Morgunblaðið - 18.12.1992, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1992
Ræður Olafs Thors
komnar út á geislaplötu
ÚT ER komin geislaplatan „Ólaf-
ur Thors hefur orðið" með úr-
vali úr ræðum Ólafs Thors for-
sætisráðherra og formanns Sjálf-
stæðisflokksins. Geislaplatan er
Snjóflóð
féll á bíl
Hraunbrún, Kelduhverfi.
SNJÓFLÓÐ féll í Auðbjargar-
staðabrekku í Kelduhverfi í gær.
Þrír bílar voru á leið upp brekk-
una þegar flóðið féll og ýtti það
örlítið við aftasta bílnum, en þó
ekkert sem orð er á gerandi.
Flóðið er 30-40 metra breitt og
sennilega um 3 metrar á dýpt þar
sem það er dýpst. Bílamar þrír sem
voru í brekkunni voru allir ofan við
flóðið og komust því upp.
Inga
gefin út í tilefni þess að á þessu
ári eru 100 ár liðin frá fæðingu
Ólafs Thors og er framlag Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna til
að heiðra minningu þessa merka
stjómmálaleiðtoga.
Geislaplatan geymir sextán
ræðukafla, sem spanna feril Ólafs
frá 1936 til loka stjómmálaferils
hans 1963. Valdir vom kaflar frá
tveim upp í sjö mínútur að lengd.
Davíð Oddsson, forsætisráðherra,
flytur formálsorð og upplýsir hvert
tilefni ræðunnar var og hvaða að-
stæður vom þá ríkjandi á pólitíska
sviðinu.
Við kynningu á plötunni sagði
Davíð Oddsson, forsætisráðherra:
„Þessir ræðubútar gefa skemmti-
lega mynd af Ólafi. Á hans tíma
var ekki tekið nægilega mikið upp,
en núna ef til vill of mikið. Samt
hefur tekist að fá allgott sýnishom
úr ræðum Ólafs, þannig að hægt
er að gefa góða mynd af því hvem-
ig hann talaði og efnistökum hans.
Valið hefur heppnast vel, svo að
platan er skemmtileg. Hún nær líka
yfir mjög langt tímabil, þar sem
elsta upptakan er hálfrar aldar göm-
ul, en sú yngsta er frá síðasta ári
hans sem forsætisráðherra. Platan
gefur því líka nokkra mynd af
átaka- og álitaefnum á þessu tíma-
bili.“
Dæmi um hugsunarhátt Ólafs
má finna í síðustu þjóðhátíðarræðu
hans, sem flutt var 17. júní 1963:
„Það skal þó staðhæft að sé þótti
okkar fullstór er það guðsþakkar-
vert hjá þeirri vesælu minnimáttar-
kennd að íslendingum sé helst ekki
ætlandi að komast í snertingu við
nokkurn útlending án þess að eiga
á hættu að glata sjálfsvirðingu sinni
og manndómi og jafnvel tungu og
þjóðemi."
Umsjón með útgáfunni hafði
Guðlaugur Þór Þórðarson, varafor-
maður Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna. Hann segir að árið 1965,
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 18. DESEMBER
YFIRLIT: Yfir Grænlandi er 1022 mb hæð en minnkandi lægðardrag milli ís-
lands og Noregs. Um 500 km vestur af Skotlandi er vaxandi 966 mb lægð á
leið norðnorðaustan.
SPÁ: N-átt, stormur og jafnvei rok (10 vindstig) sumsstaðar A-iands en stinn-
ingskaldi eða allhvasst v-til. Snjókoma og skafrenningur á A- og N-landi en
að mestu úrkomulaust s-lands og -vestan. Frost 1-6 stig, kaldast NV-lands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Gengur í vaxandi SA-átt með snjókomu um v-vert
landið og hæg vestlæg átt og léttskýjað a-lands. Frost um allt land.
HORFUR Á SUNNUDAG: Sunnan- og suðaustan hvassviðri og rigning eða
slydda um suðvestan- og vestanvert landið en annars hægari í fyrstu og þurrt
aö mestu.,Hlýnandi veður.
