Morgunblaðið - 20.11.1992, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1992
33
Nyjar
plötur
I Plata Mannakorns, í
gegnum tíðina sem kom út
árið 1977 er komin út á geisla-
plötu.
í kynningu útgefanda segir
m.a.: „Hér má finna dægurperl-
ur úr penna Magnúsar Eiríks-
sonar við texta hans sem hafa
lifað með þjóðinni í 15 ár og
eiga án efa eftir að ylja fólki
um hjartarætumar næstu ára-
tugina. Nægir að nefna lögin
sem þessi plata geymir til að
sannfæra hvern einasta unn-
anda íslenskrar popptónlistar
um ágæti gripsins en það eru
lögin: Reyndu aftur, Braggabl-
ús, Garún, Sölvi Helgason,
Gamli góði vinur, Ef þú er mér
hjá, Ræfilskvæði, Bót á rass-
inn, Fyrir utan gluggann þinn
og síðast en ekki síst Göngum
yfir brúna.“
Þeir sem skipuðu Mannakom
á þessum tíma voru auk Magn-
úsar Eiríkssonar, gítarleik-
ara, söngvara og munn-
hörpuleikara; Pálmi Gunn-
arsson, bassi og söngur,
Baldur Már Arngrímsson,
gítar, söngur, slagverk og
upptökustjórn og Björn
Björnsson, trommur. Að auki
nutu þeir liðsinnis m.a.: Karls
Sighvatssonar, Guðmundar
Steingrímssonar, Péturs
Kristjánssonar, Ölafs Gauks,
Helga Guðmundssonar,
Magnúsar Kjartanssonar,
Jóns Kristins Cortes og HaU-
dórs Pálssonar,
Útgefandi er Steinar hf.
■ Hljómplatan ...undir
áhrifum sem Trúbrot hljóðrit-
aði og gaf út haustið 1970
hefur verið endurútgefin á
geislaplötu.
í kynningu útgefanda áegir
m.a.: „Þetta var fyrsta íslenska
rokkbreiðskífan sem hafði ein-
vörðungu að geyma tónlist eft-
ir íslenska höfunda og það sem
meira var, tónlistin var öll eftir
meðlimi hljómsveitarinnar.
Trúbrot hafði gengið í gegnum
nokkrar mannabreytingar síð-
sumars 1970 er Gunnar Jök-
ull Hákonarson, Shady Ow-
ens og Karl Sighvatsson yf-
irgáfu sveitina og í þeirra stað
komu Magnús Kjartansson,
orgel, píanó, söngur og Ólaf-
ur Garðarsson, trommur.
Fyrir voru í Trúbrot þeir Gunn-
ar Þórðarson, gitar, þver-
flauta og söngur og Rúnar
Júlíusson, bassi og söngur.
Svona skipuð samdi hljómsveit-
in og æfði upp nýtt efni í hrein-
ræktuðum hippastíl, skellti sér
síðan til Danmerkur og hljóðrit-
aði efni á plötuna ...undir áhrif-
um, í október 1970.“
Utgefandi er Steinar hf.
Morgunbiaðið/Úlfar Ágústsson
Mikill áhugi kvenna var á námskeiðinu á ísafírði. Fimm tilraunafyrirtæki voru stofnuð og atvinna fengin
fyrir 40-50 konur.
Tuttugu athafnakonur
á námskeiði á ísafirði
fsafirði.
Iðntæknistofnun íslands hélt
um síðustu helgi á ísafirði nám-
skeið fyrir konur í hagnýtum
vinnubrögðum við stofnun og
rekstur fyrirtækja. Yfir tuttugu
konur á svæðinu frá Tálknafírði
norður um til Hólmavíkur tóku
þátt í námskeiðinu.
Að sögn Hansínu B. Einarsdóttur
verkefnisstjóra er hugmyndin að fara
með námskeiðið í öll kjördæmi lands-
ins og er áætlað að næsta námskeið
verði í vikulokin á Löngumýri í
Skagafírði fyrir Norðurland vestra.
Hún sagði að prufunámskeið hafi
verið haldið í Reykjavík fyrr á árinu,
en síðan hafi því verið breytt eftir
að metinn hafi verið árangur þess
og í samvinnu við þá nemendur sem
þar voru og aðra.
Astæða þess að byijað er með
námskeiðið í minnsta kjördæminu er
sú að þar hefur verið starfandi nefnd
kvenna við upplýsingaöflun og undir-
búning að stefnumörkun í atvinnu-
málum kvenna, en ein úr nefndinni,
Jósefína Gísladóttir á ísafirði, hafði
einmitt tekið þátt í námskeiðinu hjá
Iðntæknistofnun.
Mikill áhugi var meðal kvenna á
námskeiðinu, en meðal annars voru
þær látnar stofna fyrirtæki með öllu
sem því fylgir, en síðan voru verkefn-
in tekin fyrir á gagnrýninn hátt.
Hansína sagði að það hefði komið
sér á óvart hversu langt konumar
væru komnar bæði í atvinnurekstri
og í undirbúningi að stofnun nýrra
fyrirtækja. Þannig væru konur
komnar í samstarf við útfærslu á
verkefnum og sölukerfum þótt þær
ynnu hver í sínu byggðarlaginu.
í stuttu spjalli við nokkra þátttak-
endur kom í ljós að áhugi fyrir nýj-
ungum í atvinnumálum er mikill og
skilningur á telq'uþætti atvinnustarf-
seminnar augljós.
I lok námskeiðsins gerði ung ís-
firsk athafnakona grein fyrir at-
vinnustarfsemi sinni, sem nú hefur
verið í gangi á þriðja ár við góðan
orðstír. Það sló þó nokkuð á bjart-
sýni þátttakenda þegar hún upplýsti,
að ennþá hefði hún ekki getað greitt
sér neitt kaup og sagðist ekki enn
sjá fram á að geta það.
