Morgunblaðið - 06.12.1992, Page 48
lerii tíminleið
niei jílipístin
PÓSTUR OG SÍMI
KJÖRBÓK
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
MORGUNBLAÐID, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Jólin nálgast
Morgunblaðið/RAX
Jólin nálgast og óþolinmæðin eykst hjá yngstu kynslóðinni. Jólasveinar eru komnir í allar helstu verzlanirnar og þeir vekja mikinn áhuga eins og
vera ber. Jólaverzlunin er komin í fullan gang og margar búðir hafa opið í dag, sunnudag.
Veittist
að stúlku
meðhnífi
MAÐUR réðst að ungri stúlku í
miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt
laugardagsins og veitti henni
áverka méð hnífi. Stúlkan hlaut
grunn sár á nokkrum stöðum lík-
amans af völdum hnífsins og
hlaut fleiri áverka í átökunum.
Hún var flutt á slysadeild en er
ekki alvarlega slösuð.
Maðurinn réðst skyndilega á
stúlkuna er hún var stödd á mótum
Laugavegs og Klapparstígs. Hún
þekkti hann ekki. Mikil leit fór fram
að manninum með aðstoð stúlkunn-
ar um nóttina en hún hefur ekki
borið árangur.
Stúlkan, sem er átján ára göm-
ul, var að koma úr miðbænum um
fjögurleytið aðfaranótt laugardags-
ins, þegar maðurinn vatt sér að
henni og veitti henni áverkana.
Eftir því sem næst verður komist
tókst stúlkunni að flýja undan
manninum eftir átök á milli þeirra.
Þaðan hélt hún á aðalstöð lögregl-
unnar á Hverfísgötu og kærði árás-
ina.
Málið er komið til Rannsókn-
arlögreglu ríkisins.
Samkomulag í ríkissljórninni um ríkisfjármálin
Minni niðurskurð-
ur í félagsmálunum
Vextir í húsnæðiskerfinu ekki hækkaðir í bráð
RÍKISSTJÓRNIN náði á fundi sínum í gær samkomulagi um
hvernig haga skyldi nýrri tekjuöflun ríkissjóðs og hvar skera
skyldi niður ríkisútgjöld. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins verður skorið minna niður í malaflokkum félagsmálaráðu-
neytisins en áformað hafði verið. Akveðið var að vextir í hús-
næðiskerfinu myndu ekki verða hækkaðir í bráð. Þá verður
skorið minna niður í landbúnaðarmálum en áformað hafði ver-
ið. Davíð Oddsson forsætisráðherra segir að fullkomið samkomu-
lag sé í ríkissijórninni.
urstöðu ríkisstjórnarinnar hófust
strax að loknum ríkisstjómarfund-
inum í gær og var þeim ekki lokið
er Morgunblaðið fór í prentun síð-
degis.
DAGAR
TIL JÓLA
Elliðaár
2,1% hækkun
á veiðileyfum
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
2,1% hækkun á veiðileyfum í Ell-
iðaám sumarið 1993. Verð á
veiðileyfi árið 1993 verður 14.700
krónur en var 14.400 krónur
sumarið 1992.
í tillögu og greinargerð Raf-
magnsveitu Reykjavíkur að leigu
til Stangveiðifélags Reykjavíkur og
verði veiðileyfa í Elliðaám, er lagt
til að veiðileiga verði 6.160.000
milljónir árið 1993 og verð veiði-
leyfa verði 14.700 krónur á dag
fyrir hveija stöng. Leigan var
6.040.000 milljónir árið 1992 og
hækkar samkvæmt því um 2% milli
ára.
