Morgunblaðið - 26.02.1993, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1993
HANDKNATTLEIKUR
íslendingar mæta Dönum í kvöld í Austurbergi
200. landsleik-
ur Sigurðar
Hann lékfyrsta landsleik sinn í Eyjum 1976 og þann
. hundraðasta í Reykjavík 1987, báða gegn Dönum
SIGURÐUR Sveinsson, hand-
knattleikskappinn kunni, leikur
tímamótaieik gegn Dönum í
Austurbergi kl. 20.30 í kvöld.
Þessi litríki leikmaður, sem hef-
ur svo oft skemmt handknattlei-
kunnendum, tryggir sér þá sæti
í „200 landsleikja klúbbnum" —
hann leikur 200. landsleik sinn
síðan hann var fyrst munstrað-
ur í landsliðsbúninginn fyrir
sautján árum; þá sem viðvan-
ingur í Vestmannaeyjum, þar
sem hann lék sinn fyrsta lands-
leik aðeins 17 ára gegn Dönum.
Danir hafa komið mikið við sögu
iijá honum, því þegar hann lék
sinn 100. landsleik, íLaugar-
dalshöllinni 1987, voru Danir
einnig mótherjar íslendinga. Og
500. landsliðsmark sitt gerði
Sigurður í Danmörku; gegn Hol-
lendingum á síðasta ári.
Sigurður er nú að leika sitt átj-
ánda ár með landsliðinu og
hefur enginn annar landsliðsmaður
verið svo lengi í eld-
Sigmundur Ó. IínunnL Yngstu leik'
Steinarsson mennirnir í lands-
skfifar liðshópnum nú voru
rétt að byija að
ganga þegar Sigurður tók sín fyrstu
skref með landsliðinu í Eyjum, 18.
desember 1976, en þá unnu Danir,
16:19. Með Sigurði lék þá annar
ungur leikmaður, sem var að leika
fjórða landsleik sinn. Það er Þor-
bergur Aðalsteinsson, sem nú er
landsliðsþjálfari, en hann lék sinn
síðasta landsleik fyrir fímm árum.
Aðrir sem léku þá með landsliðinu,
voru: Ólafur Benediktsson, Val,
Gunnar Einarsson, Haukum, Geir
Hallsteinsson, FH, Viðar Símonar-
son, FH, Þórarinn Ragnarsson, FH,
Viggó Sigurðsson, Víkingi, Agúst
Svavarsson, ÍR, Jón H. Karlsson,
Val, Ólafur Einarsson, FH og Björg-
vin Björgvinsson, Fram.
Níu af leikmönnunum sem léku
þá áttu eftir að fara í víking og leika
í útlöndum. Aðeins Viðar, Þórarinn
og Jón H. léku aldrei með erlendum
félagsliðum.
Sigurður, sem hefur leikið með
þremur íslenskum félagsliðum —
Þrótti, Val og Selfossi — lék með
fimm erlendum félagsliðum. Fyrst
með Olympía í Svíþjóð, en síðan með
Nettelstedt, Lemgo og Dortmund í
Þýskalandi og þá með Atletico
Madrid á Spáni.
Ekki þarf að fara mörgum orðum
um að Sigurður er einn allra vinsæl-
asti handknattleiksmaður íslands.
Handknattleiksunnendur hafa kunn-
að að meta léttleika hans innan og
utan leikvallar, en Sigurður vakti
© [jfi landsleíkja klúbburinn —1 —* Leikár A-landsleikir Leikir gegn úrvalsliðum SAMTALS
1. Geir Sveinsson 1984-1993 239 9 248
2. Kristián Arason 1980-1992 238 10 248
3. Þorqils Ó. Matthiesen 1981-1990 236 10 246
4. Jakob Siqurðsson 1983-1992 231 10 241
5. Einar Þorvarðarson 1980-1990 224 6 230
6. Guðmundur Guðmundsson 1980-1990 221 5 226
7. Siqurður Sveinsson 1976-1993 200 5 205
ungur mikla athygli fyrir skothörku,
hugmyndaflug í leik og þá hefur
hann verið þekktur fyrir frábærar
línusendingar. Hann hefur ekki að-
eins verið vinsæll á íslandi, heldur
var hann geysilega vinsæll í Þýska-
landi. Sigurður væri án efa búinn
að leika um 300 Iandsleiki ef hann
hefði ekki verið í ónáð hjá Bogdan
Kowalczyk, fyrrum landsliðsþjálf-
ara.
Sigurður er nú lykilmaður ísl-
enska landsliðsins, sem er að und-
irbúa sig fyrir heimsmeistarakeppn-
Siggi
Sveins
Þessi litríki og vin-
sæli handknattleiks-
maður lék fyrsta
landsleikinn fyrir 17
árum. Landsleikja-
ferill hans spannar
nú lengri tíma en
nokkurs annars ís-
lendings.
Sigurður Sveinsson
í sviðsljosinu í 18 ár
Leikur sinn 200. landsleik
gegn Dönum
Fyrsti leikurinn
gegn Dönum í
Vestmannaeyjum
1
1976
A-landsleikir
Gegn úrvalsliðum
15 100. landsleikurinn
gegn Dönum í
Reykjavík
1979 1980 1981 1982 1983 1984
1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993
ina í Svíþjóð. Sigurður sýndi hvað
hann var þýðingarmikill fyrir liðið í
B-keppninni í Austurríki í fyrra, en
þar átti hann einna mestan þátt í
að liðið er nú á leið til Svíþjóðar —
fór á kostum á þýðingarmiklum
stundum, en hann var aftur á móti
illa fjarri góðu gamni á Ólympíuleik-
unum í Barcelona. Komst ekki til
Barcelona vegna meiðsla.
