Morgunblaðið - 12.03.1993, Side 11
xrmHmmmsmmm
Björgvin Björgvinsson
Björgvin Björgvinsson: „Litbrigði 1“ (1990).
þyngri fyrir augað, en það kann
að breytast eftir því sem listamað-
urinn þróar þessi viðfangsefni
frekar.
Myndlist Björgvins telst varla
byltingarkennd, en hér er engu að
síður á ferðinni ánægjuleg sýning
á vandaðri myndlist og verður
áhugavert að sjá hvert hinar nýju
þreifíngar eiga eftir að bera lista-
manninn.
Sýningin á verkum Björgvins
Björgvinssonar í sýningarsalnum
Portinu við Strandgötu í Hafnar-
firði stendur til sunnudagsins 14.
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Um þessar mundir standa tvær
sýningar yfir í sýningarsalnum
Portinu við Strandgötu í Hafnar-
fírði. Sú stærri er sýning Björgvins
Björgvinssonar myndlistarmanns,
en nú er orðið nokkuð um liðið síð-
an hann hefur haldið sýningu hér
á landi.
Eftir listnám hér heima á átt-
unda áratugnum hélt Björgvin út
í heim og stundaði m.a. frekara
nám í London og í Belgrad. Hann
hefur síðan tekið sérstöku ástfóstri
við Finnland og settist þar að um
tíma. Flest verkin sem Björgvin
sýnir hér hefur hann unnið í Finn-
landi (m.a. í gestavinnustofum
Listamiðstöðvarinnar í Sveaborg) á
síðustu þremur árum.
Listamaðurinn er í verkum sín-
um á sýningunni einkum að fást
við efni, sem íöngu hefur unnið sér
sess í íslenskri myndlistarsögu, en
það er hið geometríska abstrakt,
sem var hér ríkjandi afl í myndlist-
inni á sjötta og fram á sjöunda
áratuginn. Myndfletirnir eru heil-
steyptir og formspilið er fremur
einfalt og þægilegt fyrir augað. I
ýmsum verkanna er það þó brotið
upp með eins konar gluggum, sem
breyta dýptarskyni verkanna og
tengja þau eins konar náttúrusýn,
sem þannig kemur oft fram í mik-
illi einföldun sem grunnur mynd-
efnisins.
Heildarsvipur sýningarinnar er
einkar tær. Litaval er takmarkað,
og eru bláir litir áberandi sem
grunnur og jafnvel birtugjafar ein-
stakra mynda; með þeim þarf að-
eins lítið af öðru til að myndirnar
nái sér á flug, eins og sést t.d. í
silkiþrykkinu „Litbrigði 1“ (nr. 4).
Olíumálverkin koma þessum tær-
leika einnig ágætlega til skila.
Þessi stöðuga glíma við mynd-
bygginguna er að sjálfsögðu meg-
inverkefni flestra myndlistar-
manna, en kemur sjaldan fram á
jafn hreinan hátt og í geometr-
íunni. í tveimur stórum verkum,
„Fjarlægð" (nr. 9) og „Breytilegt"
(nr.ll) hefur listamaðurinn sett
ýmis innskot, þar sem hin óreglu-
legri lína náttúrunnar brýtur upp
strangan svip heildarinnar; þannig
tekst ágætlega að tvinna saman
hina geometrísku línu og náttúru-
sýn.
Nýjustu verk Björgvins eru í
minni sal og þar getur m.a. að líta
léttan leik með formin í myndinni
„Flug“ (nr. 27). í öðrum verkum
er listamaðurinn kominn út á nokk-
uð ný svið; litfletir eru stærri og
áferðin leikur vaxandi hlutverk í
myndum. Þannig stráir Björgvin
sandi á fletina og höggmyndir
standa framan við verkin og mynda
með þeim eina sjónræna heild.
Þessi verk virka við fyrstu sýn
Willem
í hinum aðskilda sal Portsins í
Hafnarfírði stendur sýning hol-
lenska listamannsins Willem La-
beij á þrjátíu vatnslitamyndum,
sem hann vann hér á landi í upp-
hafí þessa árs.
Willem Labeij er fæddur í Rott-
erdam og hóf listnám sitt þar, en
var síðar í námi í listiðn í Eindhov-
en og loks í Jan van Eyck-aka-
demíunni í Maastricht 1972-75,
en þar hafa ýmsir íslenskir lista-
menn verið við nám. Hann hefur
dvalið hér á landi undanfarin þrjú
ár og m.a. haldið sýningar t Stykk-
ishólmi og á Siglufírði, en síðasta
sýningin var í Gallerí G 15 t
Reykjavík fyrir rúmum mánuði.
