Morgunblaðið - 04.11.1992, Qupperneq 20
20
MORGÚKBI-AÐIÐ MÉ)VlkUDAGUR 4. NÖVEMBÉR 1092
Flóttamannavandinn í Þýskalandi
Kohl hótar að lýsa
yfír neyðarástandi
Bonn. The Daily Telegraph.
ÞÝSK dagblöð hafa á undanförnum dögum birt fréttir þess efnis
að Helmut Kohl kanslari hafi haft í hótunum við stjórnarandstöð-
una. Er kanslarinn sagður hafa lýst því yfír að ef ekki næðist sam-
komulag um hvernig hægt væri að draga úr straumi flóttamanna
myndi hann lýsa yfir neyðarástandi og fara þannig í kringum stjórn-
arskrá landsins. Heimildarmaður fjölmiðla er Johannes Gerster,
varaformaður þingflokks Kristilegra demókrata, flokks Kohls kansl-
ara. Hefur hann einnig sagt að ef jafnaðarmönnum, sem eru stærsti
stjórnarandstöðuflokkurinn, takist ekki að ná samkomulagi um flótta-
mannamálin á þingi sínu eftir tvær vikur þá verði reynt að fá sam-
þykkt lög í þinginu með einföldum meirihluta.
Keuter
Þessum hugmyndum hefur verið
harðlega mótmælt enda engin for-
dæmi fyrir því hingað til að stjórn-
arskráin sé ekki virt. Allar breyting-
ar á henni verður að gera með
tveimur þriðju atkvæða. Ef leiðin
sem Gerster ræðir um yrði farin
er líka talin hætta á að stjómin í
Króatískur hermaður I Bosníu kveikir á kerti á gröf frænda síns, en á bak við hann er serbneskur
hermaður á verði. Myndin var tekin í bosníska þorpinu Poiyavici, sem er á valdi Serba, eftir að her-
sveitir Króata og Serba höfðu samið um vopnahlé.
Stj órnarerindrekar uggandi um áframhald friðarviðræðnanna í Genf
Segja að Serbar telji nú tíma-
bært að stofna „Stór-Serbíu“
-t=:---------r= Yfirráðasvæði í
V UNGV.LAND Bosníu-Herzegóvínu
■ |Q Serbar
Belgrad, Genf, Lundúnum. Reuter, The Daily Telegraph.
MILAN Panic, forsætisráðherra Júgóslavíu, sambandsríkis Serbíu
og Svartfjallalands, á nú í harðri baráttu við Slobodan Milosevic,
forseta Serbíu, og stuðningsmenn hans, sem vilja losna við hann úr
embættinu. Stjórnarerindrekar í Genf segja að vantrauststillaga
gegn Panic, sem lögð var fram á júgóslavneska þinginu í gær, og
herskáar yfirlýsingar Serba i Bosníu og Króatíu að undanförnu séu
ekki góðs viti fyrir friðarumleitanir Sameinuðu þjóðanna og Evrópu-
bandalagsins. „Æ fleiri eru þeirrar skoðunar að Serbar í Bosníu,
Króatíu og Serbíu hafi dregið þá ályktun að nú sé tímabært að stofna
„Stór-Serbíu“ og þeir kæri sig kollótta um álit umheimsins," sagði
stjórnarerindreki, sem hefur tekið þátt í friðarumleitununum í Genf.
• Zagreb
Króatar
_ Múslimir
IKróatar og
Múslimir
VOJVODINA
Belgrad . '
r“ '
Serbneskir þjóðemissinnar em
æfir út í Panie vegna samstarfs
hans við Vesturlönd til að binda
enda á stríðið í Bosníu og hug-
mynda hans um að semja við al-
banska meirihlutann í héraðinu
Kosovo, sem heyrir undir Serbíu.
Neðri deild júgóslavneska þingsins
ESAB
RETTUR
RAFSUÐUVIR
Eitt mikilvægasta atriði varð-
andi rafsuðu er að velja rétta
gerð rafsuðuvírs. Til að ná
hámarks gæðum við suðu er
nauðsynlegt að velja vírinn
með tilliti til efnis og
aðstæðna.
Við eigum ávallt á lager mikið
úrval rafsuðuvíra, bæði
pinnavíra, gegnheila rúlluvíra
og duftfyllta rúlluvíra fyrir
flesta málma og aðstæður.
