Morgunblaðið - 18.12.1992, Page 44

Morgunblaðið - 18.12.1992, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1992 Morgunblaðið/Arni Sæberg Gunnar Rafn Signrbjörnsson (t.h.) afhendir Arnari Almarssyni styrk- Sparisjóður Hafnarfjarðar Sýning í Hafnarborg í tilefni af 90 ára afmæli IAÐALSAL Hafnarborgar er sýn- ing í tilefni af 90 ára afmæli Spari- sjóðs Hafnarfjarðar. A sýningunni eru myndir og mun- ir sem tengjast sögu sparisjóðsins. Einnig eru sýndar myndir úr teiknis- amkeppni sem sparisjóðurinn efndi til meðal nemenda í grunnskólum Hafnarfjarðar. Sýningin verður opin til 22. desember. Styrkur úr Fræðslusjóði Jóns Þórarinssonar afhentur í Sverrissal er sýning á verkum nemenda í byggingarlist frá Arki- tektaskólanum í Ósló. Á haustönn hafa 16 nemendur á fjórða ári í bygg- ingarlist stundað nám_ sitt hér á Is- landi. Arkitektafélag íslands í sam- vinnu við Hafnarfjarðarbæ stóð að skipulagningu og framkvæmd en námið hefur farið fram í Hafnarfirði undir handleiðslu arkitektanna Vald- ísar Bjarnadóttur og Steve Christer. Á sýningunni eru teikningar af fjölbreyttum viðfangsefnum nem- enda. Sýningin verður opin til 22. desember. Sýningarsalir eru opnir alla daga nema þriðjudaga frá kl. 12-18. Jólakötturinn - ný verslun 15 ÞEKKTIR listamenn hafa opn- að verslun að Laugavegi 83, Jóla- köttinn. Þar gefur að líta handunna muni unna úr steinbítsroði, handmálað silki, málverk, litlar vatnslitamyndir, grafík, gler, keramik muni, útskorna trémuni, jólasveina, leður og skart- gripi. Verslunin verður opin fram að jól- um. VEITTUR var í fyrsta skipti námsstyrkur úr Fræðslusjóði Jóns Þórarinssonar siðastliðinn miðvikudag. Styrkinn, sem nemur 250 þúsund krónum, hlýtur Orn Almarsson, efnafræðingur, sem stundar nú doktorsnám í Bandaríkjunum. Örn er fæddur 5. febrúar 1967, sonur hjónanna Önnu Bjarkar Guð- björnsdóttur og Almars Grímssonar lyfsala. Hann lauk stúdentsprófi frá FJensborgarskólanum vorið 1985 "értir 3ja ára nám í skólanum, BS- prófi í efnafræði frá Háskóla íslands vorið 1988 og 4. árs verkefni í sömu grein áárinu 1989. Hann hefur síðan stundað framhaldsnám í lífrænni og lífefnafræðilegri efnafræði við Kali- forníuháskóla í Santa Barbara og lýkur væntanlega doktorsprófí þar á næsta ári. Fræðslusjóður Jóns Þórarinsson er stofnaður með erfðaskrá Önnu Jónsdóttur ljósmyndara í Hafnar- firði, sem lést 4. júlí 1987. Anna var dýttir Jóns Þórarinssonar skólastjóra og fyrri konu hans Lauru Pétursdótt- ur Hafstein. Jón var skólastjóri Flensborgarskólans frá upphafi hans sem gagnfræðaskóla 1882 til 1908, en tók þá við nýstofnuðu embætti fræðslumálastjóra sem hann gegndi til dauðadags 12. júní 1926. Anna Jónsdóttir fæddist 16. desember 1892 og fer því fyrsta styrkveitingin úr sjóðnum fram á 100 ára afmælis- degi hennar. Anna Jónsdóttir lærði ljósmynda- iðn og starfaði lengi við iðngrein sína í Hafnarfirði. Hún sýndi Flens- borgarskólanum alla tíð mikla rætk- arsemi og fylgdist af áhuga með starfsemi hans. Hún var ógift og barnlaus og ákvað löngu fyrir andlát sitt að láta skólann og nemendur hans njóta góðs af því sem hún kynni að láta eftir sig. I erfðaskrá hennar var ákvæði um að eigur hennar skyldu mynda sjóð er bæri nafn Jóns Þórarinssonar og væri varið „til að styrkja til framhaldsnáms efnilegt námsfólk sem lokið hefur fullnaðar- prófi við Flensborgarskólann í Hafn- arfirði." Nú í haust var gengið formlega frá stofnun sjóðsins og hefur skóla- nefnd Flensborgarskólans stjórn hans með höndum. Auglýst var eftir umsóknum um styrkinn fyrir nokkr- um vikum og bárust 18 umsóknir um hann, en síðan samþykkti skóla- nefndin einróma að styrkurinn skyldi að þessu sinni renna til Arnar Alm- arssonar. Gunnar Rafn Sigurbjöms- son bæjarritari, formaður skóla- nefndarinnar, afhendir styrkinn, en viðstaddir afhendinguna eru all- margir ættingjar Önnu Jónsdóttur, auk fjölskyldu Arnar, skólanefndar- manna og stjórnenda Flensborgar- skólans. Fjölsport opnar Nike búð Laugardaginn 28. nóvember sl. var ný sportvöruverslun opnuð á Lækjargötu 34c í Hafnarfirði. Það eru til sölu hinar þekktu Nike-vörur ásamt leikfímifatnaði frá Venice Beach og næringu fyrir íþróttafólk frá Multikraft. Eigendur eru Sigríður Karlsdóttir, Júlíus Karlsson og Guð- mundur Karlsson, íslandsmethafi í sleggjukasti, sem jafnframt verður starfskraftur verslunarinnar. RAOAUGí YSINGAR Útboð Húsnæðisnefnd Reykjavíkur óskar eftir til- boðum í eftirtalda verkþætti í 50 íbúðum við Laufengi í Grafarvogi: 1. Málningu. 