Labeij
Myndirnar á sýningunni hér eru
allar í sömu stærð og án titils og
settar upp á sama hátt í rýminu.
Þetta eru óhlutbundnar vatnslita-
myndir, sem hafa kviknað af
reynslu listamannsins af íslenskri
náttúru, eins og hann segir frá t'
lítilli sýningarskrá; sú sýn kemst
þó fremur óljóst til skila í myndun-
um sjálfum.
Svipur verkanna helgast nokkuð
af árstímanum; það er ákveðinn
drungi yftr þessum smáu myndum,
sem jafnvel litir gróðurs og birtu
ná ekki að lyfta. Hér kann sýning-
arstaðurinn að hafa nokkuð að
segja, en myndimar krefjast ná-
lægðar, sem ekki er hægt að upp-
lifa hér. Einnig er öll myndbygging
fremur þétt í fletinum og fátt um
fínlega drætti eða hreina liti, þann-
ig að þar er engin hvíld fyrir aug-
að. Það er helst í einfaldari mynd-
um, eins og t.d. nr. 8, sem mynd-
málið verður læsilegt. Eflaust ræð-
ur einnig nokkru hér, að vatnslitir
eru afar vandmeðfarinn miðill í
slíkum verkum.
Þessi sýning hefði væntanlega
tekist betur í minna sýningarrými
og færri og betur valin verk hefðu
að sama skapi eflt þá reynslu af
náttúrunni, sem listamaðurinn er
að leitast við að koma til skila.
Hér gengur dæmið ekki upp eins
og stefnt er að.
Sýningu Willem Labeij í sýning-
arsalnum Portinu lýkur sunnudag-
inn 14. mars.
Norræna húsið
Færeyskir dag-
ar 6.- 14. mars
FÖSTUDAGUR 12. MARS
Kl. 12.30: Sýning á heimildar-
myndunum Færeyjar og Þórshöfn
eftir Klaus Kicsewetter.
Kl. 14.00: Ferðaráð Þórshafnar
og Vestnorræna ferðanefndin
bjóða starsfólki ferðaskrifstofa og
öðrum sem hafa með ferðamál að
gera til ferðakynningar.
Kl. 19.00: Heðin Samuelsen,
formaður Ferðaráðs Færeyja,
heldur fyrirlesturinn: Að upplifa
Færeyjar og færeyska náttúru.
Kl. 20.30: Tónleikar vísna-
söngvarans Kára P. Aðgangur er
ókeypis.
------♦ ♦ ♦----
Tónleikar
í Víðistaða-
kirkju
Á MORGUN, laugardaginn 13.
mars, kl. 16.00, leika Lúðrasveit
Hafnarfjarðar, undir stjórn
Stefáns Ómars Jakobssonar, og
Lúðrasveit Akureyrar, undir
sljórn Atla Guðlaugssonar, á
tónleikum í Víðistaðakirkju.
Lúðrasveit Hafnafjarðar leikur
m.a. verk eftir Sam Rydberg, G.
Bassman, Adolf Vancura, Tomaso
Albinoni, George Gershwin, Franc
Ericson, J. Gade, en Lúðraveit
Akureyrar verk eftir J.S. Bach,
César Franck, Calvin Custer, Árna
Gunnlaugsson og Vilhjálm Guð-
jónsson. Saman munu sveitirnar
leika Syrpu úr verkum Giuseppes
Verdis, Trianon eftir Serge Lancen
og Gibraltar-mars eftir Patric Wil-
son.
■ ■ ■
Ensk leikgerð á verki / A
Moliére v (/ jfl
Leikarar: /
Ari Matthíasson, Edda Heiðrún Backman,
Ellert A. Ingimundarson, Guðmundur ,
Ólafsson, Guðrún Ásmundsdóttir, Helga f
Braga lónsdóttir, Ingrid (ónsdóttir, Pétur
Einarsson, Sigurður Karlsson, Steinn
Ármann Magnússon og Þröstur Leó 4»
Gunnarsson.
Þýðandi: Pétur Gunnarsson
Leikmynd: Stígur Steinþórsson
Búningar: Þórunn Sveinsdóttir
Tónlist: Ríkarður Örn Pálsson
Hreyfimyndir: Inga Lisa Middleton
Lýsing: Ögmundur Þór lóhannesson
Aðst.maður leikstjóra: Hafliði Arngrímsson
Leikstjóri: Þór Tulinius
FRUMSYNING I KVÖLD kl. 20, uppselt
2. sýning sunnudag 14. mars, grá kort gilda,
uppselt.
