mínútu á miðjum vallarhelmingi
KA. Gaf á Ómar Bendtsen sem lék
upp að vítateignum vinstra megin
og gaf frábærlega fyrir markið.
Við markteíginn hægra megin
sveif Atli Eðvaldsson og sendi
knöttinn með kollinum glæsilega
i netið.
2« J%Rúnar Kristinsson gaf
■ Sigurð Ómarsson á
87. mínútu, sem staddur var við
teiginn hægra megin. Sigurður
skallaði fyrir, Ragnar Margeirsson
reyndi að ná til boltans sem barst
tii Ómars Bendtsen sem skilaði
honum öruggiega í netið.
3mg\i
f
lEinar Þór Daníelsson
fór upp kantinn vinstra
megin á 88. mínútu, lék í gegnum
vömina og inn í teig, gaf á Sigurð
Ómarsson sem skoraði af stuttu
færi.
fáum þá á okkur mark. Við það
missum við móðinn," sagði Bjami
Jónsson fyrirliði KA eftir leikinn.
„Við vorum búnir að fá færi til að
setja á þá pressu, þetta er fyrst og
fremst okkar klúður," sagði Bjarni.
„Okkur gekk erfiðlega að byggja
upp spilið frá vörninni eins og við
ætluðum, og það setti okkur út af
laginu í byijun. Við náðum að bijóta
þetta upp í síðari hálfleik, en
kannski var sigurinn of stór miðað
við gang leiksins,“ sagði Rúnar
Kristinsson fyrirliði KR eftir leik-
inn.
KNATTSPYRNA/ISLANDSMOTIÐ 1. DEILD - SAMSKIPADEILD
Enn og aftur mistókst FH
FH-INGAR fengu gullin tæki-
færi til að gera út um leikinn
gegn Víkingum í síðari hálfleik
í gærkvöldi. í stað þess að
bæta við mörkum jöfnuðu Vík-
ingar 2:2 og því urðu heima-
menn að sætta sig við það enn
og aftur að missa af sigri, og
ekki í fyrsta sinn í sumar.
Heimamenn voru heldur meira
með boltan framan af fyrri
hálfleik en Víkingar vom hins veg-
ar miklu- mun að-
ShmjHnaT gangsharðari upp
Sveinsson við markið og færin
skrífár urðu þeirra í byijun.
Atli Einarsson fékk
tvö góð færi en tókst ekki að skora,
^fl&aut framhjá og negldi í slánna.
Guðmundi Steinssyni brást hins
vegar ekki bogalistin á 26. mínútu
er hann kom gestunum yfír.
FH-ingar sóttu þungt undir lok
hálfleiksins en inn vildi boltinn ekki
fyrr en eftir hlé, eða á 48. mínútu,
þegar Andri jafnaði. Eftir leikinn
jafnaðist leikurinn á ný og tuttugu
mínútum síðar gerði Hörður Magn-
ússon stórglæsilegt mark.
Hörður og Andri vora miklir
klaufar að gera ekki út um leikinn
eftir að FH komst 2:0 yfír. Janni
Zilnik, sem lék sem aftasti maður
í vörn Víkinga, hafði leikið eins og
hann vildi alls ekki vera með í
næstu leikjum liðsins. Hann einlék
hvað eftir annað um allan völl og
var þá sama hvort hann var á miðj-
unni eða inni í eigin markteig. Það
hlaut að komá að því að þetta glæf-
raspil endaði illa fyrir Víkinga, en
þeir sluppu með skrekkinn.
Tvívegis á sömu mínútunni vann
Grétar Einarsson af honum knött-
inn, gaf fyrst á Hörð sem komst
einn gegn Guðmundi markverði, en
skaut framhjá. Síðan gaf Grétar á
Andra sem komst einn gegn Guð-
mundi en nú varði hann vel. Þar
sluppu Víkingar heldur betur fyrir
hom. Þorsteinn Jónsson fékk
þokkalegt færi áður en Atli Einars-
son jafnaði fyrir Víking.
