Morgunblaðið - 06.12.1992, Page 2
2 FRÉTTIR/INIMLEIMT
MOKGUNBLAÐID SUNNUDÁGUR 6. DESEMBÉR 1992
EFNI
Formaður VSÍ
Ekkigrund-
völlur til
hækkunar
MAGNÚS Gunnarsson, formaður
Vinnuveitendasambandsins, segir
að dómur Hæstaréttar um að
BHMR beri launahækkun sú, sem
af samtökunum var tekin með
bráðabirgðalögum 1990, gefi ekk-
ert tilefni til hækkana hjá öðrum.
Forsvarsmenn Alþýðusambands-
ins og Kennarasambandsins hafa
krafizt sömu hækkunar og BIIMR
fær nú.
„Ég fæ ekki séð að þessi Hæsta-
réttardómur hafi neitt fordæmisgildi
fyrir samningana eins og þeir eru í
dag eða að hann gefí tilefni til að
breyta samningum," sagði Magnús
í samtali við Morgunblaðið.
„Þær yfirlýsingar, sem gefnar
voru í tengslum við þá stöðu, sem
var uppi árið 1990, voru gefnar í því
ástandi og umhverfí, sem þá var og
er ekki hægt að færa yfír á daginn
í dag. Ég held því að það sé ljóst
að þær gefa engan rétt eða grund-
völl til hækkunar."
*
Arekstur við umferðarljós
Árekstur varð við umferðarljós á mótum Miklubrautar og Snorrabrautar um kl. 1, aðfaranótt laugardags-
ins. Tveir bílar skullu saman á gatnamótunum og var farþegi annarrar bifreiðarinnar fluttur á slysadeild.
Var hann farþegi leigubifreiðar. Eignatjón varð í árekstrinum og var önnur bifreiðin dregin af vettvangi
með kranabíl. Virk umferðarljós loguðu á gatnamótunum er áreksturinn varð. Samkvæmt upplýsingum
slysadeildar Borgarspítalans var farþeginn ekki hættulega slasaður.
Flugleiðir snúa ólöglegum far-
þegum til baka í hverri viku
í HVERRI viku þurfa Flugleiðir að fást við farþega, sem ætla að
komast ólöglega til Bandarikjanna með.flugi félagsins. Flugfélög
bera sjálf ábyrgð á því, ef menn komast milli landa með fölsuð vega-
bréf á þeirra vegum og verða að greiða 3.000 dollara, um 180 þús-
und krónur, í sekt ef upp kemst. Sómaliubúi, á leið frá Svíþjóð til
Bandaríkjanna, var gripinn með falsað vegabréf í Leifsstöð á fímmtu-
dag og snúið aftur til Svíþjóðar.
„Þessir menn koma um borð í undantekningalaust á leið til
flestum löndum Evrópu og eru nær Bandaríkjanna," sagði Jóhann Guð-
mundsson, aðstoðarstöðvarstjóri
Flugleiða í Leifsstöð. „Oftast eru
þetta Afríkubúar eða Indverjar og
upp á síðkastið hafa fbúar úr Aust-
ur-Evrópu orðið æ meira áberandi.
Margir koma í vélar okkar í Svíþjóð
eða Hollandi, en færri frá Lúxem-
borg, sem áður var vinsælust."
Jóhann sagði að Flugleiðir ættu
auðveldara með að sía ólöglega far-
þega úr en mörg önnur félög, vegna
smæðar félagsins. Þá sé oft aug-
ljóst þegar brögð eru í tafli, t.d.
þegar menn eru með vegabréf á
sænsku nafni, en skilja ekki eitt orð
í tungumálinu. „Þessir menn rífa
vegabréfín á leiðinni til Bandaríkj-
anna og biðja svo um pólitískt hæli
þar. Við sendum því oft ljósrit til
Bandaríkjanna af þeim vegabréf-
um, sem okkur finnst grunsamleg,
til að sýna fram á að menn hafi
verið með þau, þegar þeir fóru um
Nýjar safnabygg-
ingar rísa í Nesi
í Nesi á Selljamárnesi er að rísa glæsilegt safnasvæði. Lyfjafræði-
safn er risið og var opnað formlega um helgina í tilefni 60 ára afmæl-
is Lyfjafræðingafélags Islands. Búið er að teikna Lækningaminja-
safn og áformað að hefja bygginguna í vor. Hvort tveggja era göm-
ul fjós með nýbyggingum. Nesstofa verður miðpunktur svæðisins,
en þar var lítið læknaminjasafn opnað i sumar. En í framtíðinni
verður aðallæknatæknisafnið í nýja húsinu. Þá hefur verið gerð til-
laga að skipulagi á svæðinu, sem gerir ráð fyrir að þarna verði
gott útivistarsvæði og í Lækningamiiyasafninu verði aðstaða og
kaffístofa fyrir þá sem koma í söfnin og til að njóta útivistar.
