Morgunblaðið - 18.12.1992, Síða 74
74
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1992
HANDKNATTLEIKUR
Landsliðid valið
gegn Frökkum
Þorbergur Aðalsteinsson, lands-
liðsþjálfari í handknattleik,
hefur valið 17 leikmenn til að taka
þátt í leikjunum gegn Frökkum
milli jóla og nýárs. Markverðir
verða þrír; Guðmundur Hrafnkels-
son, Val, Bergsveinn Bergsveins-
son, FH og Sigmar Þröstur Óskars-
son, ÍBV. Aðrir leikmenn eru Gunn-
ar Beinteinsson og Guðjón Ámason
\ úr FH, Geir Sveinsson, Valdimar
Grímsson og Dagur Sigurðsson úr
Val, Gústaf Bjarnason, Einar Gunn-
róttabókiníár!
<á
ALMENNA
BÖKAFÉLAGIÐ HF
- góð bók um jólln!
ar Sigurðsson og Sigurður Sveins-
son frá Selfossi, Patrekur Jóhann-
esson og Magnús Sigurðsson úr
Stjörnunni, Gunnar Gunnarsson úr
Víkingi, Konráð Olavson frá Dort-
mund, Héðinn Gilsson frá Diisseld-
orf og Júlíus Jónasson frá Paris St
Germain.
Að sögn Þorbergs Aðalsteinsson-
ar landsliðsþjálfara kemur Sigurður
Bjamason ekki heim um hátíðirnar,
hann þarf að leika í Þýskalandi 29.
desember. Héðinn Gilsson verður
aðeins með í fyrsta leiknum, hann
þarf að fara aftur út til að leika
með Dusseldorf.
FOLK
■ SIGURÐUR Jónsson hefur
ákveðið að leika áfram með íslands-
meisturum ÍA í knattspymu næsta
sumar. Sögusagnir hafa verið á
^ kreiki þess efnis að hann færði sig
hugsanlega um set, en nú er sem
sagt ljóst að Sigurður fer hvergi.
■ ÓLAFUR Adolfsson, miðvörð-
urinn stóri og sterki, hefur skrifað
undir samning við IA um að leika
áfram með liðinu næsta sumar.
■ EYJÓLFUR Sverrisson sat
eftir heima er VfB Stuttgart fór í
æfíngaferð til eyjarinnar Mart-
inique í Karíbahafínu á mánudag-
inn. Hann fór þess í stað inn á
sjúkrahús til að láta fjarlæga plötu,
sem komið var fyrir þegar hann
Jdálkabrotnaði sl. vor.
■ SIGURÐUR Bjamason var
valinn í lið vikunnar hjá Deutsche
Handball Woche, eftir að Grossw-
allstadt gerði jafntefli, 24:24, við
Niederwiirzbach í þýsku úrvals-
deildinni í handbolta um síðustu
helgi. Sigurður gerði sjö mörk í
leiknum.
■ VERIÐ er að kanna möguleika
á að landslið Islands í knattspyrnu
mæti Irlandi og Wales um mán-
aðamótin febrúar/mars í æfínga-
leikjum.
■ MONICA Seles og Jim Couri-
er vom útnefnd bestu tennisleikar-
ar ársins 1992 af Alþjóða Tennis-
sambandinu (ITF) í gær.
H JIM Courier vann tvö
„Slemmumót" á árinu og komst í
undanúrslit á því þriðja. Hann vann
einnig þrjú önnur mót atvinnu-
manna og var í sigurliði Banda-
ríkjamanna í Davis-bikarnum.
■ SELES vann þrjú stórmót á
árinu, Opna franska, ástralska og
bandaríska annað árið í röð. Hún
vann einnig sjö önnur mót á árinu.
Franski lands-
lidsþjálfarinn
með fyrírlestur
Daniel Costantini, landsliðs-
þjálfari Frakklands í hand-
knattleik, mun verða með fýrir-
lestur 29. desember kl. 12 í
Iþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Þeir sem hafa hug á að hlusta
á fyrirlesturinn eru beðnir að
hafa samband við skrifstofu HSÍ
og tilkynna þátttöku.
Qeir Sveinsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, var í heimsliðinu ásamt Valdi-
mar Grímssyni, sem gerði 23:23 jafntefli við Þjóðveija í fyrrakvöld. Þeir mæta
Frökkum eftir rúma viku.
