Morgunblaðið - 06.12.1992, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1992
UTLENDINGAHATUR I EVROPU
ERIIOKKAR
UPPAHALD
PdII Þórhallsson tók soman
ÚTLENDINGAHATUR, kynþáttaofsóknir, nýnasismi — Evrópa á
því herrans ári 1992. Sá staður í Evrópu er vandfundinn þar sem
gamall draugnr hefur ekki gengið aftur. Hátt í tvö þúsund árás-
ir hafa verið gerðar á útlendinga í Þýskalandi það sem af er
árinu, á Spáni féil fyrsta fórnarlamb kynþáttahaturs í áraraðir.
Jörg Haider stjórnmálaleiðtogi í Austurríki safnar undirskriftum
gegn útlendingum; hann og Le Pen í Frakklandi eru taldir fulltrú-
ar nýs nasisma, í þetta sinn með mannlegri ásjónu en fyrr. Graf-
reitir gyðinga eru vanhelgaðir víða um meginlandið, jafnt í Sví-
þjóð sem Strassborg. Dómsmálaráðherra Italíu segist sjá gamal-
kunnugt mynstur í ofbeldisverkunum, árásunum sé stýrt frá
Þýskalandi en öryggislögreglan þar í landi er á öðru máli, hægri-
öfgamenn séu það margklofnir. „Saman renna tveir hættulegir
straumar: Hluti unga fólksins er ofbeldishneigðari en fyrr og
hugmyndafræði nasista er ekki tabú Iengur,“ segir í leiðara
Frankfurter Allgemeine Zeitung.
NORDURLðND
dómar í málum hægriöfgamanna
hafa þótt vægir.
í mörgum borgum og héruðum
Þýskalands hafa útlendingar og aðr-
ir minnihlutahópar fyllst angist og
hætta sér vart út á götu. í samtali
fréttaritara við formann útlending-
aráðs Bonn-borgar dr. Chaabaanni,
sagði hann að margir erlendir borg-
arar keyptu sér nú hnífa og loftbyss-
ur til sjálfsvarnar.
íbúar flóttamannabúða í Þýska-
landi skiptast nú á að standa vörð.
Blaðamaður breska dagblaðsins The
Daily Telegraph heimsótti um miðja
viku Brodowin-flóttamannabúðirnar
í austurhluta Þýskalands: Ali Sayid
Tvær tyrkneskar stúlkur og amma þeirra brunnu inni í bænum Mölln i Slésvík-Holt-
setalandi. Brennuvargarnir hafa játað glæpinn. Morðið hefur vakið Þjóðverja og
raunar heimsbyggðina alla til umhugsunar um hvert þýskt samfélag stefni.
Frá Bayreuth í Þýskalandi. Nýnasistar eða ráðvilltir unglingar?
Götuskilti í Slóvakíu
eru víða á tveimur
tungumálum. Hér hef-
ur verið strikað yfir
ungverska heitið.
Ungir ítalskir fasistar
Iþetta sinn látum við ekki leiða
okkur til slátrunar, við grípum
til vopna og veitum mót-
spyrnu," skrifaði þekktur
blaðamaður af gyðingaætt-
um, Ralph Giordano, í bréfi
til Kohls kanslara. I síðustu
viku fékk hann svar: nafnlaus
bréfritari' sendi honum morðhótanir
og tók fram að hann, Giordano yrði
borinn til grafar í Auschwitz þar sem
,júðar eins og hann“ ættu heima.
Hægriöfgamenn í Þýskalandi hika
ekki lengur við að láta skoðanir sín-
ar í ljósi í orði og verki. Síðustu
þrjú árin hafa verið sagðir hlutir á
opinberum vettvangi sem hefðu ver-
ið óhugsandi fyrir nokkrum árum.
Jafnt hárgreiðsludömur sem hátt-
settir stjórnmálamenn virðast leyfa
sér að tala í hatursfullum tóni um
gyðinga, sígauna og útlendinga yfir-
leitt. Krúnurakaðir ofbeldisseggir
taka svo að sér að framkvæma það
sem heiðvirðir góðborgarar hvöttu
tiL
A þessum þremur árum eru fórn-
arlömb útlendingahaturs í Þýska-
landi orðin þijátíu, þar af 17 á þessu
ári. Hinir föllnu eru í flestum tilfell-
um flóttamenn sem fengu pólitískt
hæli í Þýskalandi en einnig sumir
sem leyfðu sér að vera á annarri
skoðun en nýnasistamir og loks
nokkrir drykkjumenn og flækingar
sem ekki féllu að hugmyndum um
„hreint" Þýskaland. Minningar um
nasistatímann kvikna.
Ekki líður sá dagur í Þýskalandi
að ekki séu gerðar árásir á flótta-
mannahæli, að jafnaði eru þær fjór-
ar til fimm á dag. Ofbeldisverk sem
beinast gegn útlendingum eru talin
hátt í tvö þúsund á þessu ári. íkveikj-
ur og gijótkast teljast vart frétt-
næmar lengur nema þegar einhver
lætur lífið eins og tyrknesku fóm-
arlömbin þijú í bænum Mölln fyrir
hálfum mánuði. Geysifjölmennar
mótmælagöngur hafa ekki megnað
að laga ástandið.
Lögreglan hefur verið gagnrýnd
fyrir að hafa sofið á verðinum og