Morgunblaðið - 18.12.1992, Qupperneq 32
m
ÆWöá>
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Magnús L. Sveinsson ávarpar þátttakendur í hugmyndasamkeppni um skipulag og félagslegar eignaríbúðir
í Borgarhverfi, þegar niðurstaða dómnefndar var kynnt í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur
38 tillögnr bárust í samkeppni
um félagslegar eignaríbúðir
Fóstrur sýknað-
ar í Félagsdómi
38 TILLÖGUR bárust í hug-
myndasamkeppni Húsnæðisnefnd-
ar Reykjavíkur um skipulag og
félagslegar íbúðir í Borgarhverfi.
Samkeppnin var í tveimur þrepum
og voru fimm tillögur valdar til
áframhaldandi úrvinnslu í síðara
þrepi. Fyrstu verðlaun hlaut til-
laga arkitektanna Þorsteins
Helgasonar og Harðar Harðarson-
ar. Heildarverðlaun eru 5,5 millj-
ónir, sem skipt er jafnt milli þátt-
takenda í síðara þrepi.
Um 3.300 íbúðir hafi verið byggð-
ar á þeim liðlega 60 árum sem liðin
eru frá byggingu fyrstu félagslegu
íbúðanna í Reykjavík. Á fundi hús-
næðisnefndar Reykjavíkur í júní
1991 var samþykkt að efna til sam-
keppni um 150 eignaríbúðir á svæði
í Borgarholti II, sem Reykjavíkur-
borg hefur gefið fyrirheit um.
Í greinargerð dómnefndar að
loknu síðara þrepi samkeppninnar
segir að við mat á úrlausnum hafi
sömu sjónarmið verið lögð til grund-
vallar og við fyrra þrep en með auk-
inni áherslu á gæði íbúða og hag-
kvæmni úr’.ausna. „Það var sam-
hljóða niðurstaða dómnefndar, að
tvær af fímm tillögum síðara þreps
uppfylltu á sannfærandi hátt mark-
mið samkeppninnar um samspil ný-
sköpunar og hagkvæmni í heildar-
lausn.“
Höfundar tillögu í öðru sæti eru
arkitektamir Sigurður Halldórsson,
Sigurbjöm Kjartansson, Hans-Olav
Andesen og Sigríður Magnúsdóttir.
Líkan gerði Edda Einarsdóttir, arki-
tekt.
Dómnefnd sá ekki ástæðu til að
gera upp á milli þriðja til fimmta
sætis en höfundar tillögu nr. 21 eru
arkitektamir Gísli Halldórsson, Hall-
dór Guðmundsson, Oddur K. Finn-
bjamarson, Ragnar A. Birgisson og
Bjami Snæbjömsson ásamt Stein-
unni Kristjánsdóttur arkitekt, Ás-
mundi H. Sturlusyni arkitektanema
og Pétri Jónssyni landslagsarkitekt.
Höfundar tillögu nr. 43 em arkitekt-
amir Helga Gunnarsdóttir og Hildi-
gunnur Haraldsdóttir í samstarfi við
Elínborgu Ragnarsdóttur tækni-
teiknara og Hjördísi Sigurgeirsdóttur
arkitekt. Ráðgjöf veitti Verkfræði-
stofa Stefáns Ólafssonar. Höfundar
tillögu nr. 49 eru Ragnhildur Skarp-
héðinsdóttir landslagsarkitekt og
Ögmundur Skarphéðinsson arkitekt.
FÉLAGSDÓMUR hefur kveðið
upp dóm í máli Launanefndar
sveitarfélaga fyrir hönd Hafnar-
fjarðarbæjar gegn Fóstrufélagi
Islands. I dómnum segir að
sýkna beri beri stefndu af kröf-
um stefnanda í málinu og um
leið viðurkennt að ekki sé í gildi
kjarasamningur milli Fóstrufé-
lags íslands og Hafnarfjarðar-
bæjar. Fóstrufélagið hefur í
framhaldi af dómnum sent bréf
til Hafnarfjarðarbæjar þar sem
farið er fram á viðræður um
kjarasamning.
Málavextir eru þeir að þann 12.
ágúst var undirritaður kjarasamn-
ingur milli Fóstrufélags Islands og
Launanefndar sveitarfélaga fyrir
hönd tiltekinna sveitarfélaga þar á
meðal Hafnarfjarðar. Kjarasamn-
ingurinn var undirritaður með
fyrirvara um samþykki aðila, það
er viðkomandi sveitarfélaga og fé-
lagsmanna í þeim sveitarfélögum.
Kjarasamningurinn var sam-
þykktur hjá öllum félagsmönnum
Fóstrufélagsins nema í Hafnarfirði
Á FUNDI samstarfsráðherra
Norðurlandanna í Kaupmanna-
höfn í síðustu viku var fjallað
um nýja möguleika á að koma
á fót sjónvarpssamstarfi Norð-
urlandanna með gervihnatta-
sjónvarpi að frumkvæði Eiðs
Guðnasonar, sem sat fundinn
fyrir íslands hönd.
Benda ráðherramir á að öll
stærstu vandamálin sem komu í
veg fyrir Nordsat-áætlunina í byrj-
un síðasta áratugar séu ekki leng-
ur fyrir hendi; tæknileg vandamál
ekki lengur til staðar, kostnaður
orðinn margfalt minni en fyrir tíu
árum og höfundarréttarleg mál
ekki sama fyrirstaða og áður.
Urðu ráðherrarnir sammála um
að fela fagráðherrum í hveiju landi
þar sem hann var felldur með öllum
greiddum atkvæðum. Því taldi Fós-
trufélag íslands að ekki hefði stofn-
ast til nýs kjarasamnings milli fé-
lagsins og Hafnarfjarðarbæjar. Af
hálfu Launanefndar sveitarfélaga
var hinsvegar litið svo á að kjara-
samningur hefði stofnast milli
fóstra og Hafnarfjarðar því bæjar-
stjóm hafði samþykkt hann og
meirihluti félagsmanna í Fóstrufé-
laginu hefði samþykkt samninginn
hjá öllum þeim sveitarfélögum sem
aðild eiga að Launanefnd. Þar sem
aðilar vom ekki sammála um þetta
vísaði Launanefnd, fyrir hönd
Hafnarfjarðar, málinu til Félags-
dóms.
í niðurstöðu dómsins kemur m.a.
fram að óumdeilt sé að kjarasamn-
ingar séu háðir staðfestingu við-
komandi aðila sjálfs til þess að
þeir öðlist gildi gagnvart honum.
Þannig gat hvert sveitarfélag um
sig fellt samninginn þótt hann
stæði hjá öðrum og samkvæmt
jafnræðisreglu gildi hið sama um
samþykki fóstra í hverju sveitarfé-
lagi.
að taka þessi mál til skoðunar upp
á nýtt.
í fréttatilkynningu af fundinum
er bent á að sjónvarpsefni sé nú
þegar sent út um gervitungl á
Norðurlöndunum og hægt sé að
senda út sjónvarpsdagskrár sem
næðu til allra Norðurlandanna. Nú
þegar sé mögulegt að koma á fót
samnorrænni fréttarás en einnig
mætti hugsa sér að móta samnorr-
æna dagskrá sem samanstæði af
fréttum, fræðsluefni og menning-
arþáttum.
VSÍ
Tekjuteng-
ing hvetur til
undanskota
Vinnuveitendasamband ís-
lands varar sterklega við því að
lengra sé gengið á braut tekju-
tengingar í skattkerfinu þar
sem algengustu fjölskyldur með
venjulegar tekjur nái nú aðeins
að bæta hag sinn um 40 krónur
af hverjum 100 sem þær vinni
sér inn. Þær breytingar sem nú
séu fyrirhugaðar á barnabótum
og barnabótaauka auki enn á
jaðaráhrif skattkerfisins og
dragi úr hvatningu til vinnu en
hvetji til undanskota.
VSÍ segir að hjá fyrrgreindum
hópi, sem kallaðar eru algengustu
fjölskyldur með venjulegar tekjur,
nemi samanlögð áhrif tekjuskatt-
hlutfalls, bamabótaauka og vaxta-
bóta um og yfir 60%, þannig að
eftir standi um 40 krónur af hveij-
um 100 sem bætist við tekjur. Ef
slíkar fjölskyldur búi að auki við
námslánaskuldir skv. gildandi lög-
um fækki krónunum í 35.
Á hinn bóginn segir VSÍ að
óhjákvæmilegt virðist að sveitarfé-
lögum verði bættur tekjumissir
vegna aðstöðugjalds með hækkun
tekjuskatts einstaklinga og að
vaxtabætur hljóti að koma til skoð-
unar í viðleitni ríkisvaldsins til að
stuðla að lækkun vaxta. Þær bæt-
ur eigi að einskorða við þá sem
kaupa í fyrsta skipti og takmark-
ast við lægri fjárhæð en nú er auk
þess sem sérkennilegt sé að
greiðslur af gömlum hagstæðum
lánum geti leitt til greiðslu slíkra
bóta.
Svarti markadurinn opinn alla daga
Nýtt og spennandi vöruúrvaI á Clasgow veröi
sem þig langar f og það sem þér tfatt ekki í hug að þig langaði í.
Svarti markaðurinn.
Það eru margar ástœður...
.. .fyrir því að flestir
atvinnumenn í íshokký
nota BaUEr-skauta:
SUPERFEET®
Bauer „Superfeet"
-innleggið
er í fjórum hlutum:
1. Ultrilure® yfirborðið sýgur
í sig raka og
heldur fætinum þurrum.
2. Engarde® hindrar bakteríur
og sveppamyndun.
Frelonic 1® lagar sig eftir
ilinni til aukinna þæginda.
Ferlonic 2® er styrktarlag,
sem eykur stuðning við
hælinn og deyfir högg.
3.
4.
FORMFIT®
„Formfit Plus“-tungan
er sú eina, sem er hönnuð
fyrir hægri og vinstri fót.
Tungan er þrískipt
og helst alltaf
á miðjum legg.
FLOLITE®
„Flolite" ökklapúðarnir
laga sig að fætinum,
þannig að skórinn
verður eins og
„klæðskera-
saumaður".
Tvær breiddir:
D: Fyrir meðal fót
EE: Fyrir breiðan fót
skautar þeirra BESTU
ÚTILÍF
Glæsibæ, simi8l2922.
Cooper
ÍSHOKKÝVÖRUR
Hugmyndir endurvakt-
ar um norrænt sjónvarp