Morgunblaðið - 26.02.1993, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 26.02.1993, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1993 Davíð Oddsson forsætisráðherra Viðræður um þyrlu- kaup eftír fáar vikur Ingi Bjöni Albertsson Daviö Oddsson ÞYRLUMÁLIÐ, eða nánar tiltekið lagafrumvarp Inga Björns AI- bertssonar (S- Rv) um þyrhikaup, var til 2. umræðu í gær. Davið Oddsson forsætisráðherra taldi þetta frumvarp vera óþarfa og gailaða lagasmíð. Það væri Ijóst að innan örfárra vikna hæfust viðræður á grundvelli þingsályktunar Aiþingis frá 12. mars 1991. Stjórnarandstæðingar og Ingi Björn Albertsson telja að þetta frum- 'varp hafi knúið rOdsstjórnina tQ aðgerða í þessu málL Frumvarpið sem var til 2. um- ræðu i gær gerir ráð fyrir að: „1. Ríkisstjómin skal á árinu 1993 gera samning við framleiðendur eða seljendur um kaup á björgun- arþyriu fyrir Landhelgisgæsluna. 2. Fjármálaráðherra er heimilt fyr- ir hönd ríkissjóðs að taka lán á árinu 1993 að Qárhæð allt að 150 milljónum kr. eða jafnvirði þeirra upphæðar í eriendri mynt.“ Ifyrsti flutningsmaður frum- varpsins er Ingi Bjöm Albertsson (S-Rv) en meðflutningsmenn era: Steingrímur Hermannsson (F-Rn), 'ÓIafur Ragnar Grímsson (Ab-Rn), Kristín Astgeirsdóttir (SK-Rv), Guðmimdur Hallvarðsson (S-Rv), Guðrún Helgadóttir (Ab-Rv) og Anna Ólafsdóttir Bjömsson (SK- Rn). Frumvarpið var lagt fram 13. október í fyrra og afgreitt til alls- heijamefndar 12. desember. Fyrri hluta janúarmánaðar skilaði alls- herjamefnd nefndarálitum. Það vakti eftirtekt að nefiidin klofnaði í sínum álitum ekki eftir hefð- bundnu mynstri stuðningsflokka stjómar og stjómarandstöðu. Meirihluti allsheijamefndar var í þessu máli skipaður fulltrúum aiira stjómarandstöðuflokkanna og þar að auki fyrsta flutnmgsmanni, Inga Bimi Albertssyni, og hans flokksbróður í Sjálfetæðisflokki, Eyjólfi Konráði Jónssyni (S-Rv). Meirhlutinn nefndarinnar mælti með samþykkt frumvarpsins. Minnihluti nefndarinnar hins- vegar er skípaður af Sígbimi Gunnarssyni (A-Ne) varaformanni nefndarinnar og fulltrúum Sjálf- stæðisflokksins, Bimi Bjamasyni (S-Rv) og Sólveigu Pétursdóttur (S-Rv). Minnihluti nefndarinnar lagði til að frumvarpinu yrði vísað til ríkisstjómarinnar með tilvísan tfl þess að unnið væri að þessu máli, m.a. væra kannaðir mögu- leikar á kaupum á þyriu sömu gerðar og vamariiðið notaði og hvort og hvemig mætti haga sam- starfi og samnýtingu. Það var einn- ig bent á að Sigurður Líndal laga- prófessor teldi gildi þessarar laga- setningar takmarkað ef nokkuð vegna þess að einhver einn aðili gæti ekki skyldað annan aðila til að ganga til samninga. verið lögð í það að skoða þetta mál af hálfu ríkisstjómarinnar. Hún tók skýrt fram að gildi pen- ingaviðmiðana væri lítið þegar um væri að ræða tæki til björgunar mannslífa. En það yrði að vanda þetta mál og meta valkosti. Þyria af sömu gerð og vamariiðið notaði myndi að öllum líkindum kosta um 600 miUjónir ef hún væri keypt í gegnum útflutningsmiðstöð Bandaríkjahers, annars 800 miUj- ónir. Ný þyria af gerðinni Super Piuna myndi kosta um 800 miUjón- ir. Fleiri tölur hefðu verið