Munum eftir
smáfuglunum
MEÐ vaxandi vetrarhörkum
harðnar á dalnum hjá smá-
fuglunum og er ekki úr vegi
að minna velunnara þeirra,
börn og fullorðna, á að dreifa
til þeirra fæði nú rétt fyrir
jólin.
Kurlaður maís þykir besta
fæði smáfuglanna. Maísinn er
bæði næringarríkur og ódýr og
hægt er að kaupa hann í lang-
flestum verslunum. Að sjálf-
sögðu má svo gefa smáfuglun-
um annað, s.s. hrísgijón og
brauðmylsnu. Ekki er óhugs-
andi að brauðmylsnuna sé hægt
að fá á vægu verði í bakaríum.
Á tillögu að skipulagsuppdrætti,
sem Reynir Vilhjálmsson landslags-
arkitekt hefur gert að svæðinu, er
m.a. lyfjagrasagarður. Gert er ráð
fyrir aðkomu að sunnan, austan
gömlu heimreiðarinnar, en traðim-
ar verða göngustígur. Uppsafnaður
jarðvegur verður fjarlægður frá
Nesstofu, svo tvær tröppur verða
upp að henni eins og í upphafí og
hún fær sína fyrri reisn. Arkitektinn
Þorsteinn Gunnarsson leggur mikla
áherslu á að ekkert skyggi á Nes-
stofu. í nýju safnbyggingunum báð-
um hafa gömlu ijósin verið látin
halda sér og nýbyggingar felldar
að þeim.
Gífurlega miklu af gömlum mun-
um hefur verið safnað í bæði söfnin
og bíða þeir húsrýmis í nýju safna-
byggingum. Lyfjafræðisafnið opnar
að fullu i sumar, og ef ekkert tefur
standa vonir til að Lækningatækni-
safnið geti opnað í nýbyggingunni
eftir 2-3 ár.
Sjá nánar á bls.18
borð. Eftir klukkustundar yfir-
heyrslu eru þeir látnir lausir og oft
ekki réttað í máli þeirra, þar sem
tilfellin eru svo mörg að Bandaríkja-
menn hafa ekki undan,“ sagði hann.
Jóhann sagði að hann þekkti
dæmi, frá austurríska félaginu
Austrian Air, þar sem 27 farþegar
í sömu vélinni fóm ólöglega inn í
Bandaríkin. „Þegar félög þurfa að
greiða nær fímm milljónir í sektir
eftir eitt flug, þá er nú varla mikill
hagnaður af þeim flutningum,"
sagði hann.
Norðfirðingar með
10% loðnukvótans
Neskaupstao.
NORÐFIRÐINGAR ráða nú yfir tæplega 10% af loðnukvótanum eða
um 75.000 tonnum árlega miðað við meðalúthlutun aflakvóta. Síldar-
vinnslan hefur gengið frá kaupum á 50% í nótaskipinu Hilmi SU 171
og verður öllum loðnuafla hans landað í Neskaupstað eins og reyndar
tvö síðastliðin ár.
Síldarvinnslan gerir einnig út
loðnuskipið Börk NK 122, en hann
er með um 5% af loðnukvótanum,
þegar heimildir af Beiti NK 123
hafa verið færðar yfír á hann. Beit-
ir er nú gerður út sem frystiskip.
Hilmir hefur einnig um 5% af
loðnukvótanum og hefur Síldar-
vinnslan því tryggt sér ráðstöfun-
arrétt yfír um 75.000 tonnum af
loðnu á meðalvertíð. Með því er
rekstur fiskimjölsverksmiðju Síld-
arvinnslunnar betur tryggður en
áður. Til loka október hafði 66.828
tonnum af loðnu verið landað í Nes-
kaupstað á þessu ári.
Hilmir hefur verið gerður út af
samnefndu hlutafélagi og verður svo
áfram, en skipið þó skráð í Neskaup-
stað. Sama áhöfn verður á skipinu,
en Norðfirðingar mun sitja fyrir með
ráðningar í þau pláss, sem kunna
að losna. Hilmir hefur auk loðnu-
veiða verið gerður út á rækju, sem
fryst er um borð.
Hilmir er 642 tonn að stærð,
smíðaður á Akureyri 1980 og er
með burðarmestu loðnuskipum
landsins.
