Morgunblaðið - 20.11.1992, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1992
31
Hjúkrunarfræðingar á Norðurlandi
Niðurskurði til Krist-
nesspítala mótmælt
STJÓRN Félags háskólamennt-
aðra hjúkrunarfræðinga á Norð-
urlandi mótmælir harðlega fyrir-
huguðum niðurskurði á fjárveit-
ingum til Kristnesspítala.
I ályktun segir: „Rök okkar byggj-
ast á faglegum, byggðarlegum og
fjárhagslegum sjónarmiðum. Frá
faglegu sjónarmiði er það talinn
vænlegur kostur að veita sjúklingi
endurhæfíngu sem næst heima-
byggð. Þannig skapast nánari tengsl
milli endurhæfingaraðila og sam-
starfsfólks í heilbrigðis- og félags-
málageiranum í heimabyggð sjúkl-
ingsins. Einnig er það mikill kostur
fyrir sjúklinga og aðstandendur
þeirra frá bæði félagslegu og efna-
hagslegu sjónarmiði að þurfa ekki
að sækja endurhæfingu landshoma
á milli, sérstaklega í ljósi þess að
oftast er um langtíma meðferð að
ræða. Sjúklingar sækja stuðning og
hvatningu til aðstandenda og sá þátt-
ur í þjónustunni verður seint ofmet-
inn. Þá skýtur það skökku við að
leggja niður endurhæfíngu á Krist-
nesspítala á sama tíma og rætt er
um að flytja opinberar stofnanir og
þjónustu út á landsbyggðina.
Gild rök má færa fyrir því að hag-
kvæmt sé að stuðla að áframhald-
andi uppbyggingu endurhæfíngar á
Kristnesspítala. Stöðvum á starfsem-
inni myndi leiða til lengri legu sjúkl-
inga á bráðadeildum sjúkrahúsa á
svæðinu. Afleiðingamar yrðu aukinn
kostnaður og minni afkastageta
sjúkrahúsanna. í þessu tilliti verður
að undirstrika þann mikla kostnaðar-
mun sem er á leguplássi á bráða-
deild og endurhæfíngardeild. Það
getur ekki talist hagkvæmt að kasta
fyrir róðra þeirri uppbyggingu sem
þegar hefur átt sér stað á Kristnessp-
ítala og búið er að leggja mikla fjár-
muni í. Nær væri að leggja aukna
fjármuni í áframhaldandi uppbygg-
ingu endurhæfíngardeildarinnar
þannig að rekstur hennar gæti orðið
hagkvæmur og skilaði um leið ákjós-
anlegum árangri.
Hjúkrunarfræðingar í Félagi há-
skólamenntaðra hjúkmnarfræðinga
á Norðurlandi skora á heilbrigðisyfir-
völd að falla frá áformum sínum um
niðurskurð til Kristnesspítala.“
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Aðgengi að Félagsmálastofnun Akureyrar er ekki gott og því kom Jón Björnsson félagsmálastjóri til
fundar við Jóhann Pétur Sveinsson formann SjáJfsbjargar, en þeir ræddu um ný lög um málefni fatlaðra.
Lög um málefni fatlaðra
Mörg mikilvæg* atriði í nýju lög-
unum sem við bindum vonir við
Safnaðarheimilið
Sýning á
ljósmyndum
FÉLAGAR í Áhugaljósmyndara-
klúbbi Akureyrar, ÁLKA, efna til
samsýningar í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju og verður hún
opnuð á laugardag, kl. 14.
Tæplega 30 félagar sýna þarna á
annað hundrað mynda, bæði svart-
hvítar og í lit. Sýningin verður opin
nú um helgina frá kl. 14 til 21 á
laugardag og frá kl. 15 til 21 á
sunnudag, en hún verður einnig opin
á sama tíma aðra helgi, dagana 28.
til 29. nóvember. Aðgangur að sýn-
ingunni er ókeypis og eru flestar
myndanna til sölu.
Áhugaljósmyndaraklúbbur Akur-
eyrar var stofnaður árið 1990 og eru
félagsmenn nú um 50 talsins.