SUND / BANDARIKIN
Eygló Tómasdóttir stóð
sig vel ífjölmennu móti
Eygló Tómasdóttir úr Sundfé-
lagi Suðumesja hefur gert
það gott í Bandaríkjunum. Þessi
mHiHH 15 ára stúlka tók
Axel A. þátt í stóm sund-
Nikulásson móti „The AIl-
skrifar frá America Christ-
Bandaríkjunum mag Classic<. j
Brown-háskólanum í Rhode Is-
land-fylki um sl. helgi. Yfír þús-
und þátttakendur tóku þátt í
mótinu og keppti Eygló í þremur
greinum í flokki 17 ára og yngri.
Eygló varð þriðja af 50 kepp-
endum í 200 stiku bringusundi á
2:33,00 mín. Hún var 22. af 107
keppendum í 100 stiku skriðsundi
á 68,11 sek. og 14. af 88 keppend-
um í 200 stiku fjórsundi á 2:21,00
mín.
Eygló býr ásamt foreldrum sín-
um í bænum Newport í Rhode
Island, en æfír með félagi frá
Providence. Móðir hennar, Sólveig
Guðmundsdóttir, verður því að
aka henni 90 mín. leið til og frá
æfíngum á hveijum degi.
Handboltalands-
lidið meðdansleik
á Hótel íslandi
Landslið karla í handknattleik
heldur dansleik í kvöld á Hótel ís-
landi, og er hér um að ræða fjáröfl-
unarleið vegna heimsmeistara-
keppninnar í Svíþjóð í mars á næsta
ári. Miðaverð er 1.200 krónur, en
tvær hljómsveitir leika, Sálin hans
Jóns míns og Nýdönsk. Happdrætti
verður í kvöld, þar sem vinningur
er ferð á HM í Svíþjóð með Sam-
vinnuferðum Landsýn.
URSLIT
Körfuknattleikur
UMFT-UMFN 98:93
Iþróttahúsið Sauðárkróki, átta liða úrslit
bikarkeppninnar, miðvikud. 16. des.
Gangur leiksins: 6:5, 10:11, 23:20, 31:32,
39:39, 49:45, 54:52, 65:59, 78:63, 85:74,
94:79, 98:93.
Stig UMFT: Haraldur Leifsson 25, Valur
Ingimundarson 25, Chris Moore 18, Pétur
Vopni Sigurðsson 12, Páil Kolbeinsson 10,
Hinrik Gunnarsson 6, Karl Jónsson 2.
Stig UMFN: Rondey Robinson 23, Teitur
Örlygsson 23, Jóhannes Kristbjörnsson 17,
Gunnar Örlygsson 10, Rúnar Árnason 9,
Sturla Örlygsson 7, Ástþór Ingason 4.
Áhorfendur: 300.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Einar Þór
Skarphéðinsson. Leyfðu dálitið mikið en
voru samkvæmir sjálfum sér og komust
n^jög vel frá leiknum.
ÍR-UMFN 68:41
íþróttahús Seljaskóla, átta liða úrslit bikar-
keppni kvenna í körfuknattleik, miðviku-
daginn 16. desember.
Gangur leiksins: 13:10, 22:12, 31:14,
31:19,, 47:25, 49:32, 62:36, 68:41.
Stig ÍR: Linda Stefánsdóttir 26, María
Leifsdóttir 13, Hrönn Harðardóttir 12, Fríða
Torfadóttir 6, Guðrún Árnadóttir 4, Þóra
Gunnarsdóttir 4, Dagbjört Leifsdóttir 2,
Þrúður Svavarsdóttir 2.
Stig UMFN: Helga Friðriksdóttir 13, Am-
dís Sigurðardóttir 7, Ólöf Einarsdóttir 6,
Hulda Einarsdóttir 4, Auður Jónsdóttir 3,
Katrín Egilsdóttir 2, Lovísa Guðmundsdótt-
ir 2, Kristín Örlygsdóttir 2.
■Linda var best hjá ÍR, skoraði meðal
annars fjórar 3ja stiga körfur. María og
Hrönn voru einnig góðar í annars jöfnu liði.
Hjá Njarðvík stóð Helga sig best og stjóm-
aði leik liðsins mjög vel.
