Morgunblaðið - 12.01.1993, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ VOSKQTI AIVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1993
ÆTTFRÆÐINAMSKEID
Ný námskeið í ættfræði hefjast bráðlega og standa
5-6 vikur (ein mæting í viku, 20-24 kennslustund-
ir). Veruleg verðlækkun í öllum námsflokkum. Nem-
endur fá kennslu, þjálfun og leiðsögn í ættarleit og
uppsetningu á ættarskrám og afnot af heimilda-
safni um þorra íslendinga á liðnum öldum. Einnig
verða framhaldsnámskeið fyrir lengra komna og
helgarnámskeið úti á landi. Leiðbeinandi: Jón Valur
Jensson. Upplýsingar og innritun í símum 27100
og 22275 kl. 8.30-17.30.
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
Ættfræðiþjónustan,
sími 27100.
TIME MANAGER 1993
Stjórnunarfélags íslands
4. og 5. febrúar og
25. og 26. febrúar.
Innritun hafin.
Leiðbeinandi:
Haukur Haraldsson
TMI leiðbeinandi
Á ÍSLENSKU
TÍMASTJÓRNUN,
MARKMIÐASETNING,
FORGANGSVERKEFNI,
MANNLEG SAMSKIPTI
OG AUKNAR HUGMYNDIR.
Haukur Haraldsson
Upplýsingar í síma 621066
Stjórnunarfélag
íslands
ATHYGLISVERÐASTA AUGLÝSING ÁRSINS 1992
LUMAR ÞÚ Á AUGLÝSINGU?
íslenski markaðsklúbburinn ÍMARK í
samráði við Samband íslenskra
auglýsingastofa efnir til samkeppni
um athyglisverðustu auglýsingu
ársins 1992.
Skilyrði fyrir þátttöku er að
auglýsingin sé gerð af íslenskum
aðila og hafi birst fyrst á árinu 1992.
Tilgangur samkeppninnar er að vekja
almenna athygli á vel gerðum
auglýsingum og auglýsingaefni og
veita aðstandendum þeirra
verðskuldaða viðurkenningu.
Veitt verða verðlaun fyrir bestu
auglýsinguna í eftirtöldum flokkum:
Kvikmyndaðar auglýsingar
Útvarpsauglýsingar
Dagblaðaauglýsingar
Tímaritaauglýsingar
Auglýsingaherferðir
Umhverfisgrafík
Útsendiefni
Vöru- og firmamerki
Skilafrestur rennur út á hádegi
15. janúar 1993
Þátttökureglur og eyðublöð liggja
frammi á skrifstofu SÍA, frá
kl. 09:00-12:00, Háteigsvegi 3,
105 Reykjavík, sími 91-629588
Trésmíðafélag Islands
HJÓLASKÓFLA -■ Nýlega afhenti Brimborg hf. nýja 23
tonna hjólaskóflu af gerðinni Volvo BM L160 til Vatnsskarðs hf. Hér
er um að ræða eina fullkomnustu hjólaskóflu landsins, segir í frétt
frá Brimborg. Hún er m.a. búin ljöðrunarútbúnaði á skólfugálga og
vog til að vigta nákvæmlega það efni sem verið er að moka. Vélin
er einnig með sjálfskiptingu og slýripinna þannig að hún er mjög
þægileg í notkun. Vatnsskarð hf. annast m.a. efnissölu sunnan við
Hafnarfjörð við Krýsuvíkurveg og hefur notað Volvo BM hjólaskóflur
um árabil. Á myndinni sem tekin var við afhendingu vélarinnar eru
f.v. Bjami Arnarson, sölumaður hjá Brimborg, Alexander Ólafsson,
eigandi Vatnsskarðs hf. og Ólafur Rögnvaldsson, umsjónarmaður
vélarinnar.
Eina vopnið er
breið samstaða
FÉLAGSFUNDUR Trésmíðafélags Reykjavíkur, haldinn 7. janúar
1993, mótmælir harðlega efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar og
Iýsir fullri ábyrgð á hendur henni vegna þess alvarlega ástands sem
þær munu skapa á alþýðuheimilum í landinu. Með efnahagsaðgerðum
síðustu vikna hefur ríkisstjórnin hafnað kröfu verkalýðshreyfingarinn-
ar um tekjujöfnun í þjóðfélaginu og raunhæfum aðgerðum í atvinnu-
málum, segir í fréttatilkyninngu frá félaginu.