- segir Jóhann Pétur Sveinsson formaður Sjálfsbjargar
JÓHANN Pétur Sveinsson formaður Sjálfsbjargar, landssambands varðar aðgengi að opinberum bygg-
fatlaðra, segir að mörg veigamikil atriði hafi komið inn í ný lög um
málefni fatlaðra sem tóku gildi fyrir skömmu og bindi menn við þau
miklar vonir. Jóhann Pétur kynnti nýju lögin á fundi hjá Sjálfsbjarg-
arfélögum í fyrrakvöld og í gær ræddi hann við framkvæmdastjóra
Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Norðurlandi eystra og félags-
málastjóra Akureyrarbæjar um þessi mál.
Jóhann Pétur benti sérstaklega
á kafla um liðveislu í hinum nýju
lögum, en þar væri bæði um að
ræða liðveislu sem viðkomandi
sveitarfélög eiga að veita og eins
væri um að ræða sérstaka liðveislu
sem svæðisskrifstofum er ætlað að
veita fötluðum einstaklingum.
„Þarna er um margháttaða aðstoð
að ræða og hún kemur sem víðbót
við þá heimaþjónustu eða heima-
hjúkrun sem fyrir er og tilgangur
er að gera fötluðum kleift að búa
sem lengst heima,“ sagði Jóhann
Pétur.
Hann segir að lög um félagsþjón-
ustu sveitarfélaga, þ.e. þau ákvæði
sem fjalla um heimaþjónustu við
fatlaða, séu í raun einskis nýt, fatl-
aðir séu jafn illa settir og áður því
þessu verkefni sé ekki tryggt nægi-
legt fjármagn. „Nú treystum við
því að úr því stjómvöld opnuðu fyr-
ir þennan möguleika á annað borð
muni þau tryggja nauðsynlegt fjár-
magn til verkefnisins. Með þessu
viðurkennir ríkið að brúa þarf það
bil sem myndast ef viðkomandi fatl-
aður einstaklingur þarf meiri þjón-
ustu en sveitarfélögin treysta sér
til að veita.“
Önnur veigamikil atriði sem Jó-
hann Pétur sagði að væru til bóta
í nýju lögunum væru varðandi
ferðaþjónustu og ferlimál. Skýrt
væri kveðið á um að sveitarfélögin
ættu að veita fötluðum ferðaþjón-
ustu, en það hefði fram til þessa
verið gert í stærstu sveitarfélögum
landsins. Þá væri einnig ákvæði um
að sveitarfélög ættu að gera skipu-
legar áætlanir um úrbætur hvað
mgum og raði verkefnum í for-
gangsröð. Hlutverki Framkvæmda-
sjóðs fatlaðra var einnig breytt í
þá veru að hér eftir er heimilt að
veita fé úr sjóðnum, allt að 10%,
til að gera breytingar á aðgengi við
opinberar byggingar og við vinnu-
staði þar sem fatlaðir starfa.
Loks mætti nefna að breytingar
hefðu verið gerðar á kaflanum um
atvinnumál, en áður hefði fyrst og
fremst verið miðað við að fatlaðir
ynnu á vemduðum vinnustöðum,
en í nýju lögunum væri megin-
áherslan lögð á vinnu fatlaðra á
almennum vinnumarkaði. „Þetta er
þýðingarmikið nýmæli og ef vel
tekst til getur það orðið fötluðum
mjög til framdráttar sem og reynd-
ar líka atvinnurekendum því það
kemur fram að unnt verður að gera
sérstaka samninga við vinnuveit-
endur um að þeir taki fatlaða ein-
staklinga í starfsþjálfun, en svæðis-
skrifstofurnar munu greiða kostn-
aðinn,“ sagði Jóhann Pétur.