- Ágúst.
♦ ♦ ♦
Neistar en
ekki blys
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar og
björgunarsveitir voru kvaddar
út um kl. 8 í gærmorgun vegna
torkennilegra ljósa sem sáust í
Gróttu.
Lögreglan í Reykjavík varð einn-
ig vör við ljósaganginn og var talið
að skotið hefði verið upp neyðar-
blysi. í ljós kom að engin hætta var
á ferðum og var ljósagangurinn
rakinn til þess að háspennulínur
sem liggja út í Gróttu höfðu slegist
saman í rokinu og orsakað neista-
flug.
Snæfellsnes
Rúta fýkur á hliðina
ÞRJATIU manna rúta fauk útaf þjóðveginum rétt fyrir ofan Búðaraf-
leggjara á Snæfellsnesi um kl. 8.30 á laugardagsmorgun. Ekki urðu
slys á ökumanni og einum farþega i rútunni.
Ökumaður bifreiðarinnar, sem er
frá sérleyfis- og hópferðabílum
Helga Péturssonar.hf., var á leiðinni
frá Ólafsvík til Reykjavíkur þegar
roka feykti rútunni út af veginum
rétt ofan við Búðarafleggjara og fór
hún á hliðina. Einn farþegi var í
rútunni ásamt ökumanninum en
hvorugur þeirra slasaðist. Ökumann-
inum tókst að ná sambandi við bónd-
ann á næsta bæ í gegnum farsíma
eftir að slysið átti sér stað og kom
hann fljótlega til hjálpar tvímenning-
unum. Ekki var farið að huga að
skemmdum á rútunni um hádegisbil
í gær enda vonskuveður á nesinu
en ljóst var að allar rúður voru heil-
ar í henni.
Stikkfrí
►Hvemig er tekið á afbrotum
unglinga sem eru ósakhæfir vegna
aldurs? Er þörf fyrir unglingadóm-
stól eða nægir núgildandi skipan
mála?/10
Norðurlönd eru okkar
uppáhald
►Fréttaritar Morgunblaðsins
könnuðu rætur útlendingahaturs í
Evrópu. Þeir sátu fund með
spænskum nýnasistum, ræddu við
ráðgjafa Le Pen og heimsóttu ung-
verskan skóla í SIóvakíu./14
Heimur út af fyrir sig
►Af dvöl fólks í lokuðu lífhvolfí
í Arizona./16
Saf nasvæði rís í Nesi
►Nesstofa á Seltjamarnesi er nú
rekin sem hluti af Þjóðminjasafni
íslands og þar var í sumar opnað
lækningaminjasafn. En það var
aðeins byijunin á safnasamstæðu
og svæði til útivistar./18
Guðni rektor
►Kaflar úr endurminningum
Guðna Guðmundssonar rektors
Menntaskólans í Reykjavík./20
Dansað í háloftum
►Þorsteinn E. Jónsson flugmaður
ritar endurminningar sínar./ 30
Ein er upp til fjalla
►Blaðamaður kannaði ijúpnalönd
en sá engan fugl./32
► 1-32
MANÍA
Lifandi hljóðfæri
►Sigurður Demetz Fransson hef-
ur kennt mörgum af bestu söngv-
urum þjóðarinnar./l
Svavarhugsarupp-
hátt
►Svavar Gests, tónlistarmaður og
hljómplötuútgefandi hefur skráð
æviminningar sínar á bók./6
Stormur strýkur
vanga
►Ólafur Haukur Símonarson hef-
ur búið frásögn afa síns, Guðjóns
Símonarsonartil prentunar en
Guðjón var víðkunn aflakló./lO
X-manía
►Mynd Spike Lee um blökku-
mannaleiðtogann Malcolm X hefur
vakið geysilega athygli./12
Himnasending
►Björn Jörundur Friðbjörnsson,
bassaleikari hlómsveitarinnar Ný-
danskrar í spjalli um kvikmynda-
leik sinn og tónlistina./ 14
► FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Dægurtónlist 20b
Leiðari 24 Fólk i fréttum 22b
Helgispjall 24 Myndasögur 24b
Reykjavíkurbréf 24 Brids 24b
Minningar 26 Stjömuspá 24b
íþróttir 42 Skák 24b
Útvarp/sjónvarp 44 Bíó/dans 25b
Gárur 47 Bréf til blaðsins 28b
Mannlifsstr. 8b Velvakandi 28b
Kvikmyndir 18b Samsafnið 30b
INNLENDAR FIi .ÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRETTIR:
1-4