Morgunblaðið - 06.12.1992, Qupperneq 43
SKIÐI
fflSAJaKUOHOM
6,- ÐESEMBER W92
í
I
í
1
I
I
J
3
I
9
3
9
Sex ungl-
ingaráÓI-
ympíumót
æskunnar
áítalíu
í febmar
SEX íslensk ungmenni verða á
meðal keppenda á Ólympíumóti
evrópskrar æsku í vetrarfþrótt-
um sem fram fer í Aosta á Norð-
ur-ítalíu í byrjun febrúar. Evróp-
samband ólympíunefnda stend-
ur fyrir þessu móti og er ætlað
unglingum sem eru fæddir 1976.
Flestar þjóðir Evrópu senda kepp-
endur og má búast við miklum
fjölda þátttakenda. Það má segja að
þetta sé rós í hnappagatið fyrir ungl-
ingana að fá tækifæri til að taka
þátt í þessu móti sem nú fer fram í
fyrsta sinn. Þarna fá krakkamir
möguleika til að etja kappi við jafn-
aldra sína frá öðmm þjóðum,“ sagði
Sigurður Einarsson, formaður Skíða-
sambands Islands.
Ólympíunefnd íslands greiðir
helming kostnaðar íslendinganna við
mótið. Nú þegar hafa fulltrúar ís-
lands verið valdir. Þeir em Amar
Pálsson og Hlynur Guðmundsson frá
ísafirði, sem keppa í göngu og Bjami
Skarphéðinsson, Dalvík, Gísli M.
Helgason, Ólafsfirði, Kolfinna Ýr
Ingólfsdóttir, ísafirði og Berglind
Bragadóttir, Fram Reykjavík sem
keppa í alpagreinum, svigi og stór-
svigi.
Auk fararstjóra verða tveir þjálf-
arar með í ferðinni, einn í alpagrein-
um og einn í göngu. Mótið verður-
dagana 7. til 11. febrúar 1992.
Hvaða skíði á ég að nota í dag? Ketil-André Aamodt með hluta af 16
skíðapömm sínum sem hann þarf að nota í heimsbikamum í vetur.
Aamodt
Kjetli André Aamodt er helsta von Norðmanna
NORÐMAÐURINN ungi, Kjetil-
André Aamodt, skaust óvænt
upp á stjörnuhimininn er hann
varð ólympíumeistari í risasvigi
í Albertville síðasta vetur. Um
síðustu helgi undirstrikaði
hann það enn frekar hversu
öflugur hann er með því að
sigra í opnunarmóti heimsbik-
arsins í Sestriere á Ítalíu. Þar
skaut hann stórsvigsmeistar-
anum sjálfum, Alberto Tomba,
ref fyrir rass á heimavelli hans.
Aamodt var ekki þekkt nafn í
skíðaheiminum fyrir Ólymp-
íuleikana í Albertville. Hann er nú
21 árs og er frá
Eftir Oslo og varð þre-
Val B. faldur heimsmeist-
Jónatansson ari unglinga fyrir
þremur árum. Það
vom fáir sem bjuggust við að hann
kæmist svo fljótt á toppinn. Hann
á ekki langt að sækja hæfileika sína
því faðir hans, Finn Aamodt, var
góður skíðamaður á sínum yngri
árum og er nú þjálfari B-liðs Norð-
manna.
Léttist um 11 kílógrömm
í fyrravetur átti hann í veikindum
vegna veirusjúkdóms og gat ekki
keppt af þeim sökum fyrri hluta
tímabilsins. Hann léttist þá um 11
kíló en hafði náð fyrri líkamsþyngd
fyrir Ólympíuleikana í Albertville,
en þar vann hann fyrstu gullverð-
laun Norðamanna i alpagreinum í
40 ár.
Aamodt, sem keppir í öllum
greinunum fjórum og virðist jafn-
vígur á þær allar, er mjög jarðbund-
inn og lætur velgengnina ekki stíga
sér til höfuðs. Hann segist þurfa
að öðlast meiri reynslu áður en
hann geti farið að gæla við að vinna
heismbikarinn. „Ef ég verð einn af
fimm efstu í heildarstigakeppninni
í vor er ég ánægður," sagði Aamodt.