Menningarhátíð við utanverðan Eyjafjörð
Listvinafélag, dasstón-
leikar og Tjarnarkvartett
MENNINGARHATIÐ hefur stað-
ið yfir við utanverðan Eyjafjörð,
en hún nær hámarki sínu á morg-
un, laugardaginn 21. nóvember,
þegar haldinn verður stofnfundur
Þetta er frumsýn-
ing á myndunum
- segir Tolli, sem opnar á morgun sýn-
ingu á verkum sínum í KA-heimilinu
SÝNING á verkum Tolla verður
opnuð í KA-heimilinu við
Lundatún á morgun, laugar-
daginn 21. nóvember, kl. 15.
A sýningunni eru tæplega 30
myndir, olíumálverk og stein-
þrykk, sem myndlistarmaðurinn
hefur unnið að á síðustu þremur
árum, en myndirnar vann hann á
Um grafík verksted í Kaupmanna-
höfn.
„Það má segja að þetta sé frum-
sýning á verkunum, þetta er T
fyrsta sinn sem ég sýni þau öll
saman,“ sagði Tolli.
Tíu ár eru síðan Tolli sýndi verk
sín á Akureyri síðast, en árið 1982
sýndi hann ásamt Guðmundi Oddi
í Rauða húsinu sem þá var og
hét. Eftir að hann lauk námi við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands hóf hann nám við Hoc-
hschule der Kunste í Berlín. Hann
hefur haldið 22 einkasýningar og
tekið þátt í 18 samsýningum.
„Ég hef alltaf lagt mikið upp
úr því að sýna verk mín úti á lands-
byggðinni og það er sama hvar
er, ég legg mig ávallt jafnmikið
fram um að vel takist til. Það við-
horf var í eina tíð ríkjandi að það
þýddi ekkert að fara með mynd-
listarsýningar út á land, nema þá
helst til að reyna að seljá eitt-
hvað. Auðvitað vonast maður til
að selja myndirnar sínar, en það
kemur þá sem afrakstur þess að
ég hef lagt mig fram um að gera
hlutina vel,“ sagði Tolli.
Sýningin stendur til 29. nóvem-
ber næstkomandi og er hún opin
á opnunartíma KA-heimilisins.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Tolli naut aðstoðar Alfreðs Gíslasonar framkvæmdasljóra í KA
húsinu við uppsetningu verkanna í gær.
listvinafélags í Tjamarborg í Ól-
afsfirði. Að fundinum loknum
verða djasstónleikar á sama stað,
en hátíðinni lýkur á sunnudag
með fyrstu opinberu tónleikum
Tjarnarkvartettsins.
Stofnfundur listvinafélags verður
í Tjarnarborg, Ólafsfirði, á morgun,
laugardag, kl. 14, þar sem félaginu
verða sett lög og því valið nafn. Auk
þess mun Einar Georg Einarsson
skólastjóri í Hrísey ávarpa fundar-
gesti og einhver skemmtiatriði
verða. í fundarlok verður kaffisala
á vegum Kirkjukórs Ólafsfjarðar.
Að loknum fundinum verða djass-
tónleikar í Tjarnarborg og hefjast
þeir kl. 16, en fram kemur Kvartett
Pauls Weeden, en auk hans skipa
Sigurður Flosason, Tómas R. Ein-
arsson og Guðmundur R. Einarsson
kvartettinn.
Fyrstu opinberu tónleikar
Tjarnarkvartettsins verða síðan
haldnir í Dalvíkurkirkju á sunnudag,
22. nóvember, kl. 16. Tjarnarkvart-
ettinn skipa Hjörleifur Hjartarson,
Kristjana Arngrímsdóttir, Kristján
E. Hjartarson og Rósa Kristín Bald-
ursdóttir. Kvartettinn er kenndur við
heimabæ þeirra bræðra, Hjörleifs
og Kristjáns, Tjörn í Svarfaðardal.
Þau hafa sungið saman síðan
1989, þó ekki óslitið og komið fram
allvíða, m.a. í sjónvarpi og útvarpi.
Á efnisskrá tónleikanna eru íslensk
og erlend þjóðlög, negrasálmar,
dægurlög og djasslög. Undirleikarar
í nokkrum laganna eru Daníel Hilm-
arsson á gítar og Einar Arngrímsson
á bassa.