Morgunblaðið - 20.11.1992, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1992
Borís Jeltsín heimsækir Suður-Kóreu
Segir að Rússar kiuini
að hætta kafbátasmí ði
Seoul. Reuter.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti er í þriggja daga opinberri heimsókn
í Suður-Kóreu og afhenti í gær þarlendum yfirvöldum flugritana
úr suður-kóresku farþegaþotunni sem sovésk herþota skaut niður
árið 1983 með þeim afleiðingum að 269 manns létu lífið. Hann lét
einnig svo ummælt að Rússar kynnu að hætta framleiðslu kafbáta.
Reuter
Borís Jeltsín, forseti Rússlands, og Roh Tae-woo, forseti Suður-
Kóreu, skiptast á undirrituðum eintökum af samningi um aukna
samvinnu ríkjanna.
Jeltsín er fyrsti rússneski leiðtog-
inn fyrr og síðar sem heimsækir
Seoul. Jafnframt er þetta fyrsta
ferð Jeltsíns til Asíulanda. Förin er
fyrsta skrefið í þeirri viðleitni
stjómvalda í Moskvu að laða til sín
fjárfestingar frá Asíuríkjum.
Borís Jeltsín kvaðst harma árás
sovésku herþotunnar á suður-kór-
esku farþegaþotuna og vera fullviss
um að slíkt myndi ekki gerast aft-
ur. Þá kvað hann rússnesk stjórn-
völd ætla að minnka herafla sinn í
Austurlöndum fjær til að stuðla að
bættum samskiptum við Asíuríkin.
„Ég tel að við hættum að framleiða
kafbáta innan tveggja til þriggja
ára,“ bætti hann við.
Innanhússrannsókn fordæmir bandaríska utanríkisráðuneytið
Leitiii í vegabréfaskrám
Clintons sögð „svívirðileg“
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
EFTIRLITSMAÐUR bandariska utanríkisráðuneytisins, Sherman
M. Funk, fordæmdi á miðvikudag „svivirðilega“ tilraun starfsmanna
ráðuneytisins til að koma höggi á næsta forseta Bandaríkjanna,
Bill Clinton, með því að gramsa í vegabréfsskrám hans meðan á
kosningabaráttunni stóð. Funk kvaðst hins vegar ekki hafa fundið
neitt, sem bæri því vitni að leitinni hefði verið stjórnað eða ýtt und-
ir hana úr Hvita húsinu eða kosningaherbúðum Georges Bush, fráfar-
andi forseta.
Lawrence S. Eagleburger, settur
utanríkisráðherra, baðst á miðviku-
dagskvöld opinberlega afsökunar á
því að „ráðuneytið hefði komið sér
í þennan vanda“ og sagði að það
hefði seilst inn á svið stjómmála,
þar sem það ætti síst heima. Eagle-
burger greindi frá því að hann hefði
boðist til að segja af sér vegna
þess að atvikið hefði átt sér stað
eftir að hann tók við embættinu,
en Bush hefði neitað að taka af-
sagnarbeiðnina til greina.
Funk sagði við blaðamenn að
nokkrir aðstoðarmenn í utanríkis-
ráðuneytinu hefðu hafið leit, sem
var meiri að umfangi og nákvæmni
og framfylgt af meiri hraða og
háttsettari embættismönnum, en
dæmi þekktust um. Hann bætti við
að þeir, sem að leitinni stóðu, hefðu
verið knúðir voninni um' að kippa
fótunum undan Clinton og tryggja
Bush endurkjör.
Tilgangur leitarinnar var að
komast að því hvort Clinton hefði
haft í hyggju að taka sér annað
ríkisfang í lok sjöunda áratugarins
er hann hefði getað þurft að gegna
herþjónustu í Yíetnam og þegar
ekkert fannst um forsetaframbjóð-
andann beindust augu hinna kapps-
fullu embættismanna að skjölum
um móður Clintons.
Tveir embættismenn
undir ámæli
Funk sakaði eftir innanhússrann-
sóknina tvo háttsetta embættis-
menn um að hafa átt hlut að máli.
Elizabeth M. Tamposi, aðstoðar-
utanríkisráðherra um málefni
sendiráða, var vikið úr starfi í síð-
ustu viku eins og ýmsum öðrum
embættismönnum, sem Bush skip-
aði er hann tók við embætti. Munur-
inn var aðeins sá að uppsögn Tam-
posi tók gildi tafarlaust, en ekki við
lok valdasetu Bush eins og venja
er. Tamposi segir nú að aðstoðar-
maður James Bakers, starfsmanna-
stjóra forsetans, hafí beitt hana
þrýstingi og hún hafí verið látin
taka pokann sinn til þess að bjarga
skinni annarra.
