Morgunblaðið - 06.12.1992, Blaðsíða 27
hveiju leyti. Gekk hún til leikja með
þeim og hafði stundum svo gaman
af, að hún gleymdi sér sjálf í orðs-
ins fyllstu merkingu.
Una var ætíð heiisuhraust og það
var ekki fyrr en á haustdögum síð-
astliðnum, að þrekið brást, og lá
hún nánast óslitið á Landspítala þar
til yfir lauk.
Er ég kíkti til hennar fyrir nokkru
síðan var farið að draga af henni
og minnið farið að svíkja að hluta,
en er talið barst til Skagafjarðar
þá mundi hún flest eins og gerst
hefði í gær og var því látið við það
sitja að spjalla um þá tíð er henni
var svo kær. Þó skaut hún inn á
milli að hún ætti_ nú von á Önnu
dóttur sinni og .Áma í heimsókn,
en þau hafa, ásamt dætrum þeirra
þremur, staðið við hlið hennar og
stutt hana í þessum stuttu en erfíðu
veikindum. Þá veitti starfsfólk
deildar 12G á Landspítala Unu frá-
bæra umönnun og aðhlynningu
meðan hún dvaldi þar.
Það er því með þakklæti og mikl-
um hlýhug sem við kveðjum Unu
Símonardóttur, og má segja að hún
hafi skilað sínu hlutverki með stakri
prýði.
Andri Áraason.
Nú er hún elsku amma okkar
látin og langar okkur systumar að
minnast hennar í nokkrum orðum,
en margt kemur upp í hugann þeg-
ar við lítum til baka.
Það er óhætt að segja að það
hafí verið ómetanlegt fyrir okkur
systumar að hafa fengið að alast
upp með ömmu á heimilinu. Nutum
við þess er hún vaknaði með okkur
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
mnmm
SUNNUDAGUR 6. DESEMBER" 1992
88
27 -•
á morgnana þegar við fórum í skól-
ann eða tók á móti okkur með mat
og drykk og hlýjum orðum þegar
við komum heim. Ekki lá hún held-
ur á liði sínu er hún las með okkur
fyrir skólann og hlýddi okkur yfír.
Þegar við vomm yngri voru þær
ekki svo fáar stundimar sem við
sátum hjá ömmu inni í eldhúsi og
spjölluðum meðan hún vann hús-
verkin. Þá kom oft fyrir að hún
laumaði að okkur sögu og ævintýri
eða jafnvel kenndi okkur vísu. Má
segja að hún hafi fylgt okkur þann-
ig í leik og starfí alla tíð.
Allir okkar vinir voru hennar vin-
ir og þegar þá bar að garði sat hún
með okkur, hvort sem spilað var
eða spjallað. Amma sat aldrei auð-
um höndum og þó hún væri að
strauja, pijóna eða stússa í eldhús-
inu hafði hún alltaf tíma fyrir okk-
ur. Skaplyndi hennar var einstakt,
jafnan glöð og kát og ósjaldan tók
hún sig til og söng af minnsta til-
efni. Hrifumst við þá með.
Er við síðar eignuðumst okkar
fjölskyldur tók hún þeim opnum
örmum og þannig skipaði langa
stóran sess í lífi bama okkar.
Við kveðjum ömmu með söknuði
og geymum en gleymum ekki góð-
um minningum um hana.
Viljum við þakka starfsfólki
deildar 12G Landspítala fyrir frá-
bæra og alúðlega umönnun ömmu
meðan hún dvaldi þar.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
sipaði Jesús mæti.
Una, Sigrún og Guðmunda.
Kveðja frá barna-
barnabörnum
Vertu nú yfír og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfír minni.
Flugleiðir
fljúga til
Fort Laud-
erdale
FLUGLEIÐIR hafa fengið heim-
ild stjórnvalda í Bandaríkjunum
til að hefja áætlunarflug milli
íslands og Fort Lauderdale í
Bandaríkjunum næsta haust.
Fort Lauderdale er útborg
Miami.
Flugleiðir fljúga til þriggja
áfangastaða í Bandaríkjunum, þar
á meðal Orlando í Florida og verður
því flugi haldið áfram jafnhliða
áætlun til Fort Lauderdale. í frétt
frá félaginu segir, að farþegar á
flugleiðinni til Orlanda séu nær ein-
göngu frá íslandi og öðrum Evrópu-
löndum en mjög lítið er um ferðir
Bandaríkjamanna af Orlando svæð-
inu austur um haf. „Markaðsathug-
un á svæðinu í kringum Fort Laud-
erdale benda til þess að þar sé að
vænta mun meiri viðskipta heima-
manna. Áhugi íslendinga og ann-
arra Evrópubúa á ferðum til Florida
hefur vaxið mjög undanfarin ár og
talið er að þessi markaður muni
vaxa enn á næstu árum.“
VZterkurog
O hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Tölvunámskeið
Excel 4.0 fyrir Windows og Macintosh, 14 klst.
Word 2.0 fyrir Windows og Macintosh, 14 klst.
Windows 3.1, 8 klst.
PC grunnnámskeið, 16 klst.
Innifaldar eru nýjar íslenskar bækur.
Ibúðir fyrir aldraða
í Suður-Mjódd
Til afhendingar í mars 1993
Ennþá eru til íbúðir í Árskógum 6 í Mjódd. Tvær
3ja herb., fjórar 2ja herb. og sex 4ra herb.
Allar uppiýsingar gefur Svanur Friðgeirsson á
skrifstofu Félags eldri borgara, Borgartúni 31,
á virkum dögum kl. 9-12 og 13-16.
ELDRI
BORGARA
Söluskrifstofa,
Borgartúni 31, simi 621477.