Morgunblaðið - 06.12.1992, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1992
35
ATVMMUA! J^l VS/N/^.AP
Verktakar
Húsasmíðameistari óskar eftir rafvirkja-
meisturum og pípulagningameisturum til
samstarfs við útboðsgerð.
Upplýsingar í síma 654106.
Staða hafnarstjóra
Staða hafnarstjóra við ísafjarðarhöfn er laus
til umsóknar.
Viðkomandi hefji störf 1. janúar 1993 eða
eftir nánara samkomulagi. Æskilegt er að
umsækjendur hafi skipstjórnarréttindi, vél-
stjórnarréttindi eða tæknimenntun.
Nánari upplýsingar veittar hjá undirrituðum
í síma 94-3722.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf, skal skilað til undirritaðs
fyrir 20. desember nk.
Bæjarstjórinn á ísafirði.
ST. JÓSEFSSPÍTALI
LANDAKOTI
Leikskólinn
Brekkukoti
Fóstru vantar á leikskólann Brekkukot um
nk. áramót.
Um er að ræða 100% stöðu á deild með
2-5 ára börnum.
Nánari upplýsingar gefur leikskólastjóri í
síma 604357.
Reykjavík, 4. desember 1992.
St. Jósefsspítali, Landakoti.
RÍKISSPÍTALAR
Reyklaus vinnustaður
BÆKLUNARLÆKNINGADEILD
LANDSPÍTALANS
AÐSTOÐARLÆKNIR
Laus er staða reynds aðstoðarlæknis. Þátt-
taka í millivöktum samkvæmt fyrirframgerðri
áætlun. Staðan veitist frá 1. janúar til 31.
desember 1993.
Umsóknarfresturertil 15. desember, 1992.
Umsóknir á eyðublöðum lækna, Ijósrit af
prófskírteini, og upplýsingar um starfsferil
ásamt staðfestingu yfirmanna sendist Hall-
dóri Jónssyni Jr., yfirlækni, sem einnig veitir
nánari upplýsingar í síma 601410.
ÖLDRUNARLÆKNINGADEILD
LANDSPÍTALANS
HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI
Hjúkrunardeildarstjóri óskast í öldrunarlækn-
ingadeild Landspítalans (D2) frá 1. febrúar
1993 eða síðar eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefur Guðrún Karlsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri í síma 602266 eða
601000.
RÍKISSPÍT ALAR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi meö starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sór fyrir markvissri
meöferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstétta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og með,
°9 leggjum megináherslu á þekkingu, kærleik og virðingu fyrir einstaklingn-
um. Starfsemi Ríkisspitala er helguö þjónustu við almenning og viö höfum
ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.
Vélstjóri óskast
Óskum eftir að ráða vélstjóra með full rétt-
indi á frystitogarann Stakfell ÞH-360.
Búseta skilyrði.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
15. desember merkt: „S - 14068“.
Hraðfrystistöð Þórshafnarhf.
ffl
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Laufásborg
Fóstrur eða starfsfólk með aðra uppeldis-
menntun óskast á leikskólann Laufásborg
v/Laufásveg.
Nánari upplýsingar gefur Sigríður Stephen-
sen leikskólastjóri í síma 17219.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
Matvælarannsóknir
örverufræðingur
Frá og með næstu áramótum er laus staða
örverufræðings hjá rannsóknastofu Holl-
ustuverndar ríkisins. Um er að ræða starf
sem felur í sér faglega umsjón með örveru-
rannsóknum á matvælum og öðrum neyslu-
vörum.
Æskilegt er að umsækjendur séu með fram-
haldsmenntun í matvælaörverufræði eða
skyldum greinum. Matvælafræðingar og líf-
ffræðingar með starfsreynslu við örverurann-
sóknir koma hugsanlega til greina.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf þurfa að berast Hollustuvernd
ríkisins, Ármúla 1a, pósthólf 8080, 108
Reykjavík, fyrir 15. desember 1992.