Hinn embættismaðurinn er Stev-
en K. Berry, aðstoðarutanríkisráð-
herra um lög og rétt, sem nú hefur
verið lækkaður í tign. Janet Mull-
ins, aðstoðarmaður Bakers, er sögð
hafa þrýst á Berry um að hraða
rannsókninni. Mullins bar hins veg-
ar af sér alla aðild að máli þessu
er Funk yfírheyrði hana. Funk
ræddi einnig.við Baker, sem kvaðst
ekki hafa vitað af leitinni fyrr en
daginn eftir að hún fór fram.
„Grunur minn er sá að þeir hafí
vitað af þessu á þeim tíma,“ sagði
Funk er gengið var á hann um það
hvort aðstoðarmenn forsetans
hefðu vitað að leita átti í gögnum
um Clinton í utanríkisráðuneytinu
fyrir einum og hálfum mánuði. En
Funk bætti við að munur væri á
„aðild og vitneslqu".
Demókratar, repúblikanar og
fyrrum starfsmenn utanríkisráðu-
neytisins hafa hlaðið Funk lofi fyrir
frammistöðu hans í þessu máli.
Þeir benda hins vegar á að rann-
sókn Funks hafí beinst að utanríkis-
ráðuneytinu og hlutverki þess í
vegabréfsmálinu, en þáttur emb-
ættis forsetans væri enn ókannað-
ur. Þá má einnig spyija hvort vitn-
eskja án aðgerða jafnist ekki á við
þögult samþykki. Einn fréttaskýr-
andi sagði að nú ætti Bush að láta
fara fram rannsókn í sínum röðum
til þess að komast til botns í mál-
inu. Ekki er vitað á þessari stundu
hvort demókratar á þingi hafa í
hyggju að krefjast frekari rann-
sóknar, en mál manna er að Baker
og Bush séu svo sneyptir um þessar
mundir að slíkt mundi jafnast á við
að sparka í liggjandi menn.
Fulltrúi samtaka íranskra sljómarandstæðiiiga
Stjómarherrarnir í Teheran
flytja út hryðiuverkastefnu
SEX helstu flokkar stjórnarandstæðinga auk ýmissa hópa og einstak-
linga í íran eru í Þjóðlega andspyrnuráðinu (NCRÍ), samtökum sem
hafa það að markmiði að stjóm trúarofstækismanna múslima í Teher-
an verði velt og efnt verði til frjálsra kosninga. Fulltrúi samtakanna
á Norðurlöndum, Per Viz. S. Khazai, er staddur hér á Iandi til að
kynna málstað þeirra og biðja um aðstoð íslendinga. Hann segir að
mannréttindaglæpir og hryðjjuverk klerkastjórnarinnar beinist ekki
einvörðungu gegn írönum og þjóðabrotum í landinu heldur allri
heimsbyggðinni eins og ljóst sé meðal annars af dauðadómnum yfir
Salman Rushdie, rithöfundi og breskum þegni.
Biskupa-
kirkjumenn
stofni nýja
kirkju
AUKNAR líkur voru í gær á
klofningi ensku biskupakirkj-
unnar vegna þeirrar ákvörðun-
ar hennar að heimila konum
að taka prestvígslu. Rúmlega
sjötugur biskup, Graham Leon-
ard, sem var þriðji valdamesti
biskup kirkjunnar áður en hann
settist í helgan stein fyrir þrem-
ur árum, hvatti óánægða bisk-
upakirkjumenn til að stofna
nýja' kirkju sem myndi heyra
undir páfann í Róm en njóta
mikillar sjálfstjómar líkt og
kaþólsku alþjóðasamtökin Opus
Dei.
Sjö mánaða
umsátri lokið
BRESKIR hermenn á vegum
Sameinuðu þjóðanna komu í
gær með matvæla- og lyíja-
birgðir til múslimska bæjarins
Tuzla í norðurhluta Bosníu.
Þetta er í fyrsta sinn sem Sam-
einuðu þjóðimar koma birgðum
til borgarinnar frá því Serbar
hófu umsátur um hana fyrir sjö
mánuðum. íbúar Tuzla em um
200.000 og mikill fögnuður var
í borginni þegar hermennimir
komu.
Blóðbanka-
hneyksli
SIMON Upton, heilbrigðisráð-
herra Nýja Sjálands, kann að
verða sóttur til saka þar sem
komið hefur í ljós að Iifrar-
bólguveira var í blóði sem
blæðarar fengu. Talið er að 70%
af 350 blæðurum landsins hafí
smitast af lifrarbólgu C vegna
storknunarefnis sem notað er í
blóðbönkum landsins. Lifrar-
bólga C eykur hættuna á lifrar-
krabbameini.
Ný sljóm í
Rúmeníu
RÚMENAR fengu í gær nýja
ríkisstjóm sem hyggst hægja á
efnahagsumbótum og tryggja
að þær valdi sem minnstri lífs-
kjaraskerðingu. Stjómarand-
staðan gagnrýndi Nicolae Vac-
aroiu forsætisráðherra fyrir að
velja nokkra ráðherra, sem
gegndu mikilvægum embætt-
um á valdatíma Nicolae Ceaus-
escu, fyrrverandi einræðis-
herra.
