Morgunblaðið - 06.12.1992, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 06.12.1992, Blaðsíða 34
ptorgptttMal^fö ATVINNURAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR Hlutastarf Félagasamtök með aðsetur í Reykjavík óska eftir að ráða starfskraft í hlutastarf sem allra fyrst. Um er að ræða sjálfstætt og krefjandi starf sem felur í sér mikla fjölbreyttni. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt, hafa einhverja þekkingu á ritarastörfum, vera þægilegur í samskiptum, heiðarlegur og stundvís. Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf auk meðmæla sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „Hlutastarf - 1129“ fyrir föstudag- inn 12. des. nk. Gott atvinnutækifæri Mér hefur verið falið að selja 25 ára gam- alt þjónustufyrirtæki (miðlunarfyrirtæki) með góð viðskiptasambönd. Fyrirtækið hentar best t.d. viðskiptafræðingum eða lög- fræðingum. Starfsmannafjöldi er 5 manns. Fyrirtækið er vel búið tækjum og er í góðu leiguhúsnæði. Fyrirtækið er til sölu vegna heilsufarsástæðna eiganda. Gott tækifæri til að eignast traust og þekkt fyrirtæki. Mjög góðir greiðslumöguleikar eru í boði. Farið verður með allar fyrirspurnir sem al- gjört trúnaðarmál. Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar, ekki í sfma. Guðni TÓNSSON RÁPGJÖF &RÁÐN1NGARÞJÓNUSTA TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 St. Franciskusspítali Stykkishólmi Hjúkrunarfræðingar Deildarstjóri óskast á öldrunardeild frá 1. febrúar 1993. Deildin er 26 rúm, að hálfu í nánast nýju húsnæði. Þá óskum við að ráða hjúkrunarfræðinga (2) frá sama tíma (1. febrúar 1993). Gert er ráð fyrir að þeir vinni bæði á öldrunar- og hand- læknisdeild, en sú deild var opnuð 2. nóvem- ber sl. í nýju húsnæði. Húsnæði í boði. Stykkishólmur er um 1.250 manna byggðar- lag þar sem perlur breiðfirskrar náttúru glitra í hiaðvarpanum. í Stykkjshólmi hefur verið blómlegt skóla- starf um langan tíma. Einsetinn grunnskóli með framhaldsdeild (tvö ár), kröftugur tón- listarskóli auk góðs leikskóla. Fjölbreytt íþrótta- og félagsstarfsemi er á staðnum. Mjög góð aðstaða er fyrir innanhússíþróttir í glæsilegri íþróttamiðstöð. Hafir þú áhuga á skemmtilegu en oft krefj- andi starfi með góðum launum, í hinu fallega umhverfi okkar, þá hafðu samband við syst- ir Lidwinu (hjúkrunarforstjóra) í síma 93-81128 og/eða Maríu Davíðsdóttur (deild- arstjóra) í síma 93-81128 (vs.) eða 93-81433 (hs.). Heimilshjálp óskast Óskum eftir þolinmóðri og vandvirkri heimil- ishjálp og barnfóstru, frá og með 29. desem- ber. Viðkomandi þarf að hafa bíl til umráða og má ekki reykja. Vinnutími frá kl. 8.00 og ýmist til kl. 13.00 eða kl. 17.00. Þeir, sem hafa áhuga, sendi inn skriflegar umsóknir til auglýsingadeild Mbl. fyrir 11. desember merktar: „H - 8242“. HEILSUGÆSÍUSTÖDIN Á ÍSAFIRÐI Hjúkrunarfræðingar Óskum að ráða nú þegar eða eftir nánara samkomulagi hjúkrunarfræðinga Umsóknir, ásamt upplýsingum hvenær um- sækjandi getur hafið störf, sendist H.S.Í., pósthólf 215, 400 ísafjörður, fyrir 22. desem- ber nk. Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri og/eða framkvæmdastjóri í síma 94-4500 alla virka daga frá kl. 8-16. NÝHERJI SKAFTAHLÍÐ 24 • SÍMI 69 77 00 & 69 77 77 AUtaf skrefí á undan Kerfisfræðingur tölvunarfræðingur Vegna aukinna umsvifa í starfsemi fyrirtækis- ins, viljum við ráða kerfisfræðinga til starfa til að sjá um þjónustu við viðskiptavini með PC tölvur og netkerfi. Störfin eru laus nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi. Leitað er að tölvunarfræðingum eða ein- staklingum með sambærilega menntun er nýtist í þetta starf. Nauðsynlegt að viðkom- andi hafi trausta og örugga framkomu og sé lipur í mannlegum samskiptum. Farið verður með allar fyrirspurnir og um- sóknir sem trúnaðarmál. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar til 12. des. nk. Guðnt IÓNSSON RÁÐGJÖF &RÁÐN1NGARÞJÓNUSTA TJARNARGÖTU 14, ÍOI REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 Sölumaður óskast Sölustjóra vantar á bílasölu strax eftir ára- mót. Góð vinnuaðstaða. Aðeins vanur maður með mikil sambönd kemur til greina. Góð laun í boði fyrir réttan aðila. Tilboð leggist inná auglýsingadeild Mbl. merkt: „S-10165“ fyrir 10. desember 92. Sölumenn Óskum eftirvönum sölumönnum á bygginga- vörum. Góð laun fyrir rétta aðila. Öllum fyrir- spurnum verður svarað. Vinsamlegast sendið skriflegar upplýsingar um fyrri störf og meðmæli til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „H - 10146“ fyrir 11. desember. Staða forstjóra Norræna hússins í Reykjavík Staða forstjóra Norræna hússins í Reykjavík er laus til umsóknar frá og með 1. janúar 1994. Staðan er veitt til fjögurra ára. Norræna húsið í Reykjavík er norræn menn- ingar- og upplýsingamiðstöð og gegnir tví- þættu hlutverki: að efla áhuga Islendinga á norrænum málefnum og kynna íslenska menningu á hinum Norðurlöndunum. í hús- inu fer fram fjölþætt menningarstarfsemi, m.a. rekstur bókasafns, kaffistofu, sýningar- og fundarsala. Forstjórinn stjórnar daglegum rekstri og ber ábyrgð á allri stjórn og fjármálum hússins. Ríkisstarfsmenn eiga samkvæmt samning- um rétt á leyfi frá störfum til að vinna við norrænar stofnanir og halda réttindum sín- um í heimalandinu allan starfstímann. Laun og önnur kjör eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar um stöðuna gefa varafor- maður stjórnar Norræna hússins, Guðrún Ágústsdóttir, í síma 813209, Ólafur Kvaran hjá Norrænu ráðherranefndinni Kaupmanna- höfn, sími 90-45-33 114711 eða forstjóri Norræna hússins, Lars Áke Engblom, sími 17030. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf ásamt meðmælum sendist til Nordisk Ministerrád, Store Strandstræde 18, DK-1255 Kobenhavn K, Danmark. Umsóknir berist fyrir 20. janúar nk. merktar stjórn Norræna hússins í Reykjavík. Rekstur Norræna hússins í Reykjavík er kost- aður af norrænu fjárhagsáætluninni. Rekstr- arfé Norræna hússins fyrir árið 1993 er um það bil 6 milljónir danskar krónur Norræna ráðherranefndin (menningar- og menntamálaráðherrar Norðurlandanna) hef- ur ákvörðunarvald í norrænu menningarsam- starfi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.