Morgunblaðið - 04.11.1992, Blaðsíða 18
21
18
fl3gM3VÓM .1 flUDAqUMr/^M (flUAJf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1992
Mestu gljúfur á íslandi
Dimmugljúfur sem Jökulsá á Dal fellur um inn af Jökuldal
eru mestu gljúfur hér á landi. Áin hefur grafið sig í gegnum
klöppina og eftir stendur um 150 metra hár þverhníptur
hamraveggur á löngum kafla. Myndin er tekin út eftir
Dimmugljúfrum, sem stundum eru einnig nefnd Hafrahvam-
magljúfur eftir samnefndum hvömmum, og er gljúfrið 200
metra hátt í klettinum sem hæst ber vinstra megin á mynd-
inni. Aldrei hafa menn lagt í að fara á bátum eftir Jökulsá
í Dimmugljúfrum. Ómar Ragnarsson fréttamaður á Stöð 2
var ásamt myndatökuliði við Hafrahvamma á dögunum að
safna efni í umhverfisþáttinn Aðeins ein jörð. Lenti hann á
flugvél sinni á miklum sandsléttum á Brúardölum, rétt utan
við Gíga. í baksýn á minni myndinni sést Fremri-Kárahnjúk-
ur.
Morgunblaðið/Sigurður Aðaisteinsson
Blönduós
Hlutabréfakaup í Kaupfélagi
Húnvetninga khúfa bæjarstjórn
ÁGREININGUR er kominn upp í meirihluta bæjarstjórnar Blönduóss,
vegna kaupa á hlutabréfum í Kaupfélagi Húnvetninga á Blönduósi.
Kaupfélagið óskaði eftir að bæjarstjórn keypti hlutabréf fyrir 8 til
10 milljónir. Samstaða náðist ekki um kaupin meðal fulltrúa meirihlut-
ans, sem myndaður er af Ð-Usta sjálfstæðismanna og H-Iista vinstri-
manna og óháðra. Fulltrúar H-lista leituðu eftír stuðningi minnihlut-
ans, K-lista félagshyggjufólks. Hafa H-listi og K-lisli sameinast um
að kaupa hlutabréf í Kaupfélaginu fyrir 12 milijónir. Þar með telur
Óskar Húnfjörð oddviti D-lista að meirihlutasamstarfi sé lokið við
H-lista en Pétur Aruar Pétursson oddviti H-lista telur að meirihlutinn
standi og að ekki hafí verið óeðlilegt að leita eftir stuðningi við K-lista.
Vegna erfiðleika í rekstri hefur
Kaupfélag Húnvetninga leitað til
bæjarstjórnar Blönduóss og ná-
grannasveitarfélaga um fjárhagsað-
stoð. Að sögn Óskars Húnfjörð var
óskað eftir að bæjarstjórn keypti
B-stofns bréf, sem Sölufélag A-Hún-
vetninga á í Kaupfélaginu en bæði
félögin eru í eigu bænda. Sjónarmið
D-listans var að ef styrkja ætti
Kaupfélagið, þá ætti sá styrkur að
greiðast beint til Kaupfélagsins en
ekki að kaupa upp skuldir félagsins
við Sölufélagið.
„Við treystum okkur ekki til að
styðja það að bærinn gengi inn í
rekstur, sem er í samkeppni við önn-
ur fyrirtæki bæjarins," sagði Óskar.
„Til þess að sýna samstöðu með
öðrum sveitarfélögum bentum við á
að við værum tilbúnir til að aðstoða
Kaupfélagið með því að breyta gjöld-
um þess í víkjandi lán. Lánið yrði
verðbætt en án vaxta og að ekki
yrði greitt af því fyrr en óráðstafað
eigið fé yrði jákvætt en það er nu
neikvætt um 80 millj. Þetta gátu
samstarfsaðilar okkar ekki fallist á
en vildu að keypt yrðu hlutabréf í
Kaupfélaginu fyrir 8 til 10 milljónir.
Þeir leituðu til minnihlutans, K-
lista félagshyggjufólks, til að ná
fram þessum kaupum og til að ná
samstöðu þar kostuðu þeir til 4 millj-
ónum umfram það sem beðið var
um eða 12 milljónir úr bæjarsjóði,"
sagði Óskar.
