Morgunblaðið - 06.12.1992, Side 1

Morgunblaðið - 06.12.1992, Side 1
80 SIÐUR B 280. tbl. 80. árg. SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins MYVATNIVETRARSKR UÐA Morgunblaðið/Snorri Snorrason Stjórnarskrár- breytingu hafnað RÚSSNESKA fulltrúaþingið felldi í gær, laugardag, tillögu um breytingu á stjórnarskránni sem hefði skert völd Borís Jeltsíns Rússlandsforseta veru- lega. Til að tillagan næði fram að ganga þurftu að minnsta kosti 694 þingmenn af 1.040 að gjalda henni jákvæði sitt en hún fékk aðeins 609 atkvæði, að sögn fréttastofunnar Itar-Tass. Hraðakstur á innkaupakerru UNGUR maður frá Fakse í Danmörku varð nýlega fyrstur Dana til að vera kærður fyrir gáleysislegan akstur á innkaupakerru í stórmarkaði. Maðurinn mun hafa verið hald- inn mikilli streitu þegar hann ók inn- kaupakerrunni á ofsahraða á sjötuga konu sem var að beygja sig eftir vöru á einni hillunni. Konan féll á gólfið og meidd- ist ekki en kærði hraðaksturinn til lög- reglunnar. Þar sem umferðarlögin ná ekki til aksturs á innkaupakerrum í stórmörkuðum verður maðurinn sóttur til saka fyrir líkamsárás og fær að öll- um líkindum mildan dóm, að sögn danska dagblaðsins Politiken. Umdeild herferð gegn þungunum í BANDARÍKJUNUM hafa menn mikl- ar áhyggjur af því að æ fleiri stúlkur á táningsaldri verða þungaðar og yfír- völd í Baltimore hafa nú gripið til þess ráðs að bjóða ungum stúlkum ókeypis getnaðarvörn. Þessi ákvörðun á örugglega eft- ir að valda mikl- um deilum, einkum vegna þess að að- ferðin við þungunarvörnina er mjög umdeild. Hún felst í þvi að sex hylkjum með gervihormón, sem kemur í veg fyrir egglos, er komið fyrir undir hör- undinu á upphandlegg stúlknanna. Þessi aðgerð tekur um tíu mínútur og skipta þarf um hylki á fimm ára fresti. Þeir sem hafa gagnrýnt þessa aðferð segja að hún valdi tíðum og óregluleg- um klæðaföllum, auk þess sem hún veiti enga vörn gegn alnæmi. „ Atkvæðagreiðsla aldar- innar“ í Sviss um EES Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. FYRSTU spár um úrslit „atkvæðagreiðslu aldarinnar“, eins og þjóðaratkvæðagreiðsl- an um aðild Sviss að Evrópska efnahagssvæðinu (EES) hefur verið kölluð, munu liggja fyrir í dag, sunnudag, klukkan þijú - eða klukkan tvö að íslenskum tíma. Úrslitin eru tvísýn. Andstæðingar aðildar höfðu lengi vel betur en stuðningsmenn eru taldir hafa unnið á undanfarna daga. Endanleg niðurstaða kosninganna mun liggja fyrir um kvöldmatarleytið. Baráttan hefur verið geysihörð. Stuðn- ingsmenn segja velferð Sviss í húfi en and- stæðingar telja þjóðina geta spjarað sig þótt hún standi utan við sameiginlegan markað Evrópuríkja. Stórum atvinnurek- endum er mjög í mun að Sviss verði með í EES og margir hafa skrifað starfsmönnum sínum bréf og skorað á þá að kjósa „Já“. Fyrir helgina kom í ljós að póst- og síma- stofnunin er í þessum hópi. Yfirmenn ríkis- stofnunarinnar sendu öllum starfsmönnum bréf og minntu á að utanríkisviðskipti Sviss hefðu bein áhrif á rekstur hennar. Það væri henni því til góðs ef þjóðin samþykkti aðild að EES. Það tíðkast ekki að ríkisstofn- anir blandi sér í þjóðaratkvæðagreiðslur. Athæfi yfirmanna póst- og símastofnunar- innar hefur mælst illa fyrir og kann að hafa öfug áhrif en ætlast var til. Svisslend- ingar vilja ekki láta segja sér fyrir verkum. Efnahagsástandið í landinu er svartara en oft áður. 120.000 manns, eða 3,9% þjóð- arinnar, eru atvinnulausir og hallinn á §'ár- lögum er yfir 3 milljarðar svissneskra franka (129 milljarðar ÍSK). Andstæðingar EES óttast að skattar hækki, fjöldi atvinnulausra aukist og laun lækki ef útlendingar frá öðrum EES-ríkjum, þar sem atvinnuleysi er mun hærra en í Sviss, fá að keppa við Svisslendinga um störfin í landinu. Fjár- málaráðherrann lýsti því loks yfir á fámenn- um fundi í fjalladal nokkrum dögum fyrir kosningar að efnahagslíf þjóðarinnar myndi njóta góðs af EES. Hann hafði haft svo hljótt um sig í kosningabaráttunni fram að því að talið var víst að hann væri á móti EES þótt ríkisstjómin sem heild styddi aðild. Svisslendingar eru næst stærsti við- skiptavinur Evrópubandalagsins (EB) á eft- ir Bandaríkjamönnum og á undan Japan. Aðildarríki EES munu varla útiloka slíkan viðskiptavin þótt hann samþykki ekki fjöl- þjóðasamning þeirra, En reyndir samninga- menn Svisslendinga munu örugglega öðlast enn meiri reynslu ef þjóðin kýs að standa utan við EES. Sjá „Aldagömul sérstaða ...“ á bls. 4. 1 Hvernig er tekið á afbrotum unglinga sem eru ósakhæfir vegna ald- urs STIKKFRI ÚTLENDINGAHATUR í EVRÓPU NORDURLÖND ERII OKKAR UPPÁHALD 14 Morgunblaðið kannar rjúpnalöndin en sér engan fugl! EIIM ER UPP TIL 32 FJALLA LIFANDI HLJÓÐFÆRI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.