„í kjölfar efnahagsaðgerða ríkis-
stjórnar hafa hækkanir dunið yfir á
öllum sviðum. Vextir eru hækkaðir,
niðurgreiðslur em skertar á landbún-
aðarvömm, bensínverð hækkar,
byggingarkostnaður hækkar með
skertum endurgreiðslum á virðis-
aukaskatti. Þessar verðhækkanir
koma í kjölfar á verðhækkunum
vegna gengisfeliingar, skerðingum á
bama- og vaxtabótum, lækkun per-
sónuafsláttar og hækkunar skatt-
hlutfalls í tekjuskatti.
Dregið hefur verið úr fjárveiting-
um til velferðarmála. Lögð hafa ver-
ið þjónustugjöld á opinbera þjónustu
án tillits til greiðslugetu þeirra sem
á henni þurfa að halda.
Þrátt fyrir loforð ríkisstjórnar um
fjárveitingar til atvinnuuppbygging-
ar, hafa engar raunhæfar lausnir
komið fram í atvinnumálum þjóð-
arinnar. Algjört upplausnarástand
hefur ríkt við gerð fjárlaga. Fjárveit-
ingar til atvinnuskapandi verkefna
hafa verið nánast þurrkaðir út.
Afleiðingar stjórnarstefnunnar er
meira atvinnuleysi en þekkst hefur
hér á landi í marga áratugi og allt
bendir til að það muni aukast veru-
lega á næstu mánuðum. Atvinnu-
leysi ungs fólks er orðið ógnvæn-
legt, óréttmæt höfnun er þyngra áfall
en margir geta borið. Fólk sem aldr-
ei hefur fallið verk úr hendi stendur
ráðþrota. íslenskt þjóðfélag þolir
ekki stórfellt atvinnuleysi, skuldir
hlaðast upp og vonin um úrbætur
er eina eign margra ijölskyldna.
I síðustu kjarasamningum hefur
verkalýðshreyfingin lagt höfuð-
áherslu á litla verðbólgu, stöðugt
verðlag og lækkandi vexti. Fj'öldi ís-
lenskra fyrirtækja hafa ekki nýtt sér
þau hagstæðu efnahagslegu skilyrði
sem sköpuðust með lítilli verðbólgu
og stöðugleika.
Skattar hafa verið fluttir frá at-
vinnuvegunum yfir á herðar launa-
fólks. Það hefur verið látið bera
auknar byrðar bótalaust.
Eina vopn verkalýðshreyfingar-
innar nú er breið samstaða og sem
víðtækast samráð gegn atvinnuleys-
isvofunni sem fylgir ríkisstjóminni
og úrræðaleysi atvinnurekenda.
Knýja verður fram breytta stjórnar-
stefnu og leita allra ráða til að
tryggja fólki bætt kjör og fulla at-
vinnu.“
IKON —* hefur gefið út nýja gerð fárhagsbókhalds, Omni-Bók
7, sem er viðbót við Omni-Bók 5. Að sögn Ólafs Garðarsonar aðaleig-
anda fyrirtækisis er einn af helstu kostum kerfisins að það er hægt
að keyra bæði á Macintosh og PC tölvum. „Omni-Bók 7 er að öllum
líkindum eitt fyrsta íslenska bókhaldskerfið sem búið er þessum kosti.
Kerfið er jafnframt ljölnotenda kerfi og munu bæði Macintosh og
PC-tölvur geta notað sömu gagnaskrána innan tíðar eftir að samhæf-
ingu á íslenskum stöfum er lokið,“ sagði Ólafur. íkon hf. var stofnað
um áramótin 1987/1988 og nú nota yfír 120 fyrirtæki launa, við-
skipta- og bókhaldshugbúnað frá fyrirtækinu. Myndin var tekin við
afhendingu fyrsta kerfísins til PR búðarinnar hf. Til vinstri er Rögn-
valdur Pálmason framkvæmdastjóri PR búðarinnar og til hægri er
Ólafur Garðarsson.