Morgunblaðið - 20.11.1992, Page 10

Morgunblaðið - 20.11.1992, Page 10
Stór hluti af Hamrahlíðarkórnum. UM HELGINA Tónlist Norræna húsið Útgáfutónleikar Aflalsteins Ás- bergs Sigurðssonar og Önnu Pálínu Árnadóttur í Norræna húsinu verða næstkomandi mánudagskvöld 23. nóv- ember kl. 21. Plata þeirra „Á einu máli“ sem kom út fyrir skömmu, hef- ur að geyma fjölbreytta visnatónlist með djass- og blúsívafi. Aðalsteinn og Anna Pálína hafa kom- ið fram á ýmsum stöðum bæði hér heima og á Norðurlöndum. í fréttatilkynningu segir að nú gefist tækifæri til að hlýða á flutning þeirra á gömlum og nýjum lögum og ljóðum. Með þeim leika að þessu sinni: Þórir Baldursson á píanó, Tómas R. Einarsson á kontrabassa, Pétur Grétarsson á slag- verk og Gísli Helgason á blokkfiautur. Fiðluleikari frá Litháen unum, Þýskalandi, Sviss og á flestum. Norðuriöndum, ýmist sem einleikari eðai undirleikari hjá öðrum. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir fjögur tónskáld, ítölsk, rússnesk, þýsk og frönsk að uppruna; „Teufelstriller"- sónata eftir Giuseppi Tartini, Sónata nr. 1 eftir Sergej Prokofíev, Sónata í G-dúr eftir Johannes Brahms og Rapsódía„Tz- igane“ eftir Maurice Ravel. Myndlist Café Laugavegur 22 BJARNI Ragnar opnaði sýningu á Café Laugavegi 22 þann 16. nóvember sl. Á sýningunni eru 24 verk, öll unnin með bleki, flest verkin eru unnin í Port- úgal þar sem listamaðurinn 'hefur búið sl. tvö og háift ár. Sýningin er opin á opnunartíma kaffi- hússins. Hamrahlíðarkórarnir með tónleika í Hallgrímskirkju KÓR Menntaskólans við Hamrahlíð og Hamrahlíðarkórinn halda tónleika í Hallgrímskirkju sunnudaginn 22. nóvember, sem hefjast kl. 16. En um þessar mundir eru 25 ár liðin siðan kórstarf hófst í Menntaskólanum við Hamrahlíð og munu kórarnir báðir sem kenna sig við Hamrahlíð minnast þess á ýmsan hátt á þessu skóla- ári. Hamrahlíðarkórinn, sem var tilnefndur til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 1993, hefur í haust unnið að undirbúningi og upptökum á nýjum geisladiski með íslenskum þjóðlögum. Á efnisskrá tónleikanna á sunnudag eru verk. eftir Ales- sandro, Scarlatti, Grieg, Jennefelt (sænskur, f. 1954) og Britten. Öll verkin eiga það sameiginlegt að vera samin við Biblíutexta eða sálma. í fréttatilkynningu segir að það sé óvenjulegt fyrir kórana í Hamrahlíð að efna til tónleika, þar sem eingöngu eru flutt erlend tón- verk, en Hamrahlíðarkóramir hafa lagt mikla áherslu á flutning ís- lenskrar tónlistar. Þorgerður Ingólfsdóttir er stofn- andi beggja kóranna í Hamrahlíð og hefur stjórnað þeim frá upp- hafi. Á sunnudag fær hún til liðs við sig belgískan stjórnanda, Johan Duijck, sem mun stjórna verki Brittens. Kórarnir vilja þannig benda á hið ríkulega samstarf sem þeir hafa átt við kóra og kórstjóra á erlendri grund. Einsöngvarar á tónleikunum verða Gunnar Ólafur Hansson bar- itonsöngvari í Fjórum sálmum op. 74 eftir Grieg, Þorgeir J. Andrés- son tenórsöngvari og Bergþór Pálsson baritónsöngvari í Cantata Misericordium eftir Britten. Auk þess leikur strengjakvartett og lítil hljómsveit úr Tónlistarskólanum í Reykjavík í verki Brittens. Benja- mín Britten samdi Cantata Mis- ericordium í tilefni af 100 ára af- mæli Alþjóða rauða