Hildigunnur Hilmarsdóttir
NBA-deildin
Leikir á miðvikudagskvöld:
Utah - Charlotte.............93: 91
Detroit - Atlanta............89: 88
Indiana - Boston............114: 91
Cleveland - Philadelphia....115: 97
Dallas - LA Lakers..........102: 95
Portland - Denver...........100: 99
Golden - LA Clippers.........116:114
■ eftir framlengingu
HJOLREIÐAR
Verðlaunahafar i kappleikjum fFHK tii íslandsmeistara 1992. Aftari röð frá vinstri: Orri
Gunnarsson, Þórarinn Þorleifsson, Páll Pálsson, Sighvatur Jónsson, Óskar Þorgilsson,
Marinó Siguijónsson, Einar Jóhannsson og Ingþór Hrafnkelsson. Fremri röð frá vinstri:
Gunnar Jóhannsson, Gunnar Sigurðsson, Sigurður Magnússon og Gylfi Jónsson.
íslandsmeistarar í hjól-
reiðum verðlaunaðir
Aóalfundur
Borðtennisdeildar KR verður haldinn í
KR-heimilinu mánudaginn 28. desember
1992 kl. 20.00.
Stjórnin.
íslenski fjallahjólaklúbbur-
inn stóð fyrir 10 fjallahjólamót-
um í ár. Er þetta annað starfs-
ár klúbbsins með keppnishald.
Þann 28. nóvember síðastlið-
inn var haldin uppskeruhátíð
klúbbsins. Voru þar veitt verð-
laun til þeirra er unnu tii heild-
arúrslita árið 1992. Úrslit móta
til íslandsmeistaratitils voru
sem hér segir:
Víðavangskeppni, 20-39 ára Stig
Einar Jóhannsson, Giant 73
Ingþór Hrafnkelsson, Mongoose 72
Marinó Sigurjónsson, Mongoose 65
Víðavangskeppni, 16-19 ára
Arnar Ásvaldsson, GT 70
Sigurgeir Hreggviðsson, Specialized 63
Þórarinn Þorleifsson, Specialised 51
yíðavangskeppn.i 13—15 ára
ÓskarÞorgilsson, Icefox 46
Sighvatur Jónsson, Mongoose 45
Orri Gunnarsson, Mongoose 34
Víðavangskeppni, 9-12 ára
Sigurður Magnússon, Muddy Fox 31
Gunnar Sigurðsson, Muddy Fox 29
Gylfi Jónsson, Muddy Fox 24
Brunkeppni, 13-39 ára
Sighvatur Jónsson, Mongoose 48
ÓskarÞorgilsson, Icefox 45
Ólafur Hreggviðsson, Trek 34
Klifurkeppni, 13-60 ára
Aðalsteinn Bjamason, Specialized
Einar Jóhannsson, Giant
Ingþór Hrafnkeisson, Mongoose
Torfæra 13-60 ára
Sighvatur Jónsson, Mongoose
Óskar Þorgilsson, Ieefox
Páll Pálsson, Bridgestone
Þrautakeppni, 9-12 ára
Einar Gunnarsson, Schwinn
Gunnar Sigurðsson, Muddy Fox
Gunnar Jóhannssobn, Muddy Fox
Þrautakeppni 13-60 ára
Páll Pálsson, Mongoose
Sighvatur Jónsson, Mongoose
Þórarinn Þorleifsson, Specialized
Haldin voru 4 víðavangBmót í Öskjuhlíð,
Elliðaárdal, Heiðmörk og Dalvík á mjög
misjöfnum slóðum þar sem vegalengdin var
20 til 30 km. Víðavangskeppnin er hraða-
keppni.
Þrautamót voru tvö og haldin við Öldus-
elsskóla og Iðnskólann. Svo eitthvað sé
nefnt var keppt í prfli yfir hindranir, upp
og niður stiga, „bunny hoppi“, þ.e.a.s. hlið-
arstökk, langstökk og hástökk. Reyndi þar
mikið á hæfni hjólreiðamanna.
Brunkeppnir vora haldnar f Úlfarsfelli
og Öskjuhlíð. Þar vinna þeir sem þora að
sleppa takinu af bremsunum og hjóla sem
hraðast niður í mót á torfænim slóða.
Klifurkeppni var haldin í Úlfarsfelli, þar
sem menn áttu að hjóla upp á sem skemmst-
um tíma.
Torfærukeppnin var haldin í malargryfju
í Elliðaárdal. Má likja henni við bílatorfæra-
keppni.
Næsta sumar stendur til að bjóða útlend-
ingum sem hingað koma á hjólum að taka
þátt í keppni. Ef þátttaka leyfir stendur
einnig til að hafa kvennaflokka.