Keppir í 37 greinum í 11 lönd-
um I þremur heimsálfum
Þar sem hann keppir í öllum
greinum þarf hann að nota minnst
16 pör af skíðum, fern fyrir hveija
grein. Hann mun keppa i 37 grein-
um í heimsbikamum í ellefu löndum
í þremur heimsálfum. 11 mót verða
í bruni, 7 í risasvigi, 6 í stórsvigi, 9
i svigi og 4 í tvíkeppni. Keppnis-
tímabilið hófst á Ítalíu um síðustu
helgi og lýkur ekki fyrr en 28.
mars í Are í Svíþjóð. Á þessum tíma
mun Aamodt heimsækja Frakkland,
Ítalíu, Slóveníu, Austurríki, Þýska-
land, Sviss, Japan, Kanada, Banda-
ríkin, Spán og heimaland sitt. Hlé
verður á heimsbikarnum í febrúar
en þá fer heimsmeistarakeppnin
fram í Japan.
Æföi mest stórsvig
En hvernig kemst hann yfir að
æfa allar greinamar fjórar; svig,
stórsvig, risasvig og brun svo vel sé?
„Ég þarf að skipuleggja æfing-
arnar mjög vel langt fram í tímann.
Einn daginn æfi ég risasvig í tvo
tíma að morgni og síðan svig í tvo
tíma seinni partinn. Næsta dag æfi
ég kannski stórsvig bæði fyrir og
eftir hádegi. Síðan einn dag þar sem
ég æfi brun og stórsvig og næsta
dag aðeins svig. Fyrir þetta keppn-
istímabil æfði ég mest stórsvig en
aftur minnst brun og risasvig," seg-
ir Aamodt í samtali við norska dag-
blaðið Aftenposten.
Hveijir verða helstu keppinaut-
arnir í vetur?
„Ég hugsa nú aðallega um sjálf-
an mig, minna um andstæðingana.
Annars held ég að það verði Paul
Accola frá Sviss, Alberto Tomba,
Ítalíu, Marc Girardelli og svo Lasse
Kjus, vinur minn og herbergisfélagi
á keppnisferðum, sem á eftir að
koma sterkur út í vetur."
Uppgangur í Noregi
Forráðamenn norska alpagreina-
liðsins settust niður fyrir þremur
árum og gerðu fimm ára þjálfunará-
ætlun fram að Ólympíuleikum í
Lillehammer 1994. Þeir yngdu upp
landsliðshópinn og réðu til sín aust-
urríska þjálfarann, Diter Barts, sem
var rekinn frá austurríska landslið-
inu vegna ósættis við forráðamenn
skíðasambandsins þar. Hann hefur
fengið nokkuð fijálsar hendur í
Noregi og árangurinn hefur ekki
látið á sér standa. Æfingaáiagið
var aukið og segja þeir sem best
þekkja til að Norðmenn æfi mest
allra skíðamanna og verði að teljast
líklegir til afreka í heimsbikamum
í vetur, á HM í Morioka í Japan og
á ÓL í Lillehammer eftir tæp tvö ár.
gJ! Félag 111
Harmonikknunnenda
heldur skemmtifund í Templarahöllinni við
Eiríksgötu kl. 15.00 í dag.
Margir góðir spilarar þar á meðal Bragi Hlíð-
berg, Reynir Jónasson og Grettir Björnsson.
Skemmtinefndin.
A&eins
60 kr.
stykkib
LÆKJARGÖTU 2, SÍMI 611530.
Sendiö persónuleg jólakort
•i • /
Hér og Nú innréttingaeiningarnar
eru á lægra verði en þekkst hefur fyrir
gæðainnréttingar. Þær eru alltaf til á lager
og því tilbúnar til afhendingar strax.
Við bjóðum eldhúsinnréttingar, fataskápa,
baðinnréttingar - einingar sem hægt er að
nota hvar sem er. Þú færð innréttinguna
fyrr - fyrir færri krónur.
Gásar
Borgartúni 29, sími 62 76 66
RAÐGREIÐSLUR
Ekkert út og afborganir
til allt að 18 mánaða
HÉR OG NÚ
FÆST UM ALLT LAnI)
Gásar Borgartúni 29, Reykjavík
Málningarþjónustan hff, Selfossi
Droplnn, málningarv.verslun, Keflavík
Málningarþjónustan hff, Akranesi
Pensillinn, ísafirði
Kaupff. Vestur-Húnvetninga
Hvammstanga
Húsgagnav. Reynisstaöur,
Vestmannaeyjum
Verslunin Hamrar hff, Grundarfirði
J.A.G., Höfn
M1292