2. Innihurðir. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu HNR, Suðurlandsbraut 30, gegn 5.000 kr. skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 5. janúar 1993 kl. 15.00 á skrifstofu HNR. Húsnæðisnefnd Reykjavíkur. ÝMISLEGT Fasteignir , íAlgarve í Portúgal kynntar á Hótel Holiday Inn sunnudaginn 20. desember nk. milli kl. 15.00 og 18.00. Hallgrímur Hallgrímsson, fasteignasali, sem búsettur er í Algarve í Portúgal, mun kynna valkosti í fasteignum í Algarve í máli og myndum. Viðtalspöntunum veitt móttaka í síma 93-11140 fram að kynningu. Verið velkomin á kynninguna. pJtrjpwS rfafrifr Meim en þú geturímyndað þér! Frá Borgarskipulagi Reykjavíkur Kirkjubygging Grensássóknar Hjá borgaryfirvöldum liggja fyrir tillögur að kirkjubyggingu við hlið núverandi safnaðar- heimilis Grensássóknar, en gert var ráð fyrir henni í samþykkt borgarráðs frá 26.2.1965. Teikningarnar eru til sýnis hjá Borgarskipu- lagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, 3. hæð, til 11. janúar nk. og í safnaðarheimili Grensás- sóknar við Háaleitisbraut. Greiðsluáskorun Sýslumaðurinn í Kópavogi skorar hér með á gjaldendur, sem ekki hafa staðið skil á gjöld- um, sem voru álögð 1990, 1991 og 1992 og féllu í gjalddaga fyrir 16. desember 1992 og eru til innheimtu hjá ofangreindum inn- heimtumanni, að greiða þau nú þegar og ekki síðar en innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar. Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, útsvar, hækkun á tekjuskatti og útsvari, eignaskatt- ur, sérstakur eignaskattur, slysatrygginga- gjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, lífeyris- tryggingagjald skv. 20. gr. I. nr. 67/1971, slysatryggingagjald atvinnurekenda skv. 36. gr. I. 67/1971, atvinnuleysistryggingagjald, kirkjugarðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, skattur af verslunar- og skrifstofu- húsnæði, launaskattur, bifreiðaskattur, slysatryggingagjald ökumanna, þungaskatt- ur skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagn- ing söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmt- anaskattur og miðagjald, virðisaukaskattur af skemmtunum, tryggingagjald af skips- höfnum ásamt skráningargjöldum, vitagjald, vinnueftirlitsgjald, vörugjald af innl. fram- leiðslu, aðflutningsgjöld og útflutningsgjöld, verðbætur á ógreiddan tekjuskatt og verð- bætur á ógreitt útsvar. Vanskilafé og álag skv. I. nr. 50/1988 um virðisaukaskatt fyrir júlí, ágúst, september og október sl. með eindaga 5. október og 5. desember, vanskilafé, álag og vexti skv. 29. gr. I. nr. 45/1987 um staðgreiðslu opin- berra gjalda, skv. 14. gr. I. nr. 90/1987 og 11. gr. laga nr. 113/1990 um tryggingagjald, fyrir júlí, ágúst, september, október og nóv- ember með eindaga 15. ágúst, 15. septem- ber, 15. október, 15. nóvember og 15. des- ember sl. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna að liðnum 15 dögum frá dagsetningu áskorun ar þessarar, samkvæmt heimild í 9. tl. 1. mgr. 1. gr. sbr. 8. gr. laga nr. 90/1989 um aðför. Kópavogi, 17. desember 1992. Sýslumaðurinn í Kópavogi. NY-UNG KFUM & KFUK Suðurhólum 35 Munið samveruna í kvöld kl. 20.30. Gunnar Jóhannes Gunnarsson fræðir okkur um hlutverk vitring- anna í jólaboðskapnum. Komum saman og lofum Guð á jólaföstunni. I.O.O.F. 12 = 17412188'/2 = I.O.O.F. 1 = 1741218872 =Jv. Tek að mér að vakta hús og skip, kvöld, nætur og helgar. Upplýsingar í síma 29232 og í vinnusíma 626641. Flans Hafsteinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.