„Við voram heppnir að sleppa
með jafntefli miðað við síðari hálf-
leikinn, en við voram betri í þeim
fyrri,“ sagði Logi Ólafsson þjálfari
Víkinga eftir leikinn. Njáll Eiðsson
þjálfari FH var að vonum ekki
ánægður. „Enn eina ferðina! Þetta
er ekki fyrsti leikurinn í sumar sem
við eigum að geta klárað en tekst
ekki. Þar með fór síðasta tækifæri
okkar til að blanda okkur í ein-
hveija baráttu — í bili að minnsta
kosti," sagði Njáll.
Ólafur H. Kristjánsson, fyrirliði
FH, var réttilega rekinn af leikvelli
þegar tvær mínútur vora eftir.
Hann traðkaði á Guðmundi Inga
eftir að hann hafði brotið á Ólafí.
boltanum, snéri laglega af sér vamarmann og skoraði af öryggi.
1. Grétar Einarsson gaf fyrir markið á 48. mínútu og fyrir
■ I miðju marki stökk Andri Marteinsson manna hæst og
skallaði í netið.
2. é| Þórhallur Víkingsson vann knöttinn á 68. mínútu skammt
■ I fyrir utan vítateig hægra megin. Hann lék inn á miðjuna,
snéri við og renndi á Hörð Magnússon sem var við vítateigslínuna,
en aðeins til hægri við markið. Hörður spymti viðstöðulaust utan fót-
ar með hægri fæti og snéri boltann efst í inarkhomið vinstra megin.
Glæsilegt bananaskot!
2_ d^Tveimur mínútum fyrir leikslok tók Atli Helgason auka-
■ áCispymu á miðjum velli, gaf á Janni Zilnik sem skaut að
marki en Atli Einarsson stöðvaði laust skotið, snéri sér við í teignum
og negldi efst í markhornið.
ÚRSLIT
ÍA-UBK 4:2
Akranes, íslandsmótið í knattspymu, 1.
deild - Samskipadeildin - miðvikudaginn 12.
ágúst 1992.
Aðstæður: Hægur andvari og völlurinn
góður. _
Mörk ÍA: Ólafur Adólfsson (25.), Amar
Gunnlaugsson (44. og 76.), Þórður Guðjóns-
son (51.).
Mörk UBK: Valur Valsson (65., 89.).
Gult spjaid: Sigurður Víðisson, UBK (65.)
og Hákon Sverisson, UBK (63.). Báðir fyr-
ir brot.
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Guðmundur Stefán Maríasson og
átti hann þokkalegan leik.
Áhorfendun 679.
ÍA: Kristján Finnbogason - Ólafur Adólfs-
son, Luka Kostic, Theódór Hervarsson,
Brandur Siguijónsson - Alexander Högna-
son, Sigursteinn Gíslason, Sigurður Jóns-
son, Haraldur Ingólfsson (Pálmi Haraldsson
80.) - Arnar Gunnlaugsson, Þórður Guðjóns-
son (Haraldur Hinriksson 86.).
UBK: Eiríkur Þorvarðarson - Pavel
Kretovic, Reynir Björn Björnsson, Úlfar
Óttarsson, Sigurður Víðisson - Hákon
Sverrisson, Siguijón Kristjánsson (Willum
Þór Þórsson 74.), Valur Vaisson, Hilmar
Sighvatsson - Kristófer Sigurgeirsson (Jón
Þórir Jónsson 86.), Amar Grétarsson.
KR-KA 3:0
KR - völlur:
Aðstæður: Góðar, en völlurinn jafnvel örlít-
ið loðinn.
Mörk KR: Atli Eðvaldsson (62.), Ómar
Bendtsen (87.) og Sigurður Ómarsson (88.)
Gult spjald: Sigurður Ómarsson, KR (59.),
fyrir brot, Gunnar Már Másson, KA, (49.)
og Halldór Kristinsson, KA, (68.), báðir
fyrir brot.
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Gísli Guðmundsson, nokkuð
óstyrkur, gerði mistök en engin afdrifarik.
Línuverðir: Eyjólfur Ólafsson og Einar
Sigurðsson.
Áhorfendur: 527.