Frekari upplýsingar veitir Franklín Georgs-
son, forstöðumaður rannsóknastofunnar í
síma 688848.
Hollustuvernd ríkisins.
Gæðastjórnun
Viðurkennt ráðgjafarfyrirtæki óskar að ráða
starfsmann til þess að annast ráðgjöf á sviði
vottaðrar- og altækrar gæðastjórnunar.
Fyrirtækið annast alhliða ráðgjöf fyrir innlend
og erlend fyrirtæki í samstarfi við viðurkennd
erlend ráðgjafarfyrirtæki þar sem það á við.
Mikilvægt er að viðkomandi hafi menntun
og reynslu í gæðastjórnun og uppbyggingu
gæðakerfa. Einnig þarf hann að geta unnið
sjálfstætt og átt gott samstarf við aðra
starfsmenn og viðskiptavini.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Hagva neurhf
Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Félagsráðgjafar
Óskum eftir að ráða félagsráðgjafa á hverfa-
skrifstofu fjölskyldudeildar í Síðumúla 39.
Upplýsingar gefur Erla Þórðardóttir yfirfé-
lagsráðgjafi í síma 678500.
Umsóknarfrestur er til 21. desember nk.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnun-
ar Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á um-
sóknareyðublöðum sem þar fást.
Afgreiðslumaður/
hljómborðsleikari
Stór verslun í Reykjavík óskar eftir að ráða
afgreiðslumann í hljómtækja- og sjónvarps-
deild. Skilyrði er að umsækjendur hafi hljóm-
borðskunnáttu og reynslu af sölu-/af-
greiðslustörfum. Viðkomandi verða að geta
hafið störf strax. Umsóknarfrestur er til og
með 9. desember nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Liðsauki hf.
Skólavörðustig la - 101 Reykjavtk - Slmi 621355
Út á land
Fjármálastjóri
Óskum að ráða fjármálastjóra hjá traustu
fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtæki á Norður-
landi.
Starfssvið fjármálastjóra:
★ Dagleg fjármála- og skrifstofustjórn.
★ Gerð rekstrar- og greiðsluáætlana.
★ Yfirumsjón og ábyrgð á fjárreiðum og
bókhaldi.
★ Rekstrareftirlit og innri endurskoðun.
★ Samningagerð við viðskiptavini og lána-
stofnanir.
★ Uppgjör og úrvinnsla upplýsinga úr bók-
haldi og skýrslugerð.
★ Umsjón með ársuppgjöri.
★ Stefnumótun, markmiðasetning og
stjórnun ísamráði við aðra stjórnendur.
Við leitum að viðskiptafræðingi eða manni
með aðra haldgóða viðskipta/verslunar-
menntun. Haldgóð þekking á bókhaldi og
reynsla af fjármálastjórnun nauðsynleg.
Nánari upplýsingarveitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
„Fjármálastjóri 359“ fyrir 15. desember nk.
Hasva ngurhf
Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Stjórnendur
sölu-, framleiðslu- og þjónustufyrirtækja
Rekstrarhagfræðingur og tæknifræðingur, 36 ára,
með starfsreynslu sem útflutningsstjóri framleiðslu-
fyrirtækis í Þýskalandi og áður sölu- og markaðs-
stjóri hjá virtu innflutnings- og heildsölufyrirtæki á
íslandi leitar eftir framtíðarstarfi.
Laun námi í rafmagnstæknifræði frá dönskum
tækniháskóla og síðar rekstrarhagfræði (M.B.A.) frá
amerískum háskóla í Þýskalandi.
Sérsvið: Markaðssetning, áætlanagerð, erlend við-
skipti, fjármálastjórnun, tölvuþekking, stefnumótun
og mannleg samskipti. Talar og skrifar ensku, þýsku,
dönsku.
Áhugasamir sendi nafn og heimilisfang til
auglýsingadeildar Mbl., merkt: „Frumkvæði - 1",
fyrir 14. des. nk.