Morgunblaðið - 18.12.1992, Síða 73
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1992
73
Höft eða hóf?
Frá Stefáni Arnar Þórissyni:
í hvert skipti sem ijúpnaveiðitíma-
bilið fer í hönd hefja ýmsir aðilar
• samfélaginu fjölmiðlaáróður gegn
veiðunum. Stundum er gagnrýni
þessi réttmæt, stundum ekki. Þó
kom það úr hörðustu átt þegar
Margeir Bjömsson, bóndi á Mæli-
fellsá, kom fram í fréttatíma Stöðv-
ar 28. nóvember sl. og hvatti til
algers veiðibanns. Að eigin sögn
hefur þessi maður skotið 26-
27.000 ijúpur á 44 árum og það
einvörðungu með gróðahyggju að
leiðarljósi. Og nú vill hann banna
alla ijúpnaveiði því skyndilega finn-
ur hann ekki fjöður á landi sínu!
Það er raunar ekki undarlegt því
hér hefur gegndarlaus ofveiði
greinilega átt sér stað. Og að sögn
Margeirs hefur sami háttur verið
hafður á hjá ýmsum sveitungum
hans. Að vonum finnst þeim Skag-
firðingum ekki lengur taka því að
veiða ijúpuna og þá er bara að
banna ijúpnaveiðar í 3 ár eða svo!
En hér er rétt að benda á að
hægt er að vemda ijúpuna með
fleiri en einum hætti. í máli sínu
vitnaði Margeir í örlög síldarstofna
við landið og veiðar á síld. Ekki
væri úr vegi að beita sömu aðferð-
um við ijúpnaveiðar og jafnvel allar
fuglaveiðar, nefnilega að koma á
kvótakerfi. Þannig mætti útdeila
hveijum veiðimanni ákveðnum
fjölda fugla, annaðhvort í hverri
ferð eða fyrir veiðitímabilið allt.
Sjálfur tel ég réttara að miðað sé
við hveija ferð því þá yrði auðveld-
ara að fyigjast með feng hvers og
eins. Síðan yrði veiðimönnum gert
að gera grein fyrir aflanum hjá lög-
regluyfírvöldum á því svæði sem
veitt væri. Hvorki ætti slíkt að vera
tímafrekt né flókið. T.d. mætti miða
við 10 ijúpur í hverri ferð. Einnig
mætti fæla menn frá svokallaðri
magnveiði með því að banna alla
sölu aflans. Þá yrði erfítt um vik
að markaðssetja ijúpnakjöt, auk
þess sem lögsókn lægi við magn-
veiði. Bannið eitt mundi þó nægja
í flestum tilvikum, enda flestar
ijúpnaskyttur löghlýðnir menn.
Svo sem kunnugt er hafa sumir
skotveiðimenn stundað ijúpnaveið-
ar með snjósleðum og fjórhjólum.
Sem betur fer er þessi hópur ekki
stór en þó hefur framferði þerira
nægt til að sverta skotveiðimenn í
vitund almennings. í slíkum for-
dómum felst þó lítil sanngirni, enda
sambærilegt við það að allir öku-
menn yrðu sviptir ökuleyfum vegna
aksturslags nokkurra ökuníðinga.
Hófið er best í ijúpnaveiði sem öðru,
þá geta allir vel við unað, ijúpna-
stofninn jafnt sem sportveiðimenn.
STEFÁN ARNAR ÞÓRISSON
Merkjateigi 8, Mosfellsbæ
LEIÐRÉTTIN G AR
Rangur fjöldi
barnabarna
í minningargrein í blaðinu í gær
um Sigrúnu Helgadóttur eftir Vil-
hjálm Ámason misritaðist að
barnaböm hinnar látnu séu fimm
talsins. Þau era sjö og leiðréttist
þetta hér með. Þá skal þess og
getið að María Hreinsdóttir,
tengdadóttir Sigrúnar, er mennta-
skólakennari.
Ekki stuttmynd
Ranghermt var í viðtali við Frið-
rik Erlingsson í dagskrárblaði
Morgunblaðsins, að kvikmyndin
„Stuttur frakki" væri stuttmynd.
Hún er í fullri lengd og leiðréttist
það hér með.
Er ekki erlendis
í dagskrárblaði Morgunblaðsins,
sem útkom í gær er á blaðsíðu 12C
skýrt frá því að Ragnheiður Erla
Bjamadóttir sé erlendis. Þetta er
rangt. Ragnheiður er á landinu og
er ekki á förum. Þetta leiðréttist
hér með.