nefndar, allt upp í 1.000 miHjónir þegar varahlutir og þjálfun væri meðtal- ið, og þá væri rekstrarkostnaður eflir. Talmaður minnihluta var þess fullviss að undirbúningi og athug- un sérfræðinga ríkisstjómarinnar yrði lokið innan skamms. Hún minnti einnig á það að allar heim- ildir tU að taka ákvörðun um þyriu- kaup væru fyrir hendi samanber heimfld í fjáriögum til að ganga tfl samninga um kaup á björgunar- þyriu fyrir Landhelgisgæslu ís- lands og taka tfl þess nauðsynleg Ián. „Kanadekur" Stjómarandstæðingar töluðu fjölmargir og lögðu áherslu á að ríkisstjóminni hefði verið heimflt að ganga frá þyriukaupum í tæp tvö ár. Nú væri þoUnmasðin þrotin og þess vegna hefði þetta fram- varp verið lagt fram tfl þess að ríkisstjórninni væri skylduð sam- kvæmt lögum að framfylgja vilja Alþingis frá því í mars 1991. Ingi Bjöm Albertsson (S-Rv), fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, staðfesti þennan skilning stjómar- andstæðinga fyrir sína hönd. Ingi Bjöm lét nokkur orð faUa um sam- starf við vamariiðið um þessi efni m.a; „Þetta kanadekur þama suð- urfrá er gjörsamlega út í hött“ Ingi Bjöm taldi að fyrmeftit Jcanadekur" gengi ekki upp. Hann talaði um metnaðarleysi og skort Á stolti. Að „aronskan" svifi svo um þingsali að með ólíkindum væri. Ami Johnsen (S-Sl) taldi umræðuna um kaup á björgunar- þyriunni vera í sérkennilegum far- vegi. Þegar farið væri út í „per- sónulegt níð og svívirðingar“ úr ræðustóU og svívirðingar um starf bandaríkskra þyriuflugmanna. Hann talaði um „spenntar taugar“ fyrra ræðumanns og menn ættu að „sjá sóma sinni i því að keyra ekki úr hófi fram og fara offari“. Eyjólfur Konráð Jónsson (S-Rv) þóttist hafa heyrt á sínum ferii sem sjálfetæðismaður verri brigsl en „kanadekur“ og þótti ekki alvar- legt. Honum virtist það verra brot- ið að ekki hefði enn verið keypt þyrla; „allt svikið“. Skaðleg lagasmíð Ræður Inga Bjöms Albertssonar og Ama Johnsens urðu þingmönn- um úr Uði stjómarandstæðinga tfl- efni nokkurra orðræðna. Var Ingi Bjöm mjög Iofaður en Ámi John- sen átalinn að sama skapL Davíð Oddsson forsætisráðherra gaf hins vegar ræðu Inga Bjöms það einkunn að hún væri „nánast ekki svara verð“. Forsætisráðherra taldi túna þingsins ekki vel varið til þess að ræða „þetta frumvarp, þessa lagasmíð“. Hann taldi að þetta frumvarp skaðaði framgang þyriukaupa ef eitthvað væri. Ráð- herra sagði að samstaða væri um að veita allar heimildir til kaupa þyriu. Hann visaði því á bug að máiið hefði verið tafið með athug- unum og könnunum. Það væri mikið að gerast um þessar mundir á þyriumörkuðunum. Þeir sérfræð- ingar sem dómsmálaráðherra hefði skipað, teldu sig þurfa örfáar vikur til að fara yfir síðustu upplýs- ingar. Það væri því ekkert því til fyrirstöðu að þegar í vor yrði geng- ið tfl samningaviðræðna. Forsæti- sætisráðherra lagði áherslu á að menn hefðu viljað hafa aUa kosti í þyrlukaupunum á borðinu. Menn væru að tala um griðariega ijár- festingu og að væri ábyrgðarieysi að finna að því að menn vildu vanda vel tfl undirbúnings á slíkum kaupum, á tæki sem ætti að duga okkur lengL Til þyrlukaupa gengið Stjórnarandstæðingar