Hann bætti við að ekki væri rúm
fyrir nema einn meirihluta og því
teldu fulltrúar D-Iista sig ekki leng-
ur bundna af samstarfi við H-lista,
eftir þann trúnaðarbrest sem orðið
hefði. „Þetta var ekki spurning um
markmtá heldur um leiðir," sagði
hann. „Ég hef verið að velta því
fyrir mér af hverju þessi áhersla var
lðgð á að þessi bréf yrðu keypt en
ekki ný bréf til að koma fyrirtækinu
til hjálpar. Reyndar lagði K-listinn
áherslu á það og sú varð niðurstað-
an." Hann fengi ekki betur séð en
að bæjarstjórn hafi verið ætlað að
greiða að hluta skuld Kaupfélagsins
við Sölufélagið, þar sem ekki hefði
verið um forgangskröfu að ræða ef
til gjaldþrots kæmi hjá Kaupfélag-
inu.
Pétur Arnar Pétursson oddviti
H-lista sagðist ekki líta svo á að
samstarfi við D-lista væri lokið.
Hann hefði ekki fengið formlega
staðfestingu þess efnis. Minnti hann
á að D-Iisti hafi ásamt K-lista fellt
þeirra tillögu. „Var það ekki meiri-
hlutamyndun? Á þeim fundi komu
fram þrjár tillögur sem allar voru
felldar," sagði hann. „Eftir það var
ljóst að ekki var um meirihlutatillögu
að ræða. Það var búið að reyna til
þrautar að ná samkomulagi en það
tókst ekki. Okkur greindi ekki á um
markmið heldur um leiðir. Við áttum
ekki aðra möguleika en að leita til
minnihlutans um stuðning við kaup-
in á B-stofns bréfunum í Kaupfélag-
inu og sú Ieið var farin."
Samþykkt var að kaupa bréf fyrir
12 milljónir og sagði Pétur að hlut-
lausir aðilar teldu að sú fjárhæð
nægði Kaupfélaginu.
Átökum linnir í Luanda
Islending-
arniráfram
í Angóla
STJÓRNARHERINN í Angóla
virðist hafa náð undirtðkum í
átökuni við UNITA-skæruIiða og
sagði Kjartan Guðmundsson flug-
stjóri, sem hefur verið í Luanda
meðan á átökunum stóð ásamt
f élögum sínum Smára Sigurðssyni
og Jóhanni Jóhannssyni, að allt
útlit væri fyrir að þeir dveldust
áfram í landinu og lykjn sínum
störfum þar.
„Stjórnarherinn telur sig hafa
hrakið síðustu UNITA-mennina út
úr borginni. Það hefur heyrst einn
og einn skothvellur í dag. Fólk er
lítið farið að fara út úr húsum og
mér skilst að það liggi lík á götum
úti um alla borg. Það liggur enn öll
vinna niðri," sagði Kjartan.
„Það er ekki víst að við förum úr
borginni. Það er hugsanlegt að við
förum ekki neitt og reynum að Ijúka
okkar samningi hérna. Fiestir telja
að það líði langur tfmi áður en UN-
ITA-menn láti að sér kveða á ný.
Þeir eru á undanhaldi, gangandi fyr-
ir utan borgina, illa á sig komnir,"
sagði Kjartan.
? ? ?
Veiddi 45
• p
rjupur a
Holtavörðu-
heiðinni
Btldudal.
RJÚPNASKYTTA ein úr höfuð-
borginni gerði góðan veiðidag
þegar hún veiddi 45 rjúpur á
Holtavörðuheiði nýverið.
Skyttan hafði áður fengið um
50 rjúpur eftir tveggja daga veiði
á Snæfellsnesi og er komin með
tæplega 100 rjúpur eftir þrjár
veiðiferðir. í samtali við skyttuna,
sem ekki vildi láta nafns síns get-
ið, sagði hún að rjúpan hefði verið
mjög spök og að það hafí verið
töluvert af henni á fyrrnefndu
svæði. Nokkrum dögum síðar
veiddi ein skytta 20 rjúpur á sama
svæði.