krossins og verkið var frumflutt í Genf árið 1963. Textinn er sagan af mis- kunnsama Samverjanum. Á tónleikunum koma fram 130 kórsöngvarar, þeir yngstu 16 ára. Aðgöngumiðar eru seldir við inn- ganginn. Tónlistarfélagið í Reykjavík og Tónlistarskólarnir í Njarðvík og Keflavík með styrk frá Iceland Sea- food Limited í Hamborg standa fyrir komu litháíska fiðluleikarans Martyn- as Svegzda-von Bekkcr hingað til lands, og mun hann leika á tveimur tónleikum hér ásamt Guðríði St. Sig- urðardóttir píanóleikara. Fyrri tón- leikarnir verða í íslensku óperunni laugardaginn 21. nóvember kl. 14.30, en hinir síðari sunnudaginn 22. nóv- ember kl. 20.30 í Ytri- Njarðvíkur- kirkju. Martynus Svegzda-von Bekker stund- aði nám í Ciurlionis-listaskólanum í Vil- níus, þar sem hann hóf fiðlunám aðeins fimm ára gamall, og síðar í Hochschule fúr Musik und Theater í Hamborg en þangað flutti hann árið 1989. Hann kom fyrst fram sem einleikari með sinfóníu- hljómsveit í Vilníus 1974, og hefur unn- ið ýmsar keppnir og titla í heimalandi sínu eftir það. Undanfarin ár hefur hann orðið eftirsóttur einleikari og fengið mjög lofsamlega dóma gagnrýnenda sem áhorfanda. Guðríður St. Sigurðardóttir, píanóleikari, kláraði einleikarapróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1978, 1978-1980 var hún við nám í Univerity of Michigan í Ann Arbor í Bandaríkjun- um, 1984-1985 stundaði hún nám í Köln í Þýskalandi hjá prófessor Gúnter Ludw- ig. Hún hefur haldið tónleika í Bandaríkj- Sólon Islandus Laugardaginn 14. nóvember birtist fréttatilkynning um opnun sýningar á verkum Hrafnkels Sigurðssonar. Þar er talað um sýningu á ljósmynd- um, en listamaðurinn vill heldur láta tala um ijósmyndaverk. Á sýningunni eru unnar ljósmyndir, ’ stækkaðar í ljósrita. Myndirnar eru sagð-1 ar í beinu framhaldi af myndum á sýn- ingu í Gallerí einn einn fyrir tveimur árum, þar sem unnið var með íslenskt- landslag og „signature" listamannsins. Sýningin er opin alla daga kl. 9-20 fram til 15. desember. Gallerí 11 ÞÓRDÍS Rögnvaldsdóttir opnar laug- ardaginn 21. nóvember kl. 14 sýningu í Gallerí 11, Skólavörðustíg 4A. Þar sýnir hún olíumálverk og vatns- litamyndir sem allar eru unnar á þessu ári. Þórdís er fædd árið 1951 á Siglu- firði. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1968-1972 og aftur frá 1988-1990. Þetta er önnur , einkasýning Þórdísar en hin fyrri var í FÍM-salnum við Garðastræti í nóvember 1991. Sýningin stendur til 3. desember og er opin aila daga frá kl. 14 til 18. Jólabókafréttir Langflestar jólabækurnar eru komnar út eða um það bil að koma. Og þegar er búið að leggja fram nokkrar bækur til íslensku bók- menntaverðlaunanna. I bókatíðindum verða rúmlega 400 titlar, sem eru íslensk skáldverk og erlend þýdd, Ijóðabækur og bækur almenns eðlis. Frumsamdar og þýddar barnabækur eru mjög stór þáttur, einn- ig skipa viðtals- og ævisögur stóran sess eins og verið hefur síðustu ár. Verð á bókum er svipað og í fyrra. Innbundin islensk skáldverk kosta á bilinu 2.600-2.900 kr., en stærri verk fara yfir 3.000 krónur. Algengt verð á Ijóðabókum er á bilinu 1400 upp í 2.000 kr. Kvæða- söfn kosta um og yfir 3.000 krónur. Samkvæmt upplýsingum frá Fé- Iagi íslenskra bókaútgefenda