Morgunblaðið - 06.12.1992, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1992
21
Forsöngvari á skemmtun Fram-
tíðarinnar, málfundafélags MR.
Fyrir aftan má sjá Lúðvík Al-
bertsson og Guðmund Agústsson.
einum eða tveimur út með látum,
gáfust þeir upp og hófu lestur.
Ég hefði treyst um helmingi pilt-
anna til að standast þriðjubekkjar-
próf í ensku í Menntaskólanum um
vorið.
Loks er birt hér brot úr kaflanum
„Forgangsmálið" en þannig hefur
rektor MR ævinlega litið á kennsl-
una í Menntaskólanum í Reykjavík:
sem forgangsmál í lífi hans og
starfi.
Fleygt út — og inn aftur
— Eru einhvetjir nemendur þér
eftirminnilegri en aðrir — ef við
tökum ekki með þá sem gáfu þér
mannasiðakverið forðum?
— Nemendur eru orðnir svo
margir eftir 41 árs kennslu að ég
gæti auðvitað talið upp tugi eða
hundruð. Ég treysti mér þó ekki
til að gera það og helst vil ég ekki
minnast á neina, því að ég vil ekki
móðga neitt af þessu ágæta fólki
með því að gleyma að geta þess.
Hvort sem þú trúir því eða ekki
þá er ég í raun friðsemdarmaður
og hef alltaf kunnað ákaflega vel
við mig í rólegum bekkjum. En það
er nú bara þannig, að maður man
betur eftir átökum en friðsemd, og
þess vegna hef ég aðeins minnst á
strákana í fjórða bekk B árið 1951,
en ekki á rólega fólkið í C bekkn-
um, eins og til dæmis prófessor
Arnljót Björnsson eða Magnús
Thoroddsen lögmann.
Auðvitað gæti ég minnst á nem-
endur mína frá ýmsum árum. Það
voru til dæmis Geirarnir í 6—B
veturinn 1970—71, Haarde alþing-
ismaður og Waage prestur í Reyk-
holti. Geir Haarde var inspector
scholae, alltaf mættur í tímum, allt-
af í góðu skapi, tók stríðni vel og
svaraði vel fyrir sig. Geir Waage
var líka ágætur námsmaður, en
svolítið óvenjulegur: Á sama tíma
og obbinn af nemendum hafði eng-
in samskipti við hárskera, var hann
stuttklipptur með snyrtilegt yfir-
skegg og harðkúluhatt. Það þurfti
heldur betur kjark til þess ama.
Síða hárið var furðu lífseigt.
Veturinn 1978—79 sátu tveir fom-
máladeildarmenn beint fyrir fram-
an mig í 6. bekk B og þótti mér
þeir vera loðinbarðalegir í meira
lagi. Hafði ég um það mörg og
stór orð og taldi bæði gamaldags
og ljótt. Kom þar ræðu minni í eitt
skiptið að ég skyldi borga fyrir þá
klippingu. Ekki voru undirtektir
miklar.
Svo kom að því einn daginn að
ég tilkynnti að nú væri ég á leið
til hárskera og að þeir skyldu koma
með mér. Annar tók mig á orðinu,
hinn ekki, og auðvitað stóð ég við
loforðið.
En ég man að stráksi vildi láta
taka svo mikið af hárinu, að ég var
farinn að tvístíga og spurði ítrekað
hvort ekki væri nóg klippt.
— Mér er sagt að þú eigir til að
vera nokkuð ör...
— Ég man eftir skondnu tilviki
sem gæti verið til marks um það.
Einhverntíma var ég á leið heim í
mat, kom gangandi settlega niður
stigann frá skrifstofunni uppi á
þriðju hæð og sá þá pilt vafrandi
á ganginum. Ég þekkti kauða, hann
hafði fallið á millibekkjarprófi vorið
áður og sat aftur í bekk.
Ég varð þetta litla reiður, rauk
á piltinn og spurði hvern fjandann
hann væri að þvælast úti á gangi
þegar hann ætti að vera í tíma.
Svo þreif ég í öxlina á honum,
opnaði dymar, ýtti honum inn og
hrópaði til kennarans að þessi mað-
ur ætti að sitja í öllum tímum.
Svo lokaði ég dyrunum og gekk
til míns heima, móður mjög.
Þegar ég kom aftur skólann eft-
ir matinn voru menn nokkuð kank-
vísir á svipinn. Þá kom í ljós að
kennarinn hafði verið nýbúinn að
fleygja pilti út fýrir að trufla
kennslu og því hafði það sögulega
atvik gerst, að manni var fleygt
út og inn í sama tímanum.
AMERISK RUM
VELDU
AÐEINS
ÞAÐ
BESTA
MEST SELDU RÚMDÝNURNAR í U.S.A.
Marco,
Opið laugardag frá kl. 10-16
og sunnudag frá kl. 13-16
húsgagnaverslun
Langholtsvegi 111. Sími 680 690
SVEFNSOFAR
■ NICE
Stærð: 175x100 x 80
Útdreginn: 130 x 195
Verð: 57.500 kr.
GOÐANDAG
-eftirgóða nótt
■ REBECCA
Stærð: 136x90x73
Útdreginn: 130 x 200
Verö: 37.500 kr.
PAULINE
Stærð: 165 x 80 x 86
Útdreginn: 120 x 195
Verð: 51.500 kr.
Fallegu svefnsófarnir og svefnstól-
arnir frá Lystadún - Snælandi eru
góðir daga sem nætur. Þeir eru 4
sannkölluð híbýlaprýði og þægi-
legir að sofa á. Hönnunin er glæsi-
leg og fjölbreytt, form og litir marg-
víslegir. Stærðirnar eru mismunandi
svo auðvelt er að fá sófa eða stól
sem hentar vel í allar stærðir
herbergja. Svefnsófi frá Lystadún -
Snælandi er tilvalinn í gestaher-
bergið eða sjónvarpskrókinn og
unglingarnir kunna vel að meta ggiNA
þægindin að því að hafa bæði rúm
og sófa til umráða. Og til að lífga upp
á tilveruna enn frekar er til mikið
úrval af púðum í fallegum litum.
Svefnsófi frá Lystadún - Snælandi
tryggir þér góðan dag eftir góða nótt.
■JOSEPHINE
Stærð: 130 x 80 x 86
Útdreginn: 130 x 190
Verð: 32.500 kr.
Stærð: 157x70x70
Útdreginn: 135 x 190
Verð: 34.000 kr.
■ SESAM
Stærð: 145 x 85 x 70
Útdreginn: 140 x 190
Verð: 56.000 kr.
ellfli
•ess
LYSTADÚN-SNÆLAND hf
REBECCA-svefnstóll
Stærð: 71x90x73
Útdreglnn: 65 x 200
Verð: 23.000 kr.
Skútuvogi 11
124 Reykjavík • Sími 814655 / 685588
Sendum í póstkröfu um land allt
’ OnMf; '4
r I() ;