Var fómarlamb aðstæðna
Ríkisstjómin hugðist leggja fyr-
ir Alþingi í gær þrjú tekjuöflunar-
fmmvörp, sem samstaða var um
á ríkisstjórnarfundinum. í fyrsta
lagi verður flutt frumvarp um
skattamál, en þar kemur m.a. fram
að virðisaukaskattur verði lagður
á húshitun um áramótin, afnota-
gjöld sjónvarps og útvarps, blöð,
tímarit og bækur um mitt ár og
loks á ferðaþjónustu og hótelgist-
ingu í árslok 1993. Þetta er breytt
röð frá því sem áður var áformað,
en til stóð að virðisaukaskattur
kæmi einnig á afnotagjöld út-
varþs- og sjónvarpsstöðva um
^ r^sstu áramót.
öðra lagi verður flutt frum-
varp um tekjustofna sveitarfélaga.
í þriðja lagi verður flutt frumvarp,
sem snertir ýmsa þætti í heilbrigð-
ismálum. Ekki fékkst staðfest í
gær hvort þar væri um að ræða
ný þjónustugjöld í heilbrigðiskerf-
inu.
í niðurskurðartillögum þeim,
sem ríkisstjómin varð sammála
um, er gert ráð fyrir mestum nið-
urskurði í heilbrigðis- og trygg-
ingakerfínu. Hins vegar verður
minna skorið niður en áformað var
í landbúnaði og félagsmálum.
Áður var rætt um að skera niður
250 milljónir í landbúnaðarmálum
og 350 milljónir í málaflokkum
félagsmálaráðuneytisins. .
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra sagðist eftir ríkis-
stjómarfundinn vera sæmilega
sátt við niðurstöðu málsins miðað
við aðstæður, þótt aldrei yrðu allir
sáttir við aðgerðir af þessu tagi.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sagði í samtali við blaða-
menn eftir ríkisstjómarfundinn að
fullkomin sátt væri í ríkisstjóm-
inni. Hann sagði að ýmsu hefði
verið breytt frá upphaflegum til-
lögum, en vildi ekki tjá sig um það
nánar.
Þingflokksfundir Alþýðuflokks-
ins og Sjálfstæðisflokksins um nið-
- segir annar hinna handteknu við Kringluna
LOGREGLAN hefur staðfest að annar mannanna sem handteknir
voru við Kringluna í gær hefur verið látinn laus og snertir rann-
sókn málsins að engu leyti. Hann var fórnarlamb aðstæðna þegar
félagi hans var handtekinn með
sínum.
„Eg vil aðeins að það komi fram
að ég stend ekki í svona löguðu
og vil gjaman að mannorð mitt
verði hreinsað af slíkum ásökun-
um,“ sagði Sigurður Ólafsson, en
mynd af handtökunni birtist í
Morgunblaðinu í gær.
Sigurður sagðist hafa heimsótt
kunningja sinn, þann er fíkniefnin
fundust á, um hádegisbilið. Þeir
hefðu ekið um bæinn sér til dægra-
styttingar og hefði kunningi hans
brugðið sér frá inn í nokkur hús
en Sigurður verið eftir í bílnum.
Því næst óku þeir að Kringlunni
og fóru þar inn.
„Ég stóð í þeirri meiningu að
við værum að fara með gleraugu
í viðgerð. Mér er sagt að hann
20 grömm af amfetamíni í fórum
hafi hitt einhvern mann þar inni.
Þegar við komum út bíður okkar
lögregluhandtaka, óeinkennis-
klæddir lögreglumenn með tal-
stöðvar. Okkur er ýtt upp að bílnum
og hendur settar aftur fyrir bak.
Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð
veðrið og stóð þarna eins og glóp-
ur, en eins og sést á myndinni í
Morgunblaðinu, hafði hann vit á
því að beygja sig niður og skýla
sér, en ég stóð þarna eins og sauð-
ur. Ég vil að það komi fram að
heima hjá mér fundust hvorki fíkni-
efni né vopn,“ sagði Sigurður.
Hann sagði að hann hefði verið
yfírheyrður af lögreglunni og saga
hans hefði verið sannreynd á með-
an hann beið á lögreglustöðinni.
Sigurður Ólafsson.
Síðan hefði lögreglan ekið með
hann heim um nóttina.