Þrjú tonn af
kókaíni finnast
ÞRJÚ tonn af kókaíni fundust
í gær í lítilli flugvél, sem áhöfn
kanadískrar orrustuþotu
neyddu til að lenda á afskekkt-
um flugvelli í Quebec. Fjórir
menn vom í flugvélinni, sem
kom frá Suður-Ameríku, og
vom handteknir. Kókaínfarm-
urinn er metinn á milljarð kana-
dískra dala (rúmlega 46 millj-
arða ÍSK) og er þetta einn
mesti kókaínfundur í sögu
Kanada.
Hitlerssýningn
mótmælt
YFIRVÖLD í Berlín mótmæltu
í gær áformum borgaryfírvalda
í Flórens á Ítalíu um að hafa
málverk eftir Adolf Hitler til
sýnis á Uffízi-safninu. „Þetta
er óþolandi ögmn við góðan
smekk og fómarlömb fasism-
ans,“ sagði Ulrich Roloff-Mom-
in, menningarmálaráðherra
Berlínar, í bréfí til borgarstjóra
Flórens, Giorgio Morales.
Aðalstöðvar samtakanna em í
París. Khazai, sem er Kúrdi að
uppruna, var sendiherra írans í
Stokkhólmi og Ósló en sagði af sér
1981, fékk pólitískt hæli í Noregi
1982 og síðar ríkisborgararétt.
Hann segir byltinguna gegn keisar-
anum 1979 hafa beinst gegn ein-
ræði hans og harðstjórn, markmiðið
hafí verið að lýðræði en ekki ein-
ræði trúarofstækismanna tæki við.
Ajatollah Khomeini erkiklerkur og
stuðningsmenn hans hafí svikið
byltinguna. Khazai var spurður
hvort stjómvöld í Teheran hefðu
mildað stefnu sína eftir að Hashemi
Rafsanjani tók við forsetaembætti.
„Þetta vildu nýju stjómendumir í
fyrstu að yrði álit manna á Vestur-
löndum. Þeir ætluðu að fá fjárhags-
lega aðstoð frá alþjóðlegum lána-
stofnunum. Reyndin er sú að þeir
hafa enn hert tökin. Aftökum hefur
íjölgað stórlega, sama er að segja
um handtökur og pyntingar, þær
hafa færst í vöxt. Allt er gert til
að hræða fólk en stöðugt em nú
skipulögð fjöldamótmæli þeirra sem
fengið hafa nóg, á hveijum degi
er skýrt frá mótmælum einhvers
staðar í Iandinu. Mannréttindasam-
tökin Amnesty Intemational hafa
gefíð út skýrslur sem sanna að
stjómarfarið hefur ekkert batnað.
Dæmi vom um það á síðasta ári
að konur voru grýttar til bana fyrir
lauslæti, miðaldarefsingar vom
þama sannanlega við lýði árið 1991!
Það er engin von um að þessi stjóm
bæti ráð sitt, þetta er fasistastjóm
og það verður að steypa henni.
A hveiju ári em samþykktar
ályktanir hjá Sameinuðu þjóðunum
þar sem framferði stjómvalda er
fordæmt, meirihluti fulltrúa í báð-
um deildum Bandaríkjaþings hefur
lýst stuðningi við baráttu samtaka
okkar, einnig fjölmargir stjómmála-
leiðtogar í Evrópu og víðar. En við
viljum að SÞ gangi lengra.
Sjálfur starfaði ég sem lögfræði-
legur ráðunautur hjá SÞ og ég tel
að nú, þegar Sovétríkin og misnotað
neitunarvald þeirra era góðu heilli
úr sögunni, sé hægt að koma á
þeirri gmndvallarreglu að ríkis-
stjórnir séu ekki taldar löglegar
nema þær séu lýðræðislega kjöm-
ar. Við viljum að öryggisráðið lýsi
klerkastjómina ólöglega. Allir ættu
að skilja að stjórn sem iætur myrða
japanskan þýðanda Sálma satans
eftir Salman Rushdie, gera morðtil-
raun við þýðandann á Ítalíu og
neyðir stjómvöld á Norðurlöndum
til að veita þýðendum þar lögreglu-
vernd er ekki aðeins að misþyrma
eigin þjóð. Hún er líka að flytja
hryðjuverkastefnuna út til annarra
landa. Áhrifín frá Teheran berast
nú til annarra múslimalanda, þeirra
á meðal Alsír og Jórdaníu. Teheran-
stjórnin er í stríði við allt siðmennt-
að samfélag á jörðunni. Samtök
mín em í fremstu vamarlínu og
þess vegna biðjum við ykkur og
aðrar þjóðir um aðstoð, ekki ein-
göngu í orði heldur einnig með
fjárstuðningi".
Mujahedin berst gegn
kvennakúgun
Khazai er spurður hvort öflug-
asta hreyfingin í samtökunum,
mujahedin-skæruliðamir, sem eru
mjög virkir í íran, séu ofsatrúar-