Morgunblaðið - 12.01.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.01.1993, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1993 18 Sjálfstæði og fullveldi Opið bréf til utanríkisráðherra o g annarra íslendinga frá Tryggva Gíslasyni Gamli vinur og starfsbróðir. Þú hefur ekki farið varhluta af því að kalt er á toppnum. Það hafa aðrir leiðtogar einnig mátt reyna. Þrátt fyrir svipmikla og styrka stjórn þína á utanríkismálum hefur þú iðulega orðið fyrir ómaklegum og ósmekklegum árásum manna. Sumir státa af því að vera hrein- skilnir - en sú hreinskilni er iðulega mest í ætt við dónaskap, að því er mér finnst. Því miður eru þið þing- menn þar engir eftirbátar - en hver hittir sjálfan sig fyrir að lok- um. Mér hefur sem sagt oft runnið til rifja að heyra um þig ómaklegt níð, eins og ég hef raunar sagt við big stundum áður. Nú rennur mér þó meir til rifja meðferð þín og skoðanabræðra þinna á því máli sem mest er allra mála sem fyrir Alþingi hafa komið í samanlagðri sögu lýðveldisins - að ég segi ekki „Enþegarþú-og skoðanabræður þínir - bera það enn á borð að ekki sé um fullveldisaf- sal að ræða við aðild að Evrópska efnahags- svæðinu get ég ekki annað en sent þér þetta breve scriptum og látið í mér heyra.“ í sögu íslands sem fullvalda ríkis. Vel kann að vera að dvergþjóð í verstöð norður á hjara veraldar, sem lengst af sögu sinnar hefur verið öld á eftir öðrum þjóðum í Evrópu, eigi ekki annarra kosta völ en gerast aðili að EES. Aðild getur orðið okkur til hagsbóta, bæði efna- hagslega og menningarlega, því að enginn er eyland og auðvitað vérð- um við að vera menn fyrir okkar hatt og standa öðrum þjóðum snún- ing. Það hefur iðulega tekist - þótt stundum hafi dansinn við útlenda verið krappur. Vel kann enn að vera að lýðræði geti gengið of langt, eins og aðrar mannasetningar, og engin ástæða sé að hleypa alþýðu manna að Iqör- borðinu um miðjan vetur að eyði- leggja gott starf þitt fyrir þekking- arleysi. Margir þingmenn hanga líka á því eins og hundar á roði að á íslandi sé fulltrúalýðveldi og þeir geti einir tekið afstöðu óstuddir og þurfi hvorki að spyija Pétur né Pál. Ég veit það er þingmönnum erfítt að taka skynsamlega afstöðu í þessu máli, svo margslungið sem það er, enda hefur það reynst okk- ur kjósendum erfítt líka. En þegar þú - og skoðanabræð- ur þínir - bera það enn á borð að ekki sé um fullveldisafsal að ræða við aðild að Evrópska efnahags- svæðinu get ég ekki annað en sent þér þetta breve scriptum og látið í Tryggvi Gislason mér heyra. Jafnvel ráðgjafar þínir §órir, sem þú skipaðir að láta í ljós álit sitt, telja að um fullveldisafsal sé að ræða og þrír af fremstu fræði- mönnum íslendinga á sviði stjóm- lagaréttar: dr. Lúðvík Ingvarsson, prófessor emeritus, Björn Þ. Guð- mundsson prófessor og dr. Guð- mundur Aifreðsson - hafa allir lýst því yfír í fræðilegum ritgerðum að um sé að ræða fullveldisafsal. Flest- ir fræðimenn Dana eru sama sinnis svo og fræðimenn annarra Norður- landa á sviði stjómlagaréttar að ekki sé talað um embættismenn Evrópubandalagsins. Þeir ganga ekki að þessu gruflandi. Með aðild að EES halda íslend- ingar pólitísku sjálfstæði, ef þeir vilja, enda þótt við missum hluta af stjómarfarslegu fullveldi. Meira að segja með aðild aðEvrópubanda- laginu, eins og það er nú, höldum við pólitísku sjálfstæði. Pólitískt sjálfstæði er nefnilega annað en stjómarfarslegt fullveldi eins og þú og skoðanabræður þínir mega ekki ganga gruflandi að. Hvað sem líður pólitískri refskák og mismunandi skoðunum vil ég biðja þig hugleiða þetta. Sá sem ekki gerir sér grein fyrir þessu gerir sér ekki grein fyr- ir pólitískum staðreyndum sam- tímans - eða hann er að ljúga að sjálfum sér eða öðmm - og að ljúga að öðmm er ljótur vani en sjálfum sér hvers manns bani - og gjarna vildi ég njóta hæfileika þinna og einurðar í íslenskum stjómmálum enn um sinn. Akureyri, 8da janúar 1993. Með kveðju að norðan. Höfundur er skólameistari. 