= HÉÐINN =
VERSLUN
SEUAVEGI 2 SÍMI 624260
samþykkti í fyrradag tillögu um að
lýsa yfír vantrausti á Panic. Efri
deildin felldi hins vegar tillöguna í
gær með 18 atkvæðum gegn 17
og kom þannig í veg fyrir að Panic
neyddist til að segja af sér.
Vantrauststillagan er til marks
um vaxandi spennu milli Milosevics
Serbíuforseta og leiðtoga júgó-
slavneska sambandsríkisins, sem
vilja koma á friði og fá Sameinuðu
þjóðimar til að aflétta viðskipta-
banni sínu á Serbíu og Svartfjalla-
land. Lítið virðist skorta á að Mil-
osevic nái því markmiði sínu að ná
yfírráðum yfír öllum þeim land-
svæðum sem Serbar hafa byggt í
fyrrverandi lýðveldum Júgóslavíu.
Serbar í Bosníu náðu í síðustu
viku bosnísku borginni Jajce á sitt
vald eftir harðar stórskota- og
skriðdrekaárásir og hröktu mú-
slimska íbúa hennar á flótta. Þetta
var mikilvægur sigur fyrir Serba
því með töku borgarinnar opnuðu
þeir leið milli Serbíu og her-
námssvæða Serba í Króatíu. Um
svipað leyti efndu leiðtogar Serba
í Bosníu og Króatíu til „þingfund-
ar“ þar sem þeir lýstu yfír stofnun
nýs ríkis, Serbnesku Bosníu, sem.i,
yrði síðar sameinað landsva;ðum -
Serba í Króatíu. Ákveðið var að
serbneskir hermenn í Króatíu og
Serbíu skyldu vera undir sameigin-
legri herstjóm.
„Þingið" samþykkti ennfremur
ályktun á mánudag þess efnis að
fulltrúar Serba í Bosníu myndu
ekki taka þátt í friðarviðræðunum
í Genf nema ríki þeirra yrði viður-jr
kennt formlega. Stjómarerindrekar
í Genf sögðu þó í gær að svo virt-
ist sem Serbamir myndu ekki fram-
fylgja þessari hótun þegar í stað.
Milligöngumenn Sameinuðu
SERBIA
þjóðanna og Evrópubandalagsins,
Cyras Vance og Owen lávarður,
útiloka viðurkenningu á nýja ríkinu,
að sögn stjómarerindreka í Genf.
Þeir hafa einnig hafnað tillögum
Serba um skiptingu Bosníu í kan-
tónur á þjóðemisiegum forsendum
og lagt til að landinu verði skipt í
sjö til 10 svæði, aðallega eftir efna-
hagslegum aðstæðum. Stjómarer-
Kaupmannahöfn. Frá N. J. Bruun, fréttaritara Morgunbladsins.
EIGENDUR lítilla fískibáta gáfu
Kaupmannahafnarbúu m ókeypis
sólflúru i gær, alls um 700 kíló,
til að mótmæla niðurskurði á veið-
ikvóta. Almenningur streymdi nið-
ur að höfn með fötur til að ná sér
í soðningu.
Bátamir voru um 70. Sólflúru-
kvótinn hefur verið minnkaður úr
300 kílógrömmum á bát í hverri viku
Macintosh fyrir byrjendur
hk-92101
Gmnnatriði Macintosh, Works-ritvinnsla, gagnasöfnun, teikning, töflureiknir
og stýrikerfi á 15 klst námskeiði fyrir byijendur.
Tölvu- 09 verkfræðiþjónustan
Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar
Grensásvegi 16 • stofnuð 1. mars 1986
©
*
&
Bonn yrði sökuð um tvöfalt siðgæði
á alþjóðavettvangi þar sem hún
komst hjá því að taka með beinum
hætti þátt í Persaflóastríðinu á
þeirri forsendu að það samrýmdist
ekki stjómarskránni. Þjóðverjar
eiga af sömu ástæðu ekki aðild að
friðargæslusveitum Sameinuðu
þjóðanna.
