Morgunblaðið - 12.03.1993, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1993
Atviimulausum
fækkaði lítið í
síðasta mánuði
SKRAÐIR atvinnuleysisdagar í febrúarmánuði samsvara
því að um 6.200 manns hafi að meðtaltali verið atvinnulaus-
ir í mánuðinum. Er það 120 færra en í janúarmánuði en
2.700 fleiri en í febrúar á síðasta ári. Atvinnuleysi hefur
ávallt minnkað mikið í febrúar miðað við janúar en sú
þróun er öðruvísi nú því atvinnuleysi minnkar ekki að
marki í mánuðinum.
Alls voru skráðir 134 þúsund
atvinnuleysisdagar á landinu öllu
í febrúar, 73 þúsund hjá körlum
og tæpir 61 þúsund hjá konum.
Samsvarar þetta því að 3400 karl-
ar og 2800 konur hafi verið án
lega langverst á Suðumesjum
þrátt fyrir minnkun í febrúar.
Minnkaði atvinnuleysi í öllum
plássum Suðumesja nema í Kefla-
vík og Vogum.
Atvinnuleysi í des. til feb. 1993
Hlutfall atvinnulausra af heildarvinnuafli.
Á höfuðborgarsvæðinu standa
3.221 atvinnulausir á bak við
töluna 4,4% í febrúar og
fjölgaði um 256 frá því í ján.
Alls voru 6.174 atvinnu-
lausir á landinu öllu í
febrúar og hefur
fækkað um 123
fráþvífjan.
6,4% 6;5%
5,7%
LANDIÐ AU.T
5,0 5,0%
D J F
D J F
D J F
vinnu í mánuðinum. Þessar tölur
jafngilda tæplega 5% af áætluðum
mannafla á vinnumarkaði og skiþ-
ist þannig að atvinnuleysi meðal
kvenna er 5,4% og 4,6% hjá körl-
um.
Hugcið að húsakaupum
fyrir sendiráðið í London
Endumýjun lóðarleigusamnings sendiráðsins í 52 ár kostar um 63 millj. kr,
BRESKA ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp á breska þinginu um
breytingar á eignarlögum sem felur í sér að eigendur lóðarleigusamn-
inga í Bretlandi sem eru til lengri tíma en 20 ára, öðlast sjálfkrafa rétt
til að kaupa viðkomandi eignir í stað þess að framlengja samningana.
Ef af lögum verðiu- hafa þau áhrif á húsnæði íslenska sendiráðsins í
Lundúnum en það er í tveimur byggingum í hverfum sem eru í eigu
hertogans af Westminster.
Bolungarvík hækkar Vestfirði
Eins og áður er mesta atvinnu-
leysið meðal kvenna á Suðumesj-
um, 12,2%, en minnst hjá körlum
á Vestfjörðum, 1,9%. Atvinnuleys-
ið á höfuðborgarsvæðinu er 4,4%
en 5,7% á landsbyggðinni. Þróunin
er sú í megindráttum að atvinnu-
leysið á höfuðborgarsvæðinu fer
vaxandi en úr atvinnuleysi dregur
að sama skapi á landsbyggðinni.
Atvinnuleysi minnkaði verulega
í febrúar í öllum byggðarlögum
Vestfjarða nema Bolungarvík.
Aukningin í Bolungarvík gerði bet-
ur en að vega upp minnkun at-
vinnuleysis á hinum stöðunum.
Þess vegna koma Vestfirðir í Heild
út með aukið atvinnuleysi og er
það eina landsbyggðarkjördæmið
þar sem atvinnuleysi minnkar ekki.
Atvinnuástandið er þrátt fyrir
þetta jafn best á Vestfjörðum.
Atvinnuleysið er enn hlutfalls-
Kannað verður hvort borgi sig fyr-
ir íslensku utanríkisþjónustuna að
nýta sér rétt til að kaupa viðkomandi
eignir ef frumvarpið verður að lögum
eða hvort keypt verður nýtt húsnæði
fyrir sendiráðið að sögn Bjama Vest-
mann, upplýsingafulltrúa utanríkis-
ráðuneytisins. Hefur íslenski sendi-
herrann þegar hugað að möguleika
á slíkum kaupum. Endumýjun lóðar-
leigusamningsins við hertogann, sem
myndi gilda í 52 ár, er talinn kosta
um 63 millj. króna.
