Morgunblaðið - 12.01.1993, Síða 1
64 SIÐUR B
8. tbl. 81.árg. ___________________________________ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins
EINDÝPSTA LÆGÐ SEMSÖGUR FARA AF VELDUR ÓVEÐRIOG ÓFÆRÐ
*
1
rústum
Vig-fús Andrésson, bóndi á
Berjanesi undir Eyjafjöllum,
kannar rústirnar af fjárhúsi
sem gereyðilagðist í óveðrinu
skömmu fyrir miðnætti á
sunnudagskvöld. „Það er eins
og orðið hafi sprenging í hús-
inu,“ sagði Vigfús í samtali við
Morgunblaðið.
Húsið skalf
Raflínur heim að bænum fóru einn-
ig í sundur og var hiti af skornum
skammti en níu manns eru á staðn-
um, meðal þeirra sex mánaða barn.
Engar skepnur voru í fjárhúsinu
sem var ótryggt. Það er um 120
metra frá íbúðarhúsinu sem skalf
í verstu hrinunum þótt steinsteypt
sé. „Ég var satt að segja hræddur
um að einhver hross hefðu leitað
skjóls í fjárhúsinu því að ég skildi
að yfirlögðu ráði eftir op sem þau
hefðu getað komist inn um. En
skepnurnar virðast finna það á sér
hvenær hætta er á ferðurn".
Sjá fréttir af ófærð og óveðri
á bls. 2, 4, miðopnu, Akureyrar-
síðu, bls. 55 og baksíðu.
Bóndi
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
Stjórn Bildts berst við fjárlagahallann í Svíþjóð
Velferð og þróimar-
aðstoð skorin niður
Stokkhólmi. Reuter.
ANNE Wibble, fjármálaráðherra Svíþjóðar, lagði í gær fram fjárlaga-
frumvarp fyrir næsta ár og er kveðið á um lækkun opinberra út-
gjalda er nemur um tíu af hundraði eða 16,8 milljörðum króna (um
150 milljörðum ÍSK). Framvegis munu atvinnulausir ekki fá neinar
bætur fyrstu fimm dagana sem þeir eru án vinnu. Aðstoð við þróun-
arríki verður skorin niður um 10%. Þrátt fyrir þetta er gert ráð
fyrir halla er nemur rúmum 162 mil\jörðum (um 1.500 milljörðum
ISK).
Hallinn á yfirstandandi fjárlaga-
ári, sem lýkur 1. júlí, verður að lík-
indum rúmlega 198 milljarðar
sænskra króna og atvinnuleysi vex
hratt. „Stjórnin hefur samræmt
stefnu sína stefnu Evrópubanda-
lagsins á einu sviði; atvinnuleysið
er orðið jafn mikið og þar,“ sagði
Lisbeth Eklund, formaður sam-
bands opinberra embættismanna.
Ingvar Carlsson, leiðtogi stjórn-
arandstöðuflokks jafnaðarmanna,
sagði tillögur Wibble algerlega
ótækar. Athygli vakti þó að hvorki
hann né Ian Wachtmeister, formað-
ur Nýs lýðræðis, sem er hægra
megin við samsteypustjórn íhalds-
mannsins Carls Bildts, virtust úti-
loka samstarf við stjórnina um úr-
ræði til að bjarga efnahag landsins.
Nureyev kvaddur
Ballettdansarinn Rudolph Nur-
eyev, sem lést fyrir skömmu,
verður jarðsettur í París í dag.
A myndinni sést kona leggja
blómsveig að mynd dansarans.
Saddam
býður SÞ
byrginn
Bagdad. Reuter.
IRAKAR buðu Sameinuðu þjóðun-
um (SÞ) og Bandaríkjunum enn
byrginn í gær þegar um 150 írask-
ir verkamenn héldu inn í Kúveit
til að rífa fimm vöruhús.
Daginn áður höfðu 500 íraskir
verkamenn ráðist á vopnabyrgi í
Kúveit og tekið þaðan vopn, meðal
annars fimm eldflaugar, sein þeir
fluttu í flutningabílum til íraks.
Vopnabyrgin og vöruhúsin eru á
svæði sem heyrði undir írak fýrir
Persaflóastriðið 1991.
....---------
Einstætt afrek fransks siglingakappa óti á reginhafi
Saumaði saman eigin tungu
París. The Daily Tclegraph.
FRANSKI siglingakappinn Bertrand de Broc, er tekur þátt í kapp-
siglingu einstaklinga umhverfis jörðina, varð fyrir því óhappi úti
á reginhafi að segl losnaði og slóst í höfuð hans. Við höggið beit
de Broc sig svo illilega í tunguna að minnstu munaði að hún rifn-
aði af um tvo sentímetra frá tungubroddinum. Honum tókst að ná
sambandi við lækni í landi og með leiðbeiningum sem sendar voru
með telex-tæki tókst de Broc að sauma tungubroddinn fastan á ný.
Læknirinn, Jean-Yves Chauve, að nota venjuleg fjarskiptatæki
býr í frönsku hafnarborginni Les
Sables d’Olonne en ekki var skýrt
frá þvi hvar de Broc var, aðeins
að fjarlægðin hefði verið nær
14.000 sjómílur. Ekki var hægt
vegna of mikilla truflana.
Til þess að geta sem best sett
sig í spor siglingamannsins stóð
Chauve fyrir framan spegil um
leið og hann gaf ráð er jafnskjótt
voru send með telexinu. „Ég varð
að láta eins og ég stigi ölduna til
að sjá fyrir mér aðstæður í stormi,"
sagði læknirinn. „Auk sársaukans
hlyti að hafa blætt mikið, maður-
inn væri vafalaust mjög ringlaður
og hræddur. Þetta var verulegt
hreystiverk hjá honum, ég hef aldr-
ei lent í öðru eins.“
í aðalstöðvum siglingakeppn-
innar biðu menn milli vonar og
ótta en létti þegar skeytið kom frá
de Broc. „Allt í lagi, ég er búinn
að sauma hana saman. Nú þarf
ég eitthvað til að lina sársaukann,
annað augað hefur líka orðið fyrir
hnjaski. Þetta er sárt. Rambó.“
Hver þátttakandi í keppninni hefur
deyfilyf í vel búnum sjúkrakassan-
um enda búist við að siglingin
geti tekið fimm mánuði. Bannað
er að koma nokkurs staðar í höfn
á leiðinni eða þiggja beina hjálp;
aðstoð læknisins mun þó ekki vera
brot á keppnisreglum.
Milosevic
styður frið-
aráætlun
Genf, Dakar. Reuter.
SLOBODAN Milosevic, forseti
Serbíu, hvatti í gær Serba, Króata
og múslima í Bosníu til að fallast
á friðaráætlun sem samninga-
menn SÞ og Evrópubandalagsins
hafa beitt sér fyrir á friðarráð-
stefnu í Genf.
Bosníu-Serbar krefjast enn sjálf-
stæðs ríkis sér til handa.
Hamid Algabid, framkvæmda-
stjóri samtaka múslimaríkja (OIC),
hvatti til þess í gær að SÞ beittu
hervaldi til að binda enda á árásir
Serba á múslima í Bosníu.