koma út rúmlega 500 titlar á árinu, sem er svipuð tala og í fyrra. Flestar bækurnar koma út fyrir jólin að venju. VAKA-HELGAFELL Verktengd Halldóri Laxness og ýmis skáldverk Vaka-Helgafell gefur út á þessu ári milli 30-40 bækur, um 60% íslensk skáldverk, 40% þýddar bækur. Viða- mestar eru endurútgáfur af 12 skáldverkum Halldórs Laxness fyrr á árinu í samvinnu við Laxness- klúbbinn. Má þar nefna Kvæðakver, þar sem aukið hefur verið við fyrri útgáfur. Og fyrir nokkru komu út Vefarinn mikli frá Kasmír og Heims- ljós I—II í nýrri útgáfu. Bókin, Lífsmyndir skálds, sem fjallar um líf og starf Halldórs Lax- ness í máli og myndum er væntanleg fyrir jól. Ólafur Ragnarsson útgef- andi og Valgerður Benediktsdóttir, bókmenntafræðingur, tóku bókina saman. Og í tilefni af níræðisaf- mæli Halldórs er komin út smásaga hans, Jón í Brauðhúsum, með mynd- skreytingum Snorra Sveins Friðriks- sonar. Af öðrum bókum má nefna Und- arlegt er líf mitt, bók sem birtir bréf Jóhanns Jónssonar skáids til séra Friðriks A. Friðrikssonar frá 1912-25. Lengsta bréfið er yfir 40 handskrifaðar síður. Bréfin fundust uppi á háalofti norður á Húsavík á liðnu vori. Ingi Bogi Bogason bjó bókina til prentunar. Undir samtals- eða ævisagnabók- um eru: Alltaf til í slaginn, eða lífs- sigling Sigurðar Þorsteinssonar skipstjóra, sem hefur verið á sjó í hartnær hálfa öld, skráð af Friðriki Erlingssyni. Ómar Valdimarsson skráir sögu Guðna Guðmundssonar, rektors Menntaskólans í Reykjavík og kallar til vitnis ýmsa samferða- menn. Bókin ber heitið Guðni rekt- or. Lífsganga Lydiu með Guðmundi frá Miðdal, er um konu sem orðið hefur fyrir margskonar mótlæti, en ekkert látið buga sig. Bókin er skráð af Helgu Guðrúnu Johnson. Fyrir utan Kvæðakver Laxness eru ljóðabækurnar Áfangar Jóns Helgasonar prófessors í Kaup- mannahöfn og Lilja eftir Eystein munk í umsjá Péturs Más Ólafsson- ar í nýrri og endurbættri útgáfu. Einnig má nefna nótnabókina, Maí- stjarnan og fleiri lög, sem geymir lög Jóns Ásgeirssonar tónskálds við ljóð Halldórs Laxness. Af barna- og unglingabókum má nefna Benjamín dúfu eftir Friðrik Erlingsson; Draugar vilja ekki dósa- gos eftir Kristínu Steinsdóttur og Háskaleik, nýja spennusögu eftir Heiði Baldursdóttur. Allir þessir höf- undar hafa fengið íslensku barna- bókaverðlaunin. Ný bók eftir Ár- mann Kr. Einarsson, Grallaralíf í Grænagerði, er einnig komin út. Meðal þýddra barnabóka koma nú út 2 bækur um Fríðu og dýrið fyrir yngri og eldri lesendur, einnig bókin Bangsímon og jólin. FRÓÐI Fullhugar á fimbulslóðum og Furðuflug meðal útgáfubóka Ellefu bækur koma út hjá Fróða og eru flestar þeirra komnar út. Fullhugar á fímbulslóðum eru þættir úr sögu Grænlandsflugsins eftir Svein Sæmundsson, fyrrverandi blaðafulltrúa Flugleiða. Meðal þýddra bóka má nefna skáldsögu eftir bandaríska rithöfundinn Steph- en King sem hefur hlotið nafnið, Furðuflug, í þýðingu Guðna Jóhann- essonar og Karls Birgissonar. Tvær bækur koma út eftir Þor- grím Þráinsson, unglingabókin Bak við bláu augun og barnabókin Lalli ljósastaur. Barnabókin, Puntrófur og pottormar, er fyrsta bók Helgu Möller. Tvær ævisögur eru á útgáfulista: Rósumál, ævisaga Rósu Ingólfsdótt- ur, sjónvarpsþulu og