Byggingar íslenska sendiráðsins
vom keyptar árið 1962 á lóðarleigu-
kjöram sem veitir dvalarrétt í bygg-
ingunum í ákveðinn árafjölda. Lóðar-
leigusamningur sendiherrabústaðar-
ins, sem er í hverfinu Mayfair, renn-
ur út árið 2003 og lóðarleigusamning-
ur skrifstofu sendiráðsins, sem er í
hverfínu Belgravia, rennur út árið
2005.
Stærsti landeigandi i þessum
hverfum, sem eru meðal þeirra dýr-
ustu í Lundúnum, er hertoginn af
Westminster, Gerald Cavendish Gros-
venor. Hertoginn sagði sig úr íhalds-
flokknum vegna andstöðu við við þá
eignaupptöku sem hann telur að
framvarpið feli í sér.
Dýrt húsnæði
Helgi Ágústsson, sendiherra í
Lundúnum, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hann hefði kannað fyrir
tveimur árum hvað það myndi kosta
að endumýja lóðarleigusamninginn
um 52 ár og hafí sú upphæð numið
670 þúsund pundum, sem jafngildir
um 63 milljónum ísl. króna.
Núverandi hús sendiráðsins voru
keypt árið 1962 en Helgi sagði að á
síðasta ári hefði hann farið að huga
að kaupum á nýju húsnæði fyrir
sendiráðið á eignarlóð en engin
ákvörðun hefði þó enn verið tekin um
kaup. Sagði Helgi að allt húsnæði
væri dýrt í Lundúnum en fyrirhuguð
væri lagning jámbrautarlínu hjá
sendiherrabústaðnum.
Helgi sagðist ekki hafa lesið um-
rætt framvarp en hefði vitað um
undirbúning þess í nokkurn tíma og
sagði nokkuð ljóst að íslenska sendi-
ráðið félli undir lögin. Sagði hann að
búist væri við að framvarpið verði
samþykkt á þessu ári, þrátt fyrir
andstöðu innan íhaldsflokksins en
þingmenn Verkamannaflokksins
styðja frumvarpið.
>
)
|
)
I
AÐALFUNDUR
Olíuverzlunar Islands hf.
Aðalfundur Olíuverzlunar íslands hf.
fyrir rekstraráríð 1992, verður haldinn í
Víkingasal Hótels Loftleiða, föstudaginn
26. marsnk. kl. 16:00.
Dagskrá skv. 13. gr. samþykkta félagsins.
Ársreikningur félagsins oggögn vegna
fundar munu liggja frammi til sýnis á
skrifstofu félagsins að Héðinsgötu 10,
Reykjavík, 7 dögum fyrir fundinn.
Stjórn Olíuverzlunar íslands hf.
AF INNLENDUM
VETTVANGI
RAGNHILDUR SVERRISDÓTTIR
Hugmynd um hærri sjálfræðisaldur
Urræði vegna af-
brotaunglinga eða
skerðing á frelsi?
HÉR Á landi eru lög með þeim sérstaka hætti, að fólk verður
sjálfráða áður en það verður fjárráða og segja fróðir menn
að dæmi um slíkt ósamræmi sé vart að finna hjá öðrum þjóð-
um. Hugmyndir hafa komið upp um að færa sjálfræðisaldurinn
úr 16 árum í 18. Fréttir síðustu daga um málefni nokkurra
afbrotaunglinga hafa endurvakið þá umræðu og bent er á að
með slíkri breytingu verði heimilt að vista unglinga 16 ára
og eldri á sérstakri meðferðardeild. Hins vegar væri með því
verið að svipta þúsundir annarra unglinga frelsi til þess að
ráða dvalarstað sínum. Unglingar 16 og 17 ára gamlir eru nú
8.382, samkvæmt upplýsingum Hagstofu íslands.
Sjálfræði merkir að maður ráði
einn öðru en fé sínu, nema sjálfsafla-
fé og gjafafé, ef lög mæla ekki sér-
staklega fyrir á annan veg. í sjálf-
ræði felst því fyrst og fremst að
maður ræður persónulegum högum
sínum, til dæmis dvalarstað og
vinnu, en fram að 16 ára aldri ráða
foreldrar, eða aðrir sem hafa forsjá
barns, persónulegum högum þess.
Við 18 ára aldurinn bætist fjárræði
við sjálfræði og þar með er maðurinn
orðinn lögráða.
Lögræðislög endurskoðuð
Dómsmálaráðuneytið er nú að
endurskoða lögræðislögin og hefur
hugmyndin um hækkun sjálfræðis-
aldurs skotið upp kollinum, enda
helst sjálfræði og ijárræði yfírleitt í