KR: Ólafur Gottskálksson - Þormóður Egils-
son, Óskar Hrafn Þorvaldsson, Gunnar
Oddsson - Einar Þór Daníelsson, Sigurður
Ómarsson, Atli Eðvaldsson, Rúnar Kristins-
son, Hilmar Bjömsson (Ómar Bendtsen
46.) - Steinar Ingimundarson, Ragnar Mar-
geirsson.
KA: Haukur Bragason - Öm Viðar Amars-
son, Steingrimur Birgisson, Halldór Krist-
insson - Ormarr Örlygsson, Ivar Bjarklind,
Bjarni Jónsson, Pavel Vandas, Birgir Arn-
arsson (Ámi Hermannsson 78.) - Páll Gísla-
son (Gauti Laxdal 66.), Gunnar Már Más-
son.
FH - Víkingur 2:2
Kaplakriki:
Aðstæður:Góðar.
Mörk FH: Andri Marteinsson (48.), Hörður
Magnússon (68.)
Mörk Víkings: Guðmundur Steinsson (26.),
Atli Einarsson (86.)
Gult spjald: Grétar Einarsson, FH (85.),
Janni Zilnik, Vfkingi (80.) báðir fyrir brot.
Rautt spjald: Ólafur H. Kristjánsson, FH
(88.) fyrir að traðka á mótheija sem hafði
áður brotið á honum.
Dómari: Sæmundur Vfglundsson og dæmdi
hann mjög vel, var rólegur og yfirvegaður.
Línuverðir: Bragi Bergmann og Magnús
Sigurólason.
Áhorfendur: Fékkst ekki uppgefið hversu
fáir þeir vora.
FH:Stefán Arnarson - Bjöm Jónsson, Daní-
el Einarsson, Ólafur H. Kristjánsson - Þór-
hallur Víkingsson, Þorsteinn Halldórsson
(Hlynur Eiríksson 76.), Hallsteinn Amar-
son, Þorsteinn Jónsson, Andri Marteinsson
- Grétar Einarsson, Hörður Magnússon.
Víkingur: Guðmundur Hreiðarsson - Helgi
Björgvinsson, Janni Zilnik, Helgi Bjamason,
Hólmsteinn Jónasson (Tomislav Bosnjak
62.), Guðmundur Ingi Magnússon, Átli
Helgason, Hörður Theodórsson - Atli Ein-
arsson, Guðmundur Steinsson, Helgi Sig-
urðsson.
Þór-ÍBV 4:2
Akureyrarvöllur:
Aðstæður: Andvari, þurr völlur, heiðskírt.
Mörk Þórs: Sveinbjöm Hákonarson (36.),
Elfas Friðriksson (sjálfsmark 44.), Ásmund-
ur Amarsson (50.), Kristján Kristjánsson
(83.).
Mörk ÍBV: Friðrik Sæbjömsson (32. og
56.).
Gult spjald: Elfas Friðriksson, ÍBV, (37.),
Friðrik Sæbjömsson, ÍBV (50.), og Rútur
Snorrason, ÍBV (52.), - allir fyrir brot.
Ámi Þór Ámason, Þór, (87.) fyrir leikara-
skap.
Rautt spjald: Enginn.
Dómarí: Egill Már Markússon, dæmdi
ágætlega.
Línuverðir: Valdimar Freysson og Kristján
Guðmundsson, sá siðarnefndi sleppti nokkr-
um sinnum rangstöðu.
Áhorfendur: 600.
Þór: Lárus Sigurðsson - Birgir Þór Karls-
son, Júlíus Tryggvason, Hlynur Birgisson -
Halldór Áskelsson, Lárus Orri Sigurðsson,
Sveinn Pálsson, Sveinbjöm Hákonarson,
Ásmundur Arnarsson - Bjarni Sveinbjöms-
son (Kristján KriBtjánsson 82.), Árni Þór
Ámason.
ÍBV: Friðrik Friðriksson - Friðrik Sæbjöms-
son, Eiías Friðriksson, Bojan Bevc - Ingi
Sigurðsson (Martin Eyjólfsson 85.), Nökkvi
Sveinsson (Kristján Þór Kristjánsson 46.),
Jón Bragi Amarson, Rútur Snorrason,
Tryggvi Guðmundsson - Leifur Geir Haf-
steinsson, Tómas Ingi Tómasson.