3. sýning fimmtudag 18. mars, rauð kort gilda
fáein sæti laus.
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
BORGARLEIKHÚSIÐ
Sími 680 680
-_______________________>íi
Operusmiðj-
an hlaut 2,3
millj. króna
Menntamálaráðuneytið hefur,
samkvæmt tillögu leiklistarráðs,
veitt eftirtöldum atvinnuleikhóp-
um styrki til leiklistarstarfsemi
á árinu 1993.
1) Óperusmiðjan, til að vinna að
uppsetningu á „Parcifal" eftir
Wagner, kr. 2.300.000, 2) Svölu-
leikhúsið, til uppsetningar á „Jörfa-
gleði“ eftir Auði Bjarnadóttur og
Hákon Leifsson, kr. 2.200.000, 3)
íslenska leikhúsið, til uppsetingar á
„Býr íslendingur hér“ eftir Garðar
Sverrisson í leikgerð Þórarins Ey-
ijörðs, kr. 1.700.000, 4) Augnablik,
til að vinna barnaleikritið „Júlía og
mánafólkið" eftir Friðrik Erlingsson
og Karl Aspelund, kr. 1.100.000,
5) Alþýðuleikhúsið, til starfsemi,
kr. 500.000.
Menntamálaráðuneytið mun gera
starfssamning til tveggja ára við
leikhúsið Frú Emilíu.
28 leikhópar sóttu um verkefna-
framlög, níu hópar sóttu um starfs-
samning. Til úthlutunar voru kr.
12.000.000.
(Fréttatilkynning)
Toyota Corolla XL 1600 liftback 16-V
’92, rauður, 5 g.t ek. aðeins 20 þ. V. 1.030
þ. Sk. ód.
Toyota Corolla XL '91, 5 dyra, rauður, 5
g., ek. 34 þ. Vökvast., central o.fl. V. 790
þ. Sk. ód.
' ■......' wm
Bílamarkaöunnn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut. J
Kopavogi, sími ♦Wl
B71800 ^
Range Rover 4 dyra ’85, hvítur, 5 g., ek.
aðeins 86 þ. V. 1.150 þ. Sk. ódýrari.
Ford Bronco Eddie Bauer ’87, blár, 5 g.,
ek. 52 þ. mílur. Álfelgur, rafm. í rúðum
o.fl. Toppeintak. V. 1090 b. Sk. ód.
Daihatsu Charade GTTI Turbo ’88, svart-
ur, 5 g. ek. 73 þ., álfelgur o.fl. V. 490 þ.
stgr.
Subaru 1800i GL station '87, blásans.,
sjálfsk., ek. 110 þ. Rafm. í rúðum o.fl.
Gott eintak. V. 690 þ. stgr.
Jeep Cherokee 2,5 L ’85, blár (tvílitur),
sjálfsk., ek. 82 þ. mílur. V. 890 þ. Skipti.
Góð vaxtalaus lán.
Daihatsu Charade TX '91, 5 .g., ek.
19 þ. V. 630 þ.
MMC Galant GLSi Super Saloon ’91,
sjálfsk. m/öllu, ek. 31 þ. V. 1.400 þús.
Sk. ód.
MMC Lancer GLX '88, sjálfsk., ek. 68 þ.
Rafm. í rúðum o.fl. Fallegurbfll. V. 550 þ.
Peugout 309 GL Profile ’91,5 dyra, rauð-
ur, 5 g., Gott ástand. V. 595 þ. stgr.
Ford Bronco 8 cyl. (302) ’74, sjálfsk.,
mikið endurnýjaður. Gott ástand. V. 480
þ. Góð lán.
MMC Lancer GLXi hlaðbakur ’92,
sjálfsk., ek. 13 þ. V. 1080 þ.
Seat ibiza 1200 '86, 3 dyra, 5 g., ek. 75
þ. Gott eintak. V. 160 þ. stgr.
Nissan Sunny SLX ’92, 3 dyra, 5 g., ek.
10 þ. V. 870 þ. stgr.
MMC Colt GLX '90, hvitur, 5 g., ek. 37
þ. Sem nýr. V. 780 þ.
Toyota Corolla XL Liftback '88, 5 g., ek.
70 þ. V. 650 þ. stgr.
Honda Civic DX '91,5 g. ek. 15 þ. V. 780
þ. stgr.
Opið sunnudaga kl. 14-16.