Höfundur heitir
Hallfríður
Þau mistök urðu við vinnslu
greinar um Malcolm X í Morgun-
blaðinu 6. desember síðastliðinn
að höfundarnafn misritaðist. Höf-
undur heitir Hallfríður Þórarins-
dóttir, mannfræðingur, búsett í
New York. Hlutaðeigendur era
beðnir velvirðingar á þessum mis-
tökum.
VELVAKANDI
i.
TUMIER
TÝNDUR
HANN var í fóstri á Laugarás-
vegi þaðan sem hann hvarf 7.
desember en á heima í Hafnar-
fírði. Þrátt fyrir mikla leit og
tilkynningar á Rás 2 hefur ekk-
ert til hans spurst og er hans
sárt saknað. Tumi er grár, hvít-
ur á bringu og lopum. Hann
er ólarlaus en eymamerktur,
G-2060. Ef einhver hefur orðið
hans var eða hefur skotið yfir
hann skjólshúsi, vinsamlegast
látið vita í síma 39727, 625441
eða hringið í Kattholt í síma
672909. Fundarlaun.
SKAUTAR
NÝIR, ómerktir listskautar nr.
37 gleymdust í biðskýli við
Grensásveg. Finnandi er vin-
samlegast beðinn um að hringja
í síma 676889.
HEFUR STAÐIÐ
SIG BEST
Björgvin Kristbergsson:
MÉR finnst skrýtið að Sigrún
Huld Hrafnsdóttir hafi ekki
verið valin íþróttakona árisins,
hún setti mörg heimsmet í sum-
ar og hefur að mínu áliti staðið
sig best af íþróttamönnum okk-
ar.
STYRKLEIKA-
PRÓFANIR?
Magnús Finnbogason, Gijóta-
götu 12, Reykjavík:
ÉG VIL spyijast fyrir um hvort
styrkleikaprófanir hafi verið
gerðar á veggjum Hallgríms-
kirkju vegna hins mikla orgels
sem sett hefur verið þar upp.
Er öraggt að veggirnir þoli til
lengdar þessa öflugu hljóma
sem þetta mikla hljóðfæri gefur
frá sér?
KÁPA
BLÁ kápa með nælonfóðri, nr.
36, fannst í Vesturbænum fyrir
tveimur mánuðum. í kápunni
var klemma og hefur hún lík-
lega fokið af snúru. Upplýs-
ingar í síma 620730.
Persónuleg jólagjöf
Stjörnukort
Persónulýsing, framtíðarkort, samskiptakort
Afgreiðum kortin samdægurs.
Gunnlaugur Guðmundsson, Stjörnuspekistöðin,
Kjörgarði, Laugavegi 59, sími 91-10377.
EININGABREF 2
4GNARSKATTSFRJALS
Raunávöxtun
sl. 12 mánuði
KAUPÞING HF
Löggi/t verðbréfafyrirtœki
Kringlunni 5, sími 689080
í eigu Búttaðarbanka íslands og sparisjódanna
Auðugust
núlifandi Islendinga?
Guðrún Bjarnadóttir,
fyrrverandi fyrirsœta.
„Vinsœlar fyrirsœtur eru á gríðarlega
háum launum þegar best lcetur, þó að
vissulega séu miklar sveiflur í tekjum
þeirra. Kunnugir segja að þcer hlaupi
á milljónatugum, en til þess að gefa
lesendum einhverja hugmynd eru 50
milljón króna árstekjur ekki mjög
fjarri lagi, og það hefur lítið breyst
síðustu áratugi... Guðrún er afmörg-
um talin auðugust núlifandi íslend-
inga, enda á hún meðal annars glœsi-
íbúðir í mörgum afhelstu stórborgum
heimsins... “
Bókin íslenskir auðmenn segir á vand-
aðan og umfram allt skemmtilegan
hátt frá alls konar fólki með ólíkan
bakgrunn og úr margvíslegum atvinnu-
greinum. Bókin er í senn lærdómsrfk
fyrir bjartsýnt fólk og skemmtileg
aflestrar fyrir alla þá sem vilja fræðast
um það hvernig í ósköpunum er hægt
að verða ríkur á íslandi!
íslenskir
auðmenn
- verulega
auðug bók!
í 3. sœti á
metsölulista
Pressunnar
- góð bók
um jólin!