Morgunblaðið - 18.12.1992, Blaðsíða 42
Til stóð að loka gilinu vegna hálku
Engiim slasaðist í
hörðum árekstrí
HARÐUR árekstur varð í Kaupvangsstræti um hádegi í gær,
en þar skullu þrír bílar saman. Engin slys urðu á fólki, en
bílarnir skemmdust töluvert. Mikil hálka var í gilinu um tíma
í gær og stóð til að loka því af þeim sökum.
Tildrög ákeyrslunnar eru þau
að jeppi sem kom niður gilið lenti
á kyrrstæðum bíl skammt frá inn-
keyrslunni að Barnaskóla Akur-
eyrar og þaðan rann hann yfír á
Slökkvilið
Hella á
eldavél
sprakk í
tvo hluta
SLÖKKVILIÐ Akureyrar
var kallað að húsi við
Grenivelli um hádegisbil I
gær. Hella á eldavél hafði
sprungið og var í tveimur
hlutum.
H Tómas Búi Böðvarsson
slökkviliðsstjóri sagði að í
íbúðinni hefði verið þroska-
heft stúlka, en hún hefði
brugðist hárrétt við og hringt
í slökkvilið strax eftir að hell-
an sprakk á eldavélinni. Eng-
inn eldur kom upp.
Erfíðlega gekk að komast
að staðnum þar sem færð um
bæinn er frekar slæm víða.
Einn slökkviliðsbílanna sem
fór á vettvang festi sig í skafli
á Sólvöllum og tók nokkurn
tíma að losa hann.
vinstri vegarhelming og á fólksbíl
sem ekið var upp götuna. Nokkrar
skemmdir urðu á bílunum og þurfti
að fjarlægja einn þeirra með
kranabíl éftir atvikið.
Að sögn varðstjóra lögreglunn-
ar stóð til um tíma í gær að loka
Kaupvangsstræti fyrir umferð
vegna hálku, en eftir að búið var
að skafa götuna var horfíð frá
því. Mikil umferð er þarna um og
hugsa margir til þess með nokk-
urri skelfingu að þurfa að stöðva
bíl á leið upp, sérstaklega við að-
stæður eins og voru í gær.
Sjö önnur óhöpp urðu í umferð-
inni á Akureyri í gær og var að
sögn varðstjóra oftast um að ræða
að ekið var á kyrrstæða bíla sem
sátu fastir í snjóskafli. Þá voru
miklar annir hjá lögreglumönnum
í gær við að aðstoða ökumenn, en
einungis er búið að ryðja aðalleið-
ir í bænum og margar götur í
hverfum eru ekki fólksbílafærar.
Vildi varðstjóri benda eigendum
bifreiða á að nú væri komið að
því að hreinsa í hverfunum og því
brýnt að þeir komi þeim á góðan
stað meðan á mokstri stendur.
♦ ♦ ♦-----
Loðin rotta
í Sjallanum
Hljómsveitin Loðin rotta leikur
í Sjallanum föstudags- og laugar-
dagskvöld 18. og 19. desember.
Til aðstoðar verða átta gógódans-
meyjar, ljósavinnuflokkur, bún-
ingahönnuðir og hljóðmeistarar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Ong-þveiti í gilinu
Harður þriggja bíla árekstur varð í Kaupvangsstræti um hádegi í gær. Enginn slasaðist en bílarnir skemmd-
ust töluvert. Svo mikið öngþveiti varð vegna hálku í gilinu á tímabili í gær að til tals kom að loka því.
Utgerðarfélag Akureyringa
Aðkomuskip hafa
landað 650 tonnum
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa hefur frá því í september
og til nóvemberloka keypt 653 tonn af fiski af aðkomuskipum.
Samningar voru gerðir við þrjá línubáta og einn togara um
kaup á afla, en þeir hafa tryggt að vinnsla hefur ekki fallið
niður í frystihúsi félagsins á meðan einn togari þess er í breyt-
ingum í Póllandi.
ÚA gerði samning í september
við línuskipin Eldeyjar-Boða, Eld-
eyjar-Hjalta og Núp sem landaði
afla hjá félaginu í október og við
togarana Frosta ÞH frá Grenivík.
Línuskipin veiða eingöngu úr afla-
heimildum félagsins, en Frosti
leggur til tonn fyrir hvert tonn sem
félagið veitir honum.