voru mjög ósammála forsætisráðherra um gildi framvarpsins og haldfesti lagagreina þess. þótti svör forsæt- isráðherra ekki ljós eða fuUnæg- andi um hvort ráðist yrði í þyriu- kaup og hehnfld í fjáriögum notuð. Davíð Oddsson taldi sighafa svar- að skýrt. Efiaisatriði myndu liggja fyrir innan örfárra vikna og þá myndu menn ganga til viðræðna á þeim grundvelU sem þingið hefði þegar gefið en „ekki á grundveUi þessa vitlausa, marklausa frum- varps". Stjómarandstæðingum þótti enn eklri nægjalega skýrt svarað. Davíð Oddsyni var nokkur raun af „þessum skripaleik". Ríkis- stjómin myndi innan fárra vikna ganga til samninga um kaup á þyrlu. Þetta skfldu allir sem vildu fylgja þessu máli af einhverjum heflindum en ekki pólitískum skripaleik. Forsætisráðherra svar- aði varðandi notkun lántökuheim- fldar 6.13 í 6. grein Qárlaga. Þeg- ar gengið væri tfl samninga um kaup á þyriu án þess að veitt væri tfl þess flármunum á flárlögum; þá væra þeir með þeim hætti að nota þá heimfld sem þeir hefðu til að binda ríkisg'óð. Ingi Bjöm Albertsson (S-Rv) fagnaði yfiriýsingu forsætisráð- herra um að gengið yrði til samn- inga um kaup á björgunarþyriu og vænti þess að við það yrði staðið. Hann vildi hins vegar ekki taka undir það að flutningur þessa frumvarps og umræða hefði verið tímaeyðsla. Hann taldi að flutning- ur frumvarpsins hefði leitt til þess mikla sigurs sem nú væri að vinn- ast. Það hefði t.d. þrýst á um það að heimildargrein 6.23 var sett inn í fjáriögin. Nú væri ríkisstjómin ioks að iáta undan þrýstingi. Hann taldi þó nauðsynlegt að samþykja þetta frumvarp sem hér um ræddi; það myndi ekki gera neitt annað en styðja ríkisstjómina í viðleitni sinni tfl að Ieiða máUð tfl lykta. Guðmundur Hallvarðsson (S-Rv) fagnaði því að til þyriukaupa yrði gengið strax í vor. Guðmundur sagði að ýmis orð hefðu faUið í þessari umræðu sem kannski hefðu betur verið ósögð. Það skipti öllu að þyriukaupamálið næði fram að ganga. Með hvaða hætti sem það yrði. 2. umræðu varð lokið en at- kvæðagreiðslu frestað. Fiskeldisstefna verði mörkuð Þverpólitísk þingmannatillaga TÍU þingmenn úr öllum flokkum hafa Iagt fram þingsályktunartQ- lögu um rannsóknir á þróun fiskeldis á Islandi fram til aldamóta. Flutningsmenn segja að íslendingar verði að gera ráð fyrir að I framtíðinni muni þorskafurðir úr hefðbnndnnm sjávarútvegi lenda í samkeppni við hafbeitar- og/eða eldisþorsk á mörkuðum. Þess vegna sé nauðsynlegt að móta heildarstefnu í fiskeldi jafnhliða Ríksstjórn þæft óhóflega Við umræður í gær minnti Kristinn BL Gunnarsson (Ab-Vf), talsmaður meirihluta allshetjar- nefndar, á ályktun Alþingis frá 12. mars 1991: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjóminni að sjá til þess að á árinu 1991 verði gerður samn- ingur um kaup á fullkominni björg- unarþyrlu fyrir Landhelgisgæsl- una.