Þó að talsmaður kanslarans hafi
vísað því á bug að kanslarinn ætli
að lýsa yfír formlegu neyðarástandi
þá er mönnum enn í fersku minni
að á þingi kristilegra demókrata í
síðustu viku sagði hann að „neyðar-
ástand" blasti við ef ekki yrði fund-
in lausn á flóttamannavandanum.
Eins og staðan er í dag skyldar
stjómarskráin Þjóðveija til að veita
öllum þeim flóttamönnum hæli sem
fara fram á það. Hefur þetta leitt
til flóðbylgju flóttamanna á síðustu
misserum sem er talin ein helsta
ástæða mikillar fylgisaukningar
hægriöfgamanna.
Flestir em sammála um að eitt-
hvað verði að gera en samkomulag
næst ekki um hvað í þeim aðgerðum
þurfí að felast. Otto Lambsdorff
greifí, leiðtogi Fijálsa demókrata-
flokksins, sem er einn stjórnar-
flokkanna þriggja, sagði að flokkur
hans myndi enga aðild eiga að laga-
setningu sem hugsanlega stæðist
ekki prófun stjómlagadómstóls
Iandsins. Þá sagði Ingrid Mattháus-
Maier, einn talsmanna Jafnaðar-
mannaflokksins, að allar tilraunir
til að lýsa yfír neyðarástandi myndu
jafngilda „hallarbyltingu að ofan“.
indrekamir segja að Vance og
Owen lávarður líti á hótun Serba
um að hætta þátttöku í friðarvið-
ræðunum sem ögmn við Sameinuðu
þjóðirnar og Evrópubandalagið. Hið
sama sé að segja um nýjustu land-
vinninga þeirra, árásir þeirra á
múslimska flóttamenn frá Jajce og
áformin um sammna landsvæðanna
í Króatíu og Bosníu.
Danskir sjómenn mót-
mæla kvótatakmörkun
niður í 150 kíló en talsmenn sjó-
manna segja að nóg sé af tegund-
inni á miðunum og saka líffræðinga
um að hafa vanrækt að kanna ástand
stofnsins.
Kent Kirk sjávarútvegsráðherra
fékk fyrr á árinu leyfi Evrópubanda-
lagsins til að hækka sólflúrukvótann
um 10-20% frá því sem ákveðið hafði
verið, þetta var gert með því að láta
af hendi aðra veiðikvóta í staðinn. Á
þessu ári verður staðið fyrir mikilli
úreldingu í danska fískibátaflotan-
um, alls verður um að ræða sam-
drátt er nemur 9.000 tonnum og
veitir Evrópubandaiagið fjárstyrk til
framkvæmdarinnar. Stjóm banda-
lagsins hefur komist að þeirri niður-
stöðu að veiðigeta flota bandalagsins
sé allt of mikil miðað við þann afla
sem skynsamlegt geti talist að veiða
án þess að gengið sé á stofnana.
Vonir um
vopnahlé í
Ángóla
SKIPST var á skotum í Lu-
anda, höfuðborg Angóla, í gær
en kyrrt var þó í borginni að
kalla miðað við það, sem verið
hefur síðustu daga. Reyna full-
trúar Sameinuðu þjóðanna og
Portúgalsstjómar að koma á
vopnahléi milli stjórnarflokks-
ins, MPLA, og Unita-hreyfíng-
arinnar og í gær skiptust fylk-
ingarnar á stríðsföngum.
Fréttir em um, að varaforseti
Unita, Jeremias Chitunda, og
Salupeto Pena, hægri hönd og
frændi Jonasar Sawimbis, leið-
toga Unita, hafí verið skotnir.
Svíar snúast
gegn EB-aðild
í FYRSTA sinn em andstæð-
ingar aðildar Svía að Evrópu-
bandalaginu, EB, fleiri en
stuðningsmennirnir. Sam-
kvæmt skoðanakönnun, sem
birtist í gær, segðu 53% sæn-
skra kjósenda nei í þjóðarat-
kvæðagreiðslu um málið nú
en vora 45% fyrir mánuði. 30%
kjósenda era hlynnt aðild, 35%
fyrir mánuði, en 17% era óá-
kveðin. Andstaðan við EB-
aðild hefur einkum aukist
meðal kvenna en nú er 61%
þeirra á móti en 46% fyrir
mánuði. 82% vora sammála
um, að best væri útkljá þetta
mál í þjóðaratkvæðagreiðslu.