myndlistakonu, sem Jónína Leósdóttir skráir. Svavar Gests, hljóðfæraleikari og útvarps- maður, skráir sjálfur sína ævisögu, sem hann nefnir Hugsað upphátt. Einnig má nefna bókina EM í knatt- spyrnu, sögu Evrópumótanna í knattspyrnu, sem Sigmundur Ó. Steinarson blaðamaður tók saman. FJÖLVI Laxaveislan mikla Fjöjvaútgáfan er með margar bækur í takinu sem verið er að vinna að og búa til prentunar. Laxaveislan mikla eftir Halldór Halldórsson fjallar um „mistökin í laxeldinu sem kostuðu þjóðina 10-11 milljarða". Fuglarnir er þriðja og síðasta bindi um fugla heimsins í ritröðinni Undraveröld dýranna. Nú eru spörfuglar teknir fyrir. íslenskar skáldsögur eru þijár: Sogar svelgur eftir Þorvarð Helga- son, sem er lýsing á gjaldþrotum fjölskyldna og fjármálamönnum sem hagnast á eymdinni; í Granda Café eftir Baldur Gunnarsson er sviðið Vesturbærinn og gamla höfnin; og bókin, Út frá, eftir Nemo Nemo (dul- nefni) lýsir vistun unglingsstúlku á geðdeild að ástæðulausu. Erlenda skáldsagan er Pírönurnar eftir Harold Robbins. Fyrsta bindi af Hringadrottinssögu Tolkiens er að koma út. Einnig má nefna And- lát og endurholdgun eftir indverska lærimeistarann Sri Chinmoy og sjálfsævisögu Ingmars Bergmans kvikmyndaleikstjóra. Af bókum sem fjalla um bætta heilsu eru: Fjölskyldubók um heima- hjúkrun, sem er stór bók full af leið- beiningum um aðhlynningu sjúkra, þýdd af þremur hjúkrunarfræðing- um; í toppformi sem fjallar um holl- ari lífshætti og Andlitslyfting nieð punktaþrýstingi sem segir hvemig á að nudda andlitsvöðvana með kín- verskri aðferð. Einnig má nefna leið- beiningabók fyrir unglinga sem ber | heitið Bálskotin og kunnum ekkert > að passa okkur. Bókin íslenskir fiskar lýsir öllum þekktum fískitegundum við ísland, 293 alls, og er eftir Gunnar Jónsson fískifræðing. Grikklandsgaldur er um Grikkland og gríska menningu eftir Sigurð A. Magnússon; Kólum- : bus S kjölfar Leifs, er fræðibók eftir Ian Wilson sem snertir enska tíma- ; bilið í sögu íslands; British Trawlers in Icelandic Waters eftir Jón Þ. Þór í þýðingu Hilmars Foss, er íslenskt sagnfræðirit á ensku um sögu bre- skra togara á íslandsmiðum. Margar Jjóðabækur eru í vinnslu, til dæmis Úrvalsljóð eftir Jónas Frið-,, geir, Tíu tungl á lofti, ljóðaþýðingar : úr sænsku eftir Pjetur Hafstein Lár-I usson, og Ljóð handa eftir Guðna ; I Má Henningsson, fyrsta bók ungs > | höfundar. Fyrir yngri kynslóðina eru Grimmsævintýri og nýr bókaflokkur um Búdda bangsabarn. FORLAGIÐ Tröllakirkja og Júlía Forlagið gefur út rúmlega 30 titla. Tvær íslenskar skáldsögur, Trölla- kirkju eftir Ólaf Gunnarsson og Júl- íu eftir Þórunni Valdimarsdóttur. Smásagnasafnið, Ó fyrir framan, eftir Þórarinn Eldjárn. íslenskar ljóðabækur eru þijár: Andartak á jörðu eftir Jónas Þorbjarnarson, Klukkan í turninum eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur og Fljótið sofandi konur eftir Sindra Freysson. Að auki kemur út úrval spænskra nútí- maljóða, með 170 ljóðum eftir 52 ljóðskáld, sem í þýðingu Guðbergs Bergssonar ber heitið, Hið eilífa : þroskar djúpin sín. , Ejórar minningabækur koma út. I viðtalsbókinni Guðbergur Bergsson ræðir Þóra Kristín Ásgeirsdóttir við

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.