Morgunblaðið - 26.02.1993, Page 38
38
—
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1993
félk í
fréttum
STJÖRNUR
Evuklæðin heilla ekki
Madonna, bandaríska söngkonan, skipar efsta sætið á svonefndum
Blackwell-lista yfir verst klæddu konur heims í fyrra. Listinn
kemur nú út 33. árið í röð og þykir jafnan endurspegla góðan eða slæ-
man smekk í klæðaburði hjá fræga fólkinu. Nú eru það ekki fötin sem
komu Madonnu í efsta sætið, heldur fataleysið. Aðstandendur listans
sögðust hafa skipað henni í sætið vegna Evuklæðanna en kunnust
myndir af henni í fjölmiðlum í fyrra sýndu hana spranga um kviknakta
á götum Hollywood. Meðal annarra kvenna í efstu sætum listans eru
leikkonumar Geena Davis, Glenn Close, Goldie Hawn og írska söngkon-
an Sinead O’Connor. Aðstandendur Blackwell-Iistans hafa lengi sett
bandarískar forsetafrúr ofarlega á listann. í tilefni komu nýs forseta í
Hvíta húsinu sögðust þeir binda mikla vonir við nýju forsetafrúna, að
klæðaburður hennar yrði líflegri og meira heillandi en forvera hennar.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Þær voru að mæta á ballið, sem
haldið var á Hótel íslandi. F.v.
Ríkey Sævarsdóttir, Erna L.
Helgadóttir, Guðrún Ósk Krist-
insdóttir, Úlfhildur J. Þórarins-
dóttir og Anna Bjamadóttir.
Fínt kvöld, sögðu þeir Þorsteinn Bjarnason, Arnar Þór Sigurðar-
son og Karl Agúst Guðmundsson.
Frábærir
heilsárs
leðurjakkar
Gott verð
Sérsaumum
mokkajakka
Skinn-gallerí,
Laugavegí 66
sími 20301
ARSHATIÐ
Hundrað nemendur tóku
þátt í uppfærslu FB
rshátíð Fjölbrautaskólans í
• Breiðholti (FB) var haldin á
Hótel Islandi síðastliðinn þriðjudag.
Dagurinn var tekinn snemma hjá
flestum með því að fara í morgun-
partý. Eftir hádegi var haldið á
Hótel ísland, þar sem skemmtiatriði
fóru fram. Nemendur skólans settu
upp rúmlega klukkustundar langt
atriði, sem byggt var á kvikmynd-
inni The Commitments, en íslenska
hugmyndin fjallar um krakka í
Breiðholti sem stofna hljómsveitina
Ðí Commitments. Höfundar verks-
ins eru nemendurnir Ólafur Örn
Guðmundsson, Ragnar Þór Ingólfs-
son og Björn Ófeigsson.
Mikið var lagt í sýninguna og
tóku rúmlega 100 nemendur þátt í
henni, ýmist við leik-, dans- og
söngatriði, förðun og fleira. Þau
Eyjólfur Kristjánsson og Helena
Jónsdóttir aðstoðuðu nemendur við
uppfærsluna.
Að sögn Ragnars Þ. Ingólfssonar
formanns skemmtinefndar, sem
spilar einnig á trommur í hljóm-
sveitinni, hefur hljómsveitin vakið
mikla athygli og hefur hún verið
beðin að spila á næstunni á nokkr-
um skemmtistöðum, s.s. Hard Rock,
Gauk á Stöng og Ommu Lú.
Morgu nbl aðið/Þorkell
Ellefu manns eru í hljómsveitinni Ðí Commitments, en hér má sjá
f.v. Guðrúnu Ólu Jónsdóttur, Helenu Sif Þórðardóttur, Huldu Rós
Hákonardóttur og Bergsvein Arelíusson.
ÍÞRÓTTIR
Júdómeistarí 1 heim-
sókn í Ólafsvík
að var annasöm helgi hjá ung-
um júdómönnum í Ólafsvík,
þegar þjálfari íslenska landsliðsins,
Michal Vachun, heimsótti drengina.
Var æft í rúma tvo tíma, bæði á
laugardag og sunnudag, og sagðist
Michal mjög ánægður með hvernig
staðið væri að júdókennslu yngstu
nemendanna undir stjórn þjálfara
sveitarinnar, Kristjáns Hjelm.
„Það er bjart framundan hjá
júdódeild Víkings í Ólafsvík, ef rétt
verður staðið að málum í framtíð-
inni. Þetta eru sterkir drengir,"
sagði Michal í samtali við Morgun-
blaðið.
Drengirnir voru ánægðir með
komu þjálfarans og ýtti hún greini-
lega undir áhuga þeirra. Vonuðust
þeir til þess að Michal kæmi sem
oftast til Ólafsvíkur og kenndi þeim
eitthvað nýtt. Nú um helgina verður
afmælismót JSI og ætlar hin vaska
sveit Víkinganna að fjölmenna.
Morgunblaðið/Alfos
Michal Vachun þjálfari íslenska landsliðsins leiðbeinir hér hvernig
best er að bera sig að tæknilegum aðferðum. Áhuginn skín úr aug-
um júdómanna og fylgdust þeir með af mikilli innlifun.
COSPER
Þessar? þæ-æ-ær voru einu sinni með mér í hernum!