R. Schmidt
Jassrokk í Hótel Islandi á fímmtudag
Tónleikar Blood,
Sweat and Tears
JASS og rokk eiga fátt sameiginlegt að flestra mati, þó sveitir
eins og Blood, Sweat and Tears hafi sýnt og sannað að samkr-
ull af hvoru tveggja getur skilað góðum árangri. Sú sveit er
væntanleg er til Islands og heldur tónleika í Hótel íslandi á
fúnmtudagskvöld, með leiðtoga sinn í áraraðir, David Clayton-
Thomas, fremstan í flokki.
Blood, Sweat and Tears rekur
rætur sínar til þess er Al Kooper,
sem starfað hafði mikið með Bob
Dylan, vildi reyna hvort ekki mætti
fella saman rokk og jass. Það at-
hæfi vakti gríðarlega athygli, þó
sveitin hafi verið vinsælli meðal
gagnrýnenda en plötukaupenda.
Blood, Sweat and Tears var stofn-
uð snemma árs 1968 og sendi frá
sér fyrstu breiðskífuna það vor.
Meðstofnendur Koopers að sveit-
inni áttu síðar eftir að setja svip
sinn á bandarískan „rokkaðal" og
gera enn, en þeir voru meðal ann-
arra Randy Brecker og Steve Katz.
Kooper og Brecker hættu skömmu
eftir að fyrsta platan kom út, en
í stað Koopers kom kanadískur
stórsöngvari, David Clayton-
Thomas. Með Clayton-Thomas
sem leiðtoga fóru hjólin fyrst að
snúast hjá sveitinni og önnur breið-
skífa hennar, sem bar einfaldlega
nafn sveitarinnar, gerði
Blood, Sweat and Tears heims-
þekkta. Þau lög sem slógu helst í
gegn af plötunni hafa komist í hóp
laga sem allir skemmtikraftar
verða að kunna; You Made Me So
Very Happy og Spinning Wheel,
en seinna lagið er eftir Clayton-
Thomas. Til viðbótar við gríðarlega
sölu fékk sveitin þrenn Grammy-
verðlaun fyrir plötuna, sem gagn-
rýnendum þótti boða nýja tíma í
dægurtónlist. Þriðju plðtu Blood,
Sweat and Tears svipaði um margt
til þeirrar sem á undan var komin
og seldist álíka vel. Með fjórðu
plötunni fór þó að halla undan
fæti, enda höfðu fjölmargar sveitir
Blood, Sweat and Tears í árdaga.
fylgt í humátt á eftir Blood, Sweat
and Tears, þeirra helst líklega
Chicago, og samkeppnin því harðn-
að.
Clayton-Thomas var líka búinn
að fá fíðring fyrir því að vera einn
síns liðs og sagði skilið við félaga
sína 1972. Honum gekk þó ekki
ýkja vel einum og hljómsveitin
þótti hafa glatað flestu því sem í
hana var spunnið þegar hann var
farinn. Eftir fjögurra ára eymd-
artíma sveitarinnar, þar sem
mannabreytingar voru tíðar en
uppskeran rýr, sneri Clayton-
Thomas aftur til sveitarinnar og
vinsældir hennar tóku kipp uppáv-
ið. Aldrei hefur sveitinni pó tekist
að ná viðlíka vinsældum og þegar
uppgangur hennar var mestur, en
fróðir hafa reiknað út að þegar
best lét hafi Blood, Sweat and
Tears selt 35 milljónir hljómplatna.
Meðfram því að reka sveitina hefur
Clayton-Thomas lagt nótt við dag
í lagasmíðum og sendir frá sér
innan skamms sólóskífu.
Eins og áður sagði er sú útgáfa
af Blood, Sweat and Tears sem
hingað kemur skipuð David Clayt-
on-Thomas fremstum meðal jafn-
ingja, en þeir sem heyrt hafa í
henni segja að þar sé valinn maður
f hverju rúmi og sveitin gríðarsterk
um þessar mundir.
Arni Matthíasson