Þátttakendur í námskeiðinu voru
frá flestum þéttbýlissvæðunum á
Vestfjörðum auk kvenna úr sveitum.
Afráðið er að fara með námskeið-
ið, sem er styrkt af félagsmálaráðu-
neytinu, í öll kjördæmi landsins og
verður næsta námskeið á Löngumýri
í Skagafirði nú um helgina._
- Úlfar
Hafnarfjörður
Tónlistar-
skólinn
endurvíg-
ir flygil
TÓNLISTARSKÓLINN í Hafn-
arfirði ætlar í kvöld, föstudag,
kl. 20.30 að endurvígja flygil sem
skólinn var að fá úr viðgerð frá
Danmörku.
Hér er um að ræða Hindsberg
flygil sem Tónlistarfélagið í Hafnar-
firði keypti 1946 og var á sínum
tíma talinn eitt besta hljóðfæri
landsins enda héldu ekki ófrægari
snillingar en Rudolf Serkin og
Rögnvaldur Siguijónsson marga
tónleika og spiluðu á þetta hljóð-
færi.
Það er samdóma álit allra þeirra
sem til þekkja að viðgerðin hafi
tekist einstaklega vel og að hljóð-
færið sé sem nýtt.
Við vígsluna á föstudagskvöldið
leika þau Jónas Ingimundarson,
Gísli Magnússon, Ástríður Alda Sig-
urðardóttir, Sigurður Marteinsspn,
Guðrún Guðmundsdóttir og Ár-
mann Heigason stutt verk til að
gefa hlustendum tækifæri til að
heyra að nýju í þessu merkilega
hljóðfæri. Aðgangur er ókeypis og
allir velkomnir.
♦ ♦ ♦
Jólabasar Sólheima í Grímsnesi
HINN árlegi jólabasar foreldra-
og vinafélags Sólheima í Gríms-
nesi verður í Templarahöllinni við
Eiriksgötu 5 í Reykjavík, sunnu-
daginn 22. nóvember kl. 14.
Sólheimar eru sjálfseignarstofnun
á vegum þjóðkirkjunnar. Heimilið var
stofnað árið 1930 af Sesselju Hreind-
ísi Sigmundsdóttur. Hlutverk heimil-
isins er og hefur ávallt verið að ann-
ast meðferð og umönnun þroska-
heftra.
Á Sólheimum eru vinnustofur þar
sem heimilisfólk vinnur við hin ýmsu
störf, s.s kertagerð, trésmíðar, vefn-
að, búskap og garðyrkju. í garðyrkj-
unni er lögð áhersla á lífræna rækt-
un og var Sesselja brautryðjandi í
þess konar rætkun á íslandi. I kerta-
gerð og á vefstofu er einungis notað
náttúrulegt, ómengað hráefni.
Á jólabasar Sólheima eru á boð-
stólum sýnishom af framleiðsluvör-
um heimilisins. Við þetta tækifæri
gefst fólki kostur á að kaupa þær
vörur sem framleiddar eru á vinnu-
stofum heimilisins. Til sölu verður
m.a. lífrænt ræktað grænmeti, hand-
steypt bývaxkerti, tréleikföng, mott-
ur, dúkar og töskur. Einnig verður
á boðstólum lífrænt ræktað krydd
og te, mjólkursýrt grænmeti og pip-
arkökuhús verður aðalvinningur
hlutaveltunnar. Foreldra- og vinafé-
lagið verður jafnframt með hefð-
bundinn kökubasar og fatasölu auk
kaffiveitinga en basarinn er og hefur
verið helsta tekjulind félagsins.
Öllum ágóða af sölunni er varið
til eflingar á starfsemi Sólheima.
(Fréttatilkynning)
Lúðrasveit
verkalýðs-
ins leikur í
Askirkju
LÚÐRASVEIT verkalýðsins
heldur sína árlegu hausttónleika
laugardaginn 21. nóvember nk.
kl. 17 í Askirkju.
Efnisskráin er að vanda Qöl-
breytt, bæði innlend og erlend verk.
Hljóðfæraleikarar með sveitinni eru
50 og stjómandi Malcolm Holloway.
Aðgangur er ókeypis.
I.O.O.F. 3 = 174112112 = 11
I.O.O.F. 12 = 17411208A =.
I.O.O.F. 1 = 1741120872 =Sp.
NY-UNG
KFUM & KFUK
Suðurhólum 35
Hver er Guð?
Sr. Ólafur Jóhannsson fjallar um
grundvallaratriði kristinnar trúar
á samverunni í kvöld kl. 20.30.
Ungt fólk á öllum aldri
er velkomiö.
Frá Guöspeki
félaginu
Ingóffsstrmti 22.
Aslcrlftarmlml
Ganglera er
39673.
i kvöld kl. 21 veröur Birgir
Bjarnason með spjall í húsi fé-
lagsins, Ingólfsstræti 22.
Á laugardag er opið hús frá kl.
15 til 17 með fræðslu og umræð-
um i umsjá Önnu S. Bjarnadótt-
ur. Á sunnudag kl. 17-18 er
kyrrðarstund með tónlist.
Allir eru velkomnir og aögangur
ókeypis.
___STEINAR WAAGE_
SKÓVERSLUN
MOONBOOIS
Verð: 1.995,-
Stærðir: 23—35.
5% staðgreiðsluafsláttur.
Póstsendum samdægurs.
STEINAR WAAGE A
SKÓVERSLUN jí
SlMI IS5IS> <P
STEINAR WAAGE ^
SKÓVERSLUN
SlMlftáWU
oppskórinn
VfUUSUSD! ■ SlMI: 11312