Þegar Sigurður lék sinn 100.
landsleik — gegn Dönum 21. júní
1987, skoraði hann fimm mörk í sig-
urleik, 22:19, í Laugardalshöllinni.
Leiðir hann íslenska landsliðið til
sigurs í kvöld — í sínum 200. lands-
leik?
Þeip hala leikið lengst Leikár / Fjöldi ára
1. Sigurður Sveinsson 1976-1993 I 18
2. Hjalti Einarsson 1959-1974 / J 16
3. Bjarni Guðmundsson 1974-1987 l 14
4. Ólafur H. Jónsson 1968-1981 /i , 14
* 5. Alfreð Gíslason 1980-1993 | ; 14
6. Björgvin Björgvinsson 1968-1980 , í í \ 13
7. Geir Hallsteinsson 1966-1978 j Ju_ 13
8. Kristján Arason 1980-1992 Pfpj ITM 13
9. Sigurður Gunnarsson 1978-1900 71 13
10. Þorbergur Aðalsteinsson 1976-1988 y 13
11. Jón H. Magnússon 1966-1977 12
Rósmundur Jónsson lék einn landsleík 1963 sem útispilari, en 13 árum síðar (1975) lék hann sem markvörður.
Hákon fram-
kvæmdastjóri
Framkvæmdanefnd HM 95 opnar skrifstofu
FRAMKVÆMDANEFND HM 95 réð í gær Hákon Gunnarsson sem
framkvæmdastjóra nefndarinnar og opnaði skrifstofu í íþrótta-
miðstöðinni í Laugardal, en framkvæmd heimsmeistarakeppn-
innar í handknattleik á íslandi 1995 er sérstakt verkefni og óháð
annarri starfsemi Handknattleikssambandsins.
Eins og greint var frá
í blaðihu í gær sam-
þykkti borgarráð sam-
komulag á milli Reykja:
víkurborgar og HSÍ
vegna undirbúnings
HM 95, þar sem m.a.
er gert ráð fyrir að
borgin leggi fram 7,5
millj. kr. á næstu þrem-
ur árum vegna undir-
búnings og skipulagn-
ingar keppninnar, en
taki jafnframt þátt í að
kynna mótið erlendis og
styrki íslenska landsliðið til æfinga
í húsnæði borgarinnar næstu tvö
árin. -
Markús Öm Antonsson, borgar-
stjóri, og Jón Ásgeirsson, formaður
HSÍ, undirrituðu samninginn í gær.
Magnús Oddsson, formaður fram-
kvæmdanefndar HM 95, sagði að
Hákon Gunnarsson
það væri gífurlega mik-
ils virði að hafa Reykja-
víkurborg með í sam-
starfi. Ákveðið bakland
hefði vantað vegna
kynningarstarfsins, en
í krafti. stuðningsins og
samningsins hefði
skrifstofan verið opnuð
og framkvæmdastjóri
ráðinn.
Hákon er 33 ára
rekstrarhagfræðingur
og var m.a. fram-
kvæmdastjóri íslenskra
getrauna 1987 til 1991. Hann sagði
að fyrst á dagskrá væri að fylgjast
með framkvæmd HM í Svíþjóð og
vekja þar athygli á keppninni hér
á landi, en þegar væri byijað á
gerð stuttrar kynningarmyndar,
sem yrði sýnd við verðlaunaafhend-
inguna í Stokkhólmi.
■ GÚSTAF Bjamason gerði níu
mörk, þegar ísland lék síðast gegn
Dönum. Hann jafnaði 27:27
skömmu fyrir leikslok í desember
s.l. í Danmörku.
■ MICHAEL Fenger jafnaði,
16:16, á ævintýranlegan hátt eftir
hraðaupphlaup á lokasekúndunni,
er liðin mættust í B-keppninni í
Austurríki í fyrra.
■ FENGER hætti eftir það með
liðinu er nú kominn aftur á kreik.
Annar gamall „refur“ í liði Dana
sem leikur hér á landi er stórskyttan
Erik Veje Rasmussen. Hann á 223
landsleiki að baki en Fenger 226.
■ JÚLÍUS Jónasson gerði 11
mörk gegn Dönum í jafnteflisleik,
24:24, í Danmörku 1990.
I ÍSLAND sigraði Danmörku í
fyrsta sinn í Laugardalshöll 1968 —
15:10. Þetta var áttunda viðureign
þjóðanna í handknattleik og 48.
landsleikur íslands, en kvöldið áður
vann Danmörk 17:14.
Jón Iljaltalín, fyrrv. formaður HSÍ,
var þá með fimm mörk.
■ ISLENDINGAR unnu Dani
með 11 marka mun, 32:21, á Akra-
nesi 1981. Þorbergur Aðalsteins-
son gerði þá 7 mörk, en Sigurður
Sveinsson og Krislján Arason sín
6 mörkin hvor.
■ KRISTJÁN Arason skoraði 10
mörk í 21:20 sigri gegn Dönum í
Reykjavík 1988.
U ÞORBERGUR Aðalsteinsson
hefur stjórnað landsliðinu í sex leikj-
um gegn Dönum — einum sigurleik
(28:19), þremur jafnteflisleikjum og
tveimur tapleikjum.
■ GEIR Sveinsson lék fyrsta
landsleik sinn gegn Dönum — í
Finnlandi 1984.
■ ÍSLAND og Danmörk gera ráð
fyrir að mætast í milliriðli á HM í
Svíþjóð.
■ ANNAR landsleikur íslands var
gegn Danmörku í Kaupmanna-
höfn 1950. Danir unnu 20:6.