2 Tveggja daga námskeið um íjármál einstaklinga Námskeiðin eru haldin í VÍB-stofunni, Ármúla 13a, 1. hæð. 6.9ÖÖ,~kr. Námsgögn innifalin Á síðasta hausti voru haldin 15 námskeið. í janúar og febrúar eru ennþá nokkur sæti laus. Dagsetningar námskeiðanna: 19. og 20. janúar kl. 20-23:00 25. og 27. janúar kl. 20-23:00 26. og 28. janúar kl. 20-23:00 2. og 4. febrúar kl. 20-23:00 Skráning þátttakenda, Auður og Hildur, í afgreiðslu VÍB og í síma 91 - 68 15 30. - Ég hef unnvb í bráöum 20 ár hjá sama Jyrirtæki, ég hef ágæt laun en Jinnst samt að ég eigi ekki mikid. Hvernigget ég best aukið eignimar og tryggt þannig öryggi og ajkomu fjölskyldunnar? I Vc ema miKinar aoso dla í námskeiðinu er lögð áhersla á: Markmið ífjármálum, bæði til lengri og skemmri tíma, þar sem reynt er að samræma drauma og veruleikann; reglulega uþþsetningu á eignum og skuldum með tengingu við rekstur heimilis; markvissa eignastýringu þarsem veginersaman áhætta og ávöxtun; reglubundinn samanburð á árangri og settum markmiðum. FJÁRMÁLANÁMSKEIÐ! VÍB er einkum œtlað þad hlutverk að leiðbeina þátttakandanum við að njta tekjur sínar sém best og byggja upþ sparifé og eignir. Reynt hefur veríð að gera námskeiðið þannig úr garði að þátllahandinn geti sjálfur rdðið fram úr fjármálum sínum og skijmlagt þau til að ná sem bestum árangri. Tvcggja daga kennsla, þrjár klukku- stundir hvorn dag. Fjármálahandbók VÍB. Handbókin er 228 blaðsíður og hefur að geyma 14 eyðublöð.til útfýllingar. Fjármálahandbók VÍB er skipc í 16 kafla, sem hafa að geyma 83 töflur og línurit. Á námskeiðinu er þátttakandanum leiðbeint hvemig fylla eigi út eyðu- blöðln, sem nauðsynleg eru til að ná árangri við uppbyggingu cigna. mttvm FJARMALA- NAMSKEIÐ VÍB EinfiM uppskrift að skiþukgti up/wggiitgu eigna VÍB Einstakt námskeið Jyrir einstaklinga sem vilja hnitmiðaða leiðsögn xnð hámörkun eigna sinna, á hvaða aldri sem er. Leiðbeinendur eru Sigurður B. Stefánsson, Vilbprg Lofts, Margrét Sveinsdöttir og Asgeir Þórðarson. VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sfmi 68 15 30. Myndsendir 68 15 26. Námskeið í skyndihjálp Reykjavíkurdeild RKÍ gengst fyrir námskeið í skyndihjálp sem hefst þriðjudaginn 12. janúar og stendur fjögur kvöld. Kennt verður frá kl. 20-23. Kennslu- dagar verða 12., 13., 14. og 18. janúar. Námskeiðið telst vera 16 kennslustundir. Þátttaka er öllum heimil 15 ára og eldri. Námskeiðið verður í Fákafeni 11, 2. hæð. Nám- skeiðsgjald er 4.000 kr., skuldlausir félagar í RKÍ fá 50% afslátt. Einn- ig fá nemendur í framhaldsskólum 50% afslátt gegn framvísun á gildu skólaskírteini. Að námskeiðinu loknu fá nem- endur skírteini sem hægt er að fá metið í ýmsum framhaldsskólum. ( úr fréttatilkynningu) Atriði úr myndinni Lífvörðurínn. Metaðsókn að Lífverðinum MYNDIN Lífvörðurinn eða „The Bodyguard" sem nú er sýnd I Sambíóunum hefur náð nær ein- stæðum árangri í aðsókn. Að aflokinni fyrstu sýningarviku hafa 16.450 manns séð myndina. Þetta hefur ekki gerst síðan metaðsóknarmyndin „Lethal Weapon 3“ var sýnd í Sambíóun- um fyrír nokkru. Einnig er þetta töluvert betra gengi en „Pretty Woman“ naut á sínum tíma. Velgengni myndarinnar er ekki bundin við ísland því að miðar hafa selst fyrir yfír 100 milljónir doliara í Bandaríkjunum og þar sém hún hefur verið frumsýnd í Evrópu hef- ur hún farið beint í efsta sæti. Má þar nefna Frakkland sem dæmi en „The Bodyguard" hefur setið á toppnum frá því hún var frumsýnd þar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.