HORFUR Á MÁNUDAG: Sunnan strekkingur og fremur hlýtt. Skúrir um sunn-
an- og vestanvert landið en annars þurrt að mestu.
Nýlr veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30.Svarsími Veðurstofu fslands — Veðurfregnlr: 990600.
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
r r r
r r
r r r
Rigning
* r *
* r
r * r
Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
V 'v' V
Skúrír Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heíl fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
ftig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl.17.30ígær)
Sæmileg færð er um vegi í nágrenni Reykjavíkur og fært er um Hellisheiði
og Þrengsli, þó er þungfært um Mosfellsheiði. Fært er með suðurströndinni
austur á firði. Fært er um vegi á Vesturlandi, fyrir Hvalfjörð, um vegi á Snæ-
fellsnesi og um Heyda! í Reykhólasveit. Á sunnanverðum Vestfjörðum er fært
frá Patreksfiröi suður á Barðaströnd og norður til Bildudals. A noröanverðum
Vestfjörðum er fært milli Þingeyrar og Flateyrar, en Breiðadals- og Botnsheið-
ar eru ófærar. Fært er um Holtavörðuheiði til Hótmavíkur og um Steingríms-
fjarðarheiði til ísafjarðar. Sæmileg færð er é aðalleiðum í Húnavatnssýslum
og Skagafirði og fært um Öxnadalsheiði. Frá Akureyri er fært tíl Olafsfjaröar,
einnig austur um Víkurskarð til Húsavlkur en flestir vegir þar fyrir austan eru
ófærir. Á Austurlandi er veður versnandl og orðíð þungfært á Fagradal og víðar.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni
linu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri
Reykjavlk
hiti veöur
+3 snjókoma
+2 úrk.igrennd
Bergen 4 skúrásfð.klst.
Helsinki 4 súld
Kaupmannahöfn 6 skýjaö
Narssaresuaq +11 alskýjað
Nuuk vantar
Osló 3 léttskýjað
Stokkhólmur 6 léttskýjað
Þórshöfn 3 alskýjað
Algarve 14 hálfskýjað
Amsterdam 7 þokumóða
Barcelona 11 alskýjað
Berlín 3 þokumóða
Chicago 0 snjókoma
Feneyjar 8 þokumóða
Frankfurt 0 þokumóða
Glasgow 7 skýjað
Hamborg 5 þoka
London 4 þokumóða
Los Angeles 9 hálfskýjað
Lúxemborg 5 heiðskírt
Madríd 8 mistur
Malaga 14 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Montreal 3 skýjað
NewYork vantar
Orlando vantar
Paría vantar
Madelra vantar
Róm vantar
Vín 2 alskýjað
Washington 9 rigningásíð.klst.
Winnlpeg +19 snjókoma
IDAGkl. 12.00
Heimild: Veöurstofa islands
(Byggt á VBðurspá kl. 16.15 I gœr)
Fyrir framan málverk af Ólafi Thors í Valhöll eru þeir Jón Ólafs-
son, framkvæmdastjóri Skifunnar hf., Guðlaugur Þór Þórðarson,
varaformaður SUS, Davíð Oddsson, forsætísráðherra og Davíð Stef-
ánsson, formaður SUS.
eða í formannstíð Styrmis Gunnars-
sonar, hafi Heimdallur gefið út
hljómplötu með ræðum Ólafs. „Sá
munur er á þessum tveim útgáfum
að nú hefur verið valinn sá kostur
að velja úr þekkta ræðukafla í stað
óstyttra ræðna. Fyrirmyndin er sótt
til áþekkrar útgáfu á ræðum
þekktra erlendra stjómmála-
manna.“
Að sögn Guðlaugs Þórs em hljóm-
gæðin mikil „og það er sérstök til-
finning að heyra Ólaf sjálfan flytja
ræður um mál sem ungt fólk þekk-
ir einungis úr sögubókum." Guð-
laugúr segir útgáfuna nýlundu og
ef hún gangi vel sé hún upphafið
að frekari útgáfu af ræðum forystu-
manna Sjálfstæðisflokksins.
