Morgunblaðið - 26.02.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1993
7
Héraðsdómur
Vesturlands
Ákærður fyr-
ir kynferðis-
afbrot gegn
stúlkubami
ÞINGFEST hefur verið mál
fyrir héraðsdómi Vestur-
lands gegn 65 ára gömlum
manni sem ákærður er fyrir
kynferðisafbrot gegn 5 ára
gömlu stúlkubarni. Meint
brot áttu sér stað á tímabil-
inu 1987 til 1990 á Akranesi.
Kæra var lögð fram í málinu
í framhaldi af sjónvarpsþætti
um kynferðisafbrot gegn böm-
um seint á síðasta ári. Sam-
kvæmt upplýsingum frá hér-
aðsdómi mun maðurinn hafa
verið fyrrum vinnuveitandi
móður bamsins er það var á
aldrinum 5 til 8 ára og áreitt
það kynferðislega á því aldurs-
bili.
Annar úr
þjófaflokki
í gæslu
TÆPLEGA tvítugur piltur hefur
verið úrskurðaður i gæsluvarð-
hald til 8. mars í tengslum við
rannsókn á málum þjófaflokks.
Meintur höfuðpaur flokksins, 17
ára piltur sem talinn er hafa beitt
fyrir sig drengjum um og jafnvel
undir fermingu, var handtekinn um
helgina og þá úrskurðaður í gæslu-
varðhald í 14 daga.
Hann og sá sem nú hefur verið
settur í gæsluvarðhald eru grunaðir
um að hafa staðið saman að afbrot-
um.
-----» ♦ ♦---
Vegarkafli í
Bröttubrekku
boðinn út
TÓLF verktakar buðu í lagningu
eins kílómetra vegarkafla sem
liggur um Suðurá á Bröttu-
brekku. Lægsta tilboð átti Rækt-
unarsamband Flóa og Skeiða,
10,8 milljónir. Er það 64% af
kostnaðaráætlun sem hljóðaði
upp á 16,9 milljónir kr.
Verktaki á að skila þessum veg-
arkafla af sér fyrir 10. ágúst næst-
komandi. Tilboðin tólf voru af ýms-
um fjárhæðum, flest undir kostnað-
aráætlun en nokkur yfir, það hæsta
var tæpar 19,5 milljónir kr.
----» ♦ ♦----
Þijár kind-
ur komu úr
Vogaheiði
Vogym.
ÞRJÁR kindur fundust við
Snorrastaðatjarnir syðst í Voga-
heiði í síðustu viku. Það var
Theodór Guðlaugsson, fyrrum
fjárbóndi í Njarðvík, sem sá til
kindanna og rak þær í rétt við
Vogastapa.
Kindurnar reyndust vera lamb-
hrútur frá Sandgerði og ær með
lambi en eigandi þeirra frá Grinda-
vík.
Kindurnar þykja furðu vel á sig
komnar eftir að hafa gengið úti í
vetur en veturinn hefur verið ill-
viðrasamur og snjóþungur.
- E.G.
Mjög hefur dregið úr at-
vinnuleysi í Njarðvíkurbæ
VEL hefur gengið að ráða í stöður lyá ígulkeraverksmiðjunni í
Njarðvík, að sögn Hjördísar Árnadóttur félagsmálastjóra. Þar eru
24 manns í vinnu. Hún segir að verksmiðjan hafi virkað sem vít-
amínsprauta í atvinnulífið. Mikið hefur dregið úr atvinnuleysi í
Njarðvík, en karlmenn eru í fyrsta sinn í a.m.k. sjö ár fleiri á
atvinnuleysisskrá en konur.
Forsvarsmenn verksmiðjunnar
gera ráð fýrir að geta fjölgað enn
starfsmönnum með auknum afla,
að sögn Hjördísar. Hún sagði að
153 hefðu verið á atvinnuleysis-
skrá fyrir tveimur vikum en nú
væru 95 manns á skrá. 58 manns
hefðu því farið af atvinnuleysis-
skrá.
Færri konur atvinnulausar
Hjördís sagði að hér væri eink-
um um að ræða áhrif vegna loðu-
veiða og -vinnslu og starfsemi íg-
ulkeraverksmiðjunnar. Hins vegar
mætti búast við að eitthvað bætt-
ist á atvinnuleysisskrá þegar
loðnuvertíðinni lyki.
„Það hafa verið fleiri karlar á
skrá en konur í u.þ.b. einn mán-
uð, en það hefur ekki gerst áður
í a.m.k. sjö ár. ígulkeraverksmiðj-
an réði aðallega konur til starfa.
Nú eru 54 karlar á atvinnuleysis-
skrá en 41 kona,“ sagði Hjördís.
Fylgstu meb á föstudögum!
Daglegt líf, feröalög og bílar kemur út á föstudögum. Þetta er upplýsandi og skemmtilegt
blað sem fjallar um allar hliöar mannlífsins. Eins og nafnið bendir til er blaðinu ekkert
mannlegt óviðkomandi. Fróðlegar greinar um fólk á öllum aldri, áhugamál þess, mál sem
varða fjölskylduna, vinina, skemmtileg mál eða vandamál em til umfjöllunar auk greina um
allt sem snertir ferðalög og bíla. Famar em troðnar slóðir sem ótroðnar í greinum um ferðalög
og skoðaðir em bílar af öllum stærðum og gerðum.
- kjarni málsins!