“ Hann sagði að núverandi ríkisstjóm hefði dregið og þæft þetta mál. Þess vegna væri þetta frumvarp flutt. Ræðumaður vitn- aði mjög til margra áiyktana um að ráðist yrði í þyriukaup. Kristni var einkar ljúft að vitna tfl skrifa og ályktanna sjálfetæðismanna um þetta efiii. Ríkisstjórn skoðað vandlega Talsmaður minnihlutans og for- maður allsherjamefndar, Sólveig Péturdóttir, rakti í sinni ræðu nokkuð forsögu þessa máls og starf sérfræðinganefnda. Hún sagði Ijóst að mikil vinna hefði mótun sjávarútvegsstefnu. Tillaga tíumenninganna er sú að Alþingi álykti að „fela ríkis- stjóminni að gera áætlun um rann- sóknir og þróun fiskeldis á íslandi fram til aldamóta. Aætlunin skal taka til bæði eldis ferskvatnsfiska og sjávarfangs. Markmið áætlun- arinnar skal vera að móta stefnu þannig að fyrir aldamót verði ís- lendingar í fremstu röð þjóða hvað varðar þekkingu á eldi fiska og annars sjávarfangs". Fyrsti flutningsmaður tillögunn- ar er Jóhannes Geir Sigurgeirsson (F-Ne) en meðflutningsmenn era: Ingibjörg Pálmadóttir (F-Vl), Lára Margrét Ragnarsdóttir (S-Rv), Einar K. Guðfinnsson (S-Yf), Ragnar Amalds (Ab-Nv), Jóhann Ársælsson (Ab-Vl), Anna Ólafe- dóttir Bjömsson (SK-Rn), Kristín Ástgeirsdóttir (SK-Rv), ðssur Skarphéðinsson (A-Rv) og Rann- veig Guðmundsdóttir (A-Rn). I greinargerð með tfllögunni segir að framboð sjávarafúrða hafi á síðustu árum aukist vegna vax- andi framleiðslu eldisafurða og allt bendi til þess að vægi eldis muni aukast enn frekar á komandi árum. Það verih' að gera ráð fyrir að helstu fisk- og sjávardýrategundir í eldi muni verða þær sem þegar hafi fótfestu á mörkuðunum, þ. ám. nokkrir helstu nytjafiskar Islendinga. Það er flutningsmönnum tillög- unnar veralegt áhyggjuefni að: „Þróun fiskeldis á Isiandi er ekki í svipuðum takti og þróun eldis í þeim löndum sem við helst viljum bera okkur saman við. Ef svo held- ur sem horfir mun Island hverfa úr tölu þeirra þjóða sem teljast stórar á sviði sjávarafurða og verð og eftirspum á þeim afurðum, sem við framleiðum, fer að lúta öðram lögmálum en hingað tfl.“ Með greinargerðinni er birtur ýmis talnafróðleikur, þar kemur m.a. fram að á árabilinu 1970-90 hefur neysla sjávarfangs aukist úr rúmlega 40 milljónum tonna í rúm- lega 70 milljónir tonna. Af þessari aukningu má rekja um 9 milljónir tonna tfl aukins fiskeldis. Flutn- ingsmenn minna á að eldisfram- leiðsla hafi leitt tfl mikillar verð- lækkunar á Iaxamörkuðum. Aukið framboð á eldisrækju hafi einnig haft veruleg áhrif á markaðsverð okkar kaldsjávarrækju. Flutningsmenn benda á að verð á nýjum eldístegundum sé oftast hátt í byijun þegar framboð sé lít- ið en með aukinni framleiðsiu megi reikna með verðlækkun. Tfl að greiða niður dýran en nauðsynleg- an þróunarkostnað vegna upp- byggingar eldis nýrra tegunda sé nauðsynlegt að koma snemma inn í eldisferilinn eins og dæmið um íslenska laxeldið sýni. Mikilvægt sé að fylgjast vel með markaðsþró- un og stunda rannsóknir á nýjum tegundum tfl að geta hafíð eldi á heppilegum tíma með hliðsjón af stöðu markaða. Flutningsmenn segja að íslend- ingar verði að gera ráð fyrir að í framtíðinni muni þorskafurðir úr hefðbundnum sjávarútvegi lenda í samkeppni við hafbeitar- og/eða eldisþorsk á mörkuðum. Þess vegna sé nauðsynlegt að móta heildarstefnu í fiskeldi jafnhliða mótun sjávarútvegsstefnu. < í í í í í í i < €

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.