Mikil undirbúningsvinna liggur
að baki útgáfu geislaplötunnar. Þeir
sem að útgáfunni standa, vilja
þakka fjölskyldu Ólafs, einkum Guð-
rúnu Pétursdóttur fyrir veitta að-
stoð.
Útgefandi er Skífan hf. Heildar-
tími í flutningi er 63,34 mínútur.
Auglýsingastofan Nonni og Manni
hf. sá um gerð kápu og fylgirits.
Verð 1.999 krónur.
540 fyrirtæki lýst
gjaldþrota 1991-92
ALLS voru 540 fyrirtæki úrskurðuð gjaldþrota á síðasta ári og það
sem af er árinu 1992. Þar af var 321 fyrirtæki úrskurðað gjaldþrota
í Reykjavík, 22 á Akureyri, 18 í Kópavogi, 12 í Keflavík, 9 í Olfus-
hreppi og 8 á ísafirði en færri fyrirtæki á öðrum stöðum. Þetta
kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Hermanns
Níelssonar varaþingmanns á Austurlandi um fjölda gjaldþrota að
undanförnu.
Einnig var óskað eftir upplýsing-
um um hve háar upphæðir hefði
verið um að ræða í hveiju sveitarfé-
lagi og í heild yfir landið í lýstum
kröfum, hvernig þær skiptust á
milli sjóða, banka og fyrirtækja og
hve mikið tapaðist. Dómsmálaráðu-
neytið treystir sér ekki til að svara
þessu og segir í svari ráðherra að
upplýsingar um lýstar kröfur liggi
ekki fýrir enda tíðkist ekki að mála-
skrár séu svo ítarlegar að rekja
megi lýstar kröfur með þessum
hætti.
540 fyrirtæki úrskuröuð gjaldþrota
á árunum 1991-92 ^
\ (T\ ' J
« VESTFIRÐIR/ 8 I 37 j
VESTURLANDl
NORÐURL.
VESTRA
NORÐURL.
EYSTRA
REYKJAVIK
REYKJANES
SUÐURLAND
I X V 23 i
56
Óstaðsett fyrirtœki
Sykurmolarnir
í efsta sæti banda-
ríska danslistans
LAG Sykurmolanna, Leash Called Love, er komið í efsta sætí „dans-
lista“ bandaríska tonlistarblaðsins Billboard, en það er virtasta heim-
ild um slíkt í Bandaríkjunum. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskn
hyómsveit auðnast að komast svo hátt á vinsældalista þar í landi.
Leash Called Love kom fýrst út
á breiðskífu Sykurmolanna Stick
Around for Joy, sem kom út fyrr á
árinu. Sú útgáfa sem nýtur hylli í
Bandaríkjunum, er hinsvegar end-
urhljóðblönduð útgáfa lagsins, sem
fínna má á plötu hljómsveitarinnar
og kom út fyrir stuttu undir heitinu
It’s It. Að sögn Einars Arnar Bene-
diktssonar kemur þessi velgengni
lagsins hljómsveitinni mjög á óvart,
en hann segir að Iagið hafi fyrst
farið í tíunda sætið, þá í það fimmta,
næst fjórða, en sitji nú á toppi dans-
listans, sem hann segir að sé byggð-
ur á spilun á dansstöðum um þver
Bandaríkin.
Sykurmolarnir halda síðustu tón-
leika sína á árinu í Tunglinu í kvöld,
þar sem hljómsveitin hyggst fagna
þessum árangri, en einnig koma
fram hljómsveitirnar Rut+, sem
leikur brimrokk, og Kolrassa krókr-
íðandi. Plötusnúður verður Dom T
sem kynna mun nýjustu danstón-
listina frá Bretlandi áður en hljóm-
sveitimar hefja leik sinn.