í nýútkomnu fréttabréfí ÚA
kemur fram að einöngu hafí verið
keyptur þorskur af línuveiðiskipun-
um og sé reynslan mjög góð, en
allur afli er keyptur af Frosta.
Fram til nóvemberloka hafa
skipin landað um 653 tonnum,
línuskipin 316 tonnum og Frosti
327 tonnum. Samningarnir hafa
tryggt að vinnsla í landi hefur ver-
ið samfelld og því ekki komið til
stövðunar í frystihúsi það sem af
er hausti. Ljóst sé að fjarvera
Harðbaks EA frá veiðum hefði leitt
til tímabundinna vinnslustöðvana
með tilheyrandi kostnaði hefði
þessi leið ekki verið farin.
Fram kemur í fréttabréfinu, að
allar líkur séu á að unnið verði í
frystihúsinu í jólavikunni, þ.e. til
og með 23. desember, og einnig á
milli jóla og nýjárs. Reiknað er
með að skip félagsins verði í landi
milli jóla og nýjárs og að hráefni
berist fyrst að landi 7. janúar.
Fram að því verður tíminni notaður
í fiskvinnslu- og upprifjunarná-
mskeið.
Dalvíkurkirkja
Nýtt safnaðarheimili vígt
NÝTT safnaðarheimili við Dalvíkurkirkju var vígt um helgina.
Heimilið er áfast við kirkjuna, byggt til norðurs og er teiknað
af Hauki Haraldssyni á Akureyri. Sóknarpresturinn sr. Jón
Helgi Þórarinsson vígði heimilið og lýsti það formlega tekið í
notkun og formaður sóknarnefndar, Friðþjófur Þórarinsson,
lýsti framkvæmdum. Sökum stórhríðar og ófærðar gat prófast-
ur Eyjafjarðarprófastsdæmis ekki verið við athöfnina en fyrir-
hugað hafði verið að hann vígði heimilið. Við athöfnina söng
kirkjukór Dalvíkur og blásarasveit Tónlistarskólans á Dalvík Iék
nökkur jólalög undir stjórn Eiriks Stephensens kennara.
Safnaðarheimilið er um 240 fer-
metrar að gólffleti, á tveimur hæðum
og tekur um 100 manns í sæti við
borð. Neðri hæð hússins er að mestu
lokið en enn er efri hæðin ófrágeng-
in. Með tilkomu safnaðarheimilisins
skapast betri aðstaða til kirkjukórs-
æfínga, fermingarfræðslu og ann-
arra félagslegra athafna safnaðarins
og kvaðst sóknarprestur þess fullviss
að það ætti eftir að verða safnaðar-
starfí mikil lyftistöng.
í máli formanns sóknarnefndar,
Friðþjófs Þórarinssonar, kom fram
að hafíst var handa við bygginguna
árið 1990, en þá voru steyptar undir-
stöður undir húsið og botnplata.
Heiðursborgari Dalvíkur, Jón Stef-
ánsson byggingameistari, tók fyrstu
skóflustungu að heimilinu en hann
var byggingameistari að kirkjunni
þegar hún var byggð.
Ðaltré hf. annaðist uppbyggingu
hússins og mestöll iðnaðarvinna var
unnin af iðnaðarmönnum á Dalvík.
Byggingarkostnaður er orðinn 25
milljónir króna og hefur fram-
kvæmdin verið fjármögnuð að mestu
af sóknargjöldum, auk framlags frá
Dalvíkurbæ og Jöfnunarsjóði kirkna.
Margir lögðu fram sjálfboðavinnu
og færðu kirkjunni gjafir til bygg-
ingarinnar og m.a. gaf Tréverk hf.
á Dalvík safnaðarheimilinu útihurðir
í tilefni af þrjátíu ára afmæli sínu
nú í sumar.
Lýsti formaður sóknamefndar
mikilli ánægju með samvinnu við
arkitekt hússins, Hauk Haraldsson
á Akureyri, en hann var jafnframt
ráðinn eftiriitsmaður með bygging-
unni og var honum afhentur áletrað-
ur silfurdiskur frá sóknarnefnd í til-
efni vígslunnar.
Fréttaritari
Morgunblaðið/Trausti
Safnaðarheimilið vígt
Margir voru viðstaddir vígslu safnaðarheimilisins á Dalvík. Á minni myndinni sést